Tíminn - 21.07.1990, Blaðsíða 16

Tíminn - 21.07.1990, Blaðsíða 16
680001 —686300 RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Halnarhúsinu v/Tryggvagötu, S 28822 AKTU EKKI ÚT í ÓVISSUNA. AKTUÁ SUBARU Ingvar Helgason hf. Sævartiöffla 2 §[mi 91-674000_ . LONDON - NEW YORK - STOCKHOLM Kringlunni 8-12 Sími 689888 Tíminn LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ1990 Bréf fyrrverandi stjórnarformanns Arnarflugs til forsætisráðherra: Fjármálaráðherra kom bréfið ekki á óvart Fjármálaráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson, segir að ekkert í bréfi Harðar Einarssonar til forsætisráðherra hafi komið sér á óvart „Hörður hefur oft talað svona í samskiptum sínum við fjármálaráðuneytið á undanfömum misserum. Með bréfinu sýnir hann aðeins þjóðinni hvemig hann kýs að haga sínum málflutningi í viðræðum við opinbera aðila sem ég tel Amar- flugi ekki vera til framdráttar. Hörður er hins vegar hættur sem stjómarformaður og það segir nú sína sögu. Ég ætla ekk- ert að fjalla nánar um þetta en óska eftir því að nýir stjómar- menn tileinki sér þetta ekki sem fordæmi, heldur að við getum með eðlilegum hætti og í rólegheitunum rætt þessi mál“, sagði Ólafúr í samtali við Tímann. Varðandi ábendingu þess efh- is að á meðan skuldir Arnar- flugs við ríkið hefðu hækkað umtalsvert á meðan fjárhæð loforðs um niðurfellingu hefði staðið í stað sagði Ólafúr: „í þessu máli em spumingar um þær reglur sem venjulega gilda varðandi útgjöld og vaxtareikn- inga ríkis- og ríkisábyrgða- sjóðs. Það sem við höfúm sagt varðandi þetta, er að þær sömu reglur eigi að gilda um Amar- flug og aðra aðila. Ég ætla mér ekki út í neinar viðræður við Hörð Einarsson, ág taldi aðeins nauðsynlegt að leiðrétta rang- færslur hans“. jkb Bráðlega verður komið upp nýju kerfl búðarkassa í Miklagarði sem byggist á alíslenskum hugbúnaði. ÍSLENSKT HUG- VIT í KÖSSUM Innan tíðar verður tekið í notkun nýtt kerfi búðarkassa í Miklagarði sem byggir á alíslenskum hugbúnaði. Segir í fréttatilkynningu verslunar- innar að meginkostir nýju kassanna séu aukið öryggi, hraðari afgreiðsla og auknir möguleikar til fjölbreyttari þjónustu. Kassamir, sem um ræðir, eru af gerðinni IBM 4684 og þeir fyrstu verða teknir í notkun hinn fýrsta september. Hugbúnaðurinn er hönn- un Hugbúnaðar hf. í Kópavogi. Kass- amir, 53 talsins, lesa strikamerkingar og þar sem um nettengingu er að ræða verður birgðabókhald fært sam- stundis. Kassinn skráir allar aðgerðir starfsfólks, les greiðslukort og er hægt að gera upp á hvaða tíma sem er. Kerfinu fylgir hreyfanlegur skjár með stómm stöfúm og strimill gefúr sundurliðaðar upplýsingar varðandi virðisaukaskatt og greiðslukorta- númer svo dæmi sé tekið. Þá segir í tilkynningunni að kassam- ir auðveldi sérhönnun ýmissa tilboða verslunarinnar. Má sem dæmi taka afslátt boðinn ef keypt em tvö eintök sömu vöm, afslátt fýrir hundraðasta viðskiptavininn, hafa sérverð í gildi á ákveðnum timum dags o.s.frv. jkb Ný tannréttingareglugerð ókomin: Margir bíta á jaxlinn og bíöa Ragnar Magnús Traustason tannlæknir telur aö ekki hafí dreg- ið úr tannréttingum þrátt fýrir að heilbrigðisráðuneytið hafí ekki enn gefíð út reglugerð um endur- greiðslu Tryggingarstofnunar rík- isins vegna tannréttinga, en stofn- unin hætti endurgreiðslum til nýrra sjúklinga hinn 1. nóvember 1989. Ragnar Magnús sagði að ef bam væri með smávægilegt frávik í dag, og það kostaði ákveðna upphæð að láta gera við það, gæti sú upphæð tvö- eða þrefaldast ef beðið væri með réttinguna. Það gæti skipt miklu máli, sérstaklega þar sem nú væri liðið hálft ár frá því Tryggingastofhun hætti að endurgreiða tannréttingar. „Ef fólk sér fram á að hægt sé að gera þetta með litlum tilkostnaði núna, bæði peningalega og tímalega, fýrir bamið, fer það auðvitað af stað“, sagði Ragnar. Hann sagði þó að þetta hefði einhver áhrif á viðskipti tannlækna, og þá helst í stærri tilfellum, sem mættu bíða, en þetta hafi ekki komið beint niður á þeim. Á sjúkratryggingardeild Trygginga- stofhunar fengust þær upplýsingar að einungis sjúklingar með sérstaka sjúkdóma og fæðingargalla fengju greiddar bætur vegna tannaðgerða, og svo þeir sem hófu meðferð í tann- réttingum fýrir 1. nóvember sl. End- urgreiðsla fýrir tannréttingar er helm- ingurafkostnaði. Ragnar Magnús sagði að þeir tann- læknar, sem störfúðu við tannrétting- ar, hefðu í raun ekkert um þessa nýju reglugerð að segja, þetta væri mál sem væri algerlega milli sjúklingsins og Tryggingarstofnunar. Hann sagði að þess misskilnings gætti á Trygg- ingastofnun að það væm tannlæknar sem ættu að leysa þetta mál. „Við emm i raun bara verktakar fýr- ir fólkið og það fær síðan endurgreitt, en aftur á móti er það Trygginga- stofhun sem sér um endurgreiðsluna. Það er verið að hamra á því að við stöndum í veginum fýrir því að þeir setji einhveija reglugerð. Það er nátt- úmlega algjörlega út í hött“, sagði Ragnar. —só Kona föst í rullu Kona festist með handlegg i Kallað var eftir tækjabíl taurullu þegar hún var við slökkviliðsins til hjálpar, en vinnu sína á Hrafnistu í gær. þegar hann kom að var búið að Hún var að mata rulluna af losa konuna. Hún mun eitt- lökum, þegar svo illa vildi til að hvað hafa meiðst, sennilega handieggur konunnar fór með brotin, en betur fór en á horfð- tauinu í rulluna alveg upp að ist. olnboga, en þá stoppaði rullan. -hs.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.