Tíminn - 28.07.1990, Blaðsíða 1
7% minni sala en í fyrra,
46 þús. færri lömb snædd
Ríkisstjórnin reynir samningaleiðina við BHMR. Lagði
breytingartillögur við kjarasamning bandalagsins í gær:
BHMR er ósátt
við þjóðarsátt
Fjármálaráðherra boðaði forystumenn
BHMR á fund sinn og samninganefnd-
ar ríkisins síðdegis í gær og tilkynnti
ákvörðun ríkisstjómarinnar um að
segja upp kjarasamningnum við
BHMR. Jafnframt lagði ráðherra fram
tilboö ríkisins um að frestað yrði 4,5%
hækkun launa. Hækkunin yrði hins
vegar greidd út í áföngum: 2% verði
greidd út 1. desember en 2,5% 1.
mars nk. Páll Halldórsson formaður
BHMR sagði eftir fundinn að tilboðið
fæli í sér launalækkun og á slíkt yrði
ekki fallist. Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra sagði í gær að næði
ekki tilboð ríkisstjómarínnar fram að
ganga yrðu bráðabirgðalög eina úr-
ræðið. Málið er því enn í hnút og setn-
ing bráðabirgðalaga liggur enn í loft-
inu.
• Blaðsíða 2
Lögreglan stöðvaði bíla við Lækjarbotna á Suðurlandsvegi í gær og afhenti bæklinginn Ferðafé-
lagann auk þess sem böm í bílum fengu pakka með spilum og leikföngum til að stytta sér stund-
imar í bílnum. Jafnframt buðu lögreglumenn til gríllveislu utan við veginn en þar stóðu félagar úr
fþróttasambandi lögreglumanna og grilluðu lambakjöt í gríð og erg.
Timamynd; Pjetur.