Tíminn - 01.09.1990, Qupperneq 2

Tíminn - 01.09.1990, Qupperneq 2
Laugardagur 1 september 1990 n.iifn* 2 Tíminn Fastafloti Atlantshafsbandalagsins í óopinberri heimsókn í Reykjavík: Kvenkyns dátar og Hertoginn af York Fastafloti Atlantshafsbandalagsins er nú hér í óopinberri heimsókn. Um 1700 manns koma meö skipunum sjö, en þau eru frá sjö löndum bandalagsins, og þar á meðal eru nokkr- ir kvenkyns dátar og Andrew prins, sem eins og kunnugt er, ber tignarheitið Hertoginn af York og er giftur Söru Fergu- son. Fulltrúum íslenskra fjölmiöla var boðiö í flugferð á þyrlu í gær út í eitt skipið þegar það var að sigla til hafnar og var Jórvíkurhertoginn flugstjórinn í þeirri ferð. Einar Ólason ljósmyndari, var einn þeirra sem flaug með hertog- anum og sagði hann að það hefði verið svolítið sérstakt og gaman að þessu, því það væri ekki á hverjum degi sem Hertoginn af York klæddi mann í björgunarvesti og flotgalla. Einar sagði að hertoginn hefði ver- ið ljúfasti náungi og hann sæi eng- an mun á honum og öðrum mönn- um, hann virtist vera ósköp venju- legur maður. „Hann talaði nú lítið við mig“, sagði Einar, „en sagði mér hvemig ég ætti að setja á mig beltið og hvað ég ætti að gera ef þyrian hrapaði í sjóinn.“ Þyrlan flaug með Qölmiðlamenn- ina út í hollenska herskipið og sigldi það með þá aftur í Iand. I brúnni voru kvenkyns dátar við stjómvölin og stýrðu þær skipinu af mikilli list. Samtals 20 kvendátar eru á herskipunum og nú er það spumingin hvort íslenskir piltar leggi leið sína niður í Sundahöfn til að gera hosur sínar grænar fyrir þeim eins og þeir töluðu svo mikið um þegar italska herskipið var hér I höfh sællar minningar. Skipin sjö eru frá sjö löndum Atl- antshafsbandalagsins. Skipin eru frá Bretlandi, Hollandi, Spáni, Portúgal, Bandaríkjunum, Kanada og Þýskalandi. Stofnun Fastaflota- deildar Nató var samþykkt af Norð- uratlantshafsráðinu í Bmssel í des- ember 1967. Þar með var flotinn fyrsta alþjóðlega fastaflotadeild heimsins sem starfar á friðartímum. Flotinn er vanalega samansettur úr 5-9 skipum, tundurspillum og frei- gátum, sem starfa stöðugt saman sem ein heild. Flotinn fer í margar hafnarheimsóknir til strandborga aðildarríkja Nató. Flotinn siglir á venjulegu ári meira en 50.000 míl- ur og heimsækir yfir 25 hafnir í 11 löndum. Michael Gretton er nú yf- irflotaforingi fastaflotans, en hann er valinn árlega úr einum af Nató- flotunum. Fastaflotadeildin á að sýna og efla einingu aðildarrikja Nató, þar sem skip frá mörgum ríkjum vinna sam- an sem einn floti. Flotinn er til stað- ar hvenær sem er og getur komið sér fljótt í herstöðu ef svæði er í hættu á kreppu- eða spennutíma og skapar kjama sem byggja mætti öflugri flotadeild utan um. Síðast en ekki síst bætir flotinn samvinnu innan Nató-flotans með stöðugri þjálfun flotadeildarinnar og reynslu. Flotinn verður til sýnis I dag á milli 14 og 17 I Sundahöfn og einn- ig á sama tíma á morgun. Eitt skipanna leggur að í Sundahöfn. Það er spurning hvort þessir sjóliðar hafi svipuð áhrif á íslenska karlmenn og kollegar þeirra frá Ítalíu höfðu á íslenskar ungmeyjar. Að minnsta kosti ætti að koma í Ijós hvort þær vilji taka við hinum ókurteisu íslensku sveitalubbum eins og sumar konur hafa kallað íslenska karlmenn. Tfmamynd: Ami Bjama „Það er ekki á hverjum degi sem Hertoginn af York klæðir mig í björgunarvesti og flotgalla", sagði Einar Ólason Ijósmyndari, en myndinni má sjá hann og Andrew prins að búa sig undir fiugferð- ina Út í hollenska herskipið. Tfmamynd: Ami Bjama Flugleiðir „á Arnarflugi' í tvo manuði: Reksturinn verður lagaður á meðan Nú liggur það ljóst fyrir að sam- gönguráðherra hefur falið Flugleið- um áætlunarflugleyfi Amarflugs næstu tvo mánuði, Strax í gærmorg- Tækniskóla- menn mótmæla bráðabirgða- lögum Félag Tækniskólakennara hef- ur samþykkt ályktun þar sem mótmælt er bráðabirgðalögum rikisstjórnarinnar frá 3. ágúst. í ályktun kennaranna segir m.a. að með þessarí aðgerð hafi ríkisstjórnin rýrt álit sitt sem trúveröugur samningsaðili og skorar félagið á ríkisstjórnina að endurreisa þetta álit með þvf að falla frá lögunum. un sáu Flugleiðir um að koma farþeg- um Amarflugs til Amsterdam. Á meðan Flugleiðir sjá um áætlunar- flugið ætla forráðamenn Amarflugs að reyna að bæta fjárhagsstöðu fé- lagsins. I fyrrakvöld var fundur hjá sam- gönguráðherra með forráðamönnum félaganna þar sem gengið var frá þessum málum. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um afdrif starfs- fólks Amarflugs en búast má við að einhverjir vinni að endurskipulagn- ingu hjá fyrirtækinu næstu tvo mán- uði. Ámarflugsmenn vonast til að geta tekið við áætlunarfluginu að tveimur mánuðum liðnum en hins vegar virðast Flugleiðamenn stað- ráðnir í því að hafa þetta flug til fram- búðar. Flugleiðir hafa leyfið aðeins til tveggja mánaða og þá er að sjá hvort þeir haldi leyfinu áfram eða hvort leyfið fari aftur til Amarflugs. —SE Fyrsta íslenska barnamyndin í nærri áratug frumsýnd á morgun: Ævintýri Pappírs-Pésa A tnorgun verður frumsýnd kvikmyndin Pappírs-Pési sem er ný islensk barna- og fjölskvldu- mynd. Hríf hf. sá um gerð mynd- arinnar og Ari Kristinsson er bæöi leikstjóri og höfundur handrits en Vilhjálmur Ragnars- son er framleiðandi. Þetta mun vera fyrsta islenska barnamynd- in i tæpan áratug. Pappírs-Pési er teikning sem lifnar við. f myndinni segir frá ævintýrum og uppátækjum Pésa og vina hans. Pési lendir m.a. í óvæntri flugferð og hörkuspenn- andi kassabflaralU. Einnig segir af prakkarastrikum i stórmark- aði, útistöðum, sem vinirnir lenda i við geðstirðan nágranna og geimfari sem lendir i garðin- um hjá honum. Kvikmyndin var tekin upp í Hafnarfiröi sumrin 1989 og 1990. Leikarar eru flest börn og í helstu hlutverkum eru Kristmann Ósk- arsson, 10 ára úr Kópavogi og svo fjórlr krakkar úr Mosfellsbæ, þau Högni Snær Hauksson, 9 óra, Rannveig Jónsdóttir, 11 ára, Ing- ólfur Guðvarðarson, 12 ára og Rajeev Muru Kesvan. Þá fer Magnús Ólafsson með stórt hlut- verk i myndinni. Brúðunni Papp- írs-Pésa er stjórnað af Bernd Ogrodnik og Katrínu Þorvalds- dóttur. Kvikmyndataka var í höndum Tony Forsberg og Jóns Karls Helgasonar. Tónlist er eftir Valgeir Guðjónsson og Geir Ótt- arr er helsti leikmyndahönnuður myndarínnar. Ævintýri Pappírs-Pésa er fyrsta kvikmvndin i fullri lengd sem Hrif hf. framleiðir. Hrif hefur áð- ur framleitt barnamyndír fyrir íslenskar og erlendar sjónvarps- stöðvar, m.a. tvær myndlr um Pappirs-Pésa og myndina „Eng- inn venjulegur drengur“ sem hafa verið sýndar í Sjónvarpinu og á Norðurlöndum og auk þess sem þær hafa verið seldar tU þýskra og hollenskra sjónvarps- stööva. Hrif framleiddi 7 hálf- tíma þætti, sem hétu „Bítlar og blóraabörn“, og fjöUuðu þeir um sjöunda áratuginn og voru sýndir á Stöð 2. Kostnaðurinn við gerð myndar- innar er tæpar 50 milljónir króna Ur kvikmyndinnl Pappírs-Pési sem var tekin upp i Hafnarfiröi í sumar og fyrrasumar. og hefur Kvikmyndasjóöur ís- lands styrkt framleiðslu myndar- innar. Hrif vinnur nú að gerð myndarinnar „Börn náttúrunn- ar“ en leikstjóri hennar er Frið- rík Þór Friðriksson. -SE

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.