Tíminn - 27.07.1990, Page 2

Tíminn - 27.07.1990, Page 2
2 Tíminn Föstudagur 27. júlí 1990 viö Islandsstrendur. Timamynd: Pjotur. Björgun úr sjávarháska við Islandsstrendur: SVFI fær breska viðurkenningu Hér á landi er nú stödd kona aö nafni Marion Tansey. Tilefni komu hennartil íslands er aö nú eru 22 ár liðin síðan sá hörmu- legi atburður gerðist við ísafjarðardjúp að á réttum mánuði fórust þar þrír togarar frá Hull með samtals 58 mönnum. Einn af þess- um mönnum var bróðir Marion Tansey, en hann var aðeins um tvítugt er hann lést Marion er hér stödd ásamt vinkonu sinni Evelyn. Sl. mánudag og þriðju- dag voru þær á Isafirði og lagði frú Marion Tansey þá blómsveig á vota gröf bróður síns og félaga hans, sem fórust með togaranum Ross Cleve- land að kvöldi hins 4. feb. 1968. Þennan dag, 4 feb., gekk hið mesta aftakaveður yfir Vestfirði með óskaplegri veðurhæð, fannfergi og fimbulfrosti. Hull-togaranum Ross Cleveland hvolfdi vegna yfirisingar og var 19 manna áhöfn hans talin af. Daginn eftir fannst stýrimaður togar- ans á lífi. Hafði hann komist í gúmmíbát, sem rak að landi í botni Scyðisfjarðar. Tveir aðrir höfðu komist í bátinn með honum, en látist úr vosbúð. Sjóslys þessi, ekki sist Ross Cleve- land-slysið, vöktu mikla athygli í Englandi og reiði á útgerðarstöðum breskra togara. Ekkjur sjómannanna sem fórust á íslandsmiðum sátu fundi með fulltrúum togaraeigenda og ít- rekuðu að kröfur um að öryggisráð- stafanir yrðu hertar á togurum, sem sóttu á fjarlæg mið. Urðu þessir hörmulegu skipsskaðar til þess að sérstök eftirlitsskip voru send á ís- landsmið og tilkynningaskylda fyrir- skipuð á breskum togurum, sem veiðar stunduðu hér við land. Frú Marion Tansey færði forseta SVFI, Örlygi Hálfdánarsyni, viður- kenningu frá enskum sjómönnum fyrir björgunarstörf Islendinga árið 1968. -KMH Uppákoma framan við Háskólann nk. sunnudag: BÍLL KLESSUKEYRÐUR Mörgum svíður sjálfsagt að sjá dýran og vandaðan bíl eyðilagöan, en verknaðurinn hefur þó annan og æðri tilgang en bara að skemmta fólki. Á sunnudaginn kemur verður nýleg- ur Volvo 760 OLE eyðilagður á Sæ- mundargötu milli Hringbrautar og Norræna hússins. Það eru Volvo verksmiðjumar í Svíþjóð, Brimborg, umboðsaðili Volvo, Umferðarráð, lögreglan og fleiri sem standa fyrir atburðinum. Mörgum svíður sjálfsagt að horfa upp á að eyðilagður sé bíll sem kost- ar rúmar þijár milljónir króna nýr, en Volvo stendur fyrir tugum uppákoma af þessu tagi um allan heim á hveiju ári. Tilgangurinn er að vekja athygli á styrkleika og öryggi bílanna, vekja til umhugsunar um hveiju máli það skiptir að nota öryggisbelti. Jafn- ffarnt safnar bílaffamleiðandinn upp- lýsingum og gögnum sem að gagni koma i sjálffi bílaffamleiðslunni og endurbótum á öryggisþáttum bíl- anna. Áreksturinn fer þannig fram að bíln- um, sem verður fjarstýrt, verður ekið á fullu á sjö tonna þungan kubb úr stáli og steinsteypu. í bilnum verða tvær brúður sem í þyngd og við- brögðum svara til manna. í brúðun- um eru fjölmörg mælitæki, skynjarar og gagnageymslur, þannig að hægt er að meta nákvæmlega hvemig mann- eskja hefði farið út úr árekstrinum. Ein brúða af þessu tagi er mun dýrari en billinn og kostar um fimm millj- ónir króna. Áreksturinn verður ffamkvæmdur af sérfræðingum ffá Volvo undir stjóm hins gamalkunna kappaksturs- manns, Gunnar Andersson, sem hér var sl. vetur til að kynna ABS hemla- kerfi Volvo og til að kenna lögreglu- mönnum, ökukennumm o.fl. aksturs- tækni. —sá Nýjung hjá Kaupfélagi Borgfirðinga í Borgarnesi: Strikamerking hjá KB Bónus Um þessar mundir hefúr KB Bónus í Borgamesi starfað í eitt ár. KB Bón- us er afsláttarverslun með nauðsyn- legustu dagvörur til heimilisins, þar sem lögð er áhersla á lágt vömverð, staðgreiðsluviðskipti og takmarkað en hnitmiðað vöruval. Til að tryggja lægsta mögulega kaupverð er opnun- artími takmarkaður og þjónustu við viðskiptavini er haldið í lágmarki. Rekstur KB Bónus hefúr gengið mjög vel, salan hefur stöðugt verið að aukast og er nú komið að því að bæta þarf við starfsfólki eða gera aðrar ráðstafanir til að auka afköst og flýta afgreiðslu. Til að mæta þessu hefúr nú verið tekið í notkun nýtt afgreiðslukerfí í KB Bónus sem byggir á strikamerkj- um. Flýtir það vemlega fýrir af- greiðslu á kössum og eykur öryggi, þar sem handvirkur innsláttur á kassa hverfúr. Á verðmerkimiðum á hillum kemur ffam heiti vömnnar og einingarverð, ásamt viðmiðunarverði pr. kg. sem auðveldar viðskiptavinum að gera verðsamanburð. Á kassakvittun sem viðskiptavinurinn fær í hendur við kassann kemur einnig ffam heiti hverrar einstakrar vöm ásamt eining- arverði sem gerir viðskiptavinum auðvelt að fara nákvæmlega yfir hvað keypt hefúr verið og gera verð- samanburð. Þetta er fyrsta skref tölvuvæðingar í verslunum Kaupfélags Borgfirðinga og er sett upp til reynslu til að sjá hver ávinningur af slíku kerfi er. Sölukerfið í búðuiium verður síðan tengt beint aðalbókhaldskerfi félags- ins, þartnig að handvirk nótuskráning í reikningsviðskiptum og kortavið- skiptum fellur niður. Við það sparast mikil vinna og öll vinnsla við af- greiðslu og í bókhaldi verður fljót- virkari og öraggari. Tölvubúnaðurinn er af IBM gerð og hugbúnaður er keyptur af Sameind sem einnig hefúr séð um uppsetningu á kerfúnum. Oskar Gíslason látinn Látinn er i Reykjavík Óskar Gíslason, kvikmyndagerðarmaður. Óskar var fæddur 15. apríl 1901 í Reykjavík. Hann hóf nám í teikni- skóla Stefáns Eiríkssonar árið 1916 og sama ár nam hann ljósmyndun hjá Magnúsi Ólafssyni, ljósmynd- ara, en síðar hjá Ólafi syni hans. Óskar lauk prófi í ljósmyndun í Kaupmannahöfn 1921 og stofnaði ljósmyndastofú ásamt Þorleifi Þor- leifssyni eldra í Reykjavík ári síðar. Óskar rak síðar stofuna einn f all- mörg ár. Frá 1936 til 1940 vann Óskar á myndastofú Ólafs Magn- ússonar, veitti síðan myndastof- unni Týli forstöðu ffá 1940 til 1945 og skipulagði og veitti forstöðu fyrstu ljósmyndastofú sjónvarpsins frá 1966 til 1976. Árið 1940 hóf Óskar að starfa við kvikmyndagerð. Fyrsta kvikmynd- in sem hann sýndi opinberlega var Lýðveldishátíðarmyndin, sem var sýnd þremur dögum eftir hátíðina. Af öðmm kunnum myndum Ósk- ars má nefna Síðasta bæinn í daln- um, Björgunarafrekið við Látra- bjarg, Reykjavíkurævintýri Bakka- bræðra, Ágimd og Nýtt hlutverk. Óskar var stofhfélagi í Ljósmynd- arafélagi íslands 1926 og sat í stjóm þess í mörg ár. Hann varð síðar heiðursfélagi þess. Óskar var einnig heiðursfélagi í Félagi kvik- myndagerðarmanna og Slysa- vamafélagi íslands. Óskar hélt ljósmyndasýningu að Kjarvalsstöðum í júlí 1976. Nú ný- lega afhenti hann Ljósmyndasaftii Reykjavíkurborgar að gjöf fjölda mynda frá þriðja áratugnum. Öskar var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Edith Bech, ffá Færeyjum, sem hann kvæntist árið 1934. Þau skildu árið 1956. Óskar giftist Ingi- björgu Einarsdóttur (Ingu Lax- ness), leikkonu, í júlí 1960.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.