Tíminn - 23.08.1990, Qupperneq 12

Tíminn - 23.08.1990, Qupperneq 12
12 Tíminn Fimmtudagur 23. ágúst 1990 Ingólfur Benediktsson málarameistari frá Dal Fœddur 25. september 1908 Dáinn 6. maí 1990 Til afa i Dal. í húsi sem að nú er orðið hljótt við háa brekku og lœk með fagran söng bjóst þu, og vegna þln var ekkert Ijótt I lífinu sem hló þar dœgrin löng. Og hvlldin þar var hverjum manni náð sem hvarf þar inn i litla konungshöll. Þar alltaffengu afadrengir gáð I œvintýrahéim við álfa og tröll. Og pottormum sem geystust þar um gólf var gefið meira en nokkur maður veit. Þœr gjafir jylla hjarta og sálarhólf afhlátri sem að bjó þar uppi l sveit. Svo þó að hlátur hljóðni nú um sinn og húsið grátiþegar enginn sér þá býrþin gjöfhjá okkur, afi minn, og öllum þeim sem fengu að kynnast þér. Sigurður og Benedikt Ingólfssynir. DAGBÓK Söngtónleikar Kári Friðriksson og Ulrik Ólafsson halda söngtónleika á Húsavík 1. september nk. i samkomusal Bamaskóla Húsavikur kl. 15 og á Akureyri 2. sept nk. i sal Tónlistar- skóla Akureyrar kl. 15. Á efhisskrá eru meðal annars lög eftir Áma Thorsteinsson, Sigfús Halldórsson og Sigvalda Kaldalóns. Einnig eru lög eftir ítölsku tónskáldin Francesko Cilea og Giacomo Puccini. Úlrif Ólafsson er 37 ára gamall. Hann hlaut menntun á Akranesi og í Reykjavfk og framhaldsnámi lauk hann f Rcginsburg í Vestur-Þýskalandi. Aðalnámsgreinar voru orgelleikur, kór- og hljómsveitar- stjóm með sérstakri áherslu á kirkjulegar tónbókmenntir. Að námi loknu starfaði á Akranesi f 1 ár og á Húsavik f 6 ár, þar sem hann var org- anisti við Húsavíkurkirkju, skólastjóri tónlistarskólans og stjómandi blandaðs kórs á Húsavík og Karlakórsins Hreims í Aðaldal. Ulrik er organisti við Krists- kirkju í Landakoti síðan 1987, kennir org- elleik og kórstjóm við Tónlistarskóla þjóðkirkjunnar f Reykjavík og er stjóm- andi söngsveitarinnar Fflharmóniu sfðan haustið 1988. Hann hefur spilað undirhjá fjölda einleikara. Kári Friðriksson er 29 ára gamall. Hann I \ í- Wm JR i m hefúr stundað söngnám um margra ára skeið, meðal kennara hans vom Magnús Jónsson og Sigurður Demetz. Kári út- skrifaðist sem tónmcnntakennari ftá Tón- listarskólanum 1 Reykjavík 1988 og tók einnig 8. stigs söngpróf þaðan ári síðar. Var söngkennari hans þar Halldór Vil- helmsson. Veturinn 1989-90 var Kári á Ítalíu hjá Pi- er Miranda Ferraro í Milano f ffekara framhaldsnámi í söng. Þetta em 'fyrstu einsöngstónleikar Kára. Til sölu fjölhnífavagn DEUTZ FAHR K550 árg. 1985. Upplýsingar í síma 93-41475. Fiat Uno 45 árg. ’84 til sölu, í góðu standi. Selst gegn staðgreiðslu á 110 þúsund. Upplýsingar í síma 91 -41224 eftir kl. 18. % |v Kransar, krossar, kistu- skreytingar, samúðarvendir og samúðarskreytingar. Sendum um allt land á opnunartíma ^)frá kl. 10-21 alla daga vikunnar I MMiLfa í Miklubraut 68 @13630 Þriðjudagstónleikar Á þriðiudagstónleikum f Listasafni Sig- uijóns Ólafssonar nk. þriðjudag, 28. ág- úst, kl. 20.30 mun Jónas Ingimundarson pfanisti leika verk eftir Chopin. Jónas er tónlcikagestum Listasafhs Siguijóns Ól- afssonar vel kunnur, því í fyrrasumar hélt hann cinleikstónlcika og fýrr f sumar lék hann undir söng Sólrúnar Bragadóttur f sal safnsins. Er skemmst frá þvf að segja að cndurtaka þurfli báða tónleikana vegna mikillar aðsóknar og urðu samt margir frá að hverfa. Jónas er nýkominn frá Eng- landi þar sem hann hélt tónleika með Kristni Sigmundssyni á Listahátíð í Strat- ford upon Avon. Að venju munu tónleikamir standa f um það bil klukkustund og verður kaffistofa safnsins opin að þeim loknum. Nessöfnuður Sfðsumarferð um Borgarfjörð nk. laug- ardag. Lagt af stað kl. 10 frá Neskirkju. Veitingar í Reykholti. Beijasprettan könn- uð. Nánari upplýsingar hjá kirkjuverði f síma 16783. Guðmundur Óskar Ólafsson Félag eldri borgara Gönguhrólfar hittast nk. laugardagkl. 10 að Nóatúni 17. Þingvallaferð 1. septem- ber. Nánari upplýsingar 1 sfma 28812. Félag eldri borgara Nokkur sæti laus f ferð 28.8 um Fjalla- bak syðra, Lakagfgar, Skaftafell og Breið- amerkurlón. Til baka verður farið um Fjallabak nyrðra, Eldgjá og Landmanna- laugar. Lagt verður af stað þriðjudaginn 28. ágúst kl. 9.00 ffá B.S.Í. Fararstjóri er Pétur Ólafsson. Frekari upplýsingar má fá ísímum 28812 og 623320. Pennavinir óskast Tímanum hefúr borist bréf ffá 23 ára gamalli sænskri stúlku sem vill skrifast á við íslendinga á aldrinum 23-26 ár, karla eða konur. Áhugamál hennar em tónlist, fþróttir og islenskir hestar o.fl. Hún segir að þeim sem svara sé í sjálfsvald sett hvort þeir senda mynd eða ekki. Hún skrifar bæði sænsku og ensku og heimilis- fangið er: Kicki Mikaelsson Lundavagen 8a S 90249 Umea Sviþjóð Septem á Kjarvalsstööum Laugardaginn 25. ágúst verður opnuð að Kjarvalsstöðum sýningin „September — Septem". Sýnd em verk félaga úr Sept- emberhópnum ffá árunum 1948 til 1952 og félaga úr Septemhópnum ffá árinu 1974. Sýningin verður f öllu húsinu og lýkur 9. september. Kjarvalsstaðir em opnir daglega ffá kl. 11.00-18.00 og er veitingabúðin opin á sama tíma. Sumarsýning í Hafnarborg Laugardaginn 28. júlí sl. var opnaður nýr sýningarsalur i húsakynnum Hafharborg- ar. Salurinn hefúr hlotið nafhið Sverris- salur f virðingarskyni við dr. Sverri Magnússon, lyfsala í Hafnarfirði, en hann lést 22. júni s.l. Sverrir var, ásamt konu sinni Ingibjörgu Siguijónsdóttur, er lést 1986, ffumkvöðull að stofnun Hafhar- borgar, menningar- og listastofhunar Hafnarfjarðar. Af þessu tilefhi hcfúr nú verið sett upp sýning í sýningarsölum Hafnarborgar á hluta listasafns þeirra hjóna sem þau af- hentu stofnuninni með gjafabréfi hinn 1. júní 1983 í tilefni af 75 ára afmæli Hafn- arfjarðarbæjar. í Sverrissal em sýnd um þijátíu listaverk er Svenir Magnússon afhenti stofhuninni til eignar f nóvcmber á sfðasta ári. SÍÐASTA SÝNINGARHELGI Sýningarsalir em opnir alla daga nema þriðjudaga ffá kl. 14:00- 19:00. Kaffistofa Hafnarborgar er opin alla dagaftákl. 11:00-19:00. Ertu hættulegur IUMFERÐINNI 0 án þess að vita það? Mörg lyf hafa svipuö áhrif og áfengi Kynntu þér vel lyfiö sem þú notar. il® Sjáum um erfidrykkjur RISIÐ Borgartúni 32 Upplýsingar í síma 29670 t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför Páls Þorsteinssonar á Hnappavöllum Guðrún og Sigurður, Ásdís, Gunnþóra og fjölskyldur. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi Guðjón Jónsson Kirkjuhvoll, Hvolsvelli verður jarðsunginn frá Breiðabólstaðarkirkju (Fljótshlíð laugardaginn 25. ágúst kl. 14.00. Rúnar Guðjónsson Auður Svala Guðjónsdóttir Ingi Guðjónsson Erna Hanna Guðjónsdóttir Margrét Guðjónsdóttir Kjartan Óskarsson og barnabörn ' í i ‘ • . i I 8 IÉI ’i 11 1 * ' V: ; ^ » f Jl Ls. Vetrarstarf Langholtskórsins að hefjast Kór Langholtskirkju hefhr vetrarstarfið nú f byrjun september. Fyrsta verkefhi vetrarins verður að æfa fýrir FinnlandsfÖr kórsins f október nk., en kómum var boð- ið að taka þátt f íslandsviku'sem haldin er 1 tilefni vigslu nýrrar tónleikahallar f Tampere. Kórinn syngur við biskups- messu i Dómkirkjunni i Tampere, þar sem biskup íslands, herra Ólafhr Skúlason, mcssar ásamt finnskum starfsbróður sfn- um. Auk þess heldur kórinn sjálfstæða tónlcika í Tampere, Helsinki og Borga. Á efhisskránni verða fslensk verk, gömul og ný, en höfuðáherslan lögð á kirkjutónlist. Þá mun kórinn koma fram við athöfh er forseti íslands, frú Vigdfs Finnbogadóttir, verður sæmd heiðursdoktorsnafnbót. Jólasöngvar kórsins verða að vanda sein- asta föstudag fýrir jól, hinn 21. desember. Á þeim tónleikum verða flutt lög og verk tengd jólum og aðventu. Þessir tónleikar em árlegur viðburður og jafhan húsfýllir. Um jólin verður flutt JÓLAÓRATOR- ÍAN eftir J.S. Bach, en flutningur þessa stórvirkis hefhr verið fastur liður annað hvert ár frá 1981, en féll niður s.l. ár vegna flutnings kórsins á Sköpuninni eft- ir Haydn með Sinfóniuhljómsveit íslands. Eftir jól verður tekið til við æfingar á JÓ- HANNESARPASSÍUNNI eftir J.S. Bach, sem flutt verður i vor. Hugmyndin er að sviðsetja verkið, en Jóhannesarpassían er sérlega leikrænt verk með hraðri atburða- rás scm nálgast mjög ópemformið. Þetta er þó háð því að fjármagn fáist, þvi slík uppfærsla yrði afar dýr. Raddþjálfari verður eins og undanfarin ár Ólöf Kolbrún Harðardóttir og stjóm- andi kórsins er Jón Stefánsson. Hægt er að bæta við nokkmm félögum f allar raddir. Þeir sem áhuga hafa, þurfa að hafa góðar raddir og cinhver tónlistar- þckking er æskileg, en ekki skilyrði. Sækja þarf um fýrir 26. ágúst i síma 71089 (Sigrún Stefánsdóttir) eða 84523 (Ema Þórarinsdóttir).

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.