Tíminn - 18.08.1990, Page 3
Laugardagur 18. ágúst 19r90
(^ímjnn 3
Stöðugleiki ríkir hjá því opinbera. Framfærsluvísitalan þó 0,3
prósent yfir rauðum strikum. Örn Friðriksson varaforseti ASÍ:
Fyrirtækin verða
að taka sér tak
Svo virðist vera sem verð á vörum og þjónustu hafi hækkað
meira en forsendur kjarasamninga í febrúar gerðu ráð fyrír. Það
er m.a. talin ástæðan fyrír því að framfærsluvísitalan hefur faríð
0,3 prósentum yfir rauðu stríkin.
Rikið hefur að mestu leyti náð að halda
sinni verðskrá stöðugri, landbúnaðar-
vörur hafa hækkað í samræmi við for-
sendur kjarasamninganna og hægt hefur
á hækkun byggingarvisitölunnar milli
mánaða. Alþýðusamband íslands heftir
m.a. sent Félagi íslenskra ferðaskrif-
stofa áskonm um að draga til baka
hækkun á ferðum til sólarlanda. í bréfi
ASÍ til félagsins segir að hækkunin sé
byggð á áhrifum olíuverðshækkunar og
hærra verði á erlendum gjaldeyri. Það er
hins vegar alkunna að fyrirtæki bíði
átekta áður en þau lækka verð á vörum
og þjónustu þegar verð á aðföngum
lækkar. ASÍ telur þessa verðhækkun
ótímabæra. I bréfinu bendir ASI einnig
á að verðhækkanir séu sérstaklega vara-
samar nú þegar stöðugleiki er að nást í
verðlagsmálum. Þörfin fyrir verðhækk-
anir sé vandséð þar sem fjármagns-
kostnaður fyrirtækja hefur lækkað og
meðalgengi hefiir verið stöðugt undan-
fama mánuði.
Öm Friðriksson, varaforseti ASÍ, sagði
að í möigum fyrirtækjum væm forsend-
ur til að lækka verð á vörum og þjónustu
um að minnsta kosti 1 prósent. Aðstæð-
ur sem samningamir sköpuðu þessmn
fyrirtækjum með minnkandi verðbólgu
gæfi þeim fullt tilefni til að lækka álagn-
ingu. Fyrirtækin þurfi að taka sig þama
á og þau geti jafhframt stuðlað að áfram-
haldandi stöðugleika í efnahagsmálum í
stað vaxandi veiðbólgu og hækkun
vaxta með þvi að færa verðlag niður, þó
það væri ekki nema um eitt prósent
Verðhækkanimar em ekki bara hjá
ferðaskrifstofiim heldur hefur almennt
verðlag á matvöm hækkað meira en
áætlanir geiðu ráð fyrir. Bæði hafa er-
lendar vörur sem og innlendar hækkað
og það þó nokkuð mikið umfram áætl-
anir. Innflutningsverslunin ber þama
nokkuð stóra ábyrgð því hækkanir hjá
henni leiða til hækkunar á framleiðslu-
vörum hjá íslenskum innflutningsfyrir-
tækjum. Þvi mundi lækkun á vömverði
hjá innflutningsversluninni ekki aðeins
leiða til lækkunar i matvöraverslun
heldur einnig til lækkunar á ýmsum ís-
lenskum ffamleiðsluvörum sem flestar
em háðar einhveijum innflutningi. Öm
sagði að lækkunin myndi því virka í öllu
hagkeríinu og koma öllum til góða og
það myndu skapast möguleikar hjá öll-
um til að gera eitthvað þótt það yrði ekki
stórt
I september mun Iaunanefnd Alþýðu-
sambandsins og Vinnuveitendasam-
bands Islands koma sér saman um eða
úrskuiða um launabætur ef ekki tekst að
lækka vömverð.
Hægt hefiir á hækkunum á vísitölu
byggingarkostnaðar ef litið er á allt árið.
Síðastliðna þijá mánuði hefiir hækkunin
verið mjög hæg. Hagstofan hefiir reikn-
að visitölu byggingarkostnaðar eftir
verðlagi um miðjan ágúst. Reyndist hún
vera 172,2 stig og hafði hækkað um 0,2
prósent síðan í júlí. I fyrra hækkaði vísi-
talan um 1,4 prósent milli sömu mán-
aða. Síðastliðna tólf mánuði hefur bygg-
ingarvísitalan hækkað um 16,9 prósent
og síðustu þijá mánuði hefiir visitalan
hækkað um 1,1 piósent og samsvarar
það 4,6 prósenta árshækkun. —SE
Mikil óánægja hjá smábátaeigendum með brotthvarf
gömlu veðurkortanna úr Sjónvarpinu:
„Skiptum yfir
Stóðhesturínn Eðall 1142 frá Hólum hefur verið seldur Hrossarækt-
arsambandi Suðuríands fyrirtvær milljónir.
Sunnlendingar
kaupa Eðal 1142
Hrossaræktarsamband Suðurlands 1. verðlaun á landsmóti hestamanna
hefur nýlega fest kaup á stóðhestin- í sumar og er hann undan þekktum
um Eðal 1142 frá Hóium. Seljandi kynbótahrossum sem bæði hafa
Eðals er hrossabú rikisins á Hólum hlotið fyrstu verðlaun sem kynbóta-
í Hjaltadal og er kaupverðið tvær hross. Móðirin er Eldey 5477 frá
milljónir, að viðbættum 500 þúsund Hólum og faðirinn er Feykir 962 firá
króna virðisaukaskatti. Eðall fékk Hafsteinsstöðum. -hs.
á Stöð tvö“
Stjóm Landssambands smábátaeig-
enda hefiir sent frá sér ályktun þar
sem hún harmar launadeilu veður-
ffæðinga við Ríkisútvarpið Sjónvarp.
í ályktuninni er skorað á forráða-
menn RÚV og veðurffæðinga að ná
þegar samkomulagi um sin mál.
Fundurinn leggur áherslu á að veður-
fregnir ættu að vera eftirsóttar fyrir
Qölmiðla í landi eins og íslandi. Þá
segir í ályktuninni að góðar veður-
spár, vel ffam settar í sjónvarpi og
hljóðvarpi geta og hafa örugglega oft
og mörgum sinnum komið í veg fyrir
manntjón á fiskimiðum við Island.
Haraldur Jóhannsson hjá Landsam-
bandi smábátaeigenda sagði að til
þeirra heföu margir hringt og einn
sagði að hann teldi nú að hann borg-
aði afnotagjaldið m.a. til að fá veður-
ffegnir í Sjónvarpinu en hann væri nú
svikinn með þvi sem nú birtist á
skjánum, það væri hvorki fugl né
fiskur. Hann segir að þetta sem kalla
eigi veðurfféttir þama hjá RÚV sé
það slæmt að það sé varla að menn
líti á það. Flestir em famir að skipta
yfir á Stöð tvö og horfa á veðurffegn-
imar þar. Hann sagði að veðurffegn-
imar i útvarpinu væm góðar og stæðu
alltaf fyrir sínu sem og sjálfvirkur
sími veðurstofiinnar en menn vildu
einnig fá að heyra veðurlýsingu, þ.e.
horfur og spá fyrir landsvæðin, á
einni línu.
Haraldur sagði að þetta væri mjög
slæm staða, þetta væri mjög stórt at-
riði í fféttunum hjá Sjónvarpinu og
geysilega mikilvægt atriði fyrir alla
útgerðarmenn og smábátaeigendur.
Hann sagðist halda að þeir hjá Sjón-
varpinu gerðu sér ekki grein fyrir
hvað þeir væm að missa mikið. Hann
sagði að það væri ekki þeiira að
dæma hvort kröfur veðurffæðing-
anna um aukið kaup væm raunhæfar
eða óraunhæfar en það eina sem þeir
gætu bent á væri að staðan væri slæm
fyrir menn sem þurfa á þessum upp-
lýsingum að halda. —SE
1404 SPORT:
fmmmm wdismi
Dómsmálaráðuneytið virðist ekki standa sig í stykkinu:
Vegabréf uppseld?
Svo virðist vera sem dómsmálaráðuneytið standi sig ekki í
stykkinu frekar en síðasta sumar við að útvega vegabréf fýrír
bæjarfógetaskrífstofur og þá sem sjá um útgáfu vegabréfa fýrír
íslenska ferðamenn. Dómsmálaráðuneytið sér um að útvega
bréfin frá útlöndum en virðist ekki hafa pantað nægilegan flölda
fýrírsumaríð.
Vandræði em í Kópavogi, Hafnar-
firði og Reykjavík og þau hjá vega-
bréfadeildinni í Reykjavík sögðust
fara sér hægt og fólk þyrfti að
minnsta kosti að bíða í viku eftir nýju
vegabréfi. Þó heföi verið hægt að af-
greiða bréf til þeirra sem lá mikið á, á
skemmri tíma og allir hafi fengið
vegabréf sem hafa þurft á því að
halda. í fyrra heföi skapast óffemdar-
ástand en þetta myndi líklega bjarg-
ast núna með því að fara varlega með
það sem þau ættu. Von er á nýrri
pöntun ffá útlöndum eftir helgi. Að
vísu átti sú pöntun að koma á mánu-
daginn var en þau verði bara að bíða
og vona.
' Ekki er vitað hvemig á því stendur
að vegabréfin seljast alltaf upp en
eitthvað er um það að fólk passi ekki
upp á vegabréfm sín og fái alltaf ný
og ný hvert ár. Ekki náðist í Hjalta
Zóphóníasson hjá Dómsmálaráðu-
neytinu sem sér um þessi mál þar
sem hann var erlendis.
—SE
\
\
\
Afþessum jeppa hafa íslend-.
ingarmjög mikla og góða
. reynslu bæði sem fyrirtaks
fjölskyldu- og ferðabíl og
öflugum vinnuþjark.
Nú eiga bændurog rekstrar-.
N aðilarkost á þvíað draga virð-
\ isaukaskattinn frá bílverði.
. Tokum gamla bílinn upp ínýjan
og semjum um eftirstöðvar.
\ \ l / . 1 . . ^
- Opið laugardaga frá kl. 10-14.
VerðlístiLM
Staðgr.verð
1300 SAFÍR4G.......371.269,-
1500 STATION 4G....424.932,-
1500 STATI0N LUX5G.461.292 -
1600 LUX5G.........454.992,-
‘1500 SAMARA 5G, 3D.490.485,-
*1500 SAMARA 5G, 5D.518.524,-
1600 SP0RT4G.......661.620,-
1600 SP0RT5G.......723.289,-
*„Metallic“ litir kr. 1 1.000,-
Ofangreint verð er miðað við að
bifreiðarnar séu ryðvarðar og tilbún-
ar til skrðningar. Innifalin er einnig
6 ðra ryðvarnaróbyrgð samkvæmt
skilmðlum ryðvarnarstöðvar.
/
I