Tíminn - 14.07.1990, Qupperneq 16

Tíminn - 14.07.1990, Qupperneq 16
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 Halnarhúsinu v/Tryggvagólu, S 28822 SAI L ÍBY SAMVINNUBANKINN I BYGGÐUM IANDSINS NÚTIMA FLUTNINGAR a NISSAIM Réttur bíll á réttum stað. HeSgasonM Sœvamöfda 2 Simi 91-674000 LONDON - NEW YORK - STOCKHOLM Kringlunni 8-12 Sími 689888 Kostnaður við mynd Hrafns Gunnlaugssonar, Hvíti víkingurinn, er áætlaður 320 milljónir: Tökur á Hvíta víkingnum eru að hefjast í Noregi Undirbúningur á töku nýjustu myndar Hrafns Gunnlaugsson- ar, Hvíti víkingurínn, er nú í full- um gangi í Hellesylt í Noregi, en myndin er aö verulegu leyti greidd af framlagi Norræna sjónvarpssjóðsins. Áætlað er að verkið í heild kosti um 320 millj- ónir ísl. króna. Gerð verður sjónvarpsmynd í flórum hlutum um hvrta víkinginn, en samhliða verður gerð bíómynd undir sama nafni. Hrafn Gunnlaugsson er þessa dag- ana önnum kafmn við æfingar með leikurum og geíur sér ekki tíma í að ræða við blaðamenn. Aðstoðar- maður Hrafns, Steve St. Peter, sagði í samtali við Tímann að æf- ingar með leikurum stæðu nú sem hæst og að bygging leiksviðsins hefði staðið yfir síðan í maí. Hann sagði Hrafn hefði unnið að hand- ritsgerð sjónvarpsþáttanna í um það bil þijú ár, eða allt ffá því að hugmyndin að þeim kviknaði. St. Peter sagði að myndin væri byggð á sögu Olafs Tryggvasonar Noregskonungs, en inn í hana flétt- uðust ýmsar sterkar sögupersónur Islendingasagnanna. „Þetta er mjög flókin saga að sumu leyti, en jafnframt er þetta mjög einföld ástarsaga tveggja ungmenna. Sagan er mjög falleg — um ást og strið,“ sagði St. Peter. Sagan gerist um árið 1000, og sýnir að miklu leyti kristnitöku á íslandi. Ein af persónunum í mynd- inni er Þorgeir Ljósvetningagoði, sá hinn sami og lagðist undir feld á Þingvöllum. St. Peter sagði að þeir myndu end- urskrifa suma af þessum fjórum sjónvarpsþáttum og taka upp á nýtt, svo að hægt yrði að stytta þá niður í venjulega kvikmyndalengd. Tökur myndarinnar fara ffam á tveimur stöðum í Noregi, í Helle- sylt og Hvaler, og er reiknað með að þeim ljúki þar í ágústlok. Þaðan er ferðinni heitið til Islands, en tök- ur hefjast hér 12. september og lýk- ur um miðjan október. Heiðmörk og Straumsvík verða meðal sögu- sviðs myndarinnar, en þessa dag- ana er verið að byggja leikmynd í Straumsvík. Eftir að kvikrnynda- tökum lýkur tekur við vinna í vinnsluveri í Noregi til nóvember- loka. Aætlað er að myndin verði sýnd í sjónvarpi í árslok 1991. Pétur Guðfmnsson, ffamkvæmda- stjóri Ríkissjónvarpsins, sagði að auk greiðslu ffá Norræna sjón- varpssjóðnum sem Islendingar eru ekki aðilar að, þá hlyti Hrafn styrk fimm sjónvarpsstöðva, þar á meðal Ríkissjónvarpsins, og er hlutur hverra um sig 15 milljónir ísl. króna. Pétur sagði að Ríkissjónvarpið ynni ýmsa verkþætti myndarinnar hérlendis sem verktaki. íslenskir leikarar starfa við myndina, og að- alútgáfa hennar verður á islensku. Hvíti víkingurinn verður sýndur á öllum norrænu sjónvarpsstöðvun- um, og er ráðgert að það verði í lok næsta árs. Þess má geta að Ágúst Guð- mundsson kvikmyndagerðarmaður hefúr fýrir allnokkru skrifað hand- rit að kvikmynd sem ber nafhið Krossinn. Sú mynd fjallar um kristnitökuna árið 1000 líkt og Hviti víkingurinn. Ágúst fékk á sínum tíma 10 milljóna króna ffamlag úr Kvikmyndasjóði til að gera myndina. Ágúst skilaði styrknum vegna að honum tókst ekki að fjármagna myndina, en tal- ið er að hún muni kosta vel á annað hundrað milljónir króna. -só/eó Nýr flötur á máli Krossaness Ákvarðanatöku varðandi málefni Krossanesverksmiðjunnar var frest- Tvær þyrlur í sama sjúkraflugi: Vinnuslys í Grundarfirði Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð í sjúkraflug til Grundarfjarðar á fimmtudagskvöldið til að sækja slasaðan mann. Maðurinn hafði lent í vinnuslysi á bænum Hvemár. Ekki vildi betur til en svo, að þegar þyrlan var nýlent á slysstað, sogaðist dót í spaða þyrlunnar og því þótti ekki ráðlegt að fljúga henni án athugunar. Kalla þurfti út þyrlu vamarliðsins, sem kom um einum og hálfum tíma síðar til Gmndarfjarðar og flutti manninn til Reykjavíkur. Þyrla Land- helgisgæslunnar reyndist hins vegar ekki vera biluð þegar að var gáð. -hs. Óljóst um eldsupptök Ekki er enn vitað um orsök eldsins i Breiðamerkurskóla s.l. fimmtudags- kvöld. Þá kom upp eldur í austurálmu skólans, þar sem er kennslulaug og búningsklefar. Ekki var um mikinn eld að ræða, en hins vegar lagði mik- inn reyk um skólann. Rannsókn stendur nú yfir. -hs. að á fúndi hluthafa í gær. Að sögn stjómarformanns verksmiðjunnar, Hólmsteins Hólmsteinssonar, mun hafa komið fram nýr og athyglis- verður möguleiki til úrlausna. „Þessi nýja hugmynd er það áhuga- verð að ákvörðun var tekin um að skoða málið nánar yfir helgina og halda siðan fund að morgni mánu- dags,“ sagði Hólmsteinn í samtali við Timann en vildi ekki greina frekar frá því hvað væri um að ræða. Eins og gert hafði verið ráð fyrir var starfsfólki skýrt frá stöðunni í gær. Á hvem veg sem málið snýst, er um töluverðar fjárhæðir að ræða fýrir bæjarfélagið sem einn aðal- hluthafa verksmiðjunnar. Sömu- leiðis verður tekin afstaða til tilboðs Síldarverksmiðja ríkisins og að öllu óbreyttu mun endanleg ákvörðun liggja fyrir strax eftir helgi. jkb Pönnukökubakstur á Landsmóti Það er Ómar Gunnarsson, HSÞ, sem hér handleikur pönnuna svona fagmannlega í keppni í pönnukökubakstri á Landsmóti ungmennafélaganna í Mosfellssveit. Þúsundir ungmennafélaga hafa streymt á mótssvæðið, en leikar standa hæst nú um helgina. Veðrið hefúr hins vegar verið hið leiðinlegasta, og í rok- inu í gær tókust tjöld á loft. Það skyldi þó ekki vera hægt að bæta fluglengd tjalda inn í keppnisskrána hjá þeim? Miklar eggjabirgðir Eggjabændur hafa áhyggur af því að eggjabirgðir í landinu hafa vaxið undanfarna mánuöt Ástæðurnar erum cinkuin þær að eggjaframleiðslan befur verið of mikil og einnig hitt að sala hcf- ur dregist saman. Hjá Framleiðsluriði landbúnað- arins fcngust þær upplýsingar að 1. maí í fyrra voru bírgðir af eggjum 22 tonn, en í. mai í ár eru birgðir orðnar 170 tonn. Þetta er mfkil aukning og hefur Félag eggjaframleiðenda haft af þessu töluvcrðar áhyggjur. Eiríkur Einarsson hjá Féiagi eggjaframleiðenda sagði í samtali við Tíraann, aö margt hefði haft áhrif á þessa uppsöfnun birgða. Einkum er þó um að kenna of mikilli framleiðslu og of litilli sölu. „Mér sýnist þessi þróun að dregur úr eggjaneysiu vera svip- uð hér á landi og i Evrópu yfir- lcitt. Hins vegar er erfitt að segja hvers vegna svo er,“ sagði Eirík- ur. Hann taldi þó ekki að i óefni stefni hjá eggjaframleiðendum, né að verð á eggjum myndi lækka. „Mér sýnist, að undanfar- ið hafi gcngiö á birgðirnar hjá þeim sem eiga mest til af eggj- um.“ Eirikur var spurður um hvort eggjaframleiðendur kæmu til með að óska eftir aðgerðum af hálfu Landbúnaöarráöuneytis- ins. „Ég á ekki von á þvL Við hðf- um hins vegar talið ástæðu til að benda á þetta, án þess að óskað sé eftir einhverjum ítrekuðum að- haldsaðgerðum. Við biðjum menn um að halda vöku sinni “ sagði Eirikur að lokum. -hs. Hafskipsmálið: Nýrsak- sóknari Dómsmálaráðherra, Óli Þ. Guð- bjartsson, hefúr skipað Pái Amór Pálsson til að gegna störfúm ríkissak- sóknara í málum er tengjast gjald- þroti Hafskips hf. Jafnframt hefúr Jónatan Þórmundsson verið leystur frá störfúm. Páll vildi ekki tjá sig um skipanina er Tíminn hafði samband við hann í gær. - hs.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.