Tíminn - 21.07.1990, Page 13
v, 1 Mug^rílgggr, 2,1. júll 1990
TírrHnn 21
JÍM ’Tk
rbvi\i\^g i Mnr
Vorhappdrætti Framsóknarflokksins
1990
Dregið var í vorhappdrætti Framsóknarflokksins 15. júní. Vinnings-
númer eru sem hér segir:
1. vinningur nr. 29352
2. vinningur nr. 14359
3. vinningur nr. 38822
4. vinningur nr. 8039
5. vinningur nr. 13391
6. vinningur nr. 33369
7. vinningur nr. 14360
8. vinningur nr. 14874
9. vinningur nr. 127
10. vinningur nr. 33064
11. vinningur nr. 2606
12. vinningur nr. 6749
13. vinningur nr. 17642
14. vinningur nr. 29032
15. vinningur nr. 13417
Ógreiddir miðar eru ógildir. Vinnings skal vitja innan árs frá úrdrætti.
Frekari upplýsingar eru veittar í síma 91-21379.
Framsóknarflokkurinn
Lokað vegna sumarleyfa
Skrifstofur Framsóknarflokksins að Nóatúni 21 verða lokaðar frá og
rmeð 2. júní 1990, vegna sumarleyfis starfsfólks.
Framsóknarflokkurinn.
Þing Sambands ungra
framsóknarmanna
verður haldið að Núpi í Dýrafirði dagana 31. ágúst til 2. september.
Hannes Karlsson hefur verið ráðinn starfsmaður SUF vegna þingsins
og er hægt að ná í hann hér á Tímanum í síma 686300 frá kl.
9.00-13.00.
Umboösmenn Tímans:
Kaupstaður Nafn umboðsmanns Heimili Slmi
HafnarQörður Ragnar Borgþórsson Holtagerði 28 45228
Kópavogur Linda Jónsdóttir Hamraborg 26 641195
Garðabær Ragnar Borgþórsson Holtagerði 28 45228
Keflavík Guðriður Waage Austurbraut 1 92-12883
Sandgerði Ingvi Jón Rafnsson Hólsgötu 23 92-37760
Njarðvfk Kristinn Ingimundarson Faxabraut 4 92-13826
Akranes Aðalheiöur Malmqvist Dalbraut 55 93-11261
Borgames Inga Björk Halldórsdóttir Kveldúlfsgötu 26 93-71740
Stykkishólmur Eria Lárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410
Ólafsvík Linda Stefánsdóttir Mýrarholti 6A 93-61269
GrundarQörður Anna Aðalsteinsdóttir Gmndargötu 15 93-86604
Helllssandur Ester Friðþjófsdóttir Háarifi 49 93-66629
Búðandalur Kristiana Guðmundsdóttir Búðarbraut 3 93-41447
ísaflörður Jens Markússon Hnlfsdalsvegi 10 94-3541
Bolungarvík Kristrún Benediktsdóttir Hafnargötu 115 94-7366
Hólmavík Elísabet Pálsdóttir Borgarbraut 5 95-3132
Hvammstangl Friðbjörn Nielsson Fífusundi 12 95-1485
Blönduós Snorri Bjarnason Urðarbraut 20 95-4581
Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut 27 95-4772
Sauðárkrókur Guðrún Kristófersdóttir Barmahllð 13 95-35311
Sigluflörður Sveinn Þorsteinsson Hlfðarvegi 46 96-71688
Akureyri Halldór Ingi Ásgeirsson Hamarsstlg 18 96-24275
skrifstofa Skipagötu 13 (austan) 96-27890
Svalbarðseyrí Þröstur Kolbeinsson Svalbarðseyri 96-25016
Húsavík Friðrik Sigurðsson Höfðatúni 4 96-41120
Ólafsfjörður Helga Jónsdóttir Hrannarbvaaö 8 96-62308
Raufarhöfn Sandra Ösp Gylfadóttir Aðalbraut 60 96-51258
Vopnaflörður Svanborg Víglundsdóttir Kolbeinsgötu 44 97-31289
Egilsstaðir Páll Pétursson Árskógum 13 97-1350
Seyðisflörður Margrét Vera Knútsdóttir Múlavegi 7 97-21136
Neskaupstaður Birkir Stefánsson Miðgarði 11 97-71841
Reyðargörður Ólöf Pálsdóttir Mánagötu 31 97-41167
EskiQötður Sigurbjörg Sigurðardóttir Ljósárbrekku 1 97-61191
Fáskrúðsflörður Guðbjörg H. Eyþórsdóttir Hllðargötu 4 97- 51299
Djúpivogur Jón Biörnsson Borgarlandi 21 97-88962
Höfn Skúli Isleifsson Hafnarbraut 16A 97-81796
Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Engjavegi 5 98-22317
Hveragerðl Lilja Haraldsdóttir Heiðarbrún 51 98-34389
Þoríákshöfn Þórdls Hannesdóttir Lyngbergi 13 98-33813
Eyrarbakki Þórir Eriingsson Túngötu 28 98-31198
Stokkseyri Kristrún Elvarsdóttir Garði 98-31302
Laugarvatn Halldór Benjamlnsson Flókalundi 98-61179
Hvolsvöllur Jónlna og Árný Jóna Króktúni 17 98-78335
Vík Ingi Már Björnsson Ránarbraut 9 98-71122
Vestmannaeyjar Marta Jónsdóttir Helgafellsbraut 29 98-12192
Garðsláttur
Tökum að okkur að slá garða.
Kantklippum og fjarlægjum heyið.
Komum, skoðum og gerum verðtilboð.
Afsláttur ef samið er fyrir sumarið.
Upplýsingar í síma 41224 eftir kl. 18.
Geymiö auglýsinguna!
AFMÆLI
Sjötugur 22. júlí 1990:
Pálmi Eyjólfsson
fulltrúi
Ef hægt er að tala um að persónur
séu vörumerki síns héraðs, þá á
Pálmi Eyjólfsson, fulltrúi á sýslu-
skrifstofunni á Hvolsvelli, þann titil í
Rangárþingi.
Flestir þekkja Pálma, eða kynnast
honum, sem hér koma við og fus er
hann að greiða götu fólks og sparar
þá hvorki tíma né fyrirhöfh. Jafn-
framt er Pálmi þjóðkunnur maður
fyrir kveðskap sinn, sem víða hefur
birst, ekki síst í Lesbók Morgun-
blaðsins.
Svona í upphafi aftnælisspjalls er
við hæfi að geta staðreynda um lífs-
hlaup afmælisbamsins.
Pálmi Eyjólfsson fæddist í Reykja-
vík 22/7 1920, ólst upp að miklu leyti
i Neðra-Dal, Vestur- Eyjafjalla-
hreppi, en fluttist 19 ára á Hvolsvöll
og er einn af ftumheijunum þar.
Nemandi í héraðsskólanum að Laug-
arvatni ‘37- ‘39. Vann ‘41-’46 hjá
Kaupfélagi Hallgeirseyjar, er síðar
varð Kaupfélag Rangæinga. Gerist
þá sýslufulltrúi 1. jan. ‘47 og er enn.
Formaður sóknamefndar Stórólfs-
hvolskirkju ‘54-’76 og lengi einnig
meðhjálpari, svo og formaður kirkju-
kórsins. Formaður Héraðsbókasafns
Rangæinga ‘55-’75. í byggingar-
nefnd Stórólfshvolsjarða ‘54-’89.
Sýslunefndarmaður ‘67-’89 er
nefndir vom aflagðar. Formaður nátt-
úruvemdamefndar sýslunnar frá ‘72
og er enn. I stjóm Kaupfélags Ran-
gæinga ‘77-’89, þar af formaður ‘82-
’89. I yfirkjörstjóm Suðurlandsum-
dæmis um langt árabil. Mikilvirkur
ljóðahöfundur og hefur einnig ritað
flölda greina í blöð og tímarit.
Hann giftist 20/4 Margréti J. ísleifs-
dóttur frá Miðkoti í Fljótshlíð og hef-
ur heimili þeirra staðið að Hvolsvegi
19 á Hvolsvelli. Þeim varð þriggja
bama auðið. Þau em:
Guðriður, skrifstofumaður, f. 5/3
‘45, gift Guðmundi Ingvari Guð-
mundssyni, stýrimanni. Þau eiga 2
böm.
Ingibjörg, hjúkmnarfræðingur og
forseti bæjarstjómar, f. 18/2 ‘49, gift
Haraldi Sturlaugssyni, útgerðar-
manni á Akranesi. Þau eiga fjóra
syni.
ísólfur Gylfi, sveitarstjóri á Hvols-
velli, f. 17/3 ‘54, giftur Steinunni
Ósk Kolbeinsdóttur, kennara. Þau
eiga fjögur böm.
Allir sem til þekkja em á einu máli
um að þau hjón eigi bamaláni að
fagna.
Mín fyrstu kynni af Pálma og hans
góðu konu Margréti urðu með þeim
hætti, að fyrir níu áram áttum við
hjón ferð um Hvolsvöll á leið okkar
austur til Haftiar í Homafirði. Við
vomm með komabam í bílnum og nú
þurfti smáaðstöðu til að sinna bam-
inu. Eg kom á sýsluskrifstofú og
spurði eftir sýslumanni. Hann hafði
þá bmgðið sér af bæ. Vafalaust hefúr
Pálmi séð á mér, að ég var í hálfgerð-
um vandræðum, enda næmur á baro-
metersstöðuna hjá fólki, því nú spyr
hann mig hvort ekki sé hægt að að-
stoða mig í fjarvem sýslumanns. Ég
stundi upp erindinu. Og viðbrögðin
ekki af verra taginu: við drifin heim
til þeirra hjóna í heimilishlýjuna sem
er einstök. Þar var nú allt til reiðu og
ekki um annað að tala en þiggja há-
degismat, eftir að bamið hafði fengið
sína aðhlynningu. Já, svona em þau
hjón Pálmi og Margrét. Gestrisin og
hjálpsemin eðlislæg og allt óþvingað.
Öllum líður vel i návist þessa fólks.
Á ámnum 1977-1985 átti ég oft leið
um á Hvolsvelli, kom þar á skrifstof-
una og spjallaði við fólk. Fór mér
sem trúlega fleirum er þar koma, að
ég tók strax eftir hlýju viðmóti og
prúðmannlegri framkomu, en ef til
vill fyrst og ffernst eftir hressilegu og
glaðbeittu fasi Pálma, sem var í for-
svari í afgreiðslu. Já, hann Pálmi gef-
ur sér tíma til að ræða við fólk, spyija
um menn og málefhi í þeirra sveit og
greina frá því sem markvert er í
Rangárþingi og ekki síst á Hvol-
svelli, sem verður stórborg athafna
og uppspretta góðra mála í frásögn
Pálma. Ég hef engum kynnst sem er
eins mikill og einlægur sonur síns
byggðarlags og vill því og vinnur
jafn vel eins og Pálmi Éyjólfsson ger-
ir.
Ríkir þættir 1 fari afmælisbamsins
em raunar glaðværð, góðvild og
bjartsýni — stundum eilítil ósk-
hyggja. Það er gott að víkja til hliðar
voli og vili og sjá til ffamfarabrautar,
barlómur skaðar einungis.
Þannig skipuðust málin á taflborði
lífsins, að við Pálmi urðum sam-
starfsmenn hér i sýsluskrifstofú
Rangárvallasýslu frá byijun janúar
1986.
Þá hafði Pálmi starfað í tæp 40 ár
við embættið og var þar eins og gild-
ur bóndi á bæjarhól; átti þetta allt,
þekkti málin og hafði leyst þau á eig-
in vísu, enda ekki um annað að ræða
oft á tíðum, m.a. vegna langrar dval-
ar sýslumanns á Alþingi.
Þeir Bjöm Fr. Bjömsson, fv. sýslu-
maður Rangæinga, og Pálmi vom
samverkamenn í 31 ár og þann tíma
oft tveir einir fastir starfsmenn,
a.m.k. tvo fyrstu áratugina. Er með
þeim félögum mikil og náin vinátta
og í raun er Bjöm eini húsbóndinn
sem Pálmi hefúr átt. Við hinir er síð-
ar komum höfúm orðið samverka-
menn og látið gott heita. Þetta má þó
ekki misskilja, því Pálmi er maður
húsbóndahollur og fer aldrei út fyrir
markaða braut. — Hann kann bara
betur við að velja vaðið sjálfur og er
maður til þess.
Eftir að hafa starfað hér á Hvolsvelli
á sýsluskrifstofúnni hef ég gert mér
grein fyrir húsandanum góða og þar
með einstakri samheldni og ein-
drægni allra starfsmanna til að vinna
saman og vinna vel. Þessi andi er til
orðinn fyrir góða kosti þeirra hjóna
Pálma Eyjólfssonar og Margrétar ís-
leifsdóttur. Fordæmi þeirra með
stundvísi, reglusemi og ábyrgð í
starfi hefúr verið leiðarljós annarra.
Fyrir þetta emm við öll, samverka-
fólk þeirra, þakklát og fæmm fram
okkar bestu óskir um framtíðar heill.
Lífshamingja Pálma á sinn grund-
völl í hjúskapnum með Margréti. Já,
hún Magga er einstök manneskja,
viðmótið hlýtt og ffamkoman fáguð;
það er beinlínis mannbætandi að um-
gangast þessa konu. Samstarf þeirra
hjóna á sýsluskrifstofúnni hefúr skil-
að góðum árangri.
Nú fer Pálmi að rifa seglin og varp-
ar af sér hversdags reiðingnum, en
starfstíminn verður orðinn æði langur
í þjónustu rikis og héraðs, eða 44 ár
við næstu áramót.
Ekki mun drengurinn sitja auðum
höndum, enda orkan mikil og heilsan
góð. Pálmi hefur tekið að sér ritun
sögu sýslunefndar og embættis og
hefst handa með vetumóttum.
Vonandi tekur hann einnig til við
ljóðin sin fallegu og mörgu, velur úr
og býr til prentunar.
Sýsluskrifstofan á Hvolsvelli fær
annað yfirbragð þegar hann Pálmi
lætur af störfúm — þó ávallt komi
maður í manns stað.
Samverkafólk þakkar löng kynni og
góð, minnist hláturs, hnyttiyrða og
jafnvel söngs, í lok vinnudags.
Við Ingunn sendum innilegar ham-
ingjuóskir á merkum tímamótum i
lífi Pálma Eyjólfssonar og fjölskyldu
hans.
Lifðu vel og lengi.
Friðjón Guðröðarson.
ISk Útsala
w®' Útsala
Britains landbúnaðarieikföng. Indíánatjöld. Fjarstýrðir bíl-
ar. Barbie leikföng. Fisher Price. Sandgröfur. Hjólaskaut-
ar. Sparkboltar. Legokubbar. Talstöðvar áður kr. 6.500 nú
kr. 4.500.
Sundlaugar
Rafhlöður
Stærð
152x25
183x38
224x46
Áður
kr. 1550
kr. 2489
kr. 3400
Nú
kr. 1200
kr. 1990
kr. 2700
Stór, áður kr. 59.- nú 12. stk. kr. 350.-
Mið, áður kr. 43.- nú 24 stk. kr. 480.-
Lítil, áður kr. 34.- nú 24 stk. kr. 350.-
10 — 20 — 50% afsláttur
Póstsendum
LEIKFANGAHÚSIÐ
Skólavörðustíg 8.
Sími14806