Tíminn - 27.07.1990, Page 15

Tíminn - 27.07.1990, Page 15
Föstudagur 27. júlí 1990 Tíminn 15 ÍÞRÓTTIR Friðarleikarnir — Frjálsar íþróttir: LEWIS VANN SITT FYRSTA FRIÐARGULL í LANGSTÖKKINU — hefur sigrað 64 sinnum í röð í langstökki Carl Lewis vann sín fyrstu gull- verðlaun á friðarleikunum í Seattle er hann sigraði i langstökkskeppn- inni í fyrrinótt. Lewis stökk 8,38m í sinni þriðju tilraun, en veður var svalt og hafði það sin áhrif. Mike Powell, landi Lewis, leiddi framan af með stökk uppá 8,34m, en hann gerði tvær síðustu tilraunir sínar ógildar og Lewis vann sitt íyrsta friðargull. í þriðja sæti varð Sovétmaðurinn Robert Emmiyan Cari Lewis vann sinn 64. sigur í röð í langstökki og hlaut sín fýrstu verð- laun á friðaríeikum. með 8,23m. Powell á besta árangur ársins í langstökki, 8,66m. Þetta var 64. sigur Carls Lewis í langstökki í röð, en kappinn var ekki hress með veðrið. „Það var mjög kalt og ég náði ekki að stökkva eins langt og ég get,“ sagði Lewis eftir sigurinn. Hvasst var og 15 stiga hiti á meðan á keppninni stóð, eða „íslenskt veður“. Hammou Boutayeb frá Marokkó reyndi að bæta heimsmetið i lO.OOOm hlaupi. Hann hljóp vel framan af en missti síðan niður hraðann og heimsmetið stóð óhagg- að eftir. Hann kom í mark á 27:26,43 mín. sem er besti tími sem náðst hefur í greininni í Bandaríkj- unum. Bandaríkjamaðurinn Dave John- son var 23 stigum á eftir landa sín- um Dan O’Brian, þegar síðasta grein tugþrautarkeppninnar hófst, en O’Brian hefði leitt keppnina frá upphafi. Johnson náði 3. sætinu í 1.500m hlaupinu, en O’Brian að- eins því 6. Johnson skaust þar með uppfyrir O’Brian og sigraði í tug- þrautarkeppninni með 8.403 stig. O’Brian varð annar með 8.358 stig og þriðji varð Sovétmaðurinn Mik- hail Medved með 8.330 stig. Heimsmethafmn Randy Bames vann léttan sigur i kúluvarpi er hann kastaði 21,44m í sinni fyrstu tilraun. Heimsmet Bames frá því í maí sl. er 23,12 m. Danetta Young frá Bandarikjunum sigraði í 200m hlaupi kvenna á 22,64 sek. en sovéska stúlkan Na- talya Artemova sigraði í 1.500m hlaupi á 4:09,48 mín. Þá unnu Shikolenko- systumar frá Sovétríkjunum tvöfaldan sigur í spjótkasti. Natalya sigraði með 61,62m en Tatyana kastaði 59,06. BL Knattspyrna-1. deild: Jón Erling gerði eina mark Fram í mjög slökum leik Framarar unnu sanngjaman sigur á Þórsurum 1-0 á Laug- ardalsvelli í gærkvöld í afar leiðinlegum leik. Fátt gladdi augað, lítið var um opin mark- tækifæri en sigur Fram verður þó að teljast mjög sanngjam. Sigurmarkið leit dagsins ljós á 14. mín. Jón Erling Ragnarsson skoraði af stuttu færi eftir homspymu Péturs Ormslev. Þórsumm hafði mistekist að hreinsa frá marki sínu og Framar- ar nýttu sér það. Stuttu síðar átti Pét- ur hættulegan skalla rétt ffamhjá marki Þórs. Eftir þennan kafla dofn- aði mjög yfir leiknum. Framarar sóttu þó mun meira en án þess að skapa sér færi. Þórsarar komust vart yfir miðju allan hálfleikinn. Síðari hálfleikur var afar slakur. Þórsarar sóttu nokkuð í upphafi og vom óheppnir að fá ekki vítaspymu á 53. mín. Bjami Sveinbjömsson var felldur í vítateig en Þórsarar fengu aðeins aukaspymu á vítateigslínunni. Siglingar: Jóhann sigraði í Faxaflóamótinu Tvö siglingamót fóru fram um síð- ustu helgi. Annað var Faxaflóamót- ið sem er liður í íslandsmóti kjöl- báta og er um 50 sjómflur að lengd. Hitt mótið var Síðsumarmót á op- timist bátum. Faxaflóamótið fór fram, eins og nafnið gefur til kynna, á Faxaflóanum, Síðsumar- mótið fór fram á Fossvogi. Úrslit urðu sem hér segir: Faxaflóamót 1. sæti Svalan, skipstjóri Jóhann 2. sæti. Dögun, skipstjóri Steinar Gunnarsson. 3. sæti Eva, skipstjóri Anton Jónsson. Síðsumarmót Drengir: 1. sæti Ragnar Már Steinsen Ými 2. sæti Friðrik Ottesen Siglunesi 3. sæti Ragnar Þórisson Siglunesi Stúlkur: 1. sæti Sigriður Ólafsdóttir Ými 2. sæti Hrönn HrafnkelsdóttirÝmi BL. Úr henni varð ekkert. Framarar tóku síðan aftur öll völd á vellinum en náðu ekki að bæta við fleiri mörkum. Undir lok leiksins átti Axel Vatnsdal hættulegt skot að marki Fram en Birkir varði vel. Jafnt í Eyjum KR-ingar misstu niður 2-0 forskot er þeir mættu ÍBV í Eyjum. Gunnar Skúlason og Ragnar Margeirsson skoruðu fyrir KR en Tómas Ingi Tómasson náði að jafna fyrir heima- menn með tveimur mörkum. FH sigur í Garðabæ Á Stjömuvelli unnu FH-ingar 1-0 sigur á Stjömunni. Það var marka- hrókurinn Hörður Magnússon sem gerði sigurmark Hafnfirðinga. í kvöld í kvöld era tveir leikir á dagskrá 1. deildar-Hörpudeildar. Á Víkingsvelli taka Víkingar á móti efsta liði deild- arinnar; Valsmönnum og á Akureyri leika íslandsmeistarar KA gegn Skagamönnum i miklum fallbaráttu- leik. BL Knattspyrna — Stúlkna: Úrslit Hnátumóts á Akranesi í dag Úrslitakeppni fyrsta Hnátumóts KSÍ fer ffam á Akranesi í dag, en þar leika í A, Breiðablik og KR til úrslita. Hnátumótið er ætlað stúlkum 12 ára og yngri. Tólf lið tóku þátt í riðla- keppni mótsins, en hún fór ffam 23.- 24. júní. Fyrmefnd Iið unnu sigur í sínum riðlum og leika því til úrslita í mótinu í dag. Kl. 15.00 leika ÍA-KR, kl. 16.10. UBK-ÍA og kl. 17.10 KR-UBK. Öll ffamkvæmd mótsins er í höndum ÍA og í mótslok mun Jón Gunnlaugsson, stjómarmaður í KSÍ, afhenda verð- laun. BL vertu í takt við Tírnami AUGLÝSINGAR 686300 Friðarleikarnir — Körfuknattleikur: Bandaríkin og Júgóslavía í undanúrslitin Bandaríkin og Júgóslavía tryggðu sér sætí í undanúrslitum körfuknattleikskeppni friðarleik- anna í Seattíe í fyrrinótt. I-Ieima- menn unnu stóran sigur á ítölum 113-76 og Júgóslavar sigruðu Spánverja 81-67. Sovétmenn, sem unnu Bandarík- in á þriðjudag, töpuðu fyrir Pu- erto Rico í fyrrinótt 84-99, en það kemur ekki að sök. Sovétmenn leika gegn Júgóslövum í undanúr- slitunum. Júgóslavar leika án sinna þríggja sterkustu manna, þeirra Drazen Petrovic, Vlave Di- vac og Dino Radja, en þeir munu koma aftur inní liðið fyrir heims- meistarakeppnina sem hefst i Argentínu í næsta mánuðL Brasilíumenn, sem mæta Banda- ríkjamönnuin i undanúrslitun- um, unnu Ástrali i fyrrinótt 101- 94. Undanúrslitaleikimir fara fram aðfaranótt laugardags. BL Knattspyrna: Drengjalandsliðiö á Norðurlandamót Norðurlandamót drengjalandsliða hefst í Vosa í Finnlandi á moigun. íslenska liðið mætir liðum ffá Finnlandi, Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Englandi og Frakklandi. Fyrsti leikur islenska liðs- ins verður gegn Englendingum á moig- un. Eftirtaldir drengir vora valdir til þátt- töku í mótinu, en þeir era 16 ára og yngri: Markverðir: Ámi Gautur Ámason ÍA Egill Þórisson Víkingi Aðrir leikmenn: Alffeð Karlsson ÍA Brynjólfur Sveinsson KA Einar Ámason KR Guðmundur Benediktsson Þór Gunnlaugur Jónsson ÍA Helgi Sigurðsson Víkingi Hrafnkell Kristinsson FH Jóhann Steinarsson ÍBK Jón Gunnar Gunnarsson FH Lúðvík Jónasson Stjömunni Orri Þórðarson FH Pálmi Haraldsson ÍA Sigurbjöm Hreiðarsson Dalvík Viðar Erlendsson Stjömunni BL AUGLÝSING UMINNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKlRTEINA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 10.000,00 1984-1. fl. 01.08.90-01.02.91 kr. 47.475,68 *lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs ferfram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, júlí 1990 SEÐLABANKIÍSLANDS

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.