Tíminn - 27.07.1990, Síða 13

Tíminn - 27.07.1990, Síða 13
Föstudagur 27. júlí 1990 Tíminn 13 ra TrTi bVIMXð^ 1 M ni- REYKJAVÍK, |||l SUMARFERÐ IIM Hin árlega sumarferð Framsóknarfélaganna í Reykjavík verður farin laugardaginn 11. ágúst. Að þessu sinni verður farið á Snæfellsnes. Ferðatilhögun verður nánar auglýst síðar. Fulltrúaráðið. Vorhappdrætti Framsóknarflokksins 1990 Dregið var í vorhappdrætti Framsóknarflokksins 15. júní. Vinnings- númer eru sem hér segir: 1. vinningur nr. 29352 2. vinningur nr. 14359 3. vinningur nr. 38822 4. vinningur nr. 8039 5. vinningur nr. 13391 6. vinningur nr. 33369 7. vinningur nr. 14360 8. vinningur nr. 14874 9. vinningur nr. 127 10. vinningur nr. 33064 11. vinningur nr. 2606 12. vinningur nr. 6749 13. vinningur nr. 17642 14. vinningur nr. 29032 15. vinningur nr. 13417 Ógreiddir miðar eru ógildir. Vinnings skal vitja innan árs frá úrdrætti. Frekari upplýsingar eru veittar í síma 91-21379. Framsóknarflokkurinn Þing Sambands ungra framsóknarmanna verður haldið að Núpi í Dýrafirði dagana 31. ágúst til 2. september. Hannes Karlsson hefur verið ráðinn starfsmaður SUF vegna þingsins og er hægt að ná í hann hér á Tímanum í síma 686300 frá kl. 9.00-13.00. Héraðsmót framsóknarmanna í Vestur-Skaftafellssýslu verður haldið í Tunguseli ( Skaftártungu laugardaginn 28. júlí og hefst kl. 23. Hljómsveit Stefáns P. leikur. Framsóknarfélögin LEKUR : ER HEDDIÐ BLOKKIN? SPRUNCIÐ? viögeröir á öllum heddum og blokkum. Plönum hedd og blokkir — rennum ventla. Eigum oft skiptihedd í ýmsar gerðir bifreiöa. Viöhald og viögeröir á iðnaðarvélum — járnsmíöi. Vélsmiðja Hauks B. Guðjónssonar Súðarvogi 34, Kænuvogsmegin — Sími 84110 borðaði hollan mat. Hún vildi líta sem best út. Þessi söngkona, sem hneykslað hefur svo marga, ólst upp í Detroit þar sem mikið er um svertingja. ,^A.llir vinir mínir voru svartir og ég hlustaði mikið á þeirra tónlist. Ég hrífst af svertingjaröddum, sérstak- lega Prince og Ellu Fitzgerald,“ segir hún að lokum. Úr myndinni DickTracy. Hún mætti léttklædd á ffumsýn- inguna eins og sjá má. Madonna og kvennabósinn Warren Beatty? Ýmsar sögusagnir hafa verið á kreiki um að Madonna og leikarinn Warren Beatty eigi í ástarsambandi og hefúr jafnvel gifting verið nefnd. Nú nýlega mættu þau saman á frumsýninguna á myndinni Dick Tracy, í Washington. Þeirri mynd er spáð miklum vinsældum og segja sumir að hún eigi eftir að slá kvik- myndinni Batman við, hvað það snertir. Madonna vonast til að þetta sé hlutverkið sem eigi eftir að skjóta henni upp á stjömuhimin kvikmyndanna. I myndinni leika einnig þeir AI Pacino og Dustin Hoffman smáhlutverk. Madonna hitti Beatty fyrst á heim- ili hans árið 1985 á fýrsta stefhu- móti hennar og leikarans (og þá verðandi eiginmanni) Sean Penn. Madonna Louise Veronica, eins og hún heitir réttu nafni, er orðin 31 árs gömul. Hún er nú eins og áður sagði kennd við þann mann sem sagður er hafa sært flest kven- mannshjörtu í Hollywood. Beatty hefúr meðal annars verið með Brig- itte Bardot, Natalie Wood og Joan Collins. Öllum sögusögnum um ástarsam- band þeirra á milli vísar Madonna á bug. „Við erum aðeins góðir vinir sem skemmtum okkur vel saman. Ég hef aldrei einu sinni hugleitt það að giftast honum,“ segir hún. Mad- onna hefúr ekki gefið hjónaband upp á bátinn, þrátt fýrir að það síð- asta mislukkaðist. Einn daginn vonast hún til að eignast góðan eig- inmann og verða móðir. „Ég elska böm og ætla mér að eignast mörg þegar sá tími kemur.“ Madonna, sem segist vera mjög trúuð mann- eskja, tók það nærri sér að fólk skyldi hneykslast á myndbandinu Like a Prayer. „Fólk miskildi þetta allt,“ segir hún. Fyrir nýjustu hljómleikaferð sína, Blond Ambiti- on, þar sem hún kemur mjög létt- klædd fram, æfði hún mikla lík- amsrækt, drakk ekki áfengi og Madonna og Wairen Beatty ásamt ungum dreng sem leikur einnig í myndinni.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.