Tíminn - 25.07.1990, Page 1

Tíminn - 25.07.1990, Page 1
Hvernig verður hægt aó hindra „höfrungahlaup“ víxlhækkana launa í kjölfar dómsnióurstööu Félagsdóms? Málió rætt í ríkisstjórn í dag: Eina hækkun BHMR á tíma þjóðarsáttar? Á ríkisstjómarfundi í dag verður rætt hvemig brugðist verði við dómi Félagsdóms um 4,5% hækkunina til BHMR. Samkvæmt heimild- um Tímans er líklegt að há- skólamönnum verði greidd út 4,5% hækkun en kjarasamn- ingnum jafnframt sagt upp og að hann verði laus 1. nóvem- ber nk. Framhaldið gæti orð- ið það að aðilar þjóðarsáttar; ASÍ og BSRB gerðu ekki kröfu til 4,5% hækkunar þeg- ar í stað. Þess í stað fái sam- böndin umsamdar launa- hækkanir í desember og mars nk. gegn því að tryggt verði að engar launahækk- anir verði í þjóðfélaginu um- fram það sem gert er ráð fýr- ir í þjóðarsáttarsamningum. • Blaðsíða 5 Lögreglunni I Reykjavík barst í gær beiðni um að blaðastandur fyrir utan Bókaverslun Sigfúsar Eymunds- sonar í Mjódd yrði fjarlægður. Ákærandi taldi að nokkur blaðanna á standinum brytu í bága við lög um sölu og dreifingu á klámi, enda gaf að líta á forsíðum þeirra naktar konur en þó í mismiklum mæli. „Það hefur aldrei verið kvartað yfir standinum áður og í honum eru engin blöð sem bannað er að selja," sagði versl- unarstjórinn af þessu tilefni. Lögreglan virtist sama sinnis og standurinn fékk að vera á sínum stað áfram. Tímamynd; Pjetur.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.