Tíminn - 01.09.1990, Blaðsíða 3
Laugardagur. ágúst 1990 Tíminn 3
.. — ----------------------------------------------------------—— .1. —------------------------------------— .............. I - - ■ ■
Skákfélag Akureyrar:
Vetrarstarfið
komið á
fullan skrið
Vetrarstarf Skákfélags Akureyrar er
nú komið á fúllan skrið, og hefst með
„Startmóti", hraðskákmóti, sunnu-
daginn 2. september kl. 14. Síðan rek-
ur hvert mótið annað i vetur, og auk
fjölda heíðbundinna móta heima-
manna, verður 1. deildar keppni Skák-
sambands Islands og keppni í 3. deild,
Norðurlandsdeild, tefld á Akureyri
helgina 12.-14. október.
Að sögn Gylfa Þórhallssonar má
reikna með að starfið verði með líf-
legra móti í vetur. Næst á eftir „Start-
rnótinu" verður „15 mínútna mót“,
föstudaginn 7. september. Haustmót
Skákfélags Akureyrar hefst 16. sept-
ember og stendur það í 3 vikur. Skal
því lokið fyrir 1. deildar keppnina
sem ffam fer 12.-14. október, og um
leið fer fram keppni í 3. deild, Norð-
urlandsdeild. Gylfi sagði að 8 sveitir
tefldu í 1. deildinni, þar af 3 úr Eyja-
firði. Fjölmennasta og veigamesta
mótið verður þó Sveitakeppni Grunn-
skóla á Akureyri og Eyjafirði, en það
verður haldið í lok nóvember. Auk
þessa verða hraðskákmót, og ýmis
fleiri mót, en tímasetning þeirra verð-
ur ákveðin á aðalfundi Skákfélags
Akureyrar sem haldinn verður 23.
september.
Skákmót og aðrar uppákomur á veg-
um Skákfélagsins fara ffam í húsi fé-
lagsins að Þingvallastræti 18. Gylfi
gat þess að mót á vegum félagsins
væru öllum opin, svo og skákæfingar
sem haldnar eru á laugardögum. Ung-
lingar ffá Akureyri hafa getið sér gott
orð í skákheiminum á undanfömum
árum, og sagði Gylfi að enn ffekari
áhersla yrði lögð á unglingastarfið í
vetur, til að viðhalda því, og efla
áhuga meðal unglinga á skákíþrótt-
inni. hiá-akureyri.
Breskar sútunarverksmiðjur finna leið til að spara olíukostnað með brennslu á fitu sem til fellur:
Ný stjórn Sin-
fóníuhljóm-
sveitar íslands
Sinfóníuhljómsveit Íslands hef-
ur fengið nýja stjórn. Forrnað-
ur, skipaður af menntamála-
ráðherra, er Slgursveinn K.
Magnússon skólastjóri. Aðrir í
stjórn eru Einar Jóhannesson
klarinettuleikari, tilnefndur af
starfsmannafélagi Sinfóníu-
hljómsveitarinnar; Eifa Bjiirk
Gunnarsdóttir framkvæmda-
Stjóri, tilnefnd af Ríkisútvarp-
inu; Haukur Helgason hag-
fraeðingur, tilnefndur af Ijár-
málaráðuneytinu og Jón Þórar-
insson tónskáld, tilnefndur af
Reykjavíkurborg. Stjórnin er
skipuð til fjögurra ára. -hs.
Nýrt '
stærri
°8
kraftmeiri
Daihatsu Charade Sedan er rúmgóður 5 manna fjölskyldubíll með sérstaklega
J stóra faranRursgeymslu (288 lítra) sem mjög auðvelt er
að hlaða. Hann er búinn nýrri kraftmikilli 4ra
strokka, 16 ventla 1.3 lítra, 90 hestafla vél með
beinni innspýtingu. Þessi vél gerir bílinn bæði
auðveldan og skemmtilegan í akstri hvort sem
hann er með beinskiptingu eða sjálfskiptingu. Sparnevtni og hagkvæmni í
rekstri undirstrika svo kosti Charade Sedan sem hins fullkomna fjölskyldubíls.
\ V ' '..... ,
Ótrúlega hagstætt verð
Daihatsu Charade Sedan SG
5 gíra kr.777.000 stgr. á götuna.
Sjálfskiptur kr.839.000 stgrcá götuna.
Komið og reynsluakið kraftmiklum Charade Sedan
Brimborg hf.
Faxafeni 8 • Sími 685870
HENT A HAUGANA
ÁSAUÐÁRKRÓKI
„Við leituðum til hollustuvemdar
um það hvemig við ættum að
losa okkur við þessa fitu (sem
fellur til við sútunina) og höfum
leyfi frá þeim til að henda henni
á hauga þar sem þetta er vænt-
anlega brennt," sagði Karl
Bjamason hjá sútunarverk-
smiðjunni Loðskinn á Sauðár-
króki, þar sem sútaðar eru um
200.000 gærur á ári. Tilefni
spumingar Tímans var firétt
þess efnis að breskar sútunar-
verksmiðjur, sem átt hafa í
vandræðum með að losna við
slíka fitu, hafa fúndið upp ráð til
að nota hana sem brennsluefni
og spara sér þar með þúsundir
sterfingspunda í olíukostnað.
Karl kvaðst ekki vita til að mönnum
hafi dottið í hug að nota þessa fitu sem
brennsluefiii í verksmiðjunni hjá Loð-
skinn. En vitanlega sé heilmikil orka í
henni, jafiifiamt þvi sem þetta sé auðvit-
að góð leið hjá þeim bresku til að losna
við fituna á hreinlegan hátt og líka alltaf
gott þegar hægt er að nýta hluti sem ann-
ars er hent Að sögn Karls er þessi fita
sem hér um ræðir, og kemur basði úr
skinninu sjálfú og ullinni, þykk en
harðnar ekld. Töluverður hluti hennar sé
lanólín, sem m.a. er notað við fram-
leiðslu á ilmsápum. Sagðist Karl því
svolítið hissa á að breskar verksmiðjur
skuli ekki hafa getað losnað við þessa
fitu til sápufiamleiðenda. Að ná lanólín-
inu hreinu úr fitunni sé þó töluvert fyrir-
tækd og til þess þurfi sérstakan tækja-
búnað.
Karl sagði fitu í íslenskum skinnum um
helmingi minni en fiam kemur í fiéttinni
frá Bretum. Hjá Lx)ðskinnum séu það í
kringum 8 tonn af hreinni fitu sem til
falla árlega við sútun um 200.000
skinna. - HEI
í sútunarverksmiðju Fenland Sheep-
skins á suðvestur Englandi áttu menn
orðið í vandræðum með birgðir af fitu
sem þar höfðu safiiast upp í sex ár. Um
100 gr af náttúrulegri fitu falla þar til við
vinnslu á hveiju skinni, svo þama hafði
myndast a.m.k. 150 tonna „fjall" af fitu.
Eftir töluverðar rannsóknir hafa menn í
þessari verksmiðju fúndið leið til að nota
fituna til brennslu við ftamleiðslu á gufú
og spara sér þannig 20% jæirrar
brennsluolíu sem notuð hefúr verið við
skinnaframleiðsluna. Aætlað er að hið
sex ára fitufjall muni spara verksmiðj-
unni sem svarar rúmlega 2 millj. króna í
olíukostnað Fyrirtækið hefúr kynnt öðr-
um breskum sútunarverksmiðjum þessa
nýju tækni og margar þeirra eru nú að
taka hana upp.