Tíminn - 01.09.1990, Side 12
20 Tíminn
Láugardagur 1. september 1990
Aðalbjöm Sigurður
Gunnlaugsson
kennari, Lundi, Öxarfirði
Fæddur 26. febrúar 1936
Dáinn 25. ágúst 1990
Kær vinur minn og velgjörðarmað-
ur, Aðalbjöm Gunnlaugsson, fyrrver-
andi skólastjóri og kennari í Lundi,
Öxarfirði, er látinn, langt fyrir aldur
fram.
Nú, þegar leiðir skiljast, vil ég með
þakklæti í huga minnast þessa ágæta
manns.
Aðalbjöm Sigurður, eins og hann
hét fiillu nafni, fæddist á Grand á
Langanesi, 26.2. 1936 og var hann
næstelstur 7 bama þeirra hjóna
Gunnlaugs Sigurðssonar, f. 4.8.1908,
ffá Grund á Langanesi, og Guðbjarg-
ar Magnúsdóttur, f. 2.7. 1910 ffá
Dölum í Fáskrúðsfirði. Gunnlaugur
og Guðbjörg hófú sinn búskap á
Grand en fluttu haustið 1940 að Ytri-
Bakka í Kelduhverfi. Þar bjuggu þau
til ársins 1964 er þau fluttu til
Reykjavíkur. Gunnlaugur hóf þá
störf við bókhald hjá Sambandi ís-
lenskra Samvinnufélaga og við það
vann hann þar til hann lést 24. júlí
1973. Guðbjörg gerðist matráðskona
hjá Samvinnutryggingum og vann
við það til ársins 1981 eða í 15 ár.
Systkini Aðalbjamar era þessi:
Björg, viðskiptaffæðingur, starfs-
maður skattrannsóknarstjóra, f. 30.4.
1934, gift Sverri Ólafssyni, starfs-
manni IBM, búsett í Reykjavík,
Magnús, kennari, f. 10.11. 1939,
kvæntur Ríkey Einarsdóttur kennara,
búsett í Reykjavík, Aðalbjörg, hús-
móðir, f. 18.6. 1943, gifl Stefáni
Óskarssyni trésmíðameistara, búsett
í Rein, Reykjahverfí, Hulda, kennari,
f. 7.7. 1944, gift Gunnari Einarssyni
bankastarfsmanni, búsett 1 Reykja-
vík, Hildur, kennari, f. 21.6. 1947,
gift Páli Steinþórssyni, starfsmanni
Heklu, búsett í Reykjavík, og Valdís,
starfsmaður hjá Raftákni á Akureyri,
f. 23.3. 1950, gift Vigni Sveinssyni,
skrifstofústjóra Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri, búsett á Akur-
eyri. Þá eignuðust þau Guðbjörg og
Gunnlaugur dreng árið 1948, sem
andaðist í fæðingu.
Aðalbjöm fluttist með foreldram
sínum að Ytri-Bakka og ólst þar upp
í stóram og lífsglöðum systkinahópi.
Bamaskóla sótti hann í Kelduhverfi,
en síðan lá leiðin í Héraðsskólann á
Laugarvatni. Að dvöl þar lokinni
ákvað Aðalbjöm að gerast íþrótta-
kennari, en til þess þurfti að ljúka
landsprófí. Akvað Aðalbjöm að lesa
undir það utanskóla heima á Ytri-
Bakka. Um veturinn skrifaði han þá-
verandi skólastjóra íþróttakennara-
skólans Bimi Jakobssyni og sótti um
skólavist. Bjöm veitti honum hins
vegar inngöngu í skólann án nokk-
urra skilyrða um landspróf og mætti
Aðalbjöm haustuð 1955, ásamt fleiri
væntanlegum nemendum, til Laugar-
vatns nokkra fyrr en skólinn var sett-
ur í þeim tilgangi að búa skólann fyr-
ir vetrarstarfið. Eitt af því sem þurfti
að gera var að mála loft í skólahús-
næðinu og bauðst Aðalbjöm til þess
verks, þrátt fyrir að hann kenndi sér
nokkurrar undarlegrar vanlíðunar. Er
skemmst frá því að segja að Aðal-
bjöm var þá veikur orðinn af lömun-
arveiki. Næsta morgun hafði hann
misst allan mátt nema í annarri hönd-
inni.
Já, fljótt geta skipast veður í lofti. í
stað þess að hefja það nám, sem Að-
albjöm hafði kosið sér, þurfti þessi
ungi maður að leggjast inn á sjúkra-
hús og liggja þar heilan vetur. Þar
náði hann þeim bata að fá fúllan mátt
í líkama sinn, nema fætuma.
Geta má nærri hversu hræðilegt
áfall þetta hefúr verið fyrir ungan
mann sem var að hefja sín fúllorðins-
ár. En Aðalbjöm lét hvergi bugast. Þá
kom betur í ljós en nokkru sinni
hversu sterkan vilja hann hafði, kjark
og framsýni, en það vora þeir þættir í
fari Aðalbjamar sem hann hafði til
síðustu stundar, miðlaði af og var
þekktur fyrir.
Góður vinur hans, Gunnlaugur Sig-
urðsson ffá Valþjófsstöðum í Núpa-
sveit, var einn af mörgum sem heim-
sóttu Aðalbjöm er hann lá á Heilsu-
vemdarstöðinnni. „Þá sá ég hvað lít-
ilfjörleg atriði, sem maður hafði
áhyggjur af, vora nákvæmlega ekki
neitt, samanborið við það sem Aða-
bjöm mátti þola, en aldrei heyrðist
eitt æðraorð ffá hans vöram, heldur
tók hann orðnum hlut og ræddu um
hvemig mæta skyldi ffamtíðinni.
Meðal annars ræddum við kennara-
starfið."
Haustið 1956 hóf Aðalbjöm nám
við kennaraskólann og þaðan lauk
hann prófi 1960. Þá lá leið hans að
Héraðsskólanum á Reykjum, þar sem
hann var kennari til ársins 1964.
Á Reykjum kynntist hann effirlif-
andi konu sinni, Erlu Óskarsdóttur
ffá Reykjarhóli í Reykjahverfi, dóttur
hjónanna Steinunnar Stefánsdóttur
og Óskars Sigtryggssonar. Gengu
þau í hjónaband 2. júlí 1963 á Ytri-
Bakka. Erla er systir Stefáns, sem er
kvæntur Aðalbjörgu, systur Aðal-
bjamar.
Ég hef þá trú að yfir okkur sé vak-
að og okkur liðsinnt. Sé það rétt, þá
tel ég engan vafa á að leiðir þeirra
Aðalbjamar og Erlu hafa átt að liggja
saman, þeim báðum til farsældar.
Samhentari hjón í hvetju því sem þau
tóku sér fyrir hendur hef ég varla
þekkt. Dugnaður og ósérhlífni þeirra
beggja einkenndi farsælt hjónaband
þeirra.
Veturinn 1964 fluttu Aðalbjöm og
Erla ffá Reykjum, er Aðalbjöm gerð-
ist skólastjóri við bama- og unglinga-
skólann í Skúlagarði í Kelduhverfi.
Þar með var Aðalbjöm fluttur á sínar
heimaslóðir og þar biðu hans verk-
efni ffamtíðarinnar.
Veturinn eftir flutti Aðalbjöm sig
um set og tók við skólastjóm Mið-
skólans í Lundi í Öxarfirði, enda einn
helsti hvatamaður þess að þar skyldi
stofhaður fyrsti unglingaskóli í N-
Þingeyjarsýslu. Var Aðalbjöm fyrsti
skólastjóri skólans. í Lundi átti hann
síðan heimili ásamt fjölskyldu sinni
til æviloka.
Aðalbjöm og Erla eignuðust 6
mannvænleg böm. Þau era:
Steinnum, stúdent, starfsmaður hjá
Fiskmiðlun Norðurlands, f. 14.7.
1964, gift Hannesi Garðarssyni, aðal-
bókara Dalvíkurkaupstaðar, búsett á
Dalvík. Eiga þau einn dreng, Aðal-
bjöm, f. 7.4.1989. Gunnlaugur,
stundar viðskiptaffæðinám í H.í., f.
27.3.1966, Huld, stúdent, er að hefja
nám í K.H.Í., f. 7.2.1968, sambýlis-
maður Jóhann Rúnar Pálsson, nemi.
Óskar, stúdent, f. 19.10.1969, Þröst-
ur, er að hefja nám í M.A., f.
27.2.1974, og Auður, f. 25.4.1979.
Árið 1969 lét Aðalbjöm af skóla-
stjóm en gerðist kennari í Lundi. Þvf
starfi gegndi hann til þessa dags og
var auk þess skólastjóri skólans vet-
urinn 1988- 89.
Aðalbjöm hafði mikinn áhuga á
öllu þvi sem var að gerast og tók
virkan þátt í hvers konar félagsstörf-
um. Hér skal nefút að hann var for-
maður Bindindisfélags Kennaraskól-
ans 1956-59, eða strax og hann hóf
þar nám, og þá átti hann einnig sæti í
stjóm Sambands bindindisfélaga í
skólum. Hann var formaður Sjálfs-
bjargar í Reykjavík 1959-60, i stjóm
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra
1960-61. Formaður áfengisvama-
nefhdar í Öxarfjarðarhreppi var hann
ffá 1966 og sömuleiðis félags áfeng-
isvamanefhda i N-Þing. ffá 1975.
Formaður bamavemdamefhdar og
bókasafúsnefhdar Öxarfjarðarhrepps
yfir tuttugu ár. Formaður Kirkjukóra-
sambands N-Þing. 1971-73, átti sæti
í stjóm kirkjukórs Skinnastaðakirkju
og var þar virkur félagi. Þá átti hann
sæti í stjóm Menningarsjóðs K.N.Þ.
og í stjóm Héraðsbókasafhs K.N.Þ.
Aðalbjöm fór ekki dult með skoð-
anir sínar, hvort heldur um stjómmál
var að ræða eða önnur. Hann var
traustur flokksmaður Framsóknar-
flokksins alla tíð og gegndi trúnaðar-
störfum fyrir þann flokk. M.a. var
hann formaður Framsóknarfélaganna
í N-Þing., vestan heiðar, í nokkur ár
og í stjóm Kjördæmissambands
ffamsóknarmanna í Norðurlands-
kjördæmi eystra 1973-77.
Aðabjöm bar hag æskufólks mikið
fyrir bijósti og var ávallt tilbúinn til
að rétta því hjálparhönd. Hann var í
stjóm ungmennafélagann í Keldu-
hverfi og Öxarfirði um nokkurra ára
skeið og formaður Ungmennasam-
bands N-Þing. 1973-1977 og affur
1983-1990. Aðalbjöm var fyrsti
ffamkvæmdastjóri U.N.Þ. árið 1970.
Ein fyrstu kynni mín af Aðalbimi
vora einmitt á vettvangi ungmenna-
félaganna og man ég m.a. eftir hon-
um í hlutverki þess sem skrifaði nið-
ur árangur einstaklinga á íþróttamót-
um í Ásbyrgi og tilkynnti úrslit í há-
talara frá bíl sínum. Á einu slíku móti
veitti hann mér athygli vegna nokkuð
góðrar ffammistöðu í hástökki. Það
stökk átti eftir að verða mér heilla-
dijúgt og minnist ég á það síðar.
Svo sem sjá má koma Aðalbjöm
viða við í félagsstarfi og gegndi
mörgum ólíkum trúnaðarstörfúm. Ég
tel mig vita að oftar en ekki hafi hann
tekið að sér slík störf fyrir áeggjan og
beiðni annarra fremur en að hann hafi
sérstaklega sóst eftir þeim sjálfur.
Fólk vissi að þar fór hæfúr maður
sem hægt var að treysta.
Góður vinur Aðalbjamar og sam-
starfsmaður í langan tima, Brynjar
Halldórsson í Gilhaga í Öxarfirði,
sagði við mig m.a.: „Við Aðalbjöm
áttum mörg sameiginleg áhugamál,
s.s. á sviði ungmennafélagshreyfing-
arinnar, í söngmálum og í pólitísku
starfi. Það var einkennandi fyrir Að-
albjöm að allt sem hann tók sér fyrir
hendur skyldi ganga ífam. Hann gat
verið fastur fyrir og í þeim tilfellum
sem menn vora ekki sammála, var
tekist heiðarlega á. Maður bar alltaf
virðingu fyrir Aðalbimi og ekkert
spillti vináttu okkar. Hann afsakaði
sig aldrei vegna fotlunar sinnar og
ekki hægt annað en minnast hans
sem einstaks manns.“
Eitt af áhugamálum Aðalbjamar og
Erlu var búskapur. Fljótlcga eftir að
þau komu i Lund eignuðust þau sinn
fyrsta fjárstofú, fáeinar kindur sem
síðan fjölgaði. Réðust þau hjónin þá í
fjárhúsabyggingu og þar gaf að líta
afúrðamikið og fallegt fé. Já, Aðal-
bjöm var atorkumaður og við hlið
hans stóð Erla.
Nú kynni einhver að spyrja. „Var
maðurinn ekki fatlaður?" Jú, vissu-
lega var hann það, en yfirbragð hans
og fas allt gerði það að verkum að
fotlun hans gleymdist þeim sem með
honum unnu. Hann sigraðist á fotlun
sinni.
Kynni okkar hófúst er hann var
skólastjóri við Miðskólann í Lundi
og bauð mér kennarastöðu við skól-
ann veturinn 1968-1969. Einnig var
mitt hlutverk að hafa umsjón með
heimavistum nemenda og sinna
störfúm bryta. Ég var þá aðeins 18
ára gamall og urðu víst fleiri hissa en
ég að hann skyldi treysta mér í kenn-
arahlutverk, unglingsstrák, sem tal-
inn var hinn mesti æringi og jafúvel
gallagripur. Ég hafði að vísu staðið
mig nokkuð vel í fijálsum íþróttum
og þar hafði Aðalbjöm séð til mín og
líklega hefúr hann metið það svo að
gera mætti brúklegan hest úr þessum
galdna fola.
Strax í upphafi tók Aðalbjöm og
hans heimili mér vel og með okkur
skapaðist vinátta sem stóð alla tið.
Svo sem nærri má geta þurfti ég til-
sögn í kennarastarfinu og þá ekki
eingöngu hvað ég ætti að gera, held-
ur e.t.v. ekki síður hvað ég ætti ekki
að gera. Var ég því í raun ekkert síð-
ur nemandi Aðalbjamar en kennari
hjá honum.
Aðalbjöm hvatti mig til að gerast
íþróttakennari, en fyrst yrði ég að
fara í Kenaraskólann. Til að ég stæði
sæmilega að vígi, tók hann mig í
einkatíma í reikningi allan veturinn.
Hann sótti um fyrir mig i Kennara-
skólanum og veit ég fyrir víst að
vegna aðstoðar hans fékk ég þar inn-
göngu. Þar gekk mér ágætlega í
námi, fyrst og fremst vegna þess sem
ég hafði lært hjá Aðalbimi og e.t.v.
vildi ég sýna honum að ég stæðist
þær væntingar sem hann gerði til
mín. Ég lauk einnig íþróttakennara-
prófi, svo sem Aðalbjöm hafði ráð- •
lagt mér og hjálpað mér við. Ég er
þess fúllviss að lífshlaup mitt hefði
orðið öðravísi og trúlega ekki betra
ef Aðalbjöm hefði ekki „tekið mig í
fóstur". Ég er viss um að ég er ekki
einn um að þakka Aðalbimi leið-
sögn, því mörg vora þau ungmennin
sem nutu tilsagnar hans og aðstoðar
þegar lagður var grannurinn að ævi-
starfi.
í nokkur næstu ár unnum við meira
og minna saman. Ég tók m.a. við af
honum sem ffamkvæmdastjóri
U.N.Þ. og sumarið 1974 flutti ég
með fjölskyldu mína í Lund og hafði
þar aðsetur þegar ég var við iþrótta-
þjálfun i héraðinu. Mörg heillaráðin
fékk ég þá frá Aðalbimi og margar
góðar stundir áttum við fjölskyldum-
ar saman.
Ég ætla mér akki áð rifja frekar upp
okkar samskipti, einungis endurtaka
að þau vora frá því fyrsta með ágæt-
um.
Eftir að ég „flutti suður“ urðu sam-
verustundimar færri en stundum gaf
maður sér tíma til að líta við í Lundi.
Þar var mér og mínum alltaf jaíúvel
tekið.
Fyrir þetta allt vil ég og mín fjöl-
skylda jtakka af heilum hug.
Á síðasta ári kenndi Aðalbjöm sér
sjúkdóms sem við greiningu reyndist
vera krabbamein. Átti maður bágt
með að trúa því að slíkt skyldi lagt á
Aðalbjöm, ofan á annað sem hann
hafði þurft að þola.
En svona er þetta nú einu sinni og
erfitt fyrir okkur mennina að útskýra
Guðs vilja.
Eftir mikla aðgerð fór Aðalbjöm
aftur heim i Lund og kenndi þar sl.
vetur. Vonir stóðu til að tekist hefði
að komast fyrir meinsemdina og bati
virtist ffam undan. í ljós kom að svo
var ekki og mætti Aðalbjöm því sem
koma skyldi með þeirri sömu karl-
mennsku og einkenndi allt hans líf.
Með láti Aðalbjamar í Lundi er fall-
inn frá maður sem skipti máli fyrir
okkur öll. Norður- Þingeyjarsýsla
hefúr misst einn sinn besta son. Hans
er sárt saknað.
Átakanlegastur er missir Erlu og
bama hans, móður og systkina. Megi
góður Guð sem öllu ræður veita þeim
sinn styrk.
Þess bið ég um leið og ég kveð
minn vin og velunnara.
Hvíl þú í friði Drottins.
Níels Árni Lund
Sú gleði og gæfa féll mér í skaut að
kynnast og síðar að eignast vináttu
Aðalbjamar á fyrsta ári hans í Kenn-
araskóla íslands, vorum við bekkjar-
bræður.
Hann vakti strax athygli mína sök-
um hugprýði og djörfúngar, stillingar
og staðfestu, en þá hafði hann lamast
stuttu áður. Það fylgdi honum rósemi
og kjarkur sem hafði áhrif á alla sem
kynntust honum.
Ég efast ekki um að trú hans á mátt
hins góða, bænir móður og foður,
hafi veitt honum ómældan styrk og
hjálp, að fá þekkingarþrá sinni fúll-
nægt. Menntun er meðal að æðra
markmiði, sjálfúm sér og öðram til
þroska og blessunar.
Af Freysteini Gunnarssyni skóla-
stjóra, Bjama Vilhjálmssyni cand.
mag., Jóhanni Briem listmálara,
Hallgrími Jónassyni kennara og séra
Árelíusi Níelssyni lærðum við að
skylda okkar væri að ávaxta með trú-
mennsku það pund sem Guð hafði
gefið okkur.
Allir þeir, sem kynntust þessum
mætu kennuram, auðguðust af and-
legri reynslu þeirra, andlegum fjár-
sjóðum, sem hafa fylgt nemendum
þeirra flestra.
Aðalbjöm lét hinar háleitu hug-
sjónir kennara sinna bera ávexti í lífi
sínu.
Aðalbjöm átti ættir sínar að rekja
til norður-þingeyskra bændaætta og
að Dölum í Fáskrúðsfirði. Ást hans
til bemsku- og æskustöðvanna var
óvenju sterk og hann fluttist að
Skúlagarði í Kelduhverfi 1964 þar
sem hann var skólastjóri um eins árs
skeið, og þaðan að Lundi í Öxarfirði
1965, er hann bjó í aldarfjórðung.
Var hann þar skólastjóri og kennari,
auk búskapar. Þar undi hann sér vel
með eiginkonu og sex bömum þeirra
hjóna. Bömin og eiginkonan vora
honum himneskir sendiboðar. Það
var unaðslegt að sjá hvað Erla konan
hans umvafði haxut kærleika og hjart-
næmri nærgætni.
Fjölskyldan var hin gestrisnasta á
heimili sínu í Lundi og nutu þau hjón
heimsókna góðvina.
Ég minnist góðvinar mins og
bekkjarbróður af þakklætistilfinn-
ingu sem ég ber til hans. Ég minnist
hans vegna þeirrar aðdáunar sem ég
hef á honum, á persónu hans, þeim
krafti, sem einkenndi hann. Ég minn-
ist hans vegna trúnaðartraustsins,
einurðarinnar og hreinlyndisins, sem
vora aðalsmerki hans. Góðvinur
minn Aðalbjöm hefir verið borinn af
englum og ffamliðnum ættingjum
inn á æðra svið tilveru Guðs. Fram-
undan er annað sumar, þangað liggur
leið okkar allra.
Ég votta mína dýpstu samúð.
Helgi Vigfússon
Útforin verður gerð ffá Skinna-
staðakirkju í Öxarfirði í dag, 1. sept.,
kl. 14.
Afmælis- og
minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og eða minningar-
greinum í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að berast
a.m.k. tveim dögum fyrir birtingardag. Þær þurfa að
vera vélritaðar.