Tíminn - 12.09.1990, Side 1
Gorbatsjov gefur
kommúnisma fimm
hundruð daga líf
Gorbatsjov, leiötogi Sovétríkjanna, lýsti í gær yfir
stuðningi við hugmyndir róttæklinga um efnahags-
stefnu sem gerír ráð fyrir að á 500 dögum verði
komið á einkavæðingu með sölu ríkiseigna og
óheftum markaðsbúskap. Þar með skipaði Sovét-
leiðtoginn sér í flokk róttækra við hlið Borísar Jelts-
in, forseta Rússlands, en forsætisráðherra Gorbat-
sjovs, „miðjumaðurínn“ Nikolai Ryzkov, virðist vera
að einangrast. Yfirlýsing Gorbatsjovs kom á fundi í
Æðsta ráðinu í gær, þar sem tekist var á um hæg-
fara efnahagsstefnu Ryzkovs annars vegar og
efnahagsstefnu róttæklinga, sem kennd er við
hagfræöinginn Shatalin, hins vegar. Rússneska
þingið samþykkti stefnu Shatalins á meðan þing-
fundur stóð í Æðsta ráðinu. Með yfuiýsingu Gor-
batsjovs þykja línur heldur farnar að skýrast, þó
átökum um efnahagstefnuna sé hvergi nærrí lokið.
Þau átök eru í raun átök um endalok hefðbundins
kommúnisma í þessu „virki sósíalismans“, sem eitt
sinn var kallað svo. Hugmyndafræði kommúnism-
ans býður að skipan framleiösluhátta ráði þjóðfé-
lagsgerðinni og sameign á framleiðslutækjum sé
grundvöllur sameignarskipulagsins. Einkavæðing
og markaðsbúskapur í því formi sem forseti Sovét-
ríkjanna hefur
lýst sig fylgj-
andi er ósam-
rýmanlegur
kommúnisma.
Yfiríýsing leið-
toga Ráð-
stjómam'kj-
anna felur því
í sér ótrúlega
afdráttaríausa
og tímasetta
viöurkenningu
á hruni
kommúnism-
ans.
• Baksíða
Kreml, tákn kommúnískra stjórnarhátta. Þaðan berast nú andkommúnískir hljómar.