Tíminn - 15.09.1990, Page 4

Tíminn - 15.09.1990, Page 4
p. nnjrnlT 4 Tíminn OQP f ifMÍrnRtns? ? 1“ ii iorStirow I Laugardagur 15. september 1990 Þórður Friðjónsson forstjóri Þjóðhagsstofnunar: Niðurgreiöslur á raforku þýða arðminni framkvæmd „Það gefur augaleið að eftir því sem fleira, sem felur í sér út- gjöld, er hengt á þessarframkvæmdir, þeim mun arðminni verða þær. Það liggur í augum uppi,“ sagði Þórður Friðjónsson forstjóri Þjóðhagsstofnunar, en nú eru uppi í ríkisstjóminni hugmyndir um að nota eitthvað af þeim arði, sem verður til við orkusölu til nýs álvers, í að jafna orkuverð í landinu. Þórður tók fram að hér væri enn um að ræða hugmyndir, ómótaðar í einstökum atriðum. Þjóðhagsstofnun gæti því ekki sagt nákvæmlega til um hvaða áhrif það hefði á þetta dæmi allt, ef Landsvirkjun yrði gert skylt að greiða niður verð á orku til landsbyggðarinnar. Það væri hins vegar augljóst að ef hluta þeirra fjár- muna, sem koma í kassann frá nýju álveri, færu í að greiða niður orku- verð, en ekki í að greiða niður lán, sem tekin verða til að byggja vænt- anlegar virkjanir, komi það til með að minnka arðinn sem annars yrði af þeim. Það tæki íslendinga þar af leiðandi lengri tíma að eignast alger- lega þessar virkjanir. Hingað til hef- ur verið talað um að það myndi taka 25-27 ár miðað við þau samnings- drög sem nú liggja fyrir og spár um heimsmarkaðsverð á áli. Halldór Jónatansson forstjóri Landsvirkjunar sagðist ekkert geta sagt um þær hugmyndir sem ráðherr- ar hafa verið að viðra síðustu daga. „Eg cr ekki í aðstöðu til að meta í einstökum atriðum hvað vakir fyrir mönnunum, til þess skortir nánari upplýsingar." Halldór staðfesti þó hér gæti verið um að ræða verulegar fjárupphæðir, en það færi þó allt eft- ir því hvað væri gengið langt í því að jafna orkuverð. Þessar hugmyndir hafa ekki verið ræddar í stjóm Landsvirkjunar. Ekki er gert ráð fyrir niðurgreiðslum af neinu tagi í þeim áætlunum sem liggja fyrir stjóm fyrirtækisins. Stjóm Landsvirkjunar hefur haldið einn fund um fyrirliggjandi drög að orkusamningi. Engin afstaða var tek- in til þeirra, en stjómin mun ræða þau áfram á næsta fundi. Það sem vakir fyrir ríkisstjóminni með hugmyndum um jöfnun á orku- verði er að nýta þann arð, sem verð- ur til af nýju álveri, til þess að jafha búsetuskilyrði í landinu. Margoft hefur verið bent á þann gífurlega mun sem er á orkuverði á höfuðborg- arsvæðinu og á landsbyggðinni. Það sem ræður mestu um að stjómvöld íhuga að taka á þessu máli nú, er að fyrir liggur að nýtt álver verður stað- sett í Keilisnesi, þó að það hafi að vísu ekki verið sagt opinberlega. Talað er um að jöfnun orkuverðs verði hluti af aðgerðum, sem gripið verður til, til þess að draga úr byggðaröskun. Ljóst er að hugmyndir um jöfnun orkuverðs njóta mikil stuðnings, en andstaða við þær er einnig fyrir hendi. -EÓ Ríkisendurskoðun: Ráðuneyti bað um athugun á Mógilsá Ríkisendurskoðandi, Halldór V. Sig- urðsson, staðfésti í samtali við Tím- ann, að ráðist hefði veríð í að gera úttekt á bókhaldi og ársreikningum Rannsóknarstöðvar skógræktar rík- isins aö Mógilsá, í kjötfar beiðni landbúnaðarráðuneytisins. Einnig að Alþingi heföi ekkert haft með málið að gera og værí slíkt ekki venjan nema í sérstökum titfellum. En Alþingi hefúr samkvæmt lögum yfirsflóm ríkisendurskoðunar með höndum. „Við endurskoðuðum mál Mógilsár í tilefhi starfsloka forstöðumannsins. Það er ekki algild venja að endurskoða slík mál, hcldur aðeins ef ástæða þykir til af ráðuneytum eða okkur. Það er hins veg- ar yfirleitt gert þegar forstöðumenn eða aðrir hafa haft miklar fjárreiður með höndum, eins og til að mynda alltaf er með sýslumenn og fógeta. Þá er talin hver króna sem hefur komið í kassann hjá þeim, bankareikningar, vistareikn- ingar og allt er starfmu við kemur. Við skiluðum skýrslunni um Mógilsá til landbúnaðarráðuneytisins og höfum ekkert meira um hana að segja. Það má vel vera að við hefðum skoðað málið án beiðni landbúnaðarráðuneytisins“, sagði Halldór. Aðspurður neitaði hann því að Alþingi hefði nokkuð haft með málið að gera og sagðist ekki sjá neina ástæðu til að svo hefði átt að vera. „Ríkisendurskoðun er stofnun sem sér um endurskoðun og við þurfum ekkert að spyija Alþingi um það. Alþingi ræður ríkisendurskoðanda og ef einstakir þingmenn vilja láta okk- ur skoða ákveðin mál þá tala þeir við forseta Alþingis og þeir síðan við okk- ur. Ef ráðuneyti telja ástæðu til að eitt- hvað sé athugað, benda þeir okkur á það og við metum hvort málið skuli skoðað." Varðandi vangaveltur þess efnis hvort slík vinnutilhögun vasri í samræmi við það markmið að ríkisendurskoðun eigi að vera óháð framkvæmdavaldinu, eins og leitast er við með því að fela Alþingi yfirstjóm stofhunarinnar, sagði Hall- dór: „í lögum um Ríkisendurskoðun segir að þetta sé stofhun Alþingis og óháð ffamkvæmdavaldinu. Alþingi stjómar ekki okkar verkum nema í þeim tilfellum, þegar forsetar Alþingis krefja ríkisendurskoðun um skýrslu um ákveðin mál. Þegar það er gert verðum við auðvitað að svara því. Við ráðum sjálfir hvaða önnur mál em tekin til at- hugunar, einnig af þeim málum sem ráðuneyti benda á.“ Halldór vildi hins vegar ekki tjá sig frekar um ástæður er liggja að baki þeirrar ákvörðunar ríkisendurskoðunar að gera úttekt á eintökum málum ef hvorki kemur til beiðni né um er að ræða reikninga stofnana sem reglulega em endurskoðaðir. jkb Mikil sala hefur verið á lambakjöti í sumar: Söluátakið gekk upp Samstarfshópur um sölu lamba- kjöts hefur sent frá sér fréttatilkynn- ingu þar sem ffam kemur, að sölu- átak sumarsins á lambakjöti gekk mun betur en haldið hefur verið til þessa. í ágústmánuði seldust 1133 tonn af lambakjöti. Á undanfömum þremur ámm hefur aldrei selst svo mikið magn í einum mánuði. í ágúst 1989 seldust 1107 tonn af lambakjöti en annars hefur salan ekki farið yfir eitt þúsund tonn í einum mánuði undanfarin þijú ár. Sala á lambakjöti síðustu mánuði var þannig, að í apríl seldust 492 tonn, maí 645 tonn, júní 694 tonn, júlí 797 tonn og ágúst 1133 tonn. Söluátakið, Leitin að léttustu lund- inni, hófst í júnf. Á nýliðnu verðlagsári seldust alls 8083 tonn af lambakjöti, en árið áður 8600 tonn. Samdrátturinn nemur um 6%. Birgðir lambakjöts í landinu hafa samt sem áður minnkað um 28,4% á milli ára og hafa ekki verið jafn litlar lengi. Stjómvöld settu sér það takmark að minnka birgðir lambakjöts á árinu um 600 tonn og hefur það tekist. Harður árekstur varð á mótum Vonarstrætis og Suðurgötu um hálf fjögur leytið í gær. Bfll, sem kom ak- andi Vonarstrætið, lenti framan á bfl sem ók Suðurgötuna. Okumaður og farþegi úr öðrum bflnum voru flutt- ir á slysadeild. Ekki er nánar vitað um meiðsli. Þá varð vinnuslys á Hólmaslóð 2 um svipað leyti í gær. Mað- ur féll niður tvær hæðir og var hann fluttur á slysadeild. Ekki er nánar vitað um meiðsli. Tímamynd: Ami Bjama Iðnlánasjóður tekur upp kjörvaxtakerfi og allt að 1,75% hærri vextí í hæsta vaxtaflokki: Flokkar hafrana nú frá sauðunum Iðnlánasjóður hefur ákveðið að ins af viðskiptum við viðkomandi, taka upp kjörvaxtakerfl sem tek- rekstrarumhverfl, viðskipta- ur gildi þann 15. september. Öll tengslum og líklegri þróun í ný útlán frá og með þeim degi rekstri. verða afgreidd í kjörvaxtakerfi. Lántakendur verða ekki fastir Lántakendur verða flokkaðir i allan lánstimann í þeim flokki ijóra flokka. Kjörvextir á lánum í sem þeir upphaflega lenda í. Þvi íslenskum krónum verða 7,95%. röðun í flokka verður jafnan end- Vaxtamunur verður 03% milli urskoðuð eftir að ársreikningar flokka nema hvað 0,75% munur eiga að hafa borist. Fyrirtæki sem verður á miili 3. og 4. flokks. Sam- ekki skila inn ársreikningum eða kvæmt fréttabréfi Iðnlánasjóðs öðrum umbeðnum gögnum á til- þurfa aðeins þeir er lenda í fjórða settum tíma munu þá lenda í slak- flokki að greiða hærri vexti en til asta flokknum. þessa hafa gilt hjá sjóðnum, en Á eldri lánum í krónum eru vext- hins vegar munu vextir Iækka hjá ir nú 8,75% á vélalánum og 9% á traustum viðskiptavinum. byggingarlánum, en 113% á í kjörvaxtakerfið er sögð felast SDR- lánum. Kjörvextir verða hvatning til fyrirtækja að rekstur hins vegar 7,95% á krónulánum, sé góður og ijárhagsstaða sterk sem fyrr segir, en 10,2% á SDR- vegna þess að lántakendura verð- lánum. ur skipt í flokka eftlr mati sjóðs- Þeir aðiiar sem standast núgild- ins á lánstrausti þeirra. Við þá andi kröfur sjóðsins munu ekki flokkun er tekið mið af fjárhags- borga hærri vexti en til þessa hafa legri uppbyggingu og rekstraraf- gjlt, en hugsanlega mun lægri, að komu lánsumsækjenda fyrst og því er segir í fréttabréflnu. 1 kerf- fremst með greiningu ársreikn- inu felist því mikil hvatning fyrir inga. En einnig er iagt mat á hvern lántakanda til þess að bæta hæfni stjórnenda, reynslu sjóðs- stöðusína. -HEI

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.