Tíminn - 18.08.1990, Blaðsíða 15
,laugardagur,1.8,ágúst-1990
tíminn'23
Þessi maður er ekki að reyna að velta bflnum sínum, heldur að gera
teygjuæfingar áður en hann leggur af stað í Reykjavíkurmaraþon. Ekki
má gleyma að hita sig vel upp og teygja vöðva áður en lagt er af stað.
Reykjavíkurmaraþon:
Hlauparar fylla
götur Reykjavíkur
— Búist við metþátttöku á 7. Reykjavíkurmaraþoninu
sem hefst á hádegi á morgun
íþróttir helgarinnar:
Bikarúrslitaleikir
leiknir um helgina
Þótt bikarúrsUtalelkurinn i
mfl. karla verði ekki leikinn
fyrr en á sunnudaginn um
næstu helgi, verða svo sannar-
lega bikarúrsUtaleikir á dag-
skrá ura helgina.
Úrslitaleikurinn i bikar-
keppni rafl. kvenna verður
háður á LaugardalsvelU á
morgun, sunnudag, kL 14.00.
Þá mætast Í A og Valur.
í 2. flokki karla leika ÍBV og
Fram til úrslita í dag kl. 14.00
og fer leikurinn fram á Þor-
iáksbafnarvelU.
Til úrslita í bikarkeppni 3.
flokks karla, Suður- og Vestur-
lands, leika FH og Fram. Leik-
urinn fer fram kl. 16.00 á
morgun, líklega á ÍR- vellinum
ÍMjódd.
íþróttir fatlaðra:
Islandsmót
í Mosfellsbæ
íslandsmót íþróttasambands
fatlaðra fer fram á Varmárvelli
í MosfeUsbæ í dag og hefst kl.
10.00. Þátttakendur á mótinu
verða um 50 talsins frá 6 aðild-
arfélögum ÍF.
Fanta-Skagamót:
Þijátíu 6. flokks
lið reyna með sér
Hið árlega 6. flokksmót ÍA í
knattspyrnu hófst í gær og
verður framhaidið um helgina.
Mótið ber nafnið Fanta-Skaga-
mót, en hét áður Hi-C mót.
Þrjátíu Uð frá 15 félögum taka
þátt í mótinu og verður keppt
bæði innan húss og utan í
flokkum A og B liða.
Þróttardagurinn 1990:
Tennisvöllurinn
verðurvígður
Dagurinn á morgun, sunnu-
dagur, verður haldinn hátíðleg-
ur á svæði íþróttafélagsins
Þróttar við Sæviðarsund. Há-
punktur dagsins verður vígsla
tenuísvalla félagsins sem eru
þrír að tölu. VelUrnir eru þeir
fyrstu hér á landi sem lagðir
eru gervigrasi, en ofan á það
hefur verið settur sandur úr
Sahara- eyðimörkinni í Afríku.
VelUrnir eru því mun mýkri en
malbikaðir veUir.
Dagskráin á morgun hefst kl.
14 með vígslu tennisvaUanna,
síðan verður aUtaf eitthvað um
að vera á svæðinu fram á
kvöld, knattspyrnu- og blak-
leikir og fleira.
BL
v__y
Enska knattspyrnan:
Liverpool og
Manchester
United
mætast í dag
- í keppninni um
góðgerðarskjöldinn
Opnunaríeikur ensku knattspym-
unnar, hinn árlegi leikum meist-
ara og bikarhafa um góðgerðar-
skjöldinn, fer fram á Wembley-
leikvanginum í London I dag.
Leikurinn í dag er merkilegur fyrir
þær sakir að fomir flendur og ná-
grannar, Manchester United og
Liverpool, leiða saman hesta
sína.
Liverpool-liðið byijaði rólega í
fyrra en var nánast ósigrandi undir
lok keppnistímabilsins og tapaði þá
aðeins einum deildarleik á 5 mánuð-
um. Engu að síður var draumur Li-
verpool um að vinna tvöfalt úr sög-
unni, er liðið tapaði óvænt 3-4 fyrir
Crystal Palace í undanúrslitum bik-
arkeppninnar. En Liverpool varð
enskur meistari enn einu sinni og
virðist til alls líklegt á komandi tíma-
bili. Ian Rush hefúr skorað grimmt
fyrir liðið í æfingaleikjum að undan-
fömu og virðist kominn í sitt gamla
markaform.
Rush gerði einmitt tvö mörk gegn
Real Sociedad á Spáni í vikunni, en í
þeim leik lék Kenny Dalglish sinn
síðasta leik fyrir Liverpool. Dalglish
lagði upp annað marka Rush og að
auki mark fyrir Steve McMahon. A
74. mín. fór hann af leikvelli, henti
treyju sinni til áhorfenda sem stóðu
upp og hylltu þennan kappa sem nú
er 39 ára gamall. í leikslok gekk
Dalglish fram á völlinn og þakkaði
fyrir þann stuðning sem hann og
fjölskylda hans hafa fengið frá knatt-
spymuaðdáendum undanfarin ár.
Manchester United átti í miklu basli
í fyrra, eigendaskipti urðu á félaginu
og leikmenn áttu í langvarandi
meiðslum. Liðinu tókst með naum-
indum að forðast fall í 2. deild. Það
kom þvi nokkuð á óvart hve langt
liðið komst í bikarkeppninni, en titil-
inn var ekki í höfn fyrr en eftir auka-
úrslitaleik gegn Palace. Þar vann
United sinn fyrsta meiriháttar titil í 5
ár. Vafalaust hyggur United á frekari
titla í ár, en sem fyrr gætu meiðsl sett
strik í reikninginn. Bryan Robson er
ekki búinn að ná sér eftir uppskurð á
hásin og ekki er víst að Neil Webb
geti leikið með í dag, þar sem hann
fékk spark í kálfann í vikunni. Þá er
Lee Martin á sjúkralista og leikur
ekki með í dag. Gary Pallister kemur
líklega inní liðið í dag, geti Webb
ekki leikið, þrátt fyrir að saumuð
hafi verið 10 spor í höfúð hans um
síðustu helgi.
Búist er við um 1500 manns í 7.
Reykjavíkurmaraþonhlaupið sem
hefst kl. 12 á hádegi á morgun.
Meðal þeirra sem taka þátt í
hlaupinu eru fjórir eriendir boðs-
gestir, tveir karlar og tvær konur.
Jerry Hall er Englendingur sem
hljóp Lundúnamaraþonið á 2:18,51
klst. í vor, en hann er einnig góður
brautarhlaupari. Hinn karlinn er Pet-
er Noadsmark frá Danmörku, en
hann varð Danmerkurmeistari í
maraþoni 1989 er hann hljóp á
2:22,54 ldst.
Konumar eru Susan Shield sem
hljóp Lundúnamaraþonið á 2:42,42 í
vor, sem er hennar besti tími. Hún er
frá N-írlandi. Hin konan er ensk og
heitir Carolyn Boyd. Hennar besti
tími er 2:45 klst. Hún sigraði í mara-
þonhlaupi í Benidorm í nóvember sl.
Búist er við hörkukeppni milli þess-
ara hlaupara, en auk þeirra er búist
við 200-300 öðmm erlendum gest-
um.
Sami kjami íslenskra keppenda
mun taka þátt í hlaupinu í ár og fyrri
ár með íslandsmeistarann Sighvat
Dýra Guðmundsson fremstan í
flokki. Ein íslensk kona hefur þegar
skráð sig í fullt maraþon.
Högni Óskarsson hefúr oftast Is-
lendinga hlaupið maraþon eða 13
sinnum. Sighvatur Dýri og Sigurður
P. Sigmundsson hafa báðir hlaupið
13 sinnum.
Ekki má gleyma hálfmaraþoninu,
en í því keppa fremstu langhlauparar
okkar svo sem Sigurður P. Sig-
mundsson, Gunnlaugur Skúlason,
Jón Stefánsson, Jóhann Ingibergs-
son, og Kristján Skúli Ásgeirsson,
sem sigraði í fyrra. Af konum er
Martha Emstdóttir fremst i flokki, en
hún hefúr i hyggju að gera atlögu að
brautarmetinu sem nú er 1:17,43
klst. Keppni í hálfmaraþoni er jafn-
firamt íslandsmeistaramót.
Sighvatur Dýri Guðmundsson hefúr
orðið íslandsmeistari í maraþoni síð-
astliðin fjögur ár, en á undan honum
urðu þeir Sigurður P. Sigmundsson,
Jóhann Ingibergsson og Steinar Frið-
geirsson Islandsmeistarar hver í eitt ár.
Keppendur skulu sækja keppnis-
gögn sín á skrifstofú Úrvals-Útsýnar
í Mjódd milli kl. 11 og 18 i dag.
Keppendum er boðið í pastakvöld-
verð i Glym milli kl 16 og 19 í kvöld.
Mae Ann Garly frá Bandarikjunum
vann fúllt maraþon kvenna árið
1987, þá 60 ára gömul. Hún hljóp á
3:59,37 klst.
Emst Hallerwedel frá Þýskalandi er
elsti karlmaður sem tekið hefúr þátt í
Reykjavíkurmaraþoni. Hún hljóp á
4:09,40 klst 1985, þá 71 árs.
Elsti karl sem þátt tók í skemmti-
skokkinu í fyrra var 69 ára og elsta
konan var 55 ára. Yngsti strákurinn
var 1 árs og yngsta stelpan var nokk-
urra mánaða gömul og fór hún í
bamavagni með föður sínum vega-
lengdina.
Elsti karlmaður sem tekið hefúr þátt
I skemmtiskokkinu er Noel Johnson
blómafræflamaður en hann var 89
ára þegar hann tók þátt í hlaupinu
1988.
Allir sem ljúka hlaupinu fá að laun-
um veglegan verðlaunapening. BL
Rúllutækni
Bændur! Bjóðum okkar viðurkenndu rúllutækni á hausttilboði.
RúUubindivél l,2m x l,2m, verð frá kr. 590. þús.
Alsjáifvirk pökkunarvél, verð frá kr. 430. þús.
Moksturstæki Veto FX 15, verð frá ••••••••••••••••••••••••••*•••••••••••*•••• kr. 338. þús.
Baggaspjót á þrítengi, verð frá •*••••»•.•«••••••»•...««••••••••...«««*••••••.•««• kr. 15. þús.
Baggagreip á moksturstæki, verð frá **«**•••**•**•*••••••****••*••••«*****•• kr. 53. þús.
Flutningavagnar, verð frá •*««*•*•**••**««*•*•*••••*•*****•*•••*««*•••*••••••«••••••• kr. 225.
Munið staðgreiðslu- og magnafsláttinn.
Öll verð eru án virðisaukaskatts
C7
r7S' m
D C7
Q O
o.\
JÁRNHÁLSI 2
SÍMI83266
BL