Tíminn - 29.08.1990, Síða 16
BÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hatnarhúsinu v/TfYggvagötu,
S 28822
SAMVINNUBANKINN
í BYGGÐUM LANDSINS
J
\ ii
•
NORÐ- AUSTURLAND Á
AKTU EKKI ÚT
í ÓVISSUNA.
AKTUÁ
Ingvar
Helgason hf.
Sævartiöföa 2
Sfml 91-674000
výO HOGG-
> DEYFAR
Verslió hjá fagmönnum
varahlutir
Hamarshöfða 1 - s. 67-6744 |
Tilmæli HIK bera árangur:
MH 0G MS FRESTA
SETNINGU SKÓLA
Nokkrir framhaldsskólar hafa ákveðið að hefja
ekki skólastarf fyrr en eftir mánaðamótin vegna
tiimæla Hins íslenska kennarafélags til kennara
um að mæta ekki til vinnu fyrr en eftir 1. septem-
ber. Kemur þetta til með að fresta fyrirhugaðri
byrjun á kennslu um nokkra daga. Skólarnir, sem
þegar eru búnir að ákveða þetta, eru Menntaskól-
inn við Hamrahlíð, Menntaskólinn við Sund,
Flensborgarskóli í Hafnarfirði og Fjölbrautaskóli
Vesturlands á Akranesi.
Steingrímur Þórðarson, áfanga-
stjóri í Menntaskólanum við
Hamrahlíð, sagði að HIK hefði
beint þeim tilmælum til félags-
manna sinna að mæta ekki til
vinnu fyrr en 1. september og því
hafi yfirstjóm skólans talið það
óklókt að stilla til nokkurs ófriðar
við kennara, nóg er nú samt sem á
þá er lagt, og þar af leiðandi hafi
það verið ákveðið að byija ekki
skólastarf fyrr en eftir mánaðamót.
Skólastarfið átti að hefjast í gær
með fundi kennara og í dag átti að
vera skólasetning og afhending
stundataflna og kennsla átti að
hefjast mánudaginn 3. september.
Þessu hefur nú öllu verið frestað
vegna tilmælanna ffá HÍK og hefst
kennsla þvi ekki fyrr en 6. septem-
ber.
í Menntaskólanum við Sund var
skólasetningu, sem vera átti á
morgun, ffestað ffam á mánudag
vegna tilmæla sem komu ffá kenn-
umm á kennarafundi sem haldinn
var 20. ágúst s.l. Kennsla, sem átti
að hefjast4. september, hefst því 5.
september. Á fundinum var sam-
þykkt ályktun ffá kennurum þess
efnis að það væri vilji þeirra að
þær aðgerðir, sem gripið yrði til á
haustönn til að mótmæla meðferð-
inni á samningnum, myndu ekki
bitna á nemendum.
I ályktun ffá sambandsstjóm Iðn-
nemasambands íslands lýsir
stjómin áhyggjum sinum yfir þeim
aðgerðum sem kennarar í HÍK
hafa boðað nú í haust til að mót-
mæla bráðbirgðalögunum. í álykt-
uninni segir að „hversu ósanngjöm
sem kennurum í HÍK kunna að
finnast bráðabirgðalögin þá skorar
sambandsstjóm Iðnnemasam-
bandsins á þá að láta ekki reiði sína
bitna á námi og námsframvindu
námsmanna með einhveijum þeim
aðgerðum sem eingöngu munu
valda truflun á skólastarfi."
í iðnskólanum fengust þær upp-
lýsingar að ekkert hefði heyrst um
aðgerðir kennara i HÍK en þeir
hefðu ekki miklar áhyggjur af því
að kennsla raskaðist vegna þess að
rúmlega 60% kennara við skólann
em í Kennarasambandi Islands og
þeirra kjarasamningar væm í fullu
gildi.
Búast má við ffekari aðgerðum
hjá kennumm þegar skólastarf
hefst í haust en engar upplýsingar
fengust um það á skrifstofu HIK
hvað væri á döfinni. —SE
Mikil umskipti í rekstri Eimskips:
Kvartmilljarös
gróði á 6 mán.
Breyttar aöstæöur hafa valdiö
gífurlegum umskiptum á fjár-
magnskostnaði í rekstrarreikn-
ingi Eimskips. Fjármunatekjur
félagsins voru 148 m.kr. um-
fram fjármagnsgjöld á fyrri
helmingi þessa árs. Á sama
tíma í fyrra var þessu öfugt far-
iö, þegar fjármagnsgjöldin voru
71 m.kr. umfram tekjurnar. Að
sögn forstjóra félagsins, Harð-
ar Sigurgestssonar, stafar
þessi 219 milljóna bati einkum
af því gengishagnaði sem nú
varö af langtímaskuldum fé-
lagsins í stað gengistaps á síð-
asta ári.
Rekstramiðurstaða hefur sömuleið-
is breyst stómm. Hagnaður af reglu-
legri starfsemi Eimskips og dótturfé-
laga þess var 328 m.kr. á fyrri helm-
ingi þessa árs. En þegar tekið hefur
verið tillit til annars vegar 220 m.kr.
söluhagnaðar eigna og hins vegar
291 m.kr. skatta er hagnaður félags-
ins samtals 257 m.kr. á tímabilinu,
eða sem nemur 7% af rekstrartekjum
á tímabilinu. Á sama tíma í fyrra
sýndi reksturinn 67 m.kr.tap.
Þetta kom fram á fréttamannafundi
sem Eimskip boðaði til í gær.
Rekstrartekjur Eimskips vom 3.720
m.kr. á fyrri helmingi ársins, sem var
22% hækkun ffá sama tímabili í
fyrra. Rekstrargjöld hækkuðu hins
vegar miklu minna, eða um 15,5% á
sama tímabili, m.a. vegna stómm
minni fjármagnskostnaðar sem áður
greinir. Sömuleiðis hefur starfs-
mönnum félagsins verið fækkað úr
765 fyrir ári niður í 675 að jafnaði á
fyrri helmingi þessa árs.
Eigið fé Eimskips var 3.247 m.kr. í
lok júní og eignarfjárhlutfall 43%.
Heildarflutningar Eimskips vom
566.000 tonn á tímabilinu janúar/júní
í ár, eða jafn miklir og á sama tíma-
bili í fyrra.
- HEI
Hörður Sigurgestsson greinir frá afkomu Eimskips á blaðamanna-
fundi í gær. Timamynd; Pjetur
Arnarflug á í verulegum Ijárhagserfiðleikum:
Skuldir 5-600 m.kr
Skuldir Arnarflugs eru nú á bil-
inu 500 tfl 600 milljónir, eftir að
samningur við rfldð var gerður
ekki alls fyrir löngu. Þetta kom
fram hjá Geir Gunnarssyni,
stjórnarformanni Arnarflugs í
viðtali við Sjónvarpið í gær-
kviildi. Staða féiagsins er þess
vegna mjög erfið um þessar
niundir, ekki síst vegna þess að
nú haustar og háferðamannatím-
inn er að baki. Þá fengu starfs-
menn ekki greidd vangoidin laun
í gær eins og lofað hafði verið.
Rekstur Arnarflugs í ár mun
hafa verið erflður og verulegt tap
á starfseminni. í viðtali Sjón-
varpsins við Gelr kom einnig
fram, að unniö væri markvisst að
því að fínna lausnir fyrir félagið,
en staðan værí mjög erflð. „Við
teljum að við getum fundið við-
unandi lausn fyrir afla aðila, okk-
ur i stjórninni, hluthafa og fyrir
þjóðfélagsþegna okkar“, sagði
Geir t sjónvarpsviðtalinu. Hann
sagði að ríkið myndi ekki bjarga
félaginu, rikið væri engin töfra-
lausn í rekstri fyrirtækja. Hann
sagði að félagið gæfi sér ekki
langan tima tii að flnna lausnir á
vandanum.
Frestur Arnarflugs til að gera
upp ögreidd laun rann út i gær.
Forráðamenn fyrirtækisins boð-
uðu starfsfólk á fund um miðjan
dag í gær þar sem þvi var til-
kynnt að fyrirtækið gæti ekki
staðið við gefin loforð um að
greiða launin, enda hafði ekki
fengist lausn á ijárhagsvanda
- hs.
Tímiiin
MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST1990
Ummæli formanns
Landssamtaka sauðfjár-
bænda í fjölmiðlum um
veika stöðu sauðfjár-
bænda í upphafi samn-
inga um nýjan búvöru-
samning hefur vakið
reiði stjórnar Búnaðar-
sambands V.-Hún.:
Veikja
samnings-
stöðu
bænda
Stjóm Búnaðarsambands V- Húna-
vatnssýslu hefur sent frá sér ályktun
þar sem yfirlýsingar og ummæli Jó-
hannesar Kristjánssonar formanns
Landssamtaka sauðfjárbænda í fjöl-
miðlum um vanda sauðfjárbænda eru
harðlega átalin. Er þar m.a. átt við
þau ummæli formannsins, í viðtali
við Morgunblaðið 23. ágúst s.l. að
staða sauðfjárbænda í viðræðum um
nýjan búvömsamning sé allt að því
vonlaus. „Ummæli þessi em fráleit af
hálfu þess manns sem telur sig í for-
svari fyrir sauðfjárbændur og era til
þess eins fallin að skaða stéttina“,
segir ennfremur í ályktuninni.
„Maður gæti hugsað sér það, hvað
myndi gerast hjá verkalýðshreyftng-
unni ef einhver forsvarsmaður þar
léti þau ummæli falla, að staðan væri
vonlaus við upphaf samninga og nú
yrðu þeir bara að taka því sem að
þeim væri rétt.“ Þetta sagði Gunnar
Sæmundsson bóndi í Hrútatungu og
formaður Búnaðarsambands V.-
Húnavatnssýslu í samtali við Tímann
í gær. Hann sagði einnig að bændur
væm búnir að taka á sig á undanfom-
um ámm skerðingu eftir skerðingu
og því væri erfitt að átta sig á þvi
hvað Jóhannes væri að fara.
Gunnar sagðist ætla að taka þetta
mál fyrir á fundi Stéttarsambands
bænda sem hefst í Reykjaskóla í
Hrútafirði í dag. Þar ætlar Gunnar
einnig að leggja fram ályktun frá
stjóm Búnaðarsambands V.-Hún. í
nokkmm liðum. „Þar er meðal ann-
ars óskað við eftir því við Stéttarsam-
bandið, að það athugi bakgmnn ein-
stakra búgreinasambanda eins og
Landssamtaka sauðfjárbænda, og
hvert umboð slík samtök geti haft
fyrir stéttina þegar fyrir liggur að
fiindir hafa ekki verið haldnir í æði
mörgum héruðum. Virðist það sér-
staklega eiga við hémð þar sem sauð-
fjárbúskapur er nánast eina búgrein-
in.“ Gunnar sagði t.d. að enginn full-
trúi úr Strandasýslu hafi verið á fundi
Landssamtakanna í vikunni.
I dag hefst þing Stéttarsambands
bænda eins og áður sagði og em full-
trúar á því um 60. Haukur Halldórs-
son formaður Stéttarsambandsins
sagði að ályktun stjómar Búnaðar-
sambands V.- Húnavatnssýslu fengi
fundarlega meðferð. Hann vildi ekki
tjá sig um ummæli formanns sauð-
fjárbænda. „Mér finnst út af fyrir sig
aldrei skynsamlegt í samninganefnd,
og meðan menn eru að vinna að
samningum, að vera of yfirlýsinga-
glaðir“, sagði Haukur. Ekki náðist í
Jóhannes Kristjánsson í gær.
-hs.