Tíminn - 08.09.1990, Side 4

Tíminn - 08.09.1990, Side 4
12 Tíminn Laugardagur 8. september 1990 VOFA FRANCOS ENNÁ KREIKI Þótt liðin séu ein fimmtán ár frá dauða Francos, íyrrverandi einræðis- herra Spánar, minna götuheiti spænskra borga og bæja óspart á valdatíð hans; leiðtoga sósíalista og forsætisráðherra Spánar, Felipe Gonz- áles, til mikillar armæðu. En tilraunir til að endurskýra stræti og toig, sem Franco skýrði í höfuðið á sjálfum sér og samstarfsmönnum, hafa mætt mik- illi andstöðu íbúa. Húsmæður sem búa við Jose An- tonio, aðalgötu þorpsins Benitachell skammt ftá strönd Alicante, leggja all- an sinn metnað i að halda götunni skínandi hreinni. Á hveijum degi sópa þær hana og skúra en gata Jose An- tonio er svo þröng að konumar verða að forða sér inn til að bílar geti mæsL Þetta er ósköp venjuleg spænsk gata nema að því leytinu til að hún heitir í höfuðið á Jose Antonio Primo de Rivi- era, stofnanda flokks falangista. Jose Antonio endaði ævi sína sem píslar- vottur þegar repúblikanar létu skjóta hann í fangelsi í Alicante í byijun borgarastyijaldarinnar. íbúar við göt- una mega ekki heyra á það minnst að nafhinu verði breytt. Líkt og hjá fleiri einræðisherrum var eitt helsta áhyggjuefhi Francos það hvemig mætti hindra að hann félli í gleymskunnar dá. í þvi skyni að halda eigin nafni á lofti lét hann endurskýra þúsundir gatna víðs vegar um landið. Að lokum fannst vart eitt einasta smá- þorp þar sem ekki mátti finna að minnsta kosti eina styttu, götu eða toig tileinkað foringjanum og fylgismönn- um hans. í dag er Spánn konungsríki, undir stjóm Juan Carlos sem hlaut embættið Juan Carlos, núverandi konungur Spánar, ásamt Franco, einræðisherranum fýrrverandi. fyrir tilstilli Francos sjálfs. En fýrst og ffemst er landið þó lýðræðisríki. Á þeim áram sem liðin era ftá dauða Francos hefur verið reynt að afmá hina skelfilegu minningu um valdatíð hans með ýmsum ráðum. Byijað var á að breyta nafhi Avenida Generalisimo Franco í höfuðborginni Madrid og heitir nú gatan Paseo Castellana í sam- ræmi við heiti héraðsins Casteliu. En breytingar hafa ekki gengið jafn auðveldlega fyrir sig um allt landið, þrátt fyrir tilraunir leiðtoga sósíalista til að afmá ummerkin. Ennþá má finna nöfn og styttur sem minna á einræðis- herrann, jafhvel í sumum stærstu boig- anna. Andstaða við breytingar hefur þó verið mest í smáum bæjum sérstak- lega þar sem hægrimenn era öflugir við stjómvölinn. Bæjarstjóri Benitachell, Miguel Ca- talá, var settur í embættið í valdatíð Francos fyrir 22 árum. Hann hefur síð- an verið endurkjörinn sem ffambjóð- andi hægri flokksins Partido Popular. „Nafni aðalgötunnar verður ekki breytt," er haft eftir Catalá. „Nafnið hefhr sögulega þýðingu og er óaðskilj- anlegur hluti fortíðar okkar.“ Ekki era allir landsmenn á sama máli og bæjar- stjórinn, sumir telja jafhvel þjóðlega fortíðarhyggju beinlínis skaðlega. Dagblaðið E1 Pais birti til að mynda fyrir skömmu lista yfir átta höfuðboig- ir héraða þar sem finna má nöfn sem minna á valdatíð einræðisherrans. Meðal annarra má þar nefna Orense, Avila, Burgos, Lugo og Léon, allar í norð-vestur hluta landsins þar sem þjóðemissinnar náðu sterkum tökum strax í byijun borgarastyijaldarinnar. I Santander hafa deilur um nafhgiftir Francos einnig verið harðvítugar en þar heitir einmitt aðaltorgið Plaza del Generalisimo Franco. Bæjarstjómin, með Partido Popular í meirihluta, fjar- lægði nýverið bronsstyttu, sem sýndi Franco á hestbaki, af torginu. Ástæðan var sú að til stóð að byggja bíla- geymslu neðanjarðar. Mörgum íbú- anna til fhrðu og hrellingar var stytt- unni síðan komið fýrir aftur á sama stað þegar byggingunni var lokið. , J>að eina sem við getum huggað okk- ur við er að dúfur bæjarins hafa hingað til og munu áffam sjá samviskusam- lega um að hylja styttuna," sagði sagn- ff æðingurinn Ramón Saiz við þetta til- efni. Rúllubindivél l,2m x l,2m, verð frá kr. 590. þús. Alsjálfvirk pðkkunarvél, verð frá kr. 430. þús. Moksturstæki Veto FX 15, verð frá ••••••••••••••••••«•••••••*•••••*•••«•••••• kr. 338. þús. Baggaspjót á þrítengi, verð frá •«••»•»..••«•••••••...•«««••••..••••«•••••..•••««• kr. 15. þús. Baggagreip á moksturstæki, verð frá.............................................. kr. 53. þús. Flutningavagnar, verð frá kr, 225, þús. Rúllutækni HAUSTVERÐ Bændur! Bjóðum okkar viðurkenndu rúllutækni á hausttilboði. & JÁRNHÁLSI 2 SÍMI83266 Munið staðgreiðslu- og magnafsláttinn. Öll verð eru án virðisaukaskatts Meðal þess sem flokksmeðlimir setja á oddinn er að kvenfólki leyfist að liggja topplaust í sólbaði. Erótíski flokkurinn Áhugamenn um kynlíf hafa nú myndað sinn eigin flokk í Tékkó- slóvakíu. Flokkurinn sem ber svo virðulegt nafn sem „Hið óháða er- ótíska frumkvæði", hefur það helst á stefnuskrá sinni að berjast fýrir frjálsræði í kynlífi og stofhun verslana sem sérhæfa sig í sölu á hjálpartækjum ástalífsins. Áttatíu af hundraði meðlima eru karlmenn. Stofnandi flokksins er lögfræð- ingur nokkur sem ekki hafði annað markmið í huga en að semja vafa- saman brandara. Lögfræðingnum að óvörum fékk hugmyndin svo góðan hljómgrunn að skráðir með- limir eru nú um 3500 og stefna að framboði í næstu kosningum. Tals- maður flokksins, Richard Knot, er doktor í heimspeki, stjómmálum og hagfræði. Eftir honum hefur verið haft að meðal markmiða flokksmeðlima sé heimild til sýn- inga svokallaðra blárra kvik- mynda. Sömuleiðis að felld verði úr gildi lög um almennt velsæmi sem meðal annars banna konum að liggja í sólbaði topplausar. Jafn- framt verður barist fýrir kyn- fræðslu í skólum og þeim skilaboð- um dreift að kynlíf sé bæði heilsu- samlegt og skemmtilegt. „I valdatíð kommúnista var kynlíf bannorð. Fólk hefur alltaf haft áhuga á erótík en allt því efni tengt fór fram með mikilli leynd. Nú Iangar fólk til að vinna upp þau 40 ár sem við höfum misst af,“ sagði Knot. Uppátektir flokksmeðlima hafa hlotið misjafnar undirtektir. Það var til að mynda ekki talið flokkn- um til framdráttar þegar nokkkrir athafnamenn og konur, flokksmeð- limir að eigin sögn, tóku sig til og héldu mikla kynlífssýningu á Wenceslas torginu I miðborg Prag. Á hinn bóginn vakti fundur sem haldinn var með forsvarsmönnum fjölmiðlanna mikla lukku. Þar gengu berbrjósta konur um beina, blaðamönnum til mikillar ánægju, og rak menn ekki minni til að fund- ir annarra stjómmálafiokka hefðu nokkum tíma verið eins vel sóttir.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.