Tíminn - 27.07.1990, Qupperneq 2
2 Tíminn
Föstudagur 27. júlí 1990
viö Islandsstrendur.
Timamynd: Pjotur.
Björgun úr sjávarháska við Islandsstrendur:
SVFI fær breska
viðurkenningu
Hér á landi er nú stödd kona aö nafni Marion Tansey. Tilefni
komu hennartil íslands er aö nú eru 22 ár liðin síðan sá hörmu-
legi atburður gerðist við ísafjarðardjúp að á réttum mánuði fórust
þar þrír togarar frá Hull með samtals 58 mönnum. Einn af þess-
um mönnum var bróðir Marion Tansey, en hann var aðeins um
tvítugt er hann lést
Marion er hér stödd ásamt vinkonu
sinni Evelyn. Sl. mánudag og þriðju-
dag voru þær á Isafirði og lagði frú
Marion Tansey þá blómsveig á vota
gröf bróður síns og félaga hans, sem
fórust með togaranum Ross Cleve-
land að kvöldi hins 4. feb. 1968.
Þennan dag, 4 feb., gekk hið mesta
aftakaveður yfir Vestfirði með
óskaplegri veðurhæð, fannfergi og
fimbulfrosti. Hull-togaranum Ross
Cleveland hvolfdi vegna yfirisingar
og var 19 manna áhöfn hans talin af.
Daginn eftir fannst stýrimaður togar-
ans á lífi. Hafði hann komist í
gúmmíbát, sem rak að landi í botni
Scyðisfjarðar. Tveir aðrir höfðu
komist í bátinn með honum, en látist
úr vosbúð.
Sjóslys þessi, ekki sist Ross Cleve-
land-slysið, vöktu mikla athygli í
Englandi og reiði á útgerðarstöðum
breskra togara. Ekkjur sjómannanna
sem fórust á íslandsmiðum sátu fundi
með fulltrúum togaraeigenda og ít-
rekuðu að kröfur um að öryggisráð-
stafanir yrðu hertar á togurum, sem
sóttu á fjarlæg mið. Urðu þessir
hörmulegu skipsskaðar til þess að
sérstök eftirlitsskip voru send á ís-
landsmið og tilkynningaskylda fyrir-
skipuð á breskum togurum, sem
veiðar stunduðu hér við land.
Frú Marion Tansey færði forseta
SVFI, Örlygi Hálfdánarsyni, viður-
kenningu frá enskum sjómönnum
fyrir björgunarstörf Islendinga árið
1968. -KMH
Uppákoma framan við Háskólann nk. sunnudag:
BÍLL KLESSUKEYRÐUR
Mörgum svíður sjálfsagt að sjá dýran og vandaðan bíl eyðilagöan, en
verknaðurinn hefur þó annan og æðri tilgang en bara að skemmta fólki.
Á sunnudaginn kemur verður nýleg-
ur Volvo 760 OLE eyðilagður á Sæ-
mundargötu milli Hringbrautar og
Norræna hússins. Það eru Volvo
verksmiðjumar í Svíþjóð, Brimborg,
umboðsaðili Volvo, Umferðarráð,
lögreglan og fleiri sem standa fyrir
atburðinum.
Mörgum svíður sjálfsagt að horfa
upp á að eyðilagður sé bíll sem kost-
ar rúmar þijár milljónir króna nýr, en
Volvo stendur fyrir tugum uppákoma
af þessu tagi um allan heim á hveiju
ári. Tilgangurinn er að vekja athygli
á styrkleika og öryggi bílanna, vekja
til umhugsunar um hveiju máli það
skiptir að nota öryggisbelti. Jafn-
ffarnt safnar bílaffamleiðandinn upp-
lýsingum og gögnum sem að gagni
koma i sjálffi bílaffamleiðslunni og
endurbótum á öryggisþáttum bíl-
anna.
Áreksturinn fer þannig fram að bíln-
um, sem verður fjarstýrt, verður ekið
á fullu á sjö tonna þungan kubb úr
stáli og steinsteypu. í bilnum verða
tvær brúður sem í þyngd og við-
brögðum svara til manna. í brúðun-
um eru fjölmörg mælitæki, skynjarar
og gagnageymslur, þannig að hægt er
að meta nákvæmlega hvemig mann-
eskja hefði farið út úr árekstrinum.
Ein brúða af þessu tagi er mun dýrari
en billinn og kostar um fimm millj-
ónir króna.
Áreksturinn verður ffamkvæmdur
af sérfræðingum ffá Volvo undir
stjóm hins gamalkunna kappaksturs-
manns, Gunnar Andersson, sem hér
var sl. vetur til að kynna ABS hemla-
kerfi Volvo og til að kenna lögreglu-
mönnum, ökukennumm o.fl. aksturs-
tækni. —sá
Nýjung hjá Kaupfélagi Borgfirðinga
í Borgarnesi:
Strikamerking
hjá KB Bónus
Um þessar mundir hefúr KB Bónus
í Borgamesi starfað í eitt ár. KB Bón-
us er afsláttarverslun með nauðsyn-
legustu dagvörur til heimilisins, þar
sem lögð er áhersla á lágt vömverð,
staðgreiðsluviðskipti og takmarkað
en hnitmiðað vöruval. Til að tryggja
lægsta mögulega kaupverð er opnun-
artími takmarkaður og þjónustu við
viðskiptavini er haldið í lágmarki.
Rekstur KB Bónus hefúr gengið
mjög vel, salan hefur stöðugt verið að
aukast og er nú komið að því að bæta
þarf við starfsfólki eða gera aðrar
ráðstafanir til að auka afköst og flýta
afgreiðslu.
Til að mæta þessu hefúr nú verið
tekið í notkun nýtt afgreiðslukerfí í
KB Bónus sem byggir á strikamerkj-
um. Flýtir það vemlega fýrir af-
greiðslu á kössum og eykur öryggi,
þar sem handvirkur innsláttur á kassa
hverfúr.
Á verðmerkimiðum á hillum kemur
ffam heiti vömnnar og einingarverð,
ásamt viðmiðunarverði pr. kg. sem
auðveldar viðskiptavinum að gera
verðsamanburð. Á kassakvittun sem
viðskiptavinurinn fær í hendur við
kassann kemur einnig ffam heiti
hverrar einstakrar vöm ásamt eining-
arverði sem gerir viðskiptavinum
auðvelt að fara nákvæmlega yfir
hvað keypt hefúr verið og gera verð-
samanburð.
Þetta er fyrsta skref tölvuvæðingar í
verslunum Kaupfélags Borgfirðinga
og er sett upp til reynslu til að sjá
hver ávinningur af slíku kerfi er.
Sölukerfið í búðuiium verður síðan
tengt beint aðalbókhaldskerfi félags-
ins, þartnig að handvirk nótuskráning
í reikningsviðskiptum og kortavið-
skiptum fellur niður. Við það sparast
mikil vinna og öll vinnsla við af-
greiðslu og í bókhaldi verður fljót-
virkari og öraggari.
Tölvubúnaðurinn er af IBM gerð og
hugbúnaður er keyptur af Sameind
sem einnig hefúr séð um uppsetningu
á kerfúnum.
Oskar Gíslason látinn
Látinn er i Reykjavík Óskar
Gíslason, kvikmyndagerðarmaður.
Óskar var fæddur 15. apríl 1901 í
Reykjavík. Hann hóf nám í teikni-
skóla Stefáns Eiríkssonar árið 1916
og sama ár nam hann ljósmyndun
hjá Magnúsi Ólafssyni, ljósmynd-
ara, en síðar hjá Ólafi syni hans.
Óskar lauk prófi í ljósmyndun í
Kaupmannahöfn 1921 og stofnaði
ljósmyndastofú ásamt Þorleifi Þor-
leifssyni eldra í Reykjavík ári síðar.
Óskar rak síðar stofuna einn f all-
mörg ár. Frá 1936 til 1940 vann
Óskar á myndastofú Ólafs Magn-
ússonar, veitti síðan myndastof-
unni Týli forstöðu ffá 1940 til 1945
og skipulagði og veitti forstöðu
fyrstu ljósmyndastofú sjónvarpsins
frá 1966 til 1976.
Árið 1940 hóf Óskar að starfa við
kvikmyndagerð. Fyrsta kvikmynd-
in sem hann sýndi opinberlega var
Lýðveldishátíðarmyndin, sem var
sýnd þremur dögum eftir hátíðina.
Af öðmm kunnum myndum Ósk-
ars má nefna Síðasta bæinn í daln-
um, Björgunarafrekið við Látra-
bjarg, Reykjavíkurævintýri Bakka-
bræðra, Ágimd og Nýtt hlutverk.
Óskar var stofhfélagi í Ljósmynd-
arafélagi íslands 1926 og sat í
stjóm þess í mörg ár. Hann varð
síðar heiðursfélagi þess. Óskar var
einnig heiðursfélagi í Félagi kvik-
myndagerðarmanna og Slysa-
vamafélagi íslands.
Óskar hélt ljósmyndasýningu að
Kjarvalsstöðum í júlí 1976. Nú ný-
lega afhenti hann Ljósmyndasaftii
Reykjavíkurborgar að gjöf fjölda
mynda frá þriðja áratugnum.
Öskar var tvíkvæntur. Fyrri kona
hans var Edith Bech, ffá Færeyjum,
sem hann kvæntist árið 1934. Þau
skildu árið 1956. Óskar giftist Ingi-
björgu Einarsdóttur (Ingu Lax-
ness), leikkonu, í júlí 1960.