Tíminn - 28.07.1990, Page 1

Tíminn - 28.07.1990, Page 1
7% minni sala en í fyrra, 46 þús. færri lömb snædd Ríkisstjórnin reynir samningaleiðina við BHMR. Lagði breytingartillögur við kjarasamning bandalagsins í gær: BHMR er ósátt við þjóðarsátt Fjármálaráðherra boðaði forystumenn BHMR á fund sinn og samninganefnd- ar ríkisins síðdegis í gær og tilkynnti ákvörðun ríkisstjómarinnar um að segja upp kjarasamningnum við BHMR. Jafnframt lagði ráðherra fram tilboö ríkisins um að frestað yrði 4,5% hækkun launa. Hækkunin yrði hins vegar greidd út í áföngum: 2% verði greidd út 1. desember en 2,5% 1. mars nk. Páll Halldórsson formaður BHMR sagði eftir fundinn að tilboðið fæli í sér launalækkun og á slíkt yrði ekki fallist. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra sagði í gær að næði ekki tilboð ríkisstjómarínnar fram að ganga yrðu bráðabirgðalög eina úr- ræðið. Málið er því enn í hnút og setn- ing bráðabirgðalaga liggur enn í loft- inu. • Blaðsíða 2 Lögreglan stöðvaði bíla við Lækjarbotna á Suðurlandsvegi í gær og afhenti bæklinginn Ferðafé- lagann auk þess sem böm í bílum fengu pakka með spilum og leikföngum til að stytta sér stund- imar í bílnum. Jafnframt buðu lögreglumenn til gríllveislu utan við veginn en þar stóðu félagar úr fþróttasambandi lögreglumanna og grilluðu lambakjöt í gríð og erg. Timamynd; Pjetur.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.