Tíminn - 01.09.1990, Blaðsíða 5

Tíminn - 01.09.1990, Blaðsíða 5
Láligardagur 1. áeptember 1990 ' Tímmnx5 Ritstjórn rekin til aö ná pólitískri Pressu? Jónína Leósdóttir, annar ritstjóra Pressunnar, segir uppsögn sína og annarra starfsmanna vera pólitískar hreinsanir. Ómarí Fríðríkssyni, hinum rítstjóranum, hefur einnig veríð sagt upp, sem og öllum blaðamönnum blaðsins. Stjómarformaður Blaðs hf. vísar þessum ummælum á bug og segir breytingar koma í kjölfar versnandi afkomu blaðsins. í stað ritstjóranna hafa veríð ráðnir þeir Gunnar Smárí Egilsson blaðamaður DV og Kristján Þorvaldsson blaðamaður Morgunblaðsins. 150 kr. „Ég frétti fyrst um breytingamar þeg- ar blaðamenn Dagblaðsins hringdu í mig í morgun sem sýnir best hvað þeir eru kjarkmiklir ráðamennimir hér. Þeir halda því fram að breyting- amar séu gerðar vegna þess að sala blaðsins sé að dragast saman, en það er bull“, sagði Jónína. Máli sínu til áréttingar benti hún á að Pressan hafi náð bestu sölu hingað til í byijun árs- ins en þar á eftir fylgdu þrír slæmir mánuðir. Starfsmenn hafl því tekið sér tak er hafi skilaði sér i 11% sölu- aukningu frá júní yfir í júlí. Jónína sagði endanlegar tölur fyrir ágúst ekki liggja fyrir en þar væri greini- lega um aukningu að ræða því au- kaupplag blaðsins hafi margsinnis selst upp. „Við teljum þetta vera pól- itískar hreinsanir og að rót uppsagn- anna megi rekja til sveitarstjómar- kosninganna sem fram fóm í vor. Þá vomm við beitt miklum þrýstingi, af hendi þeirra er stóðu fyrir framboði Nýs vettvangs, að koma að ræðum og viðtölum við þessa og hina. Við stóðum þrýstinginn af okkur en kom- umst um leið i mikla ónáð. Þegar ég var ráðin var mér lofað að flokkurinn myndi ekki reyna að koma að sínum sjónarmiðum og gera Pressuna þann- ig að einhveijum flokkssnepli. Mér var gerð grein fyrir að það ætti að leyfa Alþýðublaðinu að bera sig ekki þar sem það er flokksblað, en Pressan ætti að afla peninga til að borga blaðamönnum Alþýðublaðsins laun.“ Jónína sagði það einnig hafa valdið mikilli sprengingu í flokknum að Pressan birti mynd af Guðrúnu Ág- ústsdóttur á forsíðu í miðri kosninga- baráttunni. Hún sagði myndbirting- una hafa verið algjörlega óviðkom- andi stjómmálum heldur hafi hér ver- ið um að ræða viðtöl við ýmsa aðila er hafa komist langt í lifinu án mikill- ar skólagöngu. ,Auk þessa höfum við birt slúður um flokksmeðlimi jafnt og aðra og það hefur mælst af- skaplega illa fyrir. Nú standa kosningar fyrir dyram 1 vetur og þá er tekið upp á því að ráða hér í ritstjóm flokksbundinn Alþýðu- flokksmann sem hefur verið ffamar- lega í ungliðahreyfingunni. Það segir sig auðvitað sjálft hvort Alþýðu- flokkurinn kemur ekki til með að eiga auðveldara með að ráða við hann en okkur, þegar þarf að koma heimastílum flokksbræðranna á prent. í gær fengum við stjómarfor- manninn í heimsókn með þau skila- boð að við væram léleg og kynnum ekki að búa til blað. En því var svo bætt við hvort við vildum nú ekki samt vera svo væn að halda áffam að búa til blaðið þangað til í október, því að strákamir sem eiga að taka við geta ekki fengið sig lausa fyrr. Hér hafa allir þurft að leggja nótt við dag vegna þess að við eram mjög undir- mönnuð, en blaðstjóm virðist ekki hafa mikinn skilning á því hversu mikilvægt er að halda uppi góðum anda við slíkar aðstæður“, sagði Jón- ína. Stefán Friðfinnsson stjómarformað- ur Blaðs hf. sagði 1 samtali við Tím- ann að blaðstjóm hefði ekki og myndi ekki skipta sér af ritstjómar- stefnu blaðsins. „Við værum hins vegar ekki að skipta um ef við teldum ekki að sala blaðsins myndi aukast við það. Að halda þvi ffam að pólit- ískar ástæður liggi að baki er út í hött. Blaðið hefúr ekki verið pólitískt og á ekki að vera það.“ Hann sagði afkomu blaðaútgáfu Blaðs hf. hafa verið viðunandi á sið- asta ári en þá hafi hún skilað hagnaði. „Hún hefúr hins vegar versnað og þó við teljum afkomuna í sjálfú sér ekki slæma, gæti hún samt sem áður verið betri. Jónína telur að lun söluaukn- ingu Pressunnar hafi verið að ræða á siðustu tveimur mánuðum en ég lýsti þvi yfir, sem er staðreynd, að ég hef ekki þær tölur í höndum. Ég hef í höndum heildartölur ffá mánuði til mánaðar yfir afkomu blaðaútgáfú flokksins sem er bæði Pressan og Al- þýðublaðið" sagði Stefán. Þeirri spumingu hvort einnig mætti búast við breytingum á Alþýðublað- inu, sem er ritstýrt af Ingólfi Marg- eirssyni, fyrst tölumar segja til um heildarafkomu sagði Stefán: „Fyrir óbreyttu ástandi gefst lítil fúllvissa en þetta era þær breytingar, sem við viljum gera f dag, því við teljum vera hægt að auka sölu Pressunnar og það hefúr eiginlega ekki með neitt annað að gera.“ Gunnar Smári Egilsson nýráðinn ritstjóri á Pressunni sagði í samtali við Tímann að í ráðningarsamningi þeirra félaga kæmi það ffam að þeir hefðu fúllt ritstjómarffelsi. „Eina leið blaðstjómar Pressunnar til að hafa áhrif á ritstjómarstefnu eftir fyrsta október er að reka okkur. Þegar Pressan er skoðuð í dag og reyndar allt ffá upphafi þá þarf ekki mjög glöggskyggnan mann til að sjá að það má gera betur. Það verður óhjá- kvæmilega um breytingar að ræða og við munum að sjálfsögðu gefa út blað fyrir lesendur“, sagði Gunnar. -jkb Aðalfundur Stéttarsambands bænda ályktar: Leyfð verði sala fullvirðisréttar Frá kynningu á vetrardagskrá L.R. Pétur Einarsson virðist enn vera að hugsa um sumarleyfið. Tfmamynd Áml Bjama. 94. starfsár LR hafið 94. leikár Leikfélags Reykjavíkur er nýhafið. Leikarar og annað starfsfólk Leikfélagsins komu til starfa eftir sumarleyfi hinn 20. ágúst s.l. og þá hófúst æfingar á þremur verkefúum, sem ffumsýnd verða í september og október. Leikárið í fyrra, sem jafú- ffamt var fyrsta leikár félagsins í Borgarleikhúsinu, var svo til ein- göngu helgað íslenskum leikritum. Það sama verður upp á teningnum í ár, því íslensk verk era í meirihluta. Fyrsta ffumsýning haustsins verður 20. september. Þá kemur „Fló á skinni“, eftir Frakkann Georges Fey- deau, á fjalir L.R. í annað skipti, en leikritið gekk á sínum tíma í þtjú ár fyrir fullu húsi. Önnur ffumsýning er svo nýtt verk eftir Hrafnhildi Hagalín Guðmundsdóttir, sem er óvenjuleg ffumsmíð og óvenjuleg efnistök á ferðinni eins og segir í fféttatilkynn- ingu ffá L.R. Þriðja frumsýningin er verðlaunaverkið úr leikritasam- keppni Leikfélagsins, „Ég er hættur! Farinn!" eftir Guðrúnu Kristínu Magnúsdóttur. -hs. Fundurinn bendir á, að á síðasta að- atfundi var samþykkt rtarieg ályktun um almenna meðferð og ráðstöfun fullvinðisréttar.,JMeö tilliti tð þess að nú ern þessi mál enn komin tð um- ræðu, telur fundurinn að sá hreyfan- leiki fullvirðisréttar, sem verið hefur mögulegur samkvæmt reglugerð- um, reynist oft takmarkaður og hindri í vissum tðfellum nægan hreyfanleika", segir í samþykkt hans. Fundurinn leggur til, þar sem jafh- vægi ríki milli framboðs og eftir- spumar í mjólkurffamleiðslu, verði leyfð sala fullvirðisréttar með nokkr- um takmörkunum. í fyrsta lagi að öll viðskipti fari ffam gegnum þriðja að- ila, búnaðarsambönd og/eða Fram- leiðsluráð landbúnaðarins. I öðra lagi, að 20% af þeim rétti, sem losn- ar f heild vegna sölu, fari til ráðstöf- unar samkvæmt ákveðnum reglum, t.d. til nýliða og ættliðaskipta. I Aðalfundur Stéttarsambands bænda ályktar: „Aðalfundur Stéttarsambands Invnda harmar hvernig sú tilraun til nýrrar atvinnusköpunar á landsbyggðinni, sem gerð var með loðdýrarækt, hefur tekist“, segir í ályktun Byggða- og atvinnumála- nefndar fundarins. Nefndin telur fyrirsjáanlegt, að þær ráðstafanir, sem hafa verið gerðar og eru í gangi henni til bjargar, dugi ekki til að tryggja rekstur hennar neraa ut þetta framleiðsluár. Fundurinn telur þó ekki rétt að loðdýrarækt leggist af, þrátt fyrir mikla erfiðieika. Þess vegnaleggur fundurinn m.a. til að Byggðastofnun og ríkissjóð- ur tryggi á einhvern hátt rekstur búanna meðan erflðleikatímar ganga yfir, þannlg að fóðurkostn- aður verði ekki hærri en sem nem- ur 60-70% af meðaltals skinna- verði. Lagt er til að skuldbreyring- um, sem unniö hefur verið að, verði lokið fyrir septemberlok n.k. og fyrir sama tíma verði ákveðið að grciða jöfnunargjald á loð- dýrafóður árið 1991 með sama hætri og gert hefur verið á yfir- standandi árí. Lagt er tU að lánafyrirgreiðsla Framleiðnisjóðs landbúnaðarins verði haldið áfram, unnið verði að því að leita lelða tíl að tryggja að loðdýrabændur eigi kost á svo hagkvæmum afurðalánum, sem mögulegt er, og heimUd til þess að afskrífa lán hjá StofnlánadeUd- inni verði rýmkuð enn frekar. Einnig er lagt tU að gjaldtaka af rekstri loðdýrabúa verði felid nið- ur meöan erfiðleUeatíminn gengur yflr og að ieitað verði tíl Fram- leiðnisjóðs um rekstrarfé fyrir Samband ísl. loðdýrabænda. -hs. þriðja lagi að Framleiðsluráð land- búnaðarins ákveði lágmarksverð hins selda fullvirðisréttar og að lok- um, meðan réttur, sem kemur til sölu á ákveðnu svæði, reynist þar seljan- legur á skráðu lágmarksverði, verði ekki um flutning milli svæða að ræða. -hs. Aðalfundur Stéttarsam- bands bænda ályktar: Jarðakaupa- sjóður verði stórefldur Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1990 felur stjóminni að hlutast til um við ríkisstjóm og Alþingi að Jarðakaupasjóður verði stórefldur. Hlutverk hans verði þar með aukið og að hann verði einnig lána- og styrktarsjóð- ur fyrir sveitarfélög. Þeim verði þannig gert kleift að festa kaup á jörðum, sem nauðsynlegt þykir að eignarhald haldist á innan við- komandi sveitarfélags og nýta þar með forkaupsréttinn. -hs.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.