Tíminn - 02.08.1990, Qupperneq 12

Tíminn - 02.08.1990, Qupperneq 12
12 Tíminn Fimmtudagur 2. ágúst 1990 KOMUM HEIL HEIM Á ferðalagi er að mörgu að hyggja. Við ár og vötn þarf að sýna aðgæslu. Rétt- ar varúðarráðstafanir koma í veg fyrir að fólk þurfi að grípa til örþrifaráða. nánd við gastæki. Á tjaldstað þarf að fara varlega með eld. Börn má aldrei skilja ein eftir í nánc við gastæki. Þegar ekið er yfir ár, skiptir öllu máli að velja rétta leið. Vaðið á ánni breytist á skammri stundu. Þess vegna má aldrei treysta því, að hjólför við árbakka bendi til þess að þar sé öruggasta leiðin. Gott er að taka nauðsynlegan öryggisbúnað með í ferðalag. Slökkvitæki get- ur komið í góðar þarfir. Einnig er sjúkrakassi mikilvægur til að búa um sár. Örlítil gætni og fyrirhyggja getur skipt sköpum og gert ferðalagið farsælt og ánægjulegt. Slysin gera ekki boð á undan sér, en afleiðingar þeirra geta varað ævilangt. DAGBÓK Eigendur Listasmíði Sf., þeir Ivar gólflistum, myndarammalistum (Kjar- Þór Þórisson (tv.) og Eiður Bjöm valsrömmum) og flaggstöngum. Ingóifsson (th.). Er það sama framlciðsla og Slippfclagið i Reykjavík hafði áður og prýðir mörg af Listasmíði sf. cldri húsum landsins. Undir nýju nafni, Listasmíði sf. að Súð- Einnig verður sinnt margs konar scr- arvogi 9, Rcykjavík, er hafm framlciðsla smíði, svo scm á listum, gluggum, hurð- á karmlistum, kvcrkalistum, loftlistum, um, pallastigum og handriðum. Píanótónleikar í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari mun koma fram á næstu þriðjudagstón- lcikum í Listasafni Siguijóns Ólafssonar þann 7. ágúst nk. og hcfjast tónleikamir kl. 20.30. Á efhisskránni cru Sónata í B- dúr KV 333 cftir Wolfgang Amadeus Mozart og Fjögur Impromptu ópus 90 D 899 eftir Franz Schubert. Nína Margrét Grímsdóttir fæddist í Rcykjavík árið 1965. Hún nam píanóleik hjá Málfh'ði Konráðsdóttur í Tónmennta- skólanum í Reykjavík og síðar í Tónlist- arskólanum i Reykjavík, hjá Halldóri Haraldssyni, þaðan scm hún lauk cinlcik- araprófi árið 1985. Hún hlaut styrk frá breska sendiráðinu til framhaldsnáms I London 1985-1988 þar scm hún sótti meðal annars tíma til Philip Jcnkins og Peter Fcuchtwanger. Árið 1988 lauk Nína Margrét L.G.S.M. Pcrfor- mance Diploma frá Guildhall School of Music and Drama og M.A.- prófi árið eft- ir ffá City Univcrsity í London. Lokarit- gerðir hennar fjalla um íslenska píanótón- list og mikilvægi tónlistarkennslu í grunnskólum. Auk fyrrgreindra kennara Nínu Margrétar má nefna Edith Picht-Ax- cnfeld, Richard Langham Smith og Bera- hard Oram. Nína Margrét hefúr komið frarn á tón- lcikum bæði innanlands og utan, m.a. á tvennum einleikstónlcikum scm haldnir voru á vegum E.P.T.A. (Evrópusambands píanókennara) í vor og á ljóðatónleikum í júní sl. ásamt Sigriði Jónsdóttur söng- konu. Ferðaþjónusta skáta: Spennandi ferðir f ágústmánuði gangast Skátasamband Reykjavíkur og Bandalag íslenskra skáta f samvinnu við íþrótta- og tómstundaráð Rcykjavíkur fyrir ferðalögum unglinga á aldrinum 13 til 17 ára. Eftirtaldar fcrðir verða í boði: 1. Reykjanesferð Gengið ffá Klcifarvatni, yftr Sveifluháls, Trölladyngju og Keili. Gist við Amarvatn en daginn eftir gengið niður á Vigdísar- velli, þaðan í Krísuvík og cndað í Hvcra- hlíð. Leiðsögn: Félagar úr Hjálparsveit skáta í Njarðvík. Tími: Ferð A: 10. til 12. ágúst. Ferð B: 17. til 19. ágúst. 2. Hengilssvæðið Gcngið ffá neyðarskýlinu á Hellisheiði að Skarðsmýrarfjalli. Gist í skátaskálum. Gengið ffá Skarðsmýrarfjalli um Fremstadal og Kattartjamir niður á Ul- fljótsvatn. Leiðsögn: Páll Sigurðsson. Tími: Ferð A: 17. til 19. ágúst. Ferð B: 24. til 26. ágúst. 3. Hvalfjörður-Þingvellir Gcngið ffá Bomi i Hvalfirði til Þingvalla um Leggjarbijót. Gist í tjöldum á leiðinni. Tími: 24. til 26. ágúst. Fyrir hvert námskcið vcrður haldið und- irbúningskvöld fýrir þátttakendur. Þau verða á miðvikudegi fyrir ferð. Þar verða kennd grunnatriði í fcrðamennsku. Nánari upplýsingar og skráning í síma 91-15483 og 91-23190. Útivist um verslunar- mannahelgina Sunnudagur 5. ágúst Kl. 10.30: Prestastigur. Gengin vörðuð leið ffá Staðarhvcrfi í Grindavík þvert yf- ir Reykjanes- eldstöðvakerfjð að Kalman- stjömum í Höfnum. Verð kr. 1000. Kl. 13.00: Tóastígur-Rauðasel. Gengið eftir götuslóða á milli sjö gróðurvinja í Afstapahrauni og síðan yfir að Rauðaseli. Stutt göngufcrð um lyng- og kjanivaxið gróðurlendi með tilhcyrandi blómskrúði. Verðkr. 1000. Mánudagur 6. ágúst Kl. 08.00: Básar í Goðalandi. Dagsferð á þcnnan rómaða stað á sérstöku tilboðs- vcrði. Aðeins kr. 1500. Kaupstaðarferð: Kl. 08.00: Fljótshólar- Eyrarbakki. Gengið verður ffá Fljótshólum gegnt Háfi við árósa Þjórsár og áfram með ströndinni um Baugstaði, Stokkseyri og út á „Bakka“. Fylgt verður sem næst gömlu þjóðleiðinni og rifjað upp ýmislegt um kaupstaðarferðir á fyrri tíð. Fylgdarmcnn sögu- og ömefnaffóðir Ámesingar. Litið inn í Rjómabú Baugstaða, Þuríðarbúð og Sjóminjasafnið á Eyrarbakka. Göngunni lýkur þar sem gömlu verslunarhúsin á Eyrarbakka stóðu. Kl. 13.00: Þuríðarbúð-Eyrarbakki. Rjómabú Baugstaða skoðað. Sameinast síðan morgungöngunni við Þuríðarbúð. Hægt er að stytta gönguna og fara í stutta fjöruferð. Tilvalin ferð fyrir fjölskyldu- fólk. Kl. 13.00: Flóinn. Skoðunarferð í rútu um Flóann. Komið við á nokkmm sögu- stöðum og söfhum á suðurströndinni. Fróðleg ferð fyrir þá sem trcysta sér ekki í gönguferðina. Brottfor í ferðimar 6/8 ffá BSÍ- bensín- sölu, Árbæjarsafni og Fossnesti á Sel- fossi, klukkustund síðar cn ffá BSÍ. Verð kr. 1200, kr. 600 ffá Fossnesti. Ályktun stjórnar Alþýöubanda- lagsins í Reykjavík Stjóm Alþýðubandalagsins í Reykjavík varar við hugmyndum sem ffam hafa komið um að bcita lagasetningu til að ógilda kjarasamninga launafólks og at- vinnurekenda. Stjóm ABR minnir á að ffjáls samnings- réttur er einn af homsteinum þess lýðræð- is- og jafnréttisþjóðfélags sem Alþýðu- bandalagið berst fyrir. Ihlutun ríkisins í fijálsan samningsrétt er óveijandi og gild- ir þá einu hvaða samtök launafólks eiga f hlut, hvort það em Bandalag háskóla- menntaðra ríkisstarfsmanna, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, Alþýðusam- band íslands eða önnur samtök eða hópar. Alþýðubandalagið hefúr undir öllum kringumstæðum talið það skyldu slna að standa vörð um réttindi launafólks, og þvf skýtur það skökku við að áhrifamenn i Alþýðubandalaginu skuli yfirleitt ljá máls á slikri aðför. Stjóm ABR harmar að ekki skuli fmnast lausn í deilu BHMR og ríkisins, en lýsir fúllri ábyrgð á hendur rikisstjóminni og þá sérstaklega forsætisráðherra og fjár- málaráðherra, sem lét undir höfúð leggj- ast að ræða við starfsmenn sína svo mán- uðum skipti í vctur og vor. Allt tal um að Félagsdómi sé um að kenna hvemig kom- ið er, er ábyrgðarlaust og beinlínis vara- samt. Stjóm ABR hvetur allt alþýðubandalags- fólk til að leggjast gegn lagasetningar- áformunum og telur að ráðherrar flokks- ins eigi að segja störfúm sinum í rikis- stjóminni lausum, verði það niðurstaðan á þeim vettvangi að fara að launafólki með valdbeitingu. Samhljóða samþykkt á stjómarfúndi 31. júlí 1990.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.