Tíminn - 27.07.1990, Qupperneq 15
Föstudagur 27. júlí 1990
Tíminn 15
ÍÞRÓTTIR
Friðarleikarnir — Frjálsar íþróttir:
LEWIS VANN SITT
FYRSTA FRIÐARGULL
í LANGSTÖKKINU
— hefur sigrað 64 sinnum í röð í langstökki
Carl Lewis vann sín fyrstu gull-
verðlaun á friðarleikunum í Seattle
er hann sigraði i langstökkskeppn-
inni í fyrrinótt. Lewis stökk 8,38m í
sinni þriðju tilraun, en veður var
svalt og hafði það sin áhrif.
Mike Powell, landi Lewis, leiddi
framan af með stökk uppá 8,34m,
en hann gerði tvær síðustu tilraunir
sínar ógildar og Lewis vann sitt
íyrsta friðargull. í þriðja sæti varð
Sovétmaðurinn Robert Emmiyan
Cari Lewis vann sinn 64. sigur í röð í langstökki og hlaut sín fýrstu verð-
laun á friðaríeikum.
með 8,23m. Powell á besta árangur
ársins í langstökki, 8,66m.
Þetta var 64. sigur Carls Lewis í
langstökki í röð, en kappinn var
ekki hress með veðrið. „Það var
mjög kalt og ég náði ekki að
stökkva eins langt og ég get,“ sagði
Lewis eftir sigurinn. Hvasst var og
15 stiga hiti á meðan á keppninni
stóð, eða „íslenskt veður“.
Hammou Boutayeb frá Marokkó
reyndi að bæta heimsmetið i
lO.OOOm hlaupi. Hann hljóp vel
framan af en missti síðan niður
hraðann og heimsmetið stóð óhagg-
að eftir. Hann kom í mark á
27:26,43 mín. sem er besti tími sem
náðst hefur í greininni í Bandaríkj-
unum.
Bandaríkjamaðurinn Dave John-
son var 23 stigum á eftir landa sín-
um Dan O’Brian, þegar síðasta
grein tugþrautarkeppninnar hófst,
en O’Brian hefði leitt keppnina frá
upphafi. Johnson náði 3. sætinu í
1.500m hlaupinu, en O’Brian að-
eins því 6. Johnson skaust þar með
uppfyrir O’Brian og sigraði í tug-
þrautarkeppninni með 8.403 stig.
O’Brian varð annar með 8.358 stig
og þriðji varð Sovétmaðurinn Mik-
hail Medved með 8.330 stig.
Heimsmethafmn Randy Bames
vann léttan sigur i kúluvarpi er
hann kastaði 21,44m í sinni fyrstu
tilraun. Heimsmet Bames frá því í
maí sl. er 23,12 m.
Danetta Young frá Bandarikjunum
sigraði í 200m hlaupi kvenna á
22,64 sek. en sovéska stúlkan Na-
talya Artemova sigraði í 1.500m
hlaupi á 4:09,48 mín.
Þá unnu Shikolenko- systumar frá
Sovétríkjunum tvöfaldan sigur í
spjótkasti. Natalya sigraði með
61,62m en Tatyana kastaði 59,06.
BL
Knattspyrna-1. deild:
Jón Erling gerði
eina mark Fram í
mjög slökum leik
Framarar unnu sanngjaman
sigur á Þórsurum 1-0 á Laug-
ardalsvelli í gærkvöld í afar
leiðinlegum leik. Fátt gladdi
augað, lítið var um opin mark-
tækifæri en sigur Fram verður
þó að teljast mjög sanngjam.
Sigurmarkið leit dagsins ljós á 14.
mín. Jón Erling Ragnarsson skoraði
af stuttu færi eftir homspymu Péturs
Ormslev. Þórsumm hafði mistekist
að hreinsa frá marki sínu og Framar-
ar nýttu sér það. Stuttu síðar átti Pét-
ur hættulegan skalla rétt ffamhjá
marki Þórs. Eftir þennan kafla dofn-
aði mjög yfir leiknum. Framarar
sóttu þó mun meira en án þess að
skapa sér færi. Þórsarar komust vart
yfir miðju allan hálfleikinn.
Síðari hálfleikur var afar slakur.
Þórsarar sóttu nokkuð í upphafi og
vom óheppnir að fá ekki vítaspymu á
53. mín. Bjami Sveinbjömsson var
felldur í vítateig en Þórsarar fengu
aðeins aukaspymu á vítateigslínunni.
Siglingar:
Jóhann sigraði í
Faxaflóamótinu
Tvö siglingamót fóru fram um síð-
ustu helgi. Annað var Faxaflóamót-
ið sem er liður í íslandsmóti kjöl-
báta og er um 50 sjómflur að lengd.
Hitt mótið var Síðsumarmót á op-
timist bátum. Faxaflóamótið fór
fram, eins og nafnið gefur til
kynna, á Faxaflóanum, Síðsumar-
mótið fór fram á Fossvogi.
Úrslit urðu sem hér segir:
Faxaflóamót
1. sæti Svalan, skipstjóri Jóhann
2. sæti. Dögun, skipstjóri Steinar
Gunnarsson.
3. sæti Eva, skipstjóri Anton Jónsson.
Síðsumarmót
Drengir:
1. sæti Ragnar Már Steinsen Ými
2. sæti Friðrik Ottesen Siglunesi
3. sæti Ragnar Þórisson Siglunesi
Stúlkur:
1. sæti Sigriður Ólafsdóttir Ými
2. sæti Hrönn HrafnkelsdóttirÝmi
BL.
Úr henni varð ekkert. Framarar tóku
síðan aftur öll völd á vellinum en
náðu ekki að bæta við fleiri mörkum.
Undir lok leiksins átti Axel Vatnsdal
hættulegt skot að marki Fram en
Birkir varði vel.
Jafnt í Eyjum
KR-ingar misstu niður 2-0 forskot
er þeir mættu ÍBV í Eyjum. Gunnar
Skúlason og Ragnar Margeirsson
skoruðu fyrir KR en Tómas Ingi
Tómasson náði að jafna fyrir heima-
menn með tveimur mörkum.
FH sigur í Garðabæ
Á Stjömuvelli unnu FH-ingar 1-0
sigur á Stjömunni. Það var marka-
hrókurinn Hörður Magnússon sem
gerði sigurmark Hafnfirðinga.
í kvöld
í kvöld era tveir leikir á dagskrá 1.
deildar-Hörpudeildar. Á Víkingsvelli
taka Víkingar á móti efsta liði deild-
arinnar; Valsmönnum og á Akureyri
leika íslandsmeistarar KA gegn
Skagamönnum i miklum fallbaráttu-
leik.
BL
Knattspyrna — Stúlkna:
Úrslit Hnátumóts
á Akranesi í dag
Úrslitakeppni fyrsta Hnátumóts KSÍ
fer ffam á Akranesi í dag, en þar
leika í A, Breiðablik og KR til úrslita.
Hnátumótið er ætlað stúlkum 12 ára
og yngri. Tólf lið tóku þátt í riðla-
keppni mótsins, en hún fór ffam 23.-
24. júní. Fyrmefnd Iið unnu sigur í
sínum riðlum og leika því til úrslita í
mótinu í dag.
Kl. 15.00 leika ÍA-KR, kl. 16.10.
UBK-ÍA og kl. 17.10 KR-UBK. Öll
ffamkvæmd mótsins er í höndum ÍA
og í mótslok mun Jón Gunnlaugsson,
stjómarmaður í KSÍ, afhenda verð-
laun. BL
vertu í takt við
Tírnami
AUGLÝSINGAR 686300
Friðarleikarnir —
Körfuknattleikur:
Bandaríkin og
Júgóslavía í
undanúrslitin
Bandaríkin og Júgóslavía
tryggðu sér sætí í undanúrslitum
körfuknattleikskeppni friðarleik-
anna í Seattíe í fyrrinótt. I-Ieima-
menn unnu stóran sigur á ítölum
113-76 og Júgóslavar sigruðu
Spánverja 81-67.
Sovétmenn, sem unnu Bandarík-
in á þriðjudag, töpuðu fyrir Pu-
erto Rico í fyrrinótt 84-99, en það
kemur ekki að sök. Sovétmenn
leika gegn Júgóslövum í undanúr-
slitunum. Júgóslavar leika án
sinna þríggja sterkustu manna,
þeirra Drazen Petrovic, Vlave Di-
vac og Dino Radja, en þeir munu
koma aftur inní liðið fyrir heims-
meistarakeppnina sem hefst i
Argentínu í næsta mánuðL
Brasilíumenn, sem mæta Banda-
ríkjamönnuin i undanúrslitun-
um, unnu Ástrali i fyrrinótt 101-
94. Undanúrslitaleikimir fara
fram aðfaranótt laugardags. BL
Knattspyrna:
Drengjalandsliðiö
á Norðurlandamót
Norðurlandamót drengjalandsliða hefst
í Vosa í Finnlandi á moigun. íslenska
liðið mætir liðum ffá Finnlandi, Noregi,
Svíþjóð, Danmörku, Englandi og
Frakklandi. Fyrsti leikur islenska liðs-
ins verður gegn Englendingum á moig-
un.
Eftirtaldir drengir vora valdir til þátt-
töku í mótinu, en þeir era 16 ára og
yngri:
Markverðir:
Ámi Gautur Ámason ÍA
Egill Þórisson Víkingi
Aðrir leikmenn:
Alffeð Karlsson ÍA
Brynjólfur Sveinsson KA
Einar Ámason KR
Guðmundur Benediktsson Þór
Gunnlaugur Jónsson ÍA
Helgi Sigurðsson Víkingi
Hrafnkell Kristinsson FH
Jóhann Steinarsson ÍBK
Jón Gunnar Gunnarsson FH
Lúðvík Jónasson Stjömunni
Orri Þórðarson FH
Pálmi Haraldsson ÍA
Sigurbjöm Hreiðarsson Dalvík
Viðar Erlendsson Stjömunni
BL
AUGLÝSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKlRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 10.000,00
1984-1. fl. 01.08.90-01.02.91 kr. 47.475,68
*lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs ferfram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, júlí 1990
SEÐLABANKIÍSLANDS