Tíminn - 21.07.1990, Qupperneq 6

Tíminn - 21.07.1990, Qupperneq 6
6 Tíminn Laugardagur 21. júlí 1990 TÍMINN MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarféiögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason Ritstjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm. Ingvar Glslason Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjóri: Birgir Guðmundsson Auglýsingastjóri: Steingrlmur Glslason Skrífstofur Lyngháls 9, 110 Reykjavík. Slml: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldslmar Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, Iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi h.f. Mánaðaráskrift kr. 1000,-, verð I lausasölu ( 90,- kr og 110,- kr. um helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 660,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Völd ráðherra Menntamálaráðherra hefur tekist að bjarga umtöl- uðu leyfisveitingamáli um uppgröft fomminja fyrir hom. Mál þetta er kunnugt af fréttum og er skýrt dæmi þess þegar minniháttar mál, eins og þama er um að ræða, er gert að stjómsýslu- og skriffmns- kuklúðri vegna ofstjómartilhneiginga í nefndum og ráðum og mislestri á lagabókstaf til þess að ná sínu fram. Mál þetta var ekki flóknara en svo, að bandarískur fomleifafræðingur, sem undanfarin ár hefur stundað fomleifarannsóknir hér á landi og stjómað í því sambandi hópi innlendra og erlendra sérfræðinga, sótti um leyfí til þess að mega halda áfram rann- sóknum sínum í sumar og ljúka þar með verki sínu hér á landi. Með nýjum þjóðminjalögum, sem afgreidd vom með hraði á síðustu dögum þings í vor, hafði verið búið til nýtt yfírstjómarbákn þjóðminjamála í líki tveggja ráða og nefnda, þjóðminjaráðs og fomleifa- nefndar, og svo óhönduglega frá orðalagi gengið að hvaða smámunaseggur með ofstjómarskap sem fyr- ir fyndist í þessum nefndum gat lesið út úr þeim það sem honum hentaði og gert að stórmáli það sem ekkert væri, eins og þrasgjömum mönnum er lagið. Menntamálaráðherra, Svavar Gestsson, hefur greinilega áttað sig á að andstöðumenn þess að bandaríski fomleifaffæðingurinn fengi endumýjað rannsóknaleyfí sitt höfðu skotið yfír markið. Ráð- herrann hefur nú veitt leyfið, og er það sérstaka mál þar með úr sögunni. Hins vegar verður ekki séð að skýringum á þjóð- minjalögum og leit að skilningi á ýmsum ákvæðum þeirra sé lokið. Þar er málum skotið á frest. Alþingi á að taka til nýrrar umræðu hvemig yfirstjóm þjóð- minjamála skuli vera, með það fyrir augum að yfír- stjóm og ákvarðanataka sé einfold og skilvirk. Eðli máls samkvæmt á yfirstjómin að vera í höndum ráð- herra og er það raunar eins og úrskurður ráðherra nú ber með sér. Ráðherra hefiir a.m.k. bjargað leyfís- veitingarmálinu ffá klúðri. Full ástæða er til að draga úr valdi þjóðminjaráðs og fomleifanefndar og sameina þessi stjómtæki sem ráðgefandi nefhd sem ráðherra styðst við ffemur en að hann láti hana segja sér fyrir verkum. Það er eng- inn greiði við lýðræðið að valdskerða ráðherra, því að ráðherra er bundinn af lögum og þekkir almennt best takmörk valdbeitingar og ber mesta ábyrgð gagnvart þjóð og löggjafarþingi. Lýðræðið batnar ekkert við það að skerða ráðherravöld, því einhvers staðar verður framkvæmdavaldið að vera. Að sjálf- sögðu getur ráðherra að vissu marki deilt völdum með ráðum og nefhdum, en það er óæskilegt að fela nefndum allt of víðtækt úrskurðarvald eða koma upp stjómtækjum þar sem þröngsýni eða yfirgangur ná að setja mark sitt á stjómvaldsákvarðanir. Al- mennt séð er ráðherrum best treystandi fyrir al- mannavaldinu. Skilningur á því er grundvöllur þess að hægt sé að ræða valddreifingu af einhverju viti. Mikael gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, fór með sigur af hólmi í at- kvæðagreiðslum á þingi Kommún- istaflokksins fyrr í þessum mánuði. Minnihlutahópamir á flokksþinginu hvort sem var undir forystu Ligat- sjovs, sem er trúr marx-leninisman- un, eða Jeltsins, sem telur þjóðfé- lagsbreytingar ganga of hægt, hrófl- uðu ekki við formlegri valdastöðu Gorbatsjovs í flokknum. Ekki ber heldur á öðru en að Gorbatsjov og hans menn fari með óskoruð völd á efstu stöðum í sovésku stjómkerfi inn á við og út á við. Málfrefsisbyfting Þrátt fyrir þá sterku stöðu sem sov- étforsetinn hefúr í stjómkerfi alríkis- ins og flokksveldinu er uppi virk andstaða við hvort tveggja: flokks- valdið og stjómkerfið. Svo augljóst sem það er að umbótahreyfing Gor- batsjovs hefúr gerbreytt sovésku stjómkerfi í lýðræðisátt, m.a. með stofnun fúlltrúaþings og ekki síður með formlegu afnámi flokkseinræð- isins, sem áður var óumdeild for- senda sovésks stjómskipulags, hafa vaxið upp pólitískar hreyfingar sem ekki láta sér þessar lýðræðisumbæt- ur nægja, heldur krefjast frekari breytinga og í sumum tilfellum alls annars eðlis en Gorbatsjov hefúr nokkru sinni látið sér detta í hug. Umbótahreyfing Gorbatsjovs stefn- ir í eðli sínu að bættu ffamleiðslu- kerfi og viðskiptaskipulagi: Hann vill fyrst og fremst bæta lífskjör og efnalega afkomu sovétþegna með af- kastameira ffamleiðslukerfi, meira vömúrvali og ffamboði neysluvöra. Hins vegar fólst annað og meira í umbótahreyfingunni en það eitt að koma á efnahagsumbótum, sem hafa reyndar setið á hakanum til þess. Umbótahreyfing Gorbatsjovs hefúr að svo komnu máli eingöngu birst sem lýðræðishreyfing. Forystu- mönnum þessarar hreyfingar, Gor- batsjovssinnum, var það áreiðanlega metnaðarmál að losa um höftin á lýðræðislegri starfsemi í Sovétríkj- unum, sem fyrst og fremst átti að koma fram í málfrelsi og öðra per- sónuffelsi sem verið hefúr í fjötram undir einræði kommúnismans frá upphafi. Umbótahreyfingin beittist einnig fyrir stjómkerfisbreytingum í lýðræðisátt, eins og fyrr er að vikið, sem miðuðu að því að draga úr al- veldi kommúnistaflokksins. Engum getur dulist að ávöxtur lýð- ræðishreyfingar Gorbatsjovs er mik- ill. Hins vegar þarf ekki að fara í grafgötur um að þessi „ávöxtur“ hef- ur í mörgu þroskast á annan hátt en umbótasinnamir ætluðust til. Það hefúr alltaf verið einhver landsföð- urlegur svipur á kerfisbreytingum Gorbatsjovs. Hann hefúr viljað stjóma þróuninni eftir sínu höfði og sennilega trúað því í upphafi að hann gæti ráðið umræðuefhum á almenn- um umræðuvettvangi, þ.e. látið um- ræður snúast um það áhugamál sitt að endurskipuleggja efnahags- og viðskiptamálin í þröngum skilningi þess orðs og fá menn til að fagna í ræðu og riti lýðræðisumbótum og stjómkerfisbreytingum að því marki sem hann og hans menn bára fyrir bijósti. En þróun málffelsisbyltingar Gor- batsjovs hefúr ekki hlítt svo einföld- um reglum. Meirihluti fólks víðast hvar um Sovétríkin hefúr vafalaust verið tilbúinn til þess að nota mál- ffelsið til þess eins að lofa ffum- kvöðul þess og lúta landföðurlegri stjóm hans um það hvaða málefni skyldu rædd í blöðurn og á mann- fúndum. En hafi fjöldinn hugsað þannig, er jafnvíst að aðrir gerðu það ekki. Gorbatsjov ræður því ekki, þegar á herðir, hvaða mál era tekin til umræðu meðal fólks og þaðan af síður hvaða stefnu slíkar umræður taka. Þótt Gorbatsjov sé áhrifamikill ræðuskörangur og vinni sigra á fúndum og þingum, þá hefur hann komist að því að hann getur ekki stýrt hugsun og tjáningu 300 millj- óna manna af ólíku þjóðemi og tungu, þegar þessi milljónahundrað loksins fá ffelsi til að tala. Rækilega hefúr komið í ljós að málffelsisbylt- ingin hefúr öðra ffemur leyst úr læð- ingi þjóðrækni minnihlutaþjóða og þjóðemis- og sjálfstæðisbaráttu margrá einstakra lýðvelda í Sovét- samveldinu. Ekkert af þessu var í huga Gorbatsjovs þegar hann hleypti umbótahreyfingunni af stað. Sjálfstæðisbarátta Hvergi hefúr það komið ffam að umbótasinnar í Kommúnistaflokki Sovétríkjanna hafi upphaflega stutt Gorbatsjov til valda til þess að vekja upp þjóðemiskröfur eða sjálfstæðis- baráttu innan Sovétríkjanna. Margt mun því koma flatt upp á þá af því sem gerst hefúr í þeim efnum síðustu mánuði og misseri. Síðast í þessari viku gerðist það að þing sovétlýð- veldisins Úkraínu, sem mun vera heimaland Gorbatsjovs sjálfs, lýsti yfir því að Úkraína væri sjálfstæð gagnvart sovétlögum, áskildi sér fúllveldisrétt, þótt engan veginn sé ljóst hvað felst í slíkum yfirlýsing- imi. Aður haföi sovétlýðveldið Rúss- land verið með svipaðar sjálfstæðis- eða fullveldisyfirlýsingar að fram- kvæði Jeltsins og reyndar fleiri af sovétlýðveldunum, þótt ekkert þeirra hafi gengið lengra en Litháen og að nokkra hin Eystrasaltsríkin tvö, Lett- land og Eistland, sem virðast stefna að sjálfstæði gagnvart Sovétríkjun- um til þess að öðlast fúllveldi í mál- um sínum. Nýlega var á ferð á íslandi eistnesk- ur ráðherra að nafni Endel Lippmaa. Hann kom hingað þeirra erinda að kynna íslenskum ráðamönnum ástand mála í heimalandi sínu og Eystrasaltslöndunum yfirleitt og leita stuðnings við sjálfstæðisbaráttu þeirra. Ráðherrann hélt blaðamanna- fund og kom fram í útvarpi og sjón- varpi, þar sem almenningi gafst tækifæri til þess að heyra mál hans. Eins og kunnugt er, er Eistland eitt 15 sovétlýðveldanna, hluti af því pólitíska efnahagsbandalagi sem Sovétsamveldið er, þar sem alríkis- valdið í Moskvu er allsráðandi í svo til öllum greinum þjóðfélagsvalds- ins. Samkvæmt stjórnarskrá Sovét- ríkjanna er ríkisvald einstakra lýð- velda svo takmarkað sem verða má. Ofan á það bætist síðan að efnahags- kerfi Sovétrikjanna er miðstýrt ffá Moskvu, auk þess sem Moskvuvald- ið getur ráðið fólksflutningum innan ríkjanna að vild og haft áhrif á hvemig þjóðemum er blandað í hveiju lýðveldi, svo að þrengt er að heimaþjóðinni um mál og menningu og pólitísk áhrif. Allt er þetta fyrir hendi í Eistlandi. Eistneska þjóðin er nánast eins og einn minnihlutanna í lýðveldinu og mun reyndar vera í minnihluta í sumum bæjarfélögum. Hvað stjómarfar og endurappbygg- ingu varðar er Eistland gersamlega innlimað í sovétkerfið og því ffemur sem iðnvæðing hefúr verið ör í land- inu og samtengd almennri iðnaðar- uppbyggingu Sovétrikjanna með til- heyrandi verkaskiptingu „á hag- kvæmnisgrandvelli“ sem kommún- isminn tileinkar sér ekki síður en kapitalisminn. Jafnvel þótt svona sé ástatt um eist- neskt þjóðfélag að þar er allt „sovét- iserað“, eða öllu heldur vegna þess að svo er, ber nú hæsj í stjómmálum í landinu kröfuna um að þjóðin öðlist þegar í stað sjálfstæði og fúllveldi. Eistneski ráðherrann, sem hér var á ferð, er fúlltrúi landsstjómarinnar, sem hefúr lýst yfir því að hún beijist fyrir fúllu sjálfstæði Eistlands. Hann hefúr kynnt málið rækilega hér á landi og vill fá Islendinga til þess að styðja sjálfstæðiskröfúr þjóðar sinn- ar. Enginn vafi er á því að Islending- ár eiga auðvelt með að skilja sjálf- stæðisþrá Eystrasaltsþjóðanna, því að hér á landi er allgóð þekking á því með hvaða hætti þessar þjóðir vora innlimaðar í Sovétríkin og hversu miklar ógnir hafa herjað á þessi lönd á síðustu áratugum. Örlög Eistlands Eistneski ráðherrann rifjaði upp söguna af því, hvemig Eistland varð háð Sovétríkjunum haustið 1939, sem endaði með því að landið var innlimað. Eistland var sjálfstætt riki 1939 og haföi verið u.þ.b. 20 ár, þeg- ar Hitler og Stalin gerðu með sér griðasáttmála sem fól það m.a. í sér að Eystrasaltslöndin skyldu tilheyra áhrifasvæði Sovétrikjanna. Sovét- menn létu ekki á sér standa heldur neyddu Eistlendinga samstundis til að heimila sovéska hersetu í landinu og gangast undir pólitískt áhrifavald Moskvustjómarinnar án þess að heita ætti að sjálfstæði landsins væri skert formlega fyrstu mánuði herset- unnar. En Sovétmenn fúndu tylli- ástæðu til að setja eistnesku stjómina af, komu upp leppstjóm sem gekkst fyrir því að stofnað var sovétlýðveldi sem sótti um aðild að Sovétríkjun- um. Þótt hlé yrði á yfirráðum Rússa í Eistlandi eftir innrás Þjóðveija 1941, féll landið Sovétrikjunum í hendur eftir að Þjóðveijar höfðu verið sigr- aðir. Þetta era alkunnar staðreyndir og augljóst að Eistlendingar vora inn- limaðir í Sovétrikin með nauðungar- aðferðum og gegn þjóðarvilja. Ekki er lengra síðan þetta gerðist en svo að það er í ljósu minni margra núlif- andi manna, m.a. á íslandi. Örlög Eistlands og annarra Eystrasalts- landa hafa síst farið framhjá íslend- ingum, því að okkur hefur fúndist að sitthvað væri líkt í sögu okkar og þeirra. Sérstaklega vora þær kyn- slóðir Islendinga sem liföu sig inn í sjálfstæðisbaráttuna gegn Dönum og vissu hvers virði fúllveldisviður- kenningin 1. desember 1918 var, meðvitaðir um sjálfstæðisvilja Eystrasaltsþjóðanna. íslendingum hefúr ætíð fiindist eins og allt bæri upp á sama daginn í sjálfstæðismál- um þeirra og Eystrasaltslandanna. Þótt samlíkingin um sögu og sjálf- stæði Islands og Eystrasaltslanda sé rétt að því er tekur til atburða eftir heimsstyrjöldina 1914-1918 og eigi sér nokkra hliðstæðu á millistríðsár- unum, nær hún raunar ekki öllu lengra. Þjóðarsaga íslendinga gegn- um aldimar markast vissulega af átökum við erlent vald og ýmiss konar yfirgang útlendinga, en allt slíkt bliknar í samanburði við óffels- is- og kúgunarsögu Eystrasaltsþjóð- anna, ekki síst Eistlendinga. Þróun- arsaga sjálfstæðra Eystrasaltsríkja eftir 1939 á ekkert skylt við það sem gerst hefúr á íslandi. Eystrasalts- þjóðimar hafa verið kúgaðar undir yfirráð Rússaveldis, fyrst með hrottalegum svikum af miðaldagerð, síðan reyrt stjómskipunar- og efha- hagslegum böndum sem enginn kann í rauninni leið til að leysa þeg- ar loks fer að rofa til í stjómmálum Moskvuvaldsins. Eystrasaltslöndin hafa verið innlimuð í heimsveldi og ríkjabandalag svo rækilega að þau geta sig ekki hreyft. ísland hefúr haldið sjálfstæði sínu og fúllveldi og ekki aðeins það, heldur víkkað það,

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.