Tíminn - 21.07.1990, Page 15
» i i r \ \ < »..< ;» ■> v< ). i;s
Laugardaglir 21. júlí 1990
'i'.'I.Vi i «
Tíminn 23
Heimsleikar fatlaðra:
Annað gull Sigrúnar
Sigrún Pétursdóttir vann til gull-
verölauna í 50m bríngusundi á
heimsleikum fatlaðra í Assen í
Hollandi í gær. Hún synti á
1:10,13 mín.
Haukur Gunnarsson keppti í undan-
riðlum í 200m hlaupi og sigraði í sín-
um riðli á 26,26 sek. V- Þjóðverjinn
Peter Haber vann hinn riðilinn, hljóp
á 25,56 sek. Þeir keppa til úrslita á
sunnudag.
Kæra sú sem íslenska fararstjómin
Lilja María Snorradóttir vann til silfurveríauna í 100m bríngusundi í As-
sen í gær. Timamynd Öm.
lagði fram á fimmtudag var ekki tek-
in til greina. Sigurvegarinn i lOOm
hlaupinu var áðumefhdur Haber.
Hann hljóp á 12,05 sek. en Haukur á
12,06 sek. Mikill mótvindur var á
meðan á hlaupinu stóð. Þjóðveijinn
heldur því gullinu, en Haukur fær
silfrið.
í gær varð Lilja María Snorradóttir í
2. sæti í lOOm bringusundi er hún
synti á 1:11,96 mín.
Ólafur Eiríksson varð í 4. sæti í
lOOm skriðsundi á 1:02,91 mín. sem
er íslandsmet. Geir Sverrisson komst
ekki í úrslit í sama sundi. Þá keppti
Rut Sverrisdóttir í 200m flugsundi,
en komst ekki í úrslit. BL
Tour de France:
ítalinn fyrstur
Claudio Chiappucci frá Ítalíu hef-
ur enn forustu í Tour de France
hjóireiðakeppninni. Henni lýkur á
sunnudag. I gær var það landi hans
Guido Bontempi sem sigraði á 19.
sérieið keppninnar. :BL
Knattspyrna — Mjólkurbikarkeppnin:
Enn útileikur
hiá KR-inqum
í gær var dregið um hvaða lið
skuli leika saman í undanúrslit-
um Mjólkurbikarkeppninnar í
knattspyrnu, en þar leika Valur,
KR, Víkingur og Keflavik. Kefl-
víkingar komu fyrstir upp úr
mjólkurbrúsanum og andstæð-
ingar þeirra verða KR- ingar,
I Valsmenn fengu heitnaleik og
[ mæta þá Víkingum. Leildmir
fara fram miðvikudaginn 1. ág-
úst kl. 20.00.
Keflvíldngar komust áfram í
keppninni með því að sigra Sel-
fyssinga 3-2 i fjörugum leik í
Keflavík. Gestirnir komust yfir
með marki Guðjóns Þorvarðar-
sonar, en heimamenn svöruðu
með tveimur mörkum frá þeim
Óla Þór Magnússyni og Gesti
Gylfasyni. Júgóslavinn Dervic
jafnaði fyrir Selfyssinga, en
nokkrum minútum fyrir ieiks-
lok skoraði Jóhann Magnusson
sigurmark Keflvíkinga.
A Víkingsvelli unnu Víkingar
2-1 sigur á Stjömunni og gerði
Goran Micic bæði mörk VOdnga
í síðari hálfleik. Valdimar Kríst-
ófersson hafði náð forystunni
fyrir Stjörauna í fyrri hálfleik.
Valsmenn unnu ömggan 2-0 sig-
ur á Brviðabliki á Illiðarenda.
Sævar Jónsson skoraði glæsilegt
mark af löngu færí í fyrrí hálfleik,
en Ámundi Sigmundsson bætti
öðra marki við í síðari hálfleik.
KR-lngar unnu stærsta sigur í
Qórðungsúrslitunum er þeir
iögðu Skagamenn 3-0 að velli á
KR-velli. Mörkin gerðu þeir
Ragnar Margeirsson, Gunnar
Skúlason og Rúnar Kristinsson.
Úrslitaleikur Mjólkurbikar-
keppninnar verður á Laugar-
dalsvelli sunnudaginn 27. ágúst,
en undanúrslitin verða leikin 1.
ágúst eins og áður sagði.
Kaupfélag Héraðsbúa
býður ferðafólk velkomið á félags-
svæði sitt og veitir því þjónustu á:
EGILSSTÖÐUM:
Almenn sölubúð, þar fást flestar ferðavörur ásamt nauðsynja- og gjafavörum.
Söluskáli - Opinn til kl. 23.30 býður upp á brauð, mjólk, pylsur, ís, öl, sælgæti, tóbak
og ýmsar smávörur sem ferðalanga gæti vanhagað um.
ESSO-þjónustumiðstöð er selur bensín, olíur og ýmsar smávörur til bílsins.
Þvottaplan, tjaldstæði og snyrting.
BORGARFIRÐI EYSTRA:
Almenn sölubúð með allar nauðsynjavörur. ESSO-þjónustustöð.
SEYÐISFIRÐS:
Almenn sölubúð að Hafnargötu 28 (Þórshamar). Þar fást allar nauðsynja- og
ferðavörur.
REYÐARFIRÐI:
Almenn sölubúð er selur allar nauðsynjar og ferðavörur.
ESSO-þjónustumiðstöð með bensín, olíur og ýmsar smávörur fyrir bifreiðina.
VELKOMIN TIL AUSTURLANDS
KAUPFELAG HÉRAÐSBÚA
Egilsstöðum — Borgarfirði eystra — Seyðisfirði —
Reyðarfirði.