Tíminn - 01.09.1990, Síða 3

Tíminn - 01.09.1990, Síða 3
Laugardagur. ágúst 1990 Tíminn 3 .. — ----------------------------------------------------------—— .1. —------------------------------------— .............. I - - ■ ■ Skákfélag Akureyrar: Vetrarstarfið komið á fullan skrið Vetrarstarf Skákfélags Akureyrar er nú komið á fúllan skrið, og hefst með „Startmóti", hraðskákmóti, sunnu- daginn 2. september kl. 14. Síðan rek- ur hvert mótið annað i vetur, og auk fjölda heíðbundinna móta heima- manna, verður 1. deildar keppni Skák- sambands Islands og keppni í 3. deild, Norðurlandsdeild, tefld á Akureyri helgina 12.-14. október. Að sögn Gylfa Þórhallssonar má reikna með að starfið verði með líf- legra móti í vetur. Næst á eftir „Start- rnótinu" verður „15 mínútna mót“, föstudaginn 7. september. Haustmót Skákfélags Akureyrar hefst 16. sept- ember og stendur það í 3 vikur. Skal því lokið fyrir 1. deildar keppnina sem ffam fer 12.-14. október, og um leið fer fram keppni í 3. deild, Norð- urlandsdeild. Gylfi sagði að 8 sveitir tefldu í 1. deildinni, þar af 3 úr Eyja- firði. Fjölmennasta og veigamesta mótið verður þó Sveitakeppni Grunn- skóla á Akureyri og Eyjafirði, en það verður haldið í lok nóvember. Auk þessa verða hraðskákmót, og ýmis fleiri mót, en tímasetning þeirra verð- ur ákveðin á aðalfundi Skákfélags Akureyrar sem haldinn verður 23. september. Skákmót og aðrar uppákomur á veg- um Skákfélagsins fara ffam í húsi fé- lagsins að Þingvallastræti 18. Gylfi gat þess að mót á vegum félagsins væru öllum opin, svo og skákæfingar sem haldnar eru á laugardögum. Ung- lingar ffá Akureyri hafa getið sér gott orð í skákheiminum á undanfömum árum, og sagði Gylfi að enn ffekari áhersla yrði lögð á unglingastarfið í vetur, til að viðhalda því, og efla áhuga meðal unglinga á skákíþrótt- inni. hiá-akureyri. Breskar sútunarverksmiðjur finna leið til að spara olíukostnað með brennslu á fitu sem til fellur: Ný stjórn Sin- fóníuhljóm- sveitar íslands Sinfóníuhljómsveit Íslands hef- ur fengið nýja stjórn. Forrnað- ur, skipaður af menntamála- ráðherra, er Slgursveinn K. Magnússon skólastjóri. Aðrir í stjórn eru Einar Jóhannesson klarinettuleikari, tilnefndur af starfsmannafélagi Sinfóníu- hljómsveitarinnar; Eifa Bjiirk Gunnarsdóttir framkvæmda- Stjóri, tilnefnd af Ríkisútvarp- inu; Haukur Helgason hag- fraeðingur, tilnefndur af Ijár- málaráðuneytinu og Jón Þórar- insson tónskáld, tilnefndur af Reykjavíkurborg. Stjórnin er skipuð til fjögurra ára. -hs. Nýrt ' stærri °8 kraftmeiri Daihatsu Charade Sedan er rúmgóður 5 manna fjölskyldubíll með sérstaklega J stóra faranRursgeymslu (288 lítra) sem mjög auðvelt er að hlaða. Hann er búinn nýrri kraftmikilli 4ra strokka, 16 ventla 1.3 lítra, 90 hestafla vél með beinni innspýtingu. Þessi vél gerir bílinn bæði auðveldan og skemmtilegan í akstri hvort sem hann er með beinskiptingu eða sjálfskiptingu. Sparnevtni og hagkvæmni í rekstri undirstrika svo kosti Charade Sedan sem hins fullkomna fjölskyldubíls. \ V ' '..... , Ótrúlega hagstætt verð Daihatsu Charade Sedan SG 5 gíra kr.777.000 stgr. á götuna. Sjálfskiptur kr.839.000 stgrcá götuna. Komið og reynsluakið kraftmiklum Charade Sedan Brimborg hf. Faxafeni 8 • Sími 685870 HENT A HAUGANA ÁSAUÐÁRKRÓKI „Við leituðum til hollustuvemdar um það hvemig við ættum að losa okkur við þessa fitu (sem fellur til við sútunina) og höfum leyfi frá þeim til að henda henni á hauga þar sem þetta er vænt- anlega brennt," sagði Karl Bjamason hjá sútunarverk- smiðjunni Loðskinn á Sauðár- króki, þar sem sútaðar eru um 200.000 gærur á ári. Tilefni spumingar Tímans var firétt þess efnis að breskar sútunar- verksmiðjur, sem átt hafa í vandræðum með að losna við slíka fitu, hafa fúndið upp ráð til að nota hana sem brennsluefni og spara sér þar með þúsundir sterfingspunda í olíukostnað. Karl kvaðst ekki vita til að mönnum hafi dottið í hug að nota þessa fitu sem brennsluefiii í verksmiðjunni hjá Loð- skinn. En vitanlega sé heilmikil orka í henni, jafiifiamt þvi sem þetta sé auðvit- að góð leið hjá þeim bresku til að losna við fituna á hreinlegan hátt og líka alltaf gott þegar hægt er að nýta hluti sem ann- ars er hent Að sögn Karls er þessi fita sem hér um ræðir, og kemur basði úr skinninu sjálfú og ullinni, þykk en harðnar ekld. Töluverður hluti hennar sé lanólín, sem m.a. er notað við fram- leiðslu á ilmsápum. Sagðist Karl því svolítið hissa á að breskar verksmiðjur skuli ekki hafa getað losnað við þessa fitu til sápufiamleiðenda. Að ná lanólín- inu hreinu úr fitunni sé þó töluvert fyrir- tækd og til þess þurfi sérstakan tækja- búnað. Karl sagði fitu í íslenskum skinnum um helmingi minni en fiam kemur í fiéttinni frá Bretum. Hjá Lx)ðskinnum séu það í kringum 8 tonn af hreinni fitu sem til falla árlega við sútun um 200.000 skinna. - HEI í sútunarverksmiðju Fenland Sheep- skins á suðvestur Englandi áttu menn orðið í vandræðum með birgðir af fitu sem þar höfðu safiiast upp í sex ár. Um 100 gr af náttúrulegri fitu falla þar til við vinnslu á hveiju skinni, svo þama hafði myndast a.m.k. 150 tonna „fjall" af fitu. Eftir töluverðar rannsóknir hafa menn í þessari verksmiðju fúndið leið til að nota fituna til brennslu við ftamleiðslu á gufú og spara sér þannig 20% jæirrar brennsluolíu sem notuð hefúr verið við skinnaframleiðsluna. Aætlað er að hið sex ára fitufjall muni spara verksmiðj- unni sem svarar rúmlega 2 millj. króna í olíukostnað Fyrirtækið hefúr kynnt öðr- um breskum sútunarverksmiðjum þessa nýju tækni og margar þeirra eru nú að taka hana upp.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.