Tíminn - 23.08.1990, Qupperneq 17

Tíminn - 23.08.1990, Qupperneq 17
'W'. Fimfritudagun'23! ágúst. 1990 Tíminn 17' Dagskrá SUF-þings, Núpi, Dýrafirði, 31. ágúst-2. september Föstudagur 31. ágúst Kl. 16.30 Setning - Gissur Pétursson, formaöur SUF. Kl. 16.45 Kosning embættismanna. Skipað í nefndir. Kl. 17.00 Ávörpgesta. Kl. 17.30 Lögö fram drög að ályktunum. Almennar umræður. Kl. 19.00 Kvöldmatur. Kl. 20.00 ísland og Evrópubandalagið - Gunnar Helgi Kristinsson stjórnmálafræðingur. Fyrirspurnir og umræður. Kl. 21.30 Nefndarstarf. Kl. 22.30 Kvöldvaka - þjóðdansar. Laugardagur 1. september Kl. 08.30 Morgunverður. Kl. 09.00 Nefndarstarf Kl. 11.00 Umræður. Kl. 12.00 Hádegisverður. Kl. 13.00 Umræður og afgreiðsla ályktana. Kl. 14.30 Hlé - Knattspyrna og hráskinnaleikur. Kl. 16.00 Afgreiðsla stjórnmálaályktunar. Kl. 17.30 Kosningar. Önnur mál. Kl. 18.00 Þingslit. Kl. 21.30 Kvöldskemmtun - söngur, glens og gaman. Sunnudagur 2. september Kl. 09.30 Morgunverður. Brottför. Málefnaundirbúningur fyrir SUF-þing á Núpi: Stjórnmálanefnd Gissur Pétursson formaður. Fundur fimmtudaginn 23. ágúst kl. 18. Öllum ungum framsóknarmönnum er heimil þátttaka í málefnaundir- búningi. Komið og látið sjá ykkur. Fundirnir verða að Höfðabakka 9 (Jötunshúsinu). Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Framsóknarflokksins í síma 674580. KJÖRDÆMISÞING framsóknarmanna í Vestfjarðakjördæmi. Haldið að Núpi í Dýrafirði 8.-9. september 1990 DAGSKRÁ: Laugardagur 8. september: 1. kl. 14.00 Þingsetning 2. kl. 14.10 Kosning starfsmanna þingsins 3. kl. 14.15 Kosning nefnda og framlagning mála 4. kl. 14.40 Skýrslur stjórnar, umræður og afgreiðsla 5. kl. 15.10 Ávörp gesta 6. kl. 15.30 Kaffihlé 7. kl. 16.00 Stjórnmálaviðhorfið - staða og horfur 8. kl. 16.40 Ávarp þingmanns og varaþingmanns 9. kl. 17.30 Almennar umræður 10. kl. 19.00 Matarhlé 11. kl. 20.00 Umræður um framboðsmál 12. kl. 21.00 Fundi frestað Sunnudagur 9. september: 1. kl. 09.00 Nefndarstörf 2. kl. 12.00 Hádegisverður 3. kl. 13.00 Afgreiðsla mála 4. kl. 14.00 Kjör stjórnar og nefnda 5. kl. 14.30 önnur mál 6. kl. 15.00 Þingslit Stjórnin Umhverfismálaráðstefna Ráðstefna um umhverfismál verður haldin í Vestmannaeyjum laugardaginn 29. sept. nk. Ráðstefnan er öllum opin. Nánar auglýst síðar. Landssamband framsóknarkvenna, LFK. KRfggSS Cher hefur haft slfk áhrif á gftarleikara Bon Jovi, en þau hafa veriö saman f rúmt ár, að nú sér fyrir enda sam- starfs meðlima hljómsveitarínnar. Cher splundrar Bon Jovi Hljómsveitin fræga Bon Jovi riðar nú til falls. Ástæðan er sögð ástar- samband gítarleikarans, Richie Sambora, við söng- og leikkonuna Cher. Samband þeirra hefur beint at- hyglinni mun meira að gítarleikar- ann en áður var og það á aðal- sprautan í hljómsveitinni, Jon Bon Jovi, bágt með að þola. Hann opnar varla svo blað að ekki sé þar fjallað um samband gitarleikarans og Cher og þegar hann komst að því að búið var að stofna aðdáendaklúbb um Richie Sambora var mælirinn full- ur. Cher hefur lagt á það rika áherslu við Richie að fara nú að huga að eigin ffama því hann sé hæfileika- mestur í hljómsveitinni. Þetta hefur allt stigið drengnum til höfuðs og vinnur hann nú að sólóplötu. Jon Bon Jovi vill ekki vera minni maður og er nú með eigin sólóplötu ápijónunum. Aðrir meðlimir hljómsveitarinnar eru að vonum svekktir yfir þessari framvindu mála og telja þetta bana- bita Bon Jovi. Allar áætlanir um plötu með hljómsveitinni eru runn- ar út í sandinn. Enginn veit hver endirinn á þessum bræðrabardaga verður en menn telja ekki miklar vonir til að hljómsveitin lifi hann af. Tilverustigin mörg og marg- vísleg Eddie Murphy er, að eigin álfti, kvennagull allra tfma. Valentino og Casanova geta faríð heim og lagt sig (ef þeir væm ekki dauðir). Karlagrobb af verstu sort Eddie Murphy er sannfærður um að hann sé það besta sem hent geti nokkra konu. „Konur elska mig. Þær gráta af hlátri þegar ég segi brandara. Ef það er ekki kynþokki þá veit ég ekki hvað,“ segir hann stoltur. Þetta sjálfsálit hefur fylgt honum lengi því i gagnfræðaskóla átti hann að skrifa ritgerð um sjálfa sig og hún bar vitanlega yfirskriftina „Eddie Murphy — guðsgjöf til allra kvenna." Eddie til mikillar undrunar er til kvenfólk sem bara fer út með hon- um vegna frægðarinnar. „Þegar þær reyna við mig líkar mér það vel í fyrstu. Síðan þegar ég sé hve auðvelt það er að komast yfir þær fæ ég leið á þeim.“ Eddie á tvö böm sitt með hvorri konunni. Ekki hvarflar það að honum að giftast annarri þeirra því það gæti sett hömlur á frelsi hans. Hann segist reiðubúinn að sjá fyr- ir bömunum en þar með er um- hyggja hans upptalin. Eddie er frægur fyrir að segja ruddalega og niðurlægjandi brandara um konur. Einnig hefur hann orð á sér fyrir að vera ótrú- legur nískupúki. Þótt hann sé vell- auðugur geta konur sem hann býð- ur út ekki átt von á veglegri máltíð en hamborgara með frönskum. Samt flykkjast þær um hann. Em konur í Ameríku ekki með öllum mjalla? v. i Það em ekki bara íslendingar sem em á kafi í dulspekinni og vita allt um fyrri tilverustig og jafnvel þau næstu. Dallas-stjaman Patrick Duffy er með þetta allt á hreinu. Hann kveðst hafa verið rustamenni hið mesta í fyrra lífi og sífellt verið að beija á fólki og stórslasa það. Þama segir hann komna skýringuna á þvi að hann sé alltaf að meiða sig á höndun- um, það geti ekki verið hrein tilviljun (eða klaufaskapur). Hann segist með þessu vera að gjalda skuld frá fýrra lífi. Patrick Duffý hefiir verið búddisti í 17 ár og trúir þvi að lífið sé eilíf hringrás. Þetta veitti honum mikla huggun þegar ræningjar myrtu for- eldra hans. Hann vissi að þau mundu lifa áffam. Að sögn Patricks sofnum við að loknu hveiju tilverastigi og vöknum til nýs lífs daginn eftir. Hann heldur því fram að hjónaband hans sé engin tilviljun heldur. „Samband okkar er miklu sterkara en árin sem við höfum lifað saman gefa ástæðu til. Við eig- um sameiginlega reynslu frá íyrri til- Patrick Dufly þarf ekki að fara f neinar grafgötur um hvað leyndardóma tilverunnarvarðar verastigum. Þegar við voram gefin að við hefðum sameinast vegna við- saman í búddahofi sagði presturinn burða í okkar fyrri lífum.“

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.