Tíminn - 28.07.1990, Síða 16

Tíminn - 28.07.1990, Síða 16
AUOLVSINOASIMAR: 680001 RÍKISSKIP NÚTIMA FLUTNINGAR Hatnarhúsinu v/Tryggvagölu, S 28822 NISSAIM Réttur bíll á éttum stað. Ingvar Helgason hf. Sævarhöfða 2 Sími 91-674000 Kringlunni 8-12 Sími 689888 Tímiiin LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ1990 Netaeigendur á Hvammstanga ekki sáttir við að net þeirra skuli fjarlaegð. Sama gerðist í fyrra en þá var: NETUNUM SKILAD Á ÞORLÁKSMESSU Veiðieftirlitsmaður og lögregla í Vestur-Húnavatnssýslu lögðu í fýrradag hald á silunganet sem lögð höfðu verið við Vatns- nes í Miðfirði. Eigendur nokkurra netanna hafa kært þetta til lögreglunnar og segja að hér sé um löglegar veiðar að ræða. Hafit er eftir veiðieftirlitsmannin- um Eiríki H. Helgasyni í Morg- unblaðinu í gær að netin sem lögð eru meðfram ströndinni í Mið- firði uppfylli ekki þau skilyrði sem sett eru í nýrri reglugerð. Skylt er t.d. að hafa nafn eigenda á netunum en þorri þeirra mun hafa verið ómerktur. Einnig muni möskvastærð þeirra vera ábóta- vant. Eigendur netanna, sem eru sjö, hafa þegar kært þetta til lögregl- unnar og segja að netin séu full- komlega lögleg. Ágúst Sigurðs- son, einn eigenda, sagði í samtali við Tímann í gær að þeir sem áttu netin hafi allir verið með veiði- leyfi. Netin hafi verið samkvæmt reglugerð hvað varðaði möskva- stærð og merkt sínum eigendum. „Reyndar eru sum merkt upphafs- stöfúm og veiðileyfisnúmerum en þessir menn töldu ekki nóg að hafa eingöngu upphafsstafma og vildu hafa fullt nafn.“ Hann sagði að hér væri um silunganet að ræða en ekki laxanet eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær. Ágúst sagði að þetta hafi líka komið fyrir í fyrra að netin voru tekin og veiðin kærð. „Netunum var hins vegar skilað á Þorláks- messu. Við höfðum samband við sýslumanninn í morgun og hann sagði að sennilega yrði netunum skilað." Ágúst sagði það vera al- rangt sem komið hefur fram að ekki sé leyfilegt að leggja net í landi Hvammstanga. Það sé full- komlega leyfilegt þeim sem hafa aflað sér veiðileyfis hjá hreppn- um. „Hvammstangi á veiðirétt um 20 faðma út í sjó og að landa- mörkum beggja enda. Öll þessi net voru innan þeirra marka,“ sagði Ágúst að lokum. -hs. Bilun við nýju aðveituæðina á Nesjavöllum: Stýrilokar standa á sér Nokkrir stýrilokar sem eiga að tengjast hinni nýju aðveituæð Hita- veitu Reykjavíkur ffá Nesjavöllum hafa staðið á sér eftir að heitu vatni var hleypt á æðina til þess að prófa hitaþenslubúnað og finstilla stjóm- og mælikerfi. Að sögn Gunnars Kristinssonar hitaveitustjóra hafa ekki komið ffam eiginlegar bilanir í lokunum heldur hafa þeir ekki virkað sem skyldi. Stýrilokamir stjóma gufustreymi inn á virkjunina og halda hæfilegum þrýstingi á lögnum og tækjabúnaði. Um er að ræða loka af tegundinni Slumberger sem er ffönsk fram- Veðrið í Reykjavík um helgina: Hlýtt áfram Spáð er áframhaldandi hlýju veðri í Reykjavík um helgina. Hitinn fór víða yfir 20 stig um miðjan dag í gær og samkvæmt spá frá Veður- stofunni verður það sama upp á ten- ingnum í dag, austan gola og hiti 12 - 19 stig. Búist er við hlýju og léttskýjuðu veðri á sunnudag um vestanvert landið en á mánudag er gert ráð fyr- ir að kólni á ný. - ÁG Vinnuslys I Þjóðleikhúsinu: FÉLL AF EFRI SVÖLUM Vinnuslys varð við framkvæmdir I Þjóðleikhúsinu i gær. Slysið varð með þeim hættí að maður féll Ðmm og hálfan raetra af efri svðl- um niður i aðalsal hússins. Mað- urinn var að saga sundur steypu- styrkíarjárn og var festur i ðr- yggisbeití. Hann hafði prófað það áður en það gaf sig hins vegar í faOinu með þessura afleiðingum. Maðurinn er talsvert slasaður og var fluttur á slysadcild. Atburð- urin n átti sér stað um kl fjögur. GS. Tímamynd:Pjetur leiðsla. Viðgerðarmaður ffá ffam- leiðanda hefur þegar gert við einn lokanna en lokið verður við viðgerð- imar eftir verslunarmannahelgina. Gert er ráð fyrir að ffamleiðandi beri kostnað vegna þessa. - ÁG Hjálparhella pólskra barna um langt árabil Ingþór Sigurbjömsson málarameistari í Reykjavík hefur mörg hin síðari ár sent árlega marga gáma af hreinum notuðum fatn- aði af ýmsu tagi til fátækra bama og ungiinga í Póllandi. Nokkrir vinir Ingþórs og aðdáendur þessa mikla fómarstarfs hans hafa unnið að því undanfarið að hann gæti átt kost á því að fara sjálf- ur til Póllands og dveljast nokkra daga meðal þeirra sem veita sendingum hans móttöku og njóta hjálpar hans. Með honum færi þá væntanlega aðal hjálparmaður hans, bréfritari og túlkur; dr. Amór Hannibalsson. Þar sem þetta yrði töluvert kostnað- arsöm ferð og ekki er enn nægur farareyrir fyrir hendi mælast vinir hans vinsamlegast til að einstak- lingar og félög, sem fylgst hafa með starfi Ingþórs og meta það að verðleikum, sýni hug sinn til þess- arar ráðagerðar með því að senda sem fyrst ferðaframlag eftir efnum og ástæðum á gíróreikning nr. 33210 - 0 í Póstgíróstofunni Ár- múla 6, 150 Reykjavík. Greiðslu má inna af hendi á pósthúsum og í bönkum og sparisjóðum. Ef tekst að fjármagna þessa ferð verður hún jafnvel farin í ág- úst/september á þessu ári. Brygðust áformin rynni féð beint til hjálpar- starfsins. Þeir sem að þessu söfnunarátaki standa eru: Jón Ögmundur Þor- móðsson lögfræðingur, Sigurður Gunnarsson f.v. skólastjóri, Bem- harður Guðmundsson fræðslustjóri þjóðkirkjunnar, Ólöf Kolbrún Harðardóttir óperusöngkona, Ingólfur Guðmundsson námsstjóri, og Örlygur Hálfdanarson bókaút- gefandi.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.