Tíminn - 14.07.1990, Page 1

Tíminn - 14.07.1990, Page 1
Bessastaðaskólinn Saga Bessastaða á sér margar hliðar. Um aidir var staðurinn aðsetur umboðs- manna hins danska konungsvalds og því löngum lítt vinsæll af almenningi, sem þangað þurfti að sækja til þess að gegna vinnukvöðum fýrir hirðstjóra og höfuðsmann — og á Bessastöðum var þrælakistan og kóngsins jám. En saga staðarins á sér líka bjartari hliðar. Þar bjuggu skáldið Grímur Thomsen og stjómmálaskörungurínn Skúli Thorodd- sen og síðar ríkisstjórí vor og þá forseti. En sterkustum Ijóma stafar þó af skólan- um sem bjó að heiman þá Fjölnismenn og aðra öndvegismenn vora og átti að kennifeðrum menn á borð við Svein- bjöm Egilsson og Hallgrím Scheving. Hér sgjum við frá tildrögunum að stofn- un skólans, högum hans og starfshátt- um og vonum að margur þykist að fróð- arí. Fyrsti rektor Bessastaðaskóla. Steingrímur Jónsson, síðar biskup. Þegar Hólaskóli var sameinaður Hólavallarskóla, biskupsstóllinn á Hólum lagður niður og eignir hans boðnar til kaups að tillögu þeirra Magnúsar Stephensens og Vibes amtmanns árið 1801 var það ætlun þeirra Magnúsar að þar með yrði Hólavallaskóli endurbættur til stórra muna, enda var það ein höfúðrök- semdin i þessu máli að Hólavallar- skóli og Hólaskóli þyrftu gagngerðra endurbóta, með er trauðlega yrði ftam komið nema með þeim hætti að þeir væru sameinaðir. Eins og þá stóð hrukku tekjur Hólavallaskóla naum- lega fyrir þeim kostnaði er hér hvíldi á og var þó allt við neglur numið og algerlega vanrækt að halda skólahús- inu við. Hér þurfti að auka kennsluna til muna og stórbæta aðbúð nemenda og kennara. Líkt var ástatt um Hóla- skóla. Hér var um tvennt að velja: Búa áfram við tvo úrelta og ófull- komna skóla er engar horfúr voru á að bættir yrðu i náinni ffamtíð eða sameina þá og ffeista þess að koma upp einum góðum skóla í stað tveggja lélegra. Þetta var sjónarmið Magnúsar Stephensens og með nið- urlagningu Hólastóls og sölu stóls- eignanna mátti tryggt kalla að nægi- legt fé fengist til þess að kosta nýjan og góðan latinuskóla er svaraði kröf- um tímans. En þótt að þessu ráði væri þá þegar horfið lét stjómin sér hægt um ffekari ffamkvæmdir. Vildi hún fyrst sjá hversu gengi um sölu stóls- eignanna og eiga svo ekkert á hættu um kostnaðinn af nýskipan skóla- mála á íslandi. Raunasaga Leið svo nokkur tími að ekkert var aðhafst í þessu máli. Skólahúsið á Hólavelli reyndist illa og mörg voru bágindi þau sem skólapiltar þar urðu að sæta af þessum völdum. Sú rauna- saga byijaði snemma og varð því átakanlegri sem lengur leið. Upp úr aldamótum, er hárðna tók í ári, bætt- ist vistaskortur og hreint og beint hungur ofan á kuldann og dragsúginn í skólahúsinu er nú hrömaði æ meira. Reyndar var hvomgt þetta, sultur og vosbúð, nýtt í sögu Hólavallarskóla. Hvort tveggja hafði fylgt honum ffá upphafi. En nú keyrði úr öllu hófí. 7. apríl 1804 ritaði Geir biskup Vídalín settum stiftamtmanni, Ludvig Erich- sen, bréf um hagi skólans. Höfðu skólasveinar þá fyrir þremur dögum gert nokkra menn úr sínum hópi á fúnd biskups til þess að kæra neyð sína fyrir honum. Var þá svo ástatt á Hólavelli að um helmingur skólapilta var veikur af skyrbjúg, nokkrir þeirra rúmfastir, en hungursneyð yfirvof- andi sökum skorts. Var þetta sannað með nægum vottorðum. Af þessum orsökum fóm piltar þess á leit við biskup að þeim yrði sleppt úr skólan- um innan hálfs mánaðar. Stiffamt- maður svaraði bréfi þessu fáum dög- um síðar, féllst alveg á beiðni skóla- sveina og kvað tilmæli þessi koma sér síst á óvart og hefði hann séð þetta fyrir síðastliðið haust og talið þá álitamál hvort halda ætti skólan- um áffam, eins og þá var komið húsakynnum hans og horfúm um út- vegun matvæla. Þannig lauk skóla- haldi á Hólavelli. Verður því og trauðlega neitað að stiflsyfirvöldin höfðu á undanfömum ámm litlum umbótum ffam komið á högum skól- ans. En ríkisstjómin átti samt efalaust mesta sök á því hvemig komið var. I árslok 1803, þremur mánuðum áður en Hólavallarskóli valt um koll, hafði fjármálastjómin tekið við röskum 55 þús. rd. fýrir seldar eignir Hólaskóla. Skorti hana því ekki fé til þess að ráða bætur á vanhögum skólans, og er þetta glöggt dæmi um fúrðulegt hirðuleysi um hagi landsins sem rík- isstjómin sýndi reyndar hvað eftir annað á þessum ámm. Bráðabirgða- viðgerð á skólahúsinu á Hólavelli var talin kosta 700-800 rd. og hennar hafði verið æskt oflsinnis undanfarin ár. En slikt hafði engan árangur borið og ekkert um það hirt, þótt við borð lægi að skólinn legðist niður og land- ið yrði skólalaust um eitt ár eða tvö, eins og nú kom á daginn. Umkomu- leysi og vanmætti íslenskra stjóm- valda í þessu máli var hér reyndar vel við hæfi, því að þótt þau kynnu allvel að barma sér, vottar hvergi fyrir því að þau geri sér ljóst að þau áttu kröfú til þess, þjóðarinnar vegna, að nauð- synlegt fé væri fram lagt til viðhalds skólanum, áður en í fúllt öngþveiti var komið. Féð var hendi nær og það var í rauninni eign skólans. Enginn vissi þetta betur en sjálf stjómarvöld- in. Aform um nýtt fyrirkomulag skólans, er á orði var hafl, skipti hér engu máli. Slíkt heimilaði ekki nið- umíðslu gamla skólans og þrot hans löngu fyrr en þau áform væra búin til ffamkvæmdar. Nes, Viðey eða Bessastaðir Sumarið 1804 ákváðu stiftsyfirvöld að enginn skóli yrði haldinn næsta vetur 1804-1805. Kennslumála- stjómin í Kaupmannahöfn ákvað þó með bréfi til biskups og stiffamt- manns 18. sept. 1804 að veita þeim heimild til að taka á leigu hentugt húsnæði handa skólanum í Reykja- vík eða nágrenni hennar og yrði skól- inn haldinn þar til bráðabirgða, en ef þetta tækist ekki skyldi gera við skólahúsið, svo ffemi að það þætti ekki of kostnaðarsamt. Nú var bæði að ráðstöfún þessi var of seint ffam komin til þess að unnt væri að gera nokkuð að gagni í þessu efni fyrir þann vetur, er nú fór í hönd, enda málið örðugt viðfangs. í Reykjavík var ekki um að ræða annað húsnæði en fangahúsið og kom til mála að skipta um og flytja fangana á Hóla- völl, en að betur athuguðu máli þótti það ekki tiltækilegt, enda hneigðust flestir að því að flytja bæri skólann úr Reykjavík vegna dýrtíðar þar og óhagræðis um öflun vista og svo illra áhrifa af bæjarbrag þar á nemendur skólans. Komu því næst til greina Nes, Viðey og Bessastaðir. Viðey þótti álitlegust þessara staða en hún lá ekki laus fyrir. Nes kom naumast til greina og Bessastaðir þóttu við fyrsta álit hafa fátt að bjóða, er gott og hentugt skólasetur krafði, nema það helst að þeim var vel í sveit kom- ið. Að vísu var þar húsrými allmikið, en að sjálfsögðu miður hentugt og allmjög úr sér gengið. Stefán Þórar- insson, settur stiffamtmaður, hefði helst kosið að horfið væri að hinni gömlu hugmynd hans um tvo latínu- skóla, en hún fékk engan byr nú ffemur en fyrr. Niðurstaðan varð sú, að leggja til við stjómina að skólinn yrði til bráðabirgða fluttur að Bessa- stöðum. Fangahúsið ffremur en Bessastaði En hér stóð svo á að amtmaður í vesturamtinu, er við tók eftir ffáfall Skólinn að Bessastöðum átti aðeins að verða til bráðabirgða, en starfaði í fjörutíu ár. Þrátt fyrir að skipulag hans vœri á margan hátt úrelt stendur ekki meiri Ijómi af annarri menntastofnun í sögu landsins

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.