Tíminn - 02.08.1990, Page 20
AUGLYSINGASIMAR: 680001 —686300
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hotnarhúsinu v/Trvggvagötu.
S 28822
l
IMISSAIM
Réttur bíll á
réttum stað.
Ingvar
I JI Helgason hf.
Sævarhöföa 2
Sími 91-674000
abríel
HÖGG-
DEYFAR
Verslió hjá fagmönnum
G> varahlutir
LfcL
Hamarsböfða 1 - s. 67-Ö7-44 I
Tíminn
FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1990
Miklar annir Gjaldheimtu vegna óskiljanlegra álagningaseðla:
Fjöldi fólks kom til að
sækja fé á Skattstofuna
Gjaldheimtu- og álagningarseðlar, sem Reykvíkingar hafa
fengið senda undanfama daga, hafa ekki allsstaðar vakið
óskipta hrifningu. Sérstaklega hefur veríð haft orð á að seðill-
inn værí svo flókinn að hann skildist engan veginn.
Hefur fólk mikið velt fyrír sér gjaldi í framkvæmdasjóð aldr-
aðra, inneign og greiðslu inneignar þó skuld værí samtímis
fýrir hendi, bamabótaauka og svo mætti áfram telja.
Nokkrum hefiir brugðið í brún við
að fá í hendur seðla stílaða á látna
ættingja og búast má við að um tvö
hundruð Reykvíkingar geti alls
ekki komist til botns í útreikning-
um Gjaldheimtunnar, hvemig sem
þeir bera sig að, þar sem um kerfis-
villu er að ræða. Þá var að sögn
mikil örtröð fólks í húsakynnum
Skattstofúnnar í gær. Þar var kom-
inn fjöldi manna sem ekki áttaði
sig á að endurgreiðslur eru póst-
sendar og ætiaði að fara og ná í
ávísunina sína.
„Þegar komið er með mismunandi
reglur og mismunandi gjalddaga
verður þetta óhjákvæmilega dálítið
afbrigðilegt og flókið", sagði Sig-
urður Kristjánsson deildarstjóri í
Gjaldheimtu Reykjavíkur. Þetta
sagði hann að gæti þó ekki skrifast
á reikning gjaldheimtunnar. En
starfsmenn þar væru einvörðungu
að framfylgja fyrirskipunum lög-
Maður á mótorhjóli:
Féll 70 metra
Maður, sem var að keyra um á mót-
orhjóli í Kerlingafjöllum seint á
þriðjudagskvöld, slasaðist mikið
þegar hann féll á hjóli sínu 50-70
metra ofan i gil. Maðurinn var að
keyra utan vegar og ætlaði að
stökkva upp á veginn. Hann náði
ekki að bremsa sig af og fór yfir veg-
inn og ofan í gil sem er hinum megin
við hann. Gilið er á bilinu 50 til 70
metra djúpt og snarbratt. í fallinu
tókst manninum að kasta sér af hjól-
inu áður en það lenti á klettum og
gjöreyðilagðist. Hann lenti síðan í
lausamöl í botni gilsins og er mesta
mildi að ekki fór verr, en maðurinn
meiddist aðallega í baki. Starfsmenn
í Kerlingarfjöllum brugðust skjótt
við og komust til mannsins þar sem
hann lá með fullri rænu. Ekki þótti
ráðlegt að fiytja hann og því var hlúð
að honum í gilinu, þar sem hann lá í
tvo klukkutíma, eða þar til þyrla
Landhelgisgæslunnar kom á staðinn.
Hún var kölluð út um 22:00 og kom
með manninn á Borgarspítalann um
kl. tvö um nóttina. Maðurinn er
starfsmaður í Kerlingarfjöllum. Líð-
an hans er góð eftir atvikum.
GS.
Veðríð um verslunarmannahelgi:
SKIPTAST Á
SKIN OG SKÚRIR
UM ALLT LAND
Samkvæmt spám Veðurstof-
unnar um verslunarmannahelg-
ina verður hvergi alvont eða al-
gott veður, að sðgn Einars Svein-
björnssonar veðurfræðings. Það
ætti því að viðra nokkuð svipað
til útihátíða hvar sem er á land-
inu, og einnig hjá þeim sem
kjósa að eyða helginni utan
slfkra mótsvæða.
Einar sagði að á föstudeginum
yröi norðan- eða norðaustanátt
og tiltölulega bjart veður á öliu
Suðurlandi, en skýjað á Norður-
landi og sum staðar úrkoma þar.
Á laugardeginum snerist dæmlð
svo við; það þykknaði upp á
Suðurlandi en létti til á Norður-
landi, og búast mætti við rign-
ingu síðdegis á laugardag á Suð-
ur- og Vesturlandi, og síðar á
Suðausturlandi.
Á sunnudag kæmi aftur norð-
austanátt og þá létti til á Suður-
og Vesturlandi. Það ætti þvi ekki
að skipta máli hvar fólk er statt
á landinu, það fær aö öllum lik-
indum sýnishorn af öllu veðri
þessa helgina.
—só
gjafans. Símalínur skattstjóra og
Gjaldheimtunnar hafa verið rauð-
glóandi undanfama tvo daga. En þó
mikið hafi verið spurt og leitað eft-
ir útskýringum taldi Sigurður vera
von á öllu meira spumingaflóði
þegar seðillinn hefði borist fleirum
í hendur.
„Það er svo stutt síðan seðillinn
var sendur út að viðbrögðin em
ekki komin að fúllu. Þeir, sem eiga
í vandræðum, virðast fyrst og
ffemst ekki geta áttað sig á heild-
inni, það er að segja hvemig niður-
staðan er fengin. Ein helsta ný-
breytnin er gjald í ffamkvæmda-
sjóð aldraðra sem var tekið upp aft-
ur í ár. Það er aðeins einn gjalddagi
í stað þess að tölunni sé skipt niður
á fimm mánuði, en þetta verður til
þess að mgla seðilinn dálítið. Nú,
bamabótaaukinn hefúr valdið mgl-
ingi sem og það, að nokkuð margir
fá útgreidda ofgreidda gjaldfallna
staðgreiðslu núna en eiga síðan að
greiða aftur til baka í september og
ffam í desember, þar sem inneign
má ekki ráðstafa upp í ógjaldfallna
liði“, sagði Sigurður.
Samkvæmt breyttum lögum stóð
til að svokallaður vaxtaauki yrði
greiddur út fyrsta september eins
og á öllum seðlunum stendur. Er
þar um að ræða nýja aðferð við út-
reikning á vaxtabótum, en útborg-
un var flýtt til fyrsta þessa mánaðar
þannig að ekki þarf að búast við
öðmm eins glaðningi í september.
Standi CR fyrir aftan upphæð þýð-
ir það inneign sem viðkomandi
muni fá greidda.
„Þetta fór allt saman of seint á
stað, en þá einu kerfisvillu sem
komið hefúr ffam, má finna þegar
fólk á ógreidda fyrirffamgreiðslu
og líka inneign í staðgreiðslu. Þeg-
ar gjalddagamir vom búnir til, var
inneignin notuð tvisvar." Þetta mun
þegar hafa verið leiðrétt og sagði
Sigurður að einungis væri um 200
manns að ræða sem þætti ekki mik-
ið miðað við 70 þúsund útsenda
seðla. Varðandi látið fólk, sem
fengið hefúr senda seðla, sagði Sig-
urður að Gnjaldheimtan fengi sínar
upplýsingar úr þjóðskránni, þannig
að ekki væri um misskilning að
ræða. Þama væm á ferðinni þeir
sem ættu óuppgerða skuld eða inn-
eign samkvæmt ffamtali. „Það er
algengast að þetta sé vegna eigna-
skatts úr óskiptu dánarbúi."
jkb
Trédmmburínn portúgalskl sem blýanturinn verður smíðaður úr.
Timamynd: Sveuir Aöalsteinsson.
Stefán Geir Karlsson hefur orðið sér úti um eins tonna viðardrumb frá Portúgal:
Smíðar heimsins stærsta blýant
Stefán Geir Karlsson lætur sér ekki
allt fyrir brjósti brenna. Fyrir fjórum
ámm smiðaði hann heimsins stærsta
herðatré, sem er skráð í heimsmeta-
bók Guinnes. Nú ætlar hann að
smíða stærsta tréblýant í heimi, en
auglýsir eftir mátulegu blýi.
Stefán hefur nú útvegað sér stóran
trédmmb frá Portúgal, sem vegur um
það bil tonn. Drumburinn er tæplega
einn metri í þvermál og nærri fimm
metrar á lengd. „Ég var í embættiser-
indum í skipasmiðastöð í Portúgal
þar sem ég rakst á þennan dmmb.
Eigandi hans og ffamkvæmdastjóri
skipasmiðastöðvarinnar sagðist vera
stuðningsmaður listamanna og þess
vegna gaf hann mér dmmbinn.
Haukafellið SF, sem var einmitt í
smíðum í stöðinni, tók síðan dmmb-
inn og kom með til landsins í vik-
unni.“
Stefán sagðist ætla að vinna blýant-
inn með bæði vélum og handverk-
fæmm. „Ég ætla að láta annan enda
bolsins halda sér, en hinn endann
vinn ég niður." Hann sagðist ekki
vera búinn að útvega sér blý. „Mig
vantar það ennþá, auglýsi hér með
eftir blýi í fimm metra langan blýant.
Það þarf helst að vera ferkantað.
Annars vantar mig einnig vinnustofú,
því ég er með dmmbinn í fanginu á
blettinum heima hjá mér eins og er,
ef svo má að orði komast.“ Stefán
kannaðist ekki við að slíkir risablý-
antar hafi verið gerðir áður. Hann
sagðist því eiga von á, að blýanturinn
yrði skráður hjá Guinnes ef hann
sæktist eftir því, sem hann er ekki bú-
inn að ákveða.
Stefán gerði einnig risastórt herðatré
fyrir um fjórum ámm síðan og það
var unnið með aðstoð ffá trésmíða-
verkstæði Slippfélagsins. Herðatréð
hefúr verið í geymslu hjá Smára og
að hans sögn hefúr það ekki gengið
út. „Þessa stundina vantar mig til-
fmnanlega aðstöðu til að geta byijað
á blýantinum", sagði Stefán að lok-
um. -hs.