Tíminn - 23.08.1990, Page 19
OCC*
Firnrtrtbd'agur'2,3'láölját’' T990
,r,'> r 31“
Trminn 19
ÍÞRÓTTIR
Körfuknattleikur:
NBA-leikmenn settir í
bandaríska landsliðið?
— Eiga Bandaríkjamenn möguleika í gull á ÓL í Barcelona án atvinnumanna?
Eftir flögur mögur ár, þar sem
bandaríska landsliðinu hefur ekki
tekist að sigra í alþjóðlegum stór-
mótum, hafa forráðamenn lands-
liðsins hafið viðræður við yfir-
menn NBA-deildarínnar um að fá
atvinnumenn inn í bandaríska
landsliðið. Það sem vakir fýrír
Bandaríkjamönnum er gullið á
Ólympíuleikunum í Barcelona, en
í Seoul voru það Sovétmenn sem
hirtu gullið í körfuknattleikskeppn-
inni, en Bandaríkjamenn urðu að
sætta sig við bronsið.
„Bandaríkin geta ekki lengur sent
hvaða lið sem er út í alþjóðleg mót og
búist við verðlaunum," segir Craig
Miller, aðstoðarítamkvæmdastjóri
bandaríska körfuknattleikssam-
bandsins, USA Basketball, en lands-
liðið er gert út á þeirra vegum.
„Margar þjóðir hafa náð okkur og
hafa sömu þekkingu á íþróttinni og
við,“ segir Miller.
Samningaviðræðumar við NBA-
deildina beinast að tryggingum
vegna hugsanlegra meiðsla hinna
hátt launuðu leikmanna og hvemig
standa skuli að vali á leikmönnum og
þjálfurum fyrir landsliðið.
,J>etta er allt mjög skammt á veg
komið og það tekur tíma að leysa öll
vandamál, en það sem mestu máli
skiptir er að hver sem er geti leikið
með landsliðinu.“
Yfirburðir Bandaríkjamanna í
körfuknattleiknum hafa minnkað
mjög á síðustu ámm. í þeim 11
heimsmeistarakeppnum, sem ffam
hafa farið hingað til, hafa Banda-
ríkjamenn unnið 7 sinnum til verð-
launa, þar á meðal í keppninni sem
nú er nýlokið í Argentínu, en þá féll
bronsið í þeirra skaut. Á ffiðarleikun-
um í júlí sl. varð bandaríska liðið í
öðru sæti og f því þriðja á ÓL í Seo-
ul. Það var í fýrsta sinn sem banda-
rískt landslið tapar af gulli á Ólymp-
íuleikum síðan í leiknum ffæga í
Mílnchen 1972. Bandaríkjamenn
tóku sem kunnugt er ekki þátt í
Ólympíuleikunum í Moskvu 1980.
Æ fleiri þjóðir hafa eignast sterka
körfuknattleiksmenn, sem hafa kom-
ist á samning hjá liðum í NBA- deild-
inni, og á síðasta ári var reglum
FIBA breytt þannig að atvinnumenn-
imir mega leika með landsliðum sín-
um. Meðan Bandaríkjamenn hafa
haldið áffam að nota óreynda há-
skólaleikmenn, hafa aðrar þjóðir
brugðist skjótt við og fengið alla sína
bestu leikmenn í landsliðið, þar á
meðal leikmenn sem leika í NBA-
deildinni.
í júgóslavneska Iandsliðinu eru þrír
leikmenn úr NBA-deildinni. Leik-
stjómandinn Drazen Petrovic leikur
með Portland Trail Blazers, miðheij-
inn Vlade Divac leikur með Los
Angeles Lakers og Zarko Paspalj lék
með San Antonio Spurs mestallt síð-
asta keppnistimabil.
I sovéska landsliðinu, sem lék í Arg-
entínu, var Alexander Volkov, sem
kom til liðs við landsliðið eftir að
keppnistímabilið hjá Atlanta Hawks
var búið.
Fimm aðrir leikmenn, sem léku á
HM í Argentínu, hafa ieikið í NBA-
deildinni. Kanadamennimir Jim Zoet
og Stewart Granger, Puerto Rico-
mennimir Jose Ortiz og Ramon Ri-
vas og Brasilíumaðurinn Rolando
Ferreira.
Reglur bandaríska körfuknattleiks-
sambandsins, USA Basketball, heim-
ila atvinnumönnum ekki að leika
með landsliðinu i heimsmeistara-
keppninni sem nú er nýlokið, en gert
er ráð fyrir að reglunum verði breytt
fyrir Ólympíuleikana í Barcelona
1992.
„Nærvera atvinnumanna í landsliði
Bandaríkjanna er engin trygging fyr-
ir sigri. Allir bestu leikmennimir í
Júgóslavíu og Sovétríkjunum leika
með félagsliðum, sem þýðir að þeir
æfa mikið og leika mjög marga
HM kvenna í
blaki hófst
í Kína í gær
Heimsmeistarakeppni kvenna
í blaki hófst í gær, en mótiö fer
fram (Kína.
í A-riðli vann Suður-Kórea 3-0
sigur á Egyptalandi, 15-10, 15-1 og
15-1. Kína vann 3-0 sigur á Ítalíu,
15-5, 15-1 og 15-11.
I B-riðli vann Kúba 3-0 sigur á
Taiwan, 15-0, 15-9 og 15-13. Japan
vann V-Þýskaland 3-1, 15-7, 12-15,
15-5 og 15-7.
í C-riðli unnu Sovétríkin 3-1 sigur
á Hollandi 14-16, 15-11, 15-6 og
15-7. Perú vann Kanada 3-1, 15-5,
12-15, 15-7 og 15-9.
í D-riðli unnu Bandaríkin 3-0 sig-
ur á A-Þýskalandi, 15-4, 15-13 og
15-8. Argentína vann Brasilíu 3-0,
15-5, 15-0 og 15-4.
leiki,“ segir kanadíski landsliðsþjálf-
arinn Ken Shields. Þeir em vanir að
leika körfúknattleik eins og hann ger-
ist í alþjóðlegum keppnum, harðan
og hraðan bolta, en það er erfitt að
undirbúa bandarískt lið fyrir slíkan
bolta, því þar er leikstíllinn annar.
í bandaríska liðinu, sem tók þátt í
HM í Argentínu, vom níu leikmenn
20 ára eða yngri. Þeir höfðu enga al-
þjóðlega leiki að baki fyrir ffiðarleik-
ana, aðeins leiki með bandarískum
menntaskóla og háskólaliðum.
„Bandaríska liðið er gott, en það er
mjög ungt og skortir reynslu. Lykill-
inn að árangri í alþjóðlegum keppn-
um er að hafa samæft og reynslumik-
ið lið. Jafnvel lið skipað NBA-leik-
mönnum, þarf að venjast því að leika
saman sem lið,“ segir Alexander
Gomelski, fynum þjálfari Ólympíu-
liðs Sovétmanna og núverandi tækni-
legur ráðgjafi Valdas Garastas lands-
liðsþjálfara.
Kanadíski landsliðsþjálfarinn Shi-
elds var ekki viss um árangur þótt
NBA-leikmenn lékju með banda-
ríska liðinu. „Körfuknattleikurinn er
hvergi betri en í NBA-deildinni, á því
er ekki nokkur vafi. En ef þeir halda
að þeir geti sett saman lið skipað
sjálfúmglöðum stjömum og sigrað,
gætu þeir haft á röngu að standa. Það
krefst æfingar að vinna saman svo ár-
angur náist," segir Shields.
Þá er bara að bíða og sjá hvort leik-
menn eins og Magic Johnson, Mi-
chael Jordan og Patrick Ewing verði í
bandaríska landsliðinu á ÓL í Barcel-
ona eftir tvö ár.
BL
Sævar fékk sitt fjórða gula spjald í
leiknum gegn ÍBV fyrir viku og fyrir
vikið missir hann af bikarúrslita-
leiknum. Valsmenn eru í nokkrum
vanda staddir því margir leikmenn
liðsins eiga við meiðsl að stríða um
þessar mundir. Bjami Sigurðsson
markvörður lék ekki með gegn Þór i
fyrrakvöld og óvíst er hvort hann get-
ur leikið á sunnudaginn. Þá er óvíst
hvort Steinar Adolfsson getur leikið
með, en hann er meiddur á ökkla.
Halldór Áskelsson hefúr ekki getað
leikið með Val í tvo mánuði og ólík-
legt er að hann verði búinn að ná sér
fyrir sunnudag. Ingvar Guðmunds-
son er meiddur á hné og getur ekki
leikið meira með Val í sumar.
Á fúndi aganefndar var Ólafúr Þo-
bergsson, Þór, dæmdur í eins leiks
bann vegna brottvísunar og þeir
Ragnar Gíslason, Stjömunni, Birgir
Skúlason, FH, og Alexander Högna-
son, IA, fengu eins leiks bann vegna
fjögurra gulra spjalda.
Nokkrir leikmenn úr neðri deildum
vom einng dæmdir í bann. Þessir
fengu eins leiks bann vegna brottvís-
unar: Hörður Benónýsson Leiftri og
Helgi Ketilsson Ömum. Sveinn Jóns-
son Selfossi og Gústaf Vífilsson
Fylki fengu eins leiks bann vegna
fjögurra gulra spjalda. BL
Enska knattspyrnan:
Robson frá í
þrjá mánuði
Bryan Robson, fyrirliði Manc-
hester United og enska landsliðs-
ins, getur ekki leikið knattspymu
næstu þijá mánuði. Hann gekkst
undir aðgerð á hásin á þriðjudag
og verður í gipsi næsta mánuðinn.
„Það gæti tekið hann allt að þijá
mánuði að ná sér. Þetta em mikil
vonbrigði fyrir Manchester United
og England. Hann hefúr verið mjög
óheppinn með meiðsl á sínum ferli,
en ég er viss um að hann mun leika
á ný,“ sagði Alex Feiguson, ffam-
kvæmdastjóri United, í gær.
Robson, sem er 33 ára, fékk spark
í ökklann í upphafi HM á Ítalíu í
sumar og varð að fara heim til Eng-
lands þar sem hann gekkst undir
aðgerðina, sem er önnur í röðinni,
vegna hásinarinnar. Robson mun
því missa af tveimur fyrstu leikjum
enska landsliðsins í undankeppni
Evrópumótsins í haust, en maigir
em þeirrar skoðunar að Robson
eigi ekki afhirkvæmt í landsliðs-
hópinn. BL
Knattspyrna - Yngri flokkar:
Úrslitakeppnin
hefst í dag
Senn líður að lokum knattspymu-
tímabilsins. í dag hefst úrslita-
keppni íslandsmóts yngri flokk-
anna og á sunnudaginn verða
krýndir Islandsmeistarar í 3. fl., 4.
fl. og 5. flokki.
Keppnin í 3. flokki karla hefst á
Akranesi í dag kl. 17.00. Átta lið
leika um titílinn en leikið er í
tveimur riðlum. I a-riðli leika:
Fram, Týr, KA og Þór Ak. í B-riðli
leika: ÍA, Víkingur, FH og KR. Úr-
slitaleikurinn verður leikinn kl.
11.45 á sunnudag.
Keppnin í 4. flokki karla fer ffam
í Kópavogi og í Garðabæ. Átta lið
leika í tveimur riðlum og hefst
keppnin á Kópavogsvelli og
Stjömuvelli kl. 17.00 á dag. í A-
riðli leika: KR, Grindavík, Þór Ak.
og KA, en í B-riðli leika: Stjaman,
Týr, ÍR og UBK. Úrslitaleikurinn
verður á Stjömuvelli kl. 11.30 á
sunnudag.
í 5. flokki verður leikið á Valhúsa-
velli á Seltjamamesi og Víking-
svellinum í Reykjavik. Bæði A og
B lið mæta til leiks ffá félögunum
átta sem leika til úrslita. í A-riðli
leika FH, ÍR, Grótta og Völsungur
og leikið verður á Valhúsavelli. í B-
riðli leika KR, Fylkir, Víkingur og
IK á Víkingsvelli. Keppni á báðum
völlunum hefst kl. 17.00 í dag. Úr-
slitaleikur B-liða verður á Víking-
svelli kl. 10.30 á sunnudag, en Á-
liðin leika til úrslita á sama velli kl.
12.00.
Körfuknattleikur:
900 ekki 9000
Sú misritun varð í blaðinu i gær
að í ffétt um körfúknattleiksskóla
í Keflavík stóð að þátttökugjald í
skólann væri 9000 kr. Hið rétta er
að það kostar aðeins 900 kr. að
taka þátt. Viðkomandi em beðnir
velvirðingar á þessum mistökum.
Siglingar:
íslandsmóti
kjölbáta
framhaldið
(slandsmótinu í siglingum á kjöl-
bátum verður ffamhaldið á morg-
un, en mótið hófst með Faxaflóa-
keppninni 21. júlí sl. Búist er við
mikilli þátttöku eða allt að 20 bát-
um. Alls verða fjórar umferðir
sigldar um helgina, sú fyrsta hefst
kl. 16 á morgun, önnur umferð
hefst kl. 10 á laugardag og þriðja
umferð hefst síðar sama dag.
Fjórða og síðasta umferðin hefst
kl. 10 á sunnudag. Lokaskráning í
mótið er í dag milli kl. 18 og 22
við Brokeyjarbryggju í Reykja-
víkurhöfn.
Billy Owens umkringdur hávöxnum Júgóslövum á friöarieikunum í
Seattle í sumar.
Knattspyma-Aganefnd:
Sævar í banni í
bikarúrslitunum
— Fimm leikmenn úr 1. deild í leikbann
Valsmenn verða án Sævars Jónssonar í bikarúrslitaleikn-
um gegn KR á sunnudaginn, þar sem aganefnd KSÍ hefur
dæmt hann í eins leiks bann vegna fjögurra gulra spjalda.
Blak: