Tíminn - 23.08.1990, Page 4

Tíminn - 23.08.1990, Page 4
Tíminn 4 pf-t-p—. FRÉTTAYFIRLIT VOSLOORUS: Suður-Afr- íka. 37 manns létu lífið í Jóhann- csarborg, aðfaranótt miðviku- dags. Blóðugir bardagar bmtust út eftir að slitnaði upp úr friðarvið- rteðum striðandi fylkinga. Að sögn lögreglu hafa 444 látið lifið undanfama tíu daga í átökum Ink- atha ættflokksins og fylgismanna Afriska þjóðarráðsins. BRUSSEL: Að sögn tals- manns utanrfldsráðuneytis Belga, hafa Irakar gengið á bak þeirra orða sinna að 650 þegnum sjö Evrópulanda yrði hleypt út úr Kú- væt. NÍKÓSÍA: Sendimaður Iraka í Genf sakaði Breta um að eiga stærstan þátt í því hvemig málum væri nú komið fyrir botni Persa- flóa sökum nýlendustefhu lands- ins. Jafhffamt að ekki yrði hægt að leysa zzdeiluna fyrr en allar er- lendar hersveitir hyrfú á brott af svæðinu. Þá hafa írakar sakað Bandaríkjamenn um að þeirra eina marianið sé að koma hönd- um yfir olíusvæði íraka. RUSWEISHED, Jórdaniu: Að sögn sjónarvotta hafa yfirvöld í Irak látið taka 20 manns af lífi fyrir þjóínað og hengt lflc þeirra upp á götum Kúvæt MANBLA: Fjölgað var í herliði stjómarinnar í kjölfar tíðra sprenginga sem vakið hafa óhug almennings í höfiiðboig Filipps- eyja og valdið auknum áhyggjum af hugsanlegu tilræði við forseta landsins, Corazon Aquino. FREETOWN: Brottför friðar- sveita á leið til Líberíu hefúr verið ffestað. Efnt var til viðræðna á síðustu stundu í kjölfar atvika sem bentu til að viðhorf Charles Tayl- or, foringja uppreisnarmanna, til erlendrar íhlutunar sé að breytast til batnaðar. PASADENA: Magellan, gervitungl Bandaríkjamanna lenti í ótilgreindum erfiðleikum eftir að hafa sent nýjar undraverðar myndir af Venusi til jarðar í gær MOSKVA: Yfirmaður í KGB sagðist hafa sent aukaherlið og brynvarða bíla til landamæra Lit- haugalands og Póllands til að vera viðbúinn skipulagðri fjöldaferð þjóðemissinnaðra Lithauga yfú landamærin. Ekki verður reynt að stöðva fólkið heldur er sagt, að §öldi landamæravarða sé ekki nægjanlegur til að annast nauð- synlegt eftirlit með vegabréfúm. BEIJING: Kínversk dagblöð hafa eftir forsastisraðherra Kína, Li Peng, að ráðamenn þar í landi muni ekki styðja tillögu Banda- ríkjamanna um beitingu hervalds til að tryggja að refsiaðgerðum Sameinuðu þjóðanna verði ffam- fylgt Finnmtuclagur 23. ágúst-19.90 Þurftafrekar bandarískar hervélar eru meginorsökin að Saúdí- Arabar fresta olíuútflutningi. Arabarnir munu þó sjá Jórdönum fyrir olíu, þar sem þeir síöarnefndu hafa lýst því yfir að þeir virði viðskiptabann SÞ við frak. Saúdí-Arabar sjá þeim fyrir hráolíu en fresta útflutningi unnar olíu: Jórdanir samþykkja refsiaögerðir SÞ Jórdanir hafa loks tekið af skarið og lýst því yfir að þeir muni virða viðskiptabann Sameinuðu þjóðanna við írak, en óska líka eft- ir því, að tilgreint verði nákvæmlega um hvaða vörur er að ræða. Hafnaryfirvöldum Aqaba hefur þó ekki verið fyrirskipaö að snúa við skipum sem flytja varning til og frá írak. í gær varð ennþá vart ferða flutningabifreiða yfir landamæri íraks og Jórdaníu. Jórdanir hafa einnig beðið Japani og Bandaríkjamenn um aðstoð vegna þess hve illa viðskiptabannið kemur við fjárhag þjóðarinnar. „Japanir eru reiðubúnir til að veita Jórdönum fjárhagsaðstoð vegna þess tjóns sem þeir verða fyrir sökum refsi- aðgerðanna“, sagði utanríkisráðherra Japans, Taro Nakayama í heimsókn sinni til Amman á þriðjudag. Þá hafa Saúdí-Arabar lofað að sjá Jórdönum fyrir milljón tunnum af olíúí septem- bermánuði. „Jórdanir hafa til þessa fengið 82,5 prósent sinnar olíu frá írökum. Undanfarið hafa þeir legið undir miklum þrýstingi vestrænna rikja um að hætta þeim viðskiptum. Munum við koma til með að sjá þeim fyrir olíu“, sagði olíumálaráðherra Saúdí- Araba, Thabet al-Thaer. Jórdanir hafa lýst því yfir að þeir vilji borga olíuna en ekki er víst hvort Saúdí-Arabar vilja taka við greiðslu. Haft er eflir arabískum diplómat að þó samskipti þessa tveggja þjóða hafi gengið nokkuð stirðlega að undan- fömu, vegna deilna í tengslum við innrás Iraka í Kúvæt, virðist Hussein konungur vilja forðast að þau versni frekar og það sama er að segja um Saúdí-Araba. Saúdí-Arabar eiga þó í nokkrum erf- iðleikum með útflutning hreinsaðrar olíu og hafa þegar tilkynnt fjölda við- skiptaaðila að þeir fái ekki umsamið magn olíu i næsta mánuði. Astæðan er rakin til fjölda þurflafrekra banda- rískra hervéla, bæði skipa, flugvéla og bíla, sem em famar að ganga ótæpi- lega á oliubirgðir i landinu. Magn út- fluttrar olíu ffá svæðinu féll um 600 þús. tunnur á dag við innrás íraka í Kúvæt. „Þegar haft er samband við einhveijar af olíuvinnslustöðvum Saúdí-Araba er svarið oftast það, að enga olíu verði að fá ffam til ársins SAMEINING Stefht er að formlegri samemingu þýsku ríkjanna strax upp úr byrjun októ- ber. „Vestur-þýska stjómin álítur hvaða dag mánaðarins sem er, utan tvo þá fyrstu, koma til greina“, sagði Hans Klein, talsmaður stjómarinnar. Yfirlýsingin er málamiðlun flokkanna en kristilegir demókratar höföu farið ffam á að sameinigin færi ekki ffam fyrr en 14. október, á meðan jafnaðarmenn kröföust þess að henni yrði lokið ekki síðar en um miðjan september. Ákvörð- un um nákvæma dagsetningu verður í í OKTÓBER höndum vestur-þýska þingsins. Flokkur Kristilegra demókrata hefúr lagt til að sameiginlegar kosningar verði haldnar fjórtánda október en áður haföi verið ráðgert að þær yrðu ekki fyrr en í byijun desember. Að sögn talsmanns austur- þýsku stjómarinnar haföi Helmut Kohl samband við forsætisráð- herra Austur-Þjóðveija, De Maiziere, í gær til að ræða sameiningarmálin. En sá síðamefndi hefúr verið í forsæti minni- hluta síðan jafúaðarmenn sögðu skilið við stjómina um helgina. Aðgerðir gegn Armenum? í ávarpi forseta Aserbædsjan, Ajaz Mutalibovs, til sovéska þingsins falað- ist hann meðal annars eftir alþjóðlegri samstöðu til styrktar landi sínu í stríði við Armena og sagði óhjákvæmilegt að gripið yrði til ffekari aðgerða til að vemda land og þjóð. Avarpinu var sjónvarpað á þriðjudag. Mutalibov sagði íbúa Aserbædsjan ávallt hafa tengt framtíð sína sovéska ríkjasambandinu en þrátt fyrir þetta, heföi öryggi og tilvist lýðveldisins auk friðhelgi landamæra verið teflt í tví- sýnu. Mutalibov var þá einkum að vísa til þeirrar tilskipunar Gorbatsjovs að menn skildu afhenda vopn sín. Til- skipunina sagði hann meingallaða og að þegar tímatakmörkum var frestað hafi sovésk stjómvöld gengið að kröf- um Armena. Þar að auki hafi miðstjóm Sovétríkjanna lagt málið þannig fyrir að báðir aðilar væm jafn sekir, nokkuð sem Mutalibov sagði vera rangt. For- setinn bætti því jafhffamt við að að- stæður kreföust þess að gripið yrði til refsiaðgerða gegn Armenum. 1991 og flest önnur lönd á svæðinu öryggisástæðum“, sagði einn olíu- em einnig farin að safha birgðum af kaupmannanna fyrir botni Persaflóa. Bush hefur tilkynnt að Bandaríkjamenn muni ekki fara að til- skipun Saddams Husseins þess efnis, að öllum sendlráðum I Kúvæt skuli lokað fýrtr föstudag. Bandaríkjamenn hafa kvatt út varalið og hundsa fyrirskipun Saddams ásamt fleiri þjóðum: Neita að loka sendiráðunum Bandaríkjaforseti hefur neitaö að verða við fyrirskipun Saddams Husseins þess efnis, að loka beri öU- um erlendum sendiráðum í Kúvæt fyrir morgundaginn. Þá hefur Bush kallað liðsmenn i varaliði Banda- ríkjahers til starfa, til stuðnings þvi liði sem þegar befur verið sent tíl Saúdf-Arabiu. Sendiherra Bandaríkjamanna i Kúvæt, Nathaniei Howell, mun að sögn talsraanns bandaríska utan- ríkisráðuneytisins ekki hverfa heim. Töluverðnr fjöldi starfs- manna verður eftir ásamt sendi- herranum, þrátt fyrir tilskipun Husseins. Fjölskyldur sendiráðs- manna og allir þeir starfsmenn, sem sendiráðið getur strangt til tek- ið verið án, hafa verið sendir tU Bandaríkjanna. Flest önnur lönd er eiga sendiráð i Kúvæt hafa lýst yíir því sama, að sendiráöunuro verði ekki lokað og sendiherrar muni ekki snúa heim. Þeir Bandarikja- menn, sem hyggjast frcista þess að komast yfir landamæri Kúvæt, eru beðnir að skipuleggja flóttann út í ystu æsar og varaðir við að þegar hefur verið tilkynnt aö einn hafl látið lífið við flóttatilraun. Ekki hefur verið greint frá ná- kvæmum fjöida þeirra sem kallaðir verða til úr varaliðí Bandaríkja- hers, en tala, sem nefnd hefur veríð, er um 40 þús. Þetta er i fyrsta sinn frá því í Vietnamstriðinu sem vara- liðið hefur verið kallað tíl hernað- arstarfa. Árið 1970 voru rúmlega 26 þús. hermenn kvaddir út, en þá tíl að bera út póst í verkfalli póstút- burðamanna. Bush hefur heimild til að kveðja tíl starfa allt að 200 þús. hermenn úr varaliðinu, í allt að 90 daga og þlngið getnr síðan bætt öðrum 90 dögum við þann tíma ef þurfa þykir. Talsmaður Hvita hússins, Marlin Fitzwater, hefur sagt, að flestir þeirra, sem kallaðir verði til starfa, komi úr röðum lækna og hjúkrunarfólks.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.