Tíminn - 18.08.1990, Side 3

Tíminn - 18.08.1990, Side 3
Laugardagur 18. ágúst 19r90 (^ímjnn 3 Stöðugleiki ríkir hjá því opinbera. Framfærsluvísitalan þó 0,3 prósent yfir rauðum strikum. Örn Friðriksson varaforseti ASÍ: Fyrirtækin verða að taka sér tak Svo virðist vera sem verð á vörum og þjónustu hafi hækkað meira en forsendur kjarasamninga í febrúar gerðu ráð fyrír. Það er m.a. talin ástæðan fyrír því að framfærsluvísitalan hefur faríð 0,3 prósentum yfir rauðu stríkin. Rikið hefur að mestu leyti náð að halda sinni verðskrá stöðugri, landbúnaðar- vörur hafa hækkað í samræmi við for- sendur kjarasamninganna og hægt hefur á hækkun byggingarvisitölunnar milli mánaða. Alþýðusamband íslands heftir m.a. sent Félagi íslenskra ferðaskrif- stofa áskonm um að draga til baka hækkun á ferðum til sólarlanda. í bréfi ASÍ til félagsins segir að hækkunin sé byggð á áhrifum olíuverðshækkunar og hærra verði á erlendum gjaldeyri. Það er hins vegar alkunna að fyrirtæki bíði átekta áður en þau lækka verð á vörum og þjónustu þegar verð á aðföngum lækkar. ASÍ telur þessa verðhækkun ótímabæra. I bréfinu bendir ASI einnig á að verðhækkanir séu sérstaklega vara- samar nú þegar stöðugleiki er að nást í verðlagsmálum. Þörfin fyrir verðhækk- anir sé vandséð þar sem fjármagns- kostnaður fyrirtækja hefur lækkað og meðalgengi hefiir verið stöðugt undan- fama mánuði. Öm Friðriksson, varaforseti ASÍ, sagði að í möigum fyrirtækjum væm forsend- ur til að lækka verð á vörum og þjónustu um að minnsta kosti 1 prósent. Aðstæð- ur sem samningamir sköpuðu þessmn fyrirtækjum með minnkandi verðbólgu gæfi þeim fullt tilefni til að lækka álagn- ingu. Fyrirtækin þurfi að taka sig þama á og þau geti jafhframt stuðlað að áfram- haldandi stöðugleika í efnahagsmálum í stað vaxandi veiðbólgu og hækkun vaxta með þvi að færa verðlag niður, þó það væri ekki nema um eitt prósent Verðhækkanimar em ekki bara hjá ferðaskrifstofiim heldur hefur almennt verðlag á matvöm hækkað meira en áætlanir geiðu ráð fyrir. Bæði hafa er- lendar vörur sem og innlendar hækkað og það þó nokkuð mikið umfram áætl- anir. Innflutningsverslunin ber þama nokkuð stóra ábyrgð því hækkanir hjá henni leiða til hækkunar á framleiðslu- vörum hjá íslenskum innflutningsfyrir- tækjum. Þvi mundi lækkun á vömverði hjá innflutningsversluninni ekki aðeins leiða til lækkunar i matvöraverslun heldur einnig til lækkunar á ýmsum ís- lenskum ffamleiðsluvörum sem flestar em háðar einhveijum innflutningi. Öm sagði að lækkunin myndi því virka í öllu hagkeríinu og koma öllum til góða og það myndu skapast möguleikar hjá öll- um til að gera eitthvað þótt það yrði ekki stórt I september mun Iaunanefnd Alþýðu- sambandsins og Vinnuveitendasam- bands Islands koma sér saman um eða úrskuiða um launabætur ef ekki tekst að lækka vömverð. Hægt hefiir á hækkunum á vísitölu byggingarkostnaðar ef litið er á allt árið. Síðastliðna þijá mánuði hefiir hækkunin verið mjög hæg. Hagstofan hefiir reikn- að visitölu byggingarkostnaðar eftir verðlagi um miðjan ágúst. Reyndist hún vera 172,2 stig og hafði hækkað um 0,2 prósent síðan í júlí. I fyrra hækkaði vísi- talan um 1,4 prósent milli sömu mán- aða. Síðastliðna tólf mánuði hefur bygg- ingarvísitalan hækkað um 16,9 prósent og síðustu þijá mánuði hefiir visitalan hækkað um 1,1 piósent og samsvarar það 4,6 prósenta árshækkun. —SE Mikil óánægja hjá smábátaeigendum með brotthvarf gömlu veðurkortanna úr Sjónvarpinu: „Skiptum yfir Stóðhesturínn Eðall 1142 frá Hólum hefur verið seldur Hrossarækt- arsambandi Suðuríands fyrirtvær milljónir. Sunnlendingar kaupa Eðal 1142 Hrossaræktarsamband Suðurlands 1. verðlaun á landsmóti hestamanna hefur nýlega fest kaup á stóðhestin- í sumar og er hann undan þekktum um Eðal 1142 frá Hóium. Seljandi kynbótahrossum sem bæði hafa Eðals er hrossabú rikisins á Hólum hlotið fyrstu verðlaun sem kynbóta- í Hjaltadal og er kaupverðið tvær hross. Móðirin er Eldey 5477 frá milljónir, að viðbættum 500 þúsund Hólum og faðirinn er Feykir 962 firá króna virðisaukaskatti. Eðall fékk Hafsteinsstöðum. -hs. á Stöð tvö“ Stjóm Landssambands smábátaeig- enda hefiir sent frá sér ályktun þar sem hún harmar launadeilu veður- ffæðinga við Ríkisútvarpið Sjónvarp. í ályktuninni er skorað á forráða- menn RÚV og veðurffæðinga að ná þegar samkomulagi um sin mál. Fundurinn leggur áherslu á að veður- fregnir ættu að vera eftirsóttar fyrir Qölmiðla í landi eins og íslandi. Þá segir í ályktuninni að góðar veður- spár, vel ffam settar í sjónvarpi og hljóðvarpi geta og hafa örugglega oft og mörgum sinnum komið í veg fyrir manntjón á fiskimiðum við Island. Haraldur Jóhannsson hjá Landsam- bandi smábátaeigenda sagði að til þeirra heföu margir hringt og einn sagði að hann teldi nú að hann borg- aði afnotagjaldið m.a. til að fá veður- ffegnir í Sjónvarpinu en hann væri nú svikinn með þvi sem nú birtist á skjánum, það væri hvorki fugl né fiskur. Hann segir að þetta sem kalla eigi veðurfféttir þama hjá RÚV sé það slæmt að það sé varla að menn líti á það. Flestir em famir að skipta yfir á Stöð tvö og horfa á veðurffegn- imar þar. Hann sagði að veðurffegn- imar i útvarpinu væm góðar og stæðu alltaf fyrir sínu sem og sjálfvirkur sími veðurstofiinnar en menn vildu einnig fá að heyra veðurlýsingu, þ.e. horfur og spá fyrir landsvæðin, á einni línu. Haraldur sagði að þetta væri mjög slæm staða, þetta væri mjög stórt at- riði í fféttunum hjá Sjónvarpinu og geysilega mikilvægt atriði fyrir alla útgerðarmenn og smábátaeigendur. Hann sagðist halda að þeir hjá Sjón- varpinu gerðu sér ekki grein fyrir hvað þeir væm að missa mikið. Hann sagði að það væri ekki þeiira að dæma hvort kröfur veðurffæðing- anna um aukið kaup væm raunhæfar eða óraunhæfar en það eina sem þeir gætu bent á væri að staðan væri slæm fyrir menn sem þurfa á þessum upp- lýsingum að halda. —SE 1404 SPORT: fmmmm wdismi Dómsmálaráðuneytið virðist ekki standa sig í stykkinu: Vegabréf uppseld? Svo virðist vera sem dómsmálaráðuneytið standi sig ekki í stykkinu frekar en síðasta sumar við að útvega vegabréf fýrír bæjarfógetaskrífstofur og þá sem sjá um útgáfu vegabréfa fýrír íslenska ferðamenn. Dómsmálaráðuneytið sér um að útvega bréfin frá útlöndum en virðist ekki hafa pantað nægilegan flölda fýrírsumaríð. Vandræði em í Kópavogi, Hafnar- firði og Reykjavík og þau hjá vega- bréfadeildinni í Reykjavík sögðust fara sér hægt og fólk þyrfti að minnsta kosti að bíða í viku eftir nýju vegabréfi. Þó heföi verið hægt að af- greiða bréf til þeirra sem lá mikið á, á skemmri tíma og allir hafi fengið vegabréf sem hafa þurft á því að halda. í fyrra heföi skapast óffemdar- ástand en þetta myndi líklega bjarg- ast núna með því að fara varlega með það sem þau ættu. Von er á nýrri pöntun ffá útlöndum eftir helgi. Að vísu átti sú pöntun að koma á mánu- daginn var en þau verði bara að bíða og vona. ' Ekki er vitað hvemig á því stendur að vegabréfin seljast alltaf upp en eitthvað er um það að fólk passi ekki upp á vegabréfm sín og fái alltaf ný og ný hvert ár. Ekki náðist í Hjalta Zóphóníasson hjá Dómsmálaráðu- neytinu sem sér um þessi mál þar sem hann var erlendis. —SE \ \ \ Afþessum jeppa hafa íslend-. ingarmjög mikla og góða . reynslu bæði sem fyrirtaks fjölskyldu- og ferðabíl og öflugum vinnuþjark. Nú eiga bændurog rekstrar-. N aðilarkost á þvíað draga virð- \ isaukaskattinn frá bílverði. . Tokum gamla bílinn upp ínýjan og semjum um eftirstöðvar. \ \ l / . 1 . . ^ - Opið laugardaga frá kl. 10-14. VerðlístiLM Staðgr.verð 1300 SAFÍR4G.......371.269,- 1500 STATION 4G....424.932,- 1500 STATI0N LUX5G.461.292 - 1600 LUX5G.........454.992,- ‘1500 SAMARA 5G, 3D.490.485,- *1500 SAMARA 5G, 5D.518.524,- 1600 SP0RT4G.......661.620,- 1600 SP0RT5G.......723.289,- *„Metallic“ litir kr. 1 1.000,- Ofangreint verð er miðað við að bifreiðarnar séu ryðvarðar og tilbún- ar til skrðningar. Innifalin er einnig 6 ðra ryðvarnaróbyrgð samkvæmt skilmðlum ryðvarnarstöðvar. / I

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.