Tíminn - 23.08.1990, Page 2

Tíminn - 23.08.1990, Page 2
'.Z.Tíminn tXFiramtudagur.'23l',ágúst'l990 Frá blaöamannafundi stjómar Prestafélags islands þar sem hækkun á húsaleigu á prestssetrum var mótmælt Á myndinni eru frá vinstri Vigfús Þór Ámason varaformaöur, Jón Dalbú Hróbjartsson formaður, Agnes M. Sigurðardóttir ritari, Þorbjöm Hlynur Ámason biskupsritari og Flóki Kristins- son. Timamynd: Aml Bjama Hækkunin ekki á vegum kirkjumálaráðuneytisins Óli Þ. Guðbjartsson, dóms- og kirkjumálaráðherra, sagði að það væri rangt að leigan á prestssetrunum hefði verið hækkuð fyrir atbeina kirkjumálaráðherra, eins og kom fram á biaða- mannafundi Prestafélagsins þar sem mótmælt var hækkun á leigu á prestssetrum. Hann sagði að reglugerðin væri á vegum Qármálaráöuneytisins og þessi reglugerð hafi verið grundvölluð á lögum nr. 27 frá 1968 sem fjármálaráðherra gaf út á sínum tíma. Þessi reglugerð á við um al!a emb- ættisbústaði í eigu ríkisins, ekki bara prestssetur, og samkvæmt reglugerð- inni er ný leiga alltaf reiknuð út 1. ágúst ár hvert á vegum launadeildar tjármálaráðuneytisins. í fyrra var send beiðni úr fjármálaráðuneytinu til þeima um að reikna út hækkun á leigu samkvæmt reglugerðinni, sem þeir gerðu. Þannig að það er mesti misskilningur að þessi reglugerð sé komin ífá kirkjumálaráðuneytinu. í bréfi, dagsettu 8. ágúst síðastliðinn, sem Prestafélag íslands sendi kirkju- málaráðherra til að mótmæla þessari hækkun segir: „Stjóm Prestafélags Islands hefur oft mótmælt og mót- mælir enn þeirri skoðun kirkjumála- ráðuneytisins að prestssetur falli undir ákvæði reglugerðar nr. 334 ífá 1982 um íbúðarhúsnæði í eigu ríkis- ins.“ Oli Þ. Guðbjartsson segir að ekki sé um neina sérstaka skoðun að ræða hjá kirkjumálaráðherra á þessari reglugerð. Hún er grundvölluð á lög- um nr. 27 ffá 1968 sem fjármálaráðu- neytið gaf út og í 12. grein þessara laga segir að lögin öðlist gildi 1. júlí 1968 ogjafnframt falli úr gildi lög nr. 38 frá 1947 um skipulag og hýsingu prestssetra. Þannig er það ákveðið í einni grein þessara laga að þau taki við af eldri lögum um skipulag og hýsingu prestssetra og þar komi ekki málinu við skoðun eða skoðanaleysi kirkjumálaráðherra á hveijum tíma. Þetta er svona. Óli sagði að það væri ekkert óeðli- legt við að húsaleiga á prestssetrum hækki eins og á öðrum embættisbú- stöðum, það væri í raun mjög eðli- legur hlutur. Húsaleigan hafði ekki verið hreyfð í nokkur ár vegna þess að fjármála- ráðuneytið hafði ekki sinnt sinni vinnu en nú væri það gert. Reglu- gerðin gerir ráð fyrir hámarki og lág- marki og sem dæmi er hámarksleiga á einum stað um 19.000 kr. en lág- markið er rétt rúmar 17.000 kr. Raun- in er hins vegar sú að greiddar eru 12.808 kr. og ástæðan fyrir því er sú að þetta hús er ekki í góðu ástandi. Upphæðimar sem um er að ræða núna eru svo miklu lægri en reglu- gerðarhámarkið segir til um. Það er ekki rétt sem kemur ffam hjá Presta- félaginu að leigan sé á bilinu 10.000 kr. til 18.000 kr. Sannleikurinn er sá að hæsta leigan er 17.416 kr. og lægsta leigan er 2.575 kr., meðaltalið yfír landið er 9.563 kr. Þannig að það er enginn sannleikur að segja að leig- an sé 10 til 18 þúsund krónur. Þar fyr- ir utan er engin leiga eða nánast eng- in á 15 prestssetrum en þar sitja prestar sem hafa verið þar síðan fyrir 1968. Vegna þessara mistaka var engin leiga á 29 prestssetrum til við- bótar en nú er farið að innheimta leigu fyrir þau. Þannig í raun hækk- aði leigan aðeins á 21 prestssetri, og farið var að innheimta leigu á hinum 29. Á fjórum prestssetram þótti ekki fært að innheimta leigu vegna ástands húsanna. Óli sagði að hann kannaðist ekki við það að hafa neitað Prestafélaginu um lækkun á leigunni eins og komið hef- ur ffam í fjölmiðlum, því það væri ekki á hans færi. Reglugerðin er ekki bara um prestssetur heldur um alla embættisbústaði og það væri skylda að fara eftir lögum og reglugerðum, hann hafi ekkert vald í því efni. Auð- vitað væri það ffekar undarleg tíma- setning að gera þetta nú á tímum þjóðarsáttar, en samkvæmt reglu- gerðinni má aðeins framkvæma þessa hækkun 1. ágúst ár hvert. Á næsta ári væri þjóðarsáttin væntan- lega í gildi og því væri ekki hægt að framkvæma hækkunina fyrr en árið 1992 og þá hefði leiga á embættisbú- stöðum í eigu ríkisins verið óhreyfð um árabil. Prestamir hefðu ekkert kvartað þegar gleymdist að hækka leiguna og ekki hefði hann heyrt einn einasta prest minnast á það í fjölmiðlum að í hans embættistíð og þessa fjármála- Óli Þ. Guðbjartsson kirkjumálaráðherra. ráðherra hefði það tekist í fyrsta sinn að fá viðurkennda yfirvinnu fyrir presta. 10-15% rýrnun segja prestar Á blaðamannafundi, sem Prestafé- lag íslands hélt sl. mánudag, kom ffam að hækkunin á húsaleigunni þýði 10 til 15 prósent kjararýmun hjá þeim prestum sem greiða húsaleigu. Það skyti nokkuð skökku við að skerða kjör presta á þennan hátt ein- mitt á þeim tíma sem stjómvöld skír- skota mjög til svonefhdrar þjóðar- sáttar. Á fundinum kom ffam að húsaleiga verður nú ffá 10.000 kr. og upp í 18.000 kr. Ofan á það bætist hitunarkostnaður og því greiði prest- ar almennt ffá 18.000 kr. til 30.000 kr. í húsnæðiskostnað og er það ansi hátt hlutfall af 80.000 kr. grunnlaun- um. Þessi hækkun hefur hins vegar ekki verið ffamkvæmd um nokkurt skeið og er tímasetningin á henni nú einstaklega óhagstæð fyrir presta sem hyggjast mótmæla henni kröft- uglega. Hér sé greinilega um hand- vömm að ræða í stjómkerfmu sem eigi að leiðrétta núna á kostnað prestastéttarinnar. Þá era deildar meiningar um það hvort ríkið eigi prestssetrin og hafi þar með einhvem rétt til að inn- heimta leigu af þeim. Kirkjueigna- nefnd, sem skilaði fyrri hluta álits 1984, álítur að prestssetrin séu kirkjueign en ekki rikiseign og megi því deila um það hvort ríkið hafi ein- hvem rétt til að krefja prestana um leigu á eign sem er í raun kirkjueign. Kirkjuyfirvöld hafa ítrekað mótmælt því að lögin og reglugerðin nái yftr prestssetur á þessum forsendum. Prestafélagið bendir á að prestamir nýta húsnæðið í þágu embættisins sem þeir þjóna, því í mörgum tilfell- um séu prestssetrin þess eðlis að þau em nánast félagsheimili fyrir sókn- ina. Prestssetrið sé jafnvel kvennaat- hvarf og svona mætti lengi halda áffam. I vor var stofnuð nefhd að kröfu Prestafélagsins sem átti að rannsaka kjör presta og fóm prestamir ffam á það við kirkjumálaráðuneytið að ekkert yrði gert í kjaramálum þeirra í þá vem sem nú er gert fyrr en nefhd- in hefði skilað áliti. Því kæmi þessi hækkun nú mjög á óvart. Þeir álitu að þegar kirkjumálaráðherra hafi skipað þessa nefnd, hefði hann verið að við- urkenna að kjör prestanna væm slæm. Þetta stökk, að hækka leigu á prestssetmm um 150 til 200 prósent, væri ekki hægt að ffamkvæma með góðri samvisku í miðri þjóðarsátt. Þar að auki væri nýbúið að taka 4,5 prósent launahækkun af BHMR mönnum með bráðabirgðalögum og nú ætti að skerða laun presta um 10 til 15 afhundraði. Þeir héldu jafnvel að næsta skref ráðuneytisins yrði að fella alveg niður leigu á prestssetmn- um en í stað þess var hún hækkuð. Prestamir þurfi að taka við prests- setrinu eins og það er og oft væri kyndingar- og rafmagnskostnaður mun meiri vegna þess hve húsin em stór. Þá em þau mjög mörg í slæmu ásigkomulagi og sum vart íbúðarhæf. Fram kom á fundinum að þetta væri ekki bara einfalt kjaramál prestanna heldur væri þetta spuming um kirkju- lega þjónustu á stóram svæðum úti á landi og hver afdrif hennar verði, hvemig búið er að þessari þjónustu og nú væri verið að skerða kjör presta sem kirkjumálaráðherra hefði viður- kennt að væra lök fyrir og því horfi illa fyrir kirkjulegri þjónustu á stór- um svæðum úti á landi. Hér er um of- ríkisaðgerð að ræða og því hlýtur þetta að knýja á um það að samskipti ríkis og kirkju yrðu endurskoðuð. —SE Bæjarráð Njarðvíkur: Áhyggjur af flug- umferð Bæjarráð Njarðvíkur hefur lagt fyrir samgönguráðherra ályktun þar sem lýst er yfir þungum áhyggjum vegna mikillar flugum- ferðar yfir íbúðabyggð i Njarðvík. Tilefhið er nauðlending feijuflug- vélar á Reykjanesbraut ofan Njarðvíkur sunnudaginn 5. ágúst sl. I ályktuninni er spurt hvers vegna umræddri flugvél, „sem augljóslega var i miklum vand- ræðum, var beint í aðflugi yfir íbúðabyggð í Njarðvíkurbæ." í ftamhaldi af því er spurt hvort reglur séu til um það hvemig stjóma skuli aðflugi flugvéla í neyð, þegar aðflugsstefha flug- brautar er yfír íbúðabyggð. „Ef þessar reglur era til, hveijar eru þær og hefur þeim verið fylgt?“ Bæjarráðið krefst þess, engar slíkar reglur era til, að þær verði settar og sveitarfélög við flugvelli verði höfð með í ráðum við að semja þær. Að lokum segir í ályktuninni: „Bæjarráð Njarðvikur lítur flug- slysið á Reykjanesbraut mjög al- varlegum augum og krefst svara. Að sögn sjónarvotta að þessu at- viki, þá rétt slapp vélin hikstandi yfir húsþök ibúðarblokka í Ytri- Njarðvík." GS. (slandsmótið í atskák: Riðlakeppni fór fram um helgina Undankeppni íslandsmótsins í atskák fór fram nú um helgina. Teflt var í þremur riðlum, á Akur- eyri, Isaflrði og Reykjavík. Rúnar Sigurpálsson stóð efstur á Akur- eyri, og Ágúst Sindri Karlsson á ísafirði. Þessir tveir hafa unnið sér rétt til þátttöku í Úrslitakeppn- inni sem fram fer í Reykjavík í byijun janúar. Þá munu sjö efstu menn úr Reykjavíkurriðlinum tefla í úrslitakeppninni, auk þess sem sjö stigahæstu skákmenn landsins hafa þátttökurétt í úr- slitakeppninni. Þetta er í þriðja sinn sem Islandsmót í atskák er haldið. Að sögn Gylfa Þórhallssonar hjá Skákfélagi Akureyrar kepptu 11 skákmenn í riðlinum á Akureyri, og er það nokkuð minni þátttaka en búist var við. Gylfi sagði að ástæðumar væru þær að margir væru í sumarfríi núna, og þetta væri sá árstími sem menn hvíldu sig frá taflborðunum. Sem áður sagði sigraði Rúnar Sigurpálsson, hlaut 9 vinninga af 10 möguleg- um, í 2-3. sæti urðu Gylfi Þór- hallsson og Halldór Grétar Ein- arsson með 7 vinninga. Jón Ámi Jónsson varð í 4. sæti með 6.5 vinninga og í 5.-6. sæti urðu Ólaf- ur Kristjánsson og Bogi Pálsson með 6 vinninga. Peningaverðlaun vora veitt fyrir tvö fyrstu sætin, og hlaut Rúnar 10 þúsund krónur, og Gylfi sem var hærri Halldóri að stigum, hlaut 5 þúsund krónur. Atskákin er ung keppnisíþrótt á íslandi, en nýtur jafiiframt vax- andi vinsælda. Atskákin er eins konar millivegur í skákkeppni, og hafa keppendur hálfa klukku- stund til umhugsunar. Gylfi sagði að þetta væri í fyrsta sinn sem Is- landsmótinu í atskák væri skipt i undankeppni og úrslit, og væri það liður í að gera mótið veg- legra, og einnig að gefa fleirum tækifæri á að spreyta sig. hiá-akureyri.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.