Tíminn - 28.07.1990, Side 2
2 Tíríilnn
báugardafcjur 28.‘jfflf 199Ö
ríkisins og BHMRog ieggurtii að:
4j5^) launahækkun
BHMR verði frestað
Ríkisstjómin hefur ákveðið að segja upp kjarasamningi ríkisins
og BHMR. Fjármálaráðherra og samninganefnd rfldsins boð-
uðu forsvarsmenn BHMR til fundar seinní partinn í gær og til-
kynntu þessa ákvðrðun ríkisstjómarinnar. Jafnframt iagði fjár-
málaráðherra fram breytingartillögur við kjarasamning banda-
lagsins og óskaði eftir tafarlausum viðræðum um nýjan kjara-
samning. Páll Halldórsson sagði um þetta tilboö
ríkisstjómarínnar að það fæli í sér launalækkun sem BHMR
myndi ekki semja um.
TUboð ríkisstjórnarinnar hljóð-
ar upp á það að 4,5% hækkuninni
sem Félagsdómur dænidí BHMR
verði frestað. Lagt er til að hsekk-
unin greiðist í áföngum þannig að
2% komi tii framkvæmda 1. des-
ember n.k. og 2,5% 1. mars á
næsta ári. Við þetta bætist siðan
2% faækkun 1. júní 1991. Þá er
ennfremur lagt tU að 15. grein
samningsins verði feUd niður og
þess í stað njóti BHMR sambæri-
legrar kauptryggingar og er að
flnna í kjarasamningum rikisins
og annarra opinberra starfs-
manna.
Ólafur Ragnar Grimsson ijár-
málaráðherra gerði forsvars-
mönnum BHMR jafnframt grein
fyrir þeim vilja rikisstjórnarinn-
ar, að fullreynt verði fyrir 31. júlí
hvort samkomulag næst um þess-
ar breytingartillögur. Óiafur
sagði eftir fundinn að viðræöur
færu fram á mánudag efta jafnvel
um helgina.
Páll Halldórsson formaöur
BHMR sagði eftir fundinn að
þetta tílboð ríkisstjórnarinnar
hefði í tör með sér launalækkun
fyrir BHMR og væri þess vegna
eklti fýsilegt. Hann sagði að frest-
nn á 4,5% kauphækkuninni jafn-
gUti lækkun launa og það gæti
BHMR ekki fallist á.
Allt virðist því benda til þess að
iUa gangi að semja um frestun á
4,5% iaunahækkun BHMR.
Margir velta því fyrir sér hvað
rikisstjórnin muni gera og talið er
líkiegt að gripið verði tU lagasetn-
ingar i næstu viku að öUu
óbreyttu. Þá myndi sú iagasetning
sennilega ná tU aUs vinnumarkað-
arins og reynt að tryggja þjóðar-
sáttina svonefndu. Steingrimur
Hermannsson forsætisráðherra
sagðist í gær óttast að ef þessi til-
laga næði ekki fram að ganga þá
yrðu bráðabirgðalög eina úrræð-
ið. Ef þessí tUraun mistækist væri
engin ástæða tii að bíða með setn-
ingu þeirra. hs/so.
Fjárdráttur
af bótaþegum
slysatrygginga
Samkvæmt heimildum Tímans er nú
i athugun mál lögfræðings sem talinn
er hafa dregið sér fé frá bótaþegum
Sjóvá-Almennar tryggingafélagsins.
Starfsmaður Sjóvá-Almennra stað-
festi við blaðamann að slíkt mál væri
í gangi en þar sem ekki væri um
þeirra hagsmuni að ræða heldur
einkamál vildi tryggingafélagið ekki
tjá sig um málið. —só
Nýr göngu-
stigi við
Gullfoss
Nýr göngustigi frá bílastæðinu við
Gullfoss og upp á barm gljúfursins
verður formlega tekinn í notkun á
þriðjudaginn. Stigi þessi er liður í
framkvæmdum samkvæmt nýju
skipulagi aðkomu að Guilfossi. Á
staðnum gefst tækifæri til þess að
kynnast ástandi mála við Gullfoss og
hvaða áform eru uppi um ffarn-
kvæmdir samkvæmt hinu nýja skipu-
lagi. Athöfhin hefst kl. 17.00. -hs.
Óvænt kaup Stöðvar 2 á meirihluta í Sýn. Stöð 2 situr uppi með tvö sjónvarpsleyfi:
Fer Sýn í loftið með
Stöð 2 í minnihluta?
Ekki hefur veríð tekin endanleg ákvörðun um það hvort sjón-
varpsstöðin Sýn muni hefja útsendingar í haust eins og gert var
ráð fýrír. Eins og kunnugt er keypti Stöð 2 meiríhluta, eða 55%
hlutabréfa, í Sýn í fyrradag. Flest virðist þó benda til þess að
þríðja sjónvarpsstöðin farí í loftið og hefur Þorvarður Elíasson,
sjónvarpsstjórí Stöðvar 2, látið að því liggja í fréttum.
Sýn hefur gert samninga við hol
lenskt fyrirtæki um framleiðslu á af-
ruglurum og nýr sendir Sýnar er á
leiðinni til landsins. Tæpast verður
þessi búnaður sendur aftur til fram-
leiðsluaðila og erfitt verður að rifta
samningum við hollenska fyrirtækið.
Ólíklegt er að Stöð 2 hafi mikið að
gera við tvo senda og tvö afruglara-
kerfi og því verða þetta að teljast
mjög þung rök fyrir því að þriðja
sjónvarpsstöðin fari í loftið.
Eins og ffarn hefiir komið í fjölmiðl-
um er íjárhagsstaða Stöðvar 2 i verri
kantinum. Skuldir hljóða upp á einn
milljarð króna og neikvæð eiginfjár-
staða er 671 milljón. Af þessu má sjá
að Stöð 2 má illa við samkeppni við
eina sjónvarpsstöð í viðbót.
Sýn hefur keypt sjónvarpsefni sem
nægir fyrir dagskrá í 90 klukkustund-
ir á viku í hálft annað ár. Sýnarmenn
hafa einnig gert samning við erlend
stórfyrirtæki eins og Wamer Brothers
um sjónvarpsefhi. Samkeppni við
Stöð 2 frá Sýn heföi því verið mikil,
sérstaklega í ljósi þess að mikill hluti
efhisins sem Sýn hefur keypt hafði
Stöð 2 áður sýningarrétt á.
Því er nú spurt hvort Stöð 2 hafi
með þessum kaupum verið að losa
sig við keppinaut á markaðnum og
Miðjupólitík, umhverfismái og byggðastefna
rædd á EgilsstÖðum um helgina:
Ungir Framsóknarmenn
á Noröurlöndum þinga
Aðalfundur Nordiska Center-
nngdomens Förbund, öðru uafni
samtök ungra Framsóknar-
manna ð Norðurlöndum, verður
haldinn á Egilsstöðum um helg-
ina. Um er að ræða samtök frá
íslandi, Noregi, Sviþjóð og Finn-
iandi, sem eiga það sameiginlegt
að leggja áherslu á miðjupólitík,
umhverfismál og byggðastefuu.
Aðalfundinn sitja 50 ungmenni
og Stendur hann yflr frá sunnu-
degi til þriðjudags.
Að sögn Halls Magnússonar,
sem situr { stjúrn samtakanna
fyrir hönd Sambands ungra
Framsóknarmanna, er hér um
að ræða ungliðahreyflngar frá
miðjuflokkum landanna. Hann
sagði að auk þingsins væri tæki-
færíð notað tii að sýna og kynna
ísland fyrir gestunum. Keyrt
verður frá Reykjavík til Egils-
staða þar sem þingið fer fram og
markverðustu staðirnir skoðað-
ir. „Að sjálfsögðu gistum við hjá
ferðaþjónustu bænda,“ sagði
Hallur.
„Það sem er helst til umræðu á
þessu þingi er annars vegar mál-
efni er varða vesturhluta Norð-
urianda og tii umræðna fáum viö
Jónas HaOgrímsson, Bjarna Ein-
arsson og Tómas Arrebo frá
Færeyjum. Við skoðum myndina
LífsbjÖrg í norðurhöfum og muu
Magnús Guðmundsson halda
fyrirlestur um hana. Eftir það
verða síðan frjálsar umræður
sem geta orðið mjög spennandi
vegna þess að þó samtökin standi
að mestu leyti fyrir það sama er
miltið af Grænfriðungum í hópn-
um - einkum meöal finnanna.
Hin vegar verða tekin fyrir
venjuieg aðalfundarstðrf,“ sagði
Hallur.
-hs.
vilji leggja Sýn niður. Forráðamenn
Stöðvar 2 hafa sagt að svo sé ekki og
einnig sagði Jónas Kristjánsson, rit-
stjóri DV, en Fijáls fjölmiðlun á 10%
hlut í Sýn, í viðtali á Rás 2 í gær að
tilgangslítið yrði að starfa með Stöð
2 við að leggja Sýn niður. Hann sagði
hugmyndir Frjálsrar fjölmiðlunar
beinast að því að reka Sýn sem sjálf-
stæða stöð. En ef Stöð 2 var ekki að
losa sig við keppinaut, eins og flest
rök liggja að, hvaða tilgangi þjóna
þessi kaup þá? Það er ljóst að það er
erfiðara og dýrara að reka tvær sjón-
varpsstöðvar heldur en eina og það
verður nú varla sagt að fjárhagsstaða
Stöðvar 2 bjóði mönnum upp á það
að færa út kvíamar.
Forráðamenn Stöðvar 2 hafa keypt
hlut í annarri stöð sem að öllum lík-
indum fer í loftið með ágætis sjón-
varpsefni.
Því er líklegt að hún muni veita Stöð
2 nokkra samkeppni. Það er ekki víst
að Stöð 2 muni eiga meirihluta í Sýn
þegar upp verður staðið. Stöð 2
keypti hlut Vífilfells, Odda og Bíó-
hallarinnar, sem hljóðaði upp á 60
milljónir.
Þeir hluthafar höfðu greitt 20 millj-
ónir og lagt fram bankaábyrgðir fyrir
afganginum. Stöð 2 keypti þennan 20
milljón kr. hlut á 30 milljónir, greiddi
20 milljón út og afganginn i hlutafé í
Stöð 2. Það sem eftir er, 40 milljónir,
yfirtók Stöð 2. Það hlutafé sem fyrri
eigendur Sýnar höfðu ráðstafað sín á
milli hljóðaði upp á 108 milljónir en
nú verður það hins vegar aukið í 184
milljónir.
Fijáls fjölmiðlun hefur forkaupsrétt
á þessum óseldu hlutabréfum og for-
ráðamenn þess skoða það nú hvort
grundvöllur sé fyrir því að kaupa þau
og eignast þar með meirihluta í Sýn.
Ef það verður ekki gert þá verða for-
ráðamenn Stöðvar tvö að kaupa þann
hluta ef þeir ætla sér að halda meiri-
hluta sínum. Ekki verður farið út í
neinar vangaveltur um það hér hvar
þeir mundu fá þá peninga.
Eins og staðan er nú er nokkuð víst
að Sýn fer í loftið. En hver mun eiga
meirihluta í þeirri stöð, hvemig út-
sendingum hennar verður háttað og
hvaða tengsl og áhrif hún mun hafa á
afkomu Stöðvar 2 eru spumingar
sem er ósvarað. Þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir í gær náðist ekki í neinn for-
svarsmanna Stöðvar 2 til að svara
þeim.
—GS.
Kvef og iðrakvef
hrjáir borgarbúa
Kvef og aðrar veirusýkingar í 'efri
loftvegum vom helstu kvillar sem
hijáðu Reykvíkinga í maí og júni.
1019 leituðu læknis vegna þessa í
maí og 613 í júní samkvæmt skýrsl-
um frá borgarlækni.
Mun fleiri leituðu til heilsugæslu-
stöðva og lækna vegna farsótta í maí-
mánuði, alls 1223, heldur en í júní en
þá voru 714 manns skráðir með slík-
an krankleika.
Iðrakvef, sem er veirusýking í
þörmum, er næst algengasta farsóttin
á eftir kvefinu. í maí voru 85 tilfelli
skráð en 51 í júní. Þessa tvo mánuði
veiktust 35 af hlaupabólu og 5 af
hettusótt en aðrir bamasjúkdómar
hafa haft hægt um sig.
Af lungnabólgu vom 47 tilfelli
skráð í maí en 20 í júní. Fjórir vom
skráðir með maurakláða í maí en
enginn í júní. Engin skráð tilfelli
vom af inflúensu þessa tvo mánuði
og virðist fólk almennt vera heilsu-
bctra í júnímánuði en í maí.
—só