Tíminn - 15.09.1990, Page 1
Hafrannsókn færir slæmar fréttir af 1990 árgangi þorsks:
Þorskur bregst
einu sinni enn
Niðurstöður úr árlegum seiða- og sjó-
könnunarleiðangri Hafrannsóknarstofn-
unar liggja nú fýrir og fannst lítið af
þorskseiðum. Fiskifræðingar segja að
næsta víst sé að þorskárgangurinn
1990 sé lélegur og er þetta fimmta árið í
röð sem þorskurinn bregst að þessu
leyti. HalldórÁsgrímsson, sjávarútvegs-
ráðherra, segir þetta slæm tíðindi og
Ijóst sé að ekki verði unnt að auka
þorskveiði við landið á næstu árum um-
fram það sem nú er og að jafnvel þurfi
að draga úr þorskafla. Ráðherrann telur
þó ekki tímabært að segja til um hvort
þörf verður á samdrætti umfram það
sem orðinn er í þorskveiðum strax á
næsta ári. A _
• Blaðsiða 2
Hefur boðað frjálslyndi og framfarir í sjötíu ár
LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER1990 -178. TBL. 74. ÁRG. - VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110,-