Tíminn - 15.09.1990, Blaðsíða 6

Tíminn - 15.09.1990, Blaðsíða 6
Tíminn 6 Laugardagur 15. september 1990 Tfmirm MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin I Reykjavík Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason Ritstjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm. Ingvar Gíslason Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson Stefán Ásgrímsson Auglýsingastjóri: Steingrímur Glslason SkrifstofunLyngháls 9,110 Reykjavlk. Síml: 686300. Auglýsingasíml: 680001. Kvöldsímar Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, Iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setnlng og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prerrtun: Oddi h.f. Mánaðaráskrift kr. 1000,-, verð I lausasölu kr. 90,- og kr. 110,- um helgar. Grunnverö auglýsinga kr. 660,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Útvarpsstarfsemi Hinn 1. janúar 1986 gengu í gildi ný útvarpslög, sem mörkuðu tímamót á sínu sviði, að því leyti að fortakslaus einkaréttur Ríkisútvarpsins til útvarps- starfsemi var afnuminn. Lögin heimila að öðrum en Ríkisútvarpinu megi veita leyfi til hljóðvarps- og sjónvarpsrekstrar. Það er því rangt með farið að lögin veiti óheft frelsi til slíks rekstrar, því að hver sá sem hyggst reka út- varps- eða sjónvarpsstarfsemi þarf að sækja um leyfi til þess til svokallaðrar útvarpsréttamefndar. Sú neínd starfar á gmndvelli útvarpslaga eftir regl- um sem lög og reglugerðir ákveða. I 3. gr. útvarpslaga er nánar fjallað um meginlín- ur í starfi útvarpsréttamefndar sem valdhafa um leyfisveitingar til útvarpsstarfsemi. Þar mælir lög- gjafinn íyrir um þau almennu skilyrði sem um- sækjandi þarf að uppíylla til þess að veita megi honum starfsleyfi. Yfirleitt em þessi skilyrði aug- ljós. Má telja að útvarpsréttamefnd hafi komist vel frá því að afgreiða umsóknir sem henni hafa borist og samstarf hennar og leyfishafa verið gott. Ahugamenn um útvarpsrekstur hafa sýnt fullan skilning á hvaða skilyrðum laga og reglugerða þeir yrðu að hlíta og leitast við að virða þau. Enginn vafi er á því að íslenskar útvarps- og sjón- varpsstöðvar verða að hlíta því skilyrði að búa efni sitt þannig út að augljóst sé að það sé ætlað ís- lenskumæltu fólki, að íslenska sé mál íslendinga. í útvarpslögum er reyndar gengið svo langt að íyrir- skipa útvarpsstöðvum að „efla íslenska tungu“. Þótt óneitanlega vanti leiðbeiningar um það, hvemig svo megi verða, svo að öllum líki, munu þó allir nema orðhenglar skilja hvað við er átt og leitast við að halda uppi þeirri reglu sem næst ligg- ur að beita í þessu tilviki, þ.e. að útvarpa á íslensku eða þýða erlent tal og texta forsvaranlega á þjóð- tunguna, þegar það á við. Ekki er annað vitað en að allir sem fást við útvarps- og sjónvarpsrekstur sætti sig fyllilega við þetta, þó ekki væri nema af því að þeir vita á hvaða málsvæði þeir starfa án ffekari umhugsunar um þjóðmenningarleg atriði. Þeir vita sem er að þeir myndu fæla frá sér hlust- endur og viðskiptavini ef þeir gerðu það ekki. Nú er allt í einu risinn upp félagsskapur, sem hef- ur það á stefnuskrá sinni að kreíjast þess að mega reka sjónvarpsstöð á ensku. Það er ekki heimilt samkvæmt gildandi útvarpslögum. Ákafi tals- manna þessara hugsjóna um enskt sjónvarp á ís- landi er svo mikill að þeir segja útvarpslögin úr gildi fallin án þess að Alþingi hafi komið þar neitt nærri. Þetta er hreinn misskilningur og mistúlkun á endurskoðunarákvæði laganna. Þótt tímabært kunni að vera að endurskoða útvarpslög, þá er það mál Alþingis hvenær í það verður ráðist og hvem- ig það verður gert. JtTEGAR ÞEIR CHURCHILL, Roosevelt og Stalín hittust á Yalta, m.a. til að tryggja Stalín yfírráð yfir Austur- Evrópu, héldu þeir að með því væru þeir að leggja grunninn að varanleg- um friði. í Vestur-Evrópu spruttu upp sterkir kommúnistaflokkar í skjólinu af samstarfi Banda- manna í stríðinu. Hér á Islandi hafði Sjálfstæðisflokkurinn for- ystu um að taka upp stjómarsam- starf við kommúnista með þeim árangri, að þjóð með dijúgar er- lendar innstæður varð sárfátæk á um tveimur árum, og varð að taka upp skömmtun á lífsnauð- synjum. Það var skömmtun með líkum hætti og á stríðsárunum, þegar það kostaði þjóðina mann- fómir að flytja vaming til lands- ins. Á Yalta var ákveðið að yfir gefna markalínu, sem dregin var milli Austur-og Vestur-Evrópu, mættu samkomulagsaðilar ekki fara. Þannig gátu Bandaríkja- menn og Bretar ekki skipt sér af því, þótt þjóðir austan markanna væm beittar harðræði. Og Sovét- menn máttu ekki skipta sér af því sem gerðist vestan línunnar. Þetta samkomulag héldu aðilar á yfírborðinu. Tjald og múr En brátt kólnaði mjög á milli Sovétmanna og fyrrverandi bandamanna þeirra, sem í trú á einskonar áframhaldandi sam- vinnu létu Sovétmönnum í té yf- irráð yfír mörgum löndum. Churchill sá einna fyrstur hvert stefhdi, en gat engum vömum við komið, enda féll stríðsstjóm hans daginn eftir að hann kom af fundinum í Yalta. Roosevelt var orðinn sjúkur maður þegar á fundinum, en uppi stóð Stalín og fékk því framgengt sem hánn vildi. Þegar árangurinn af fúndinum kom í ljós var Churchill eitt sinn að halda ræðu við bandarískan háskóla, og lét þá þau orð falla, að jámtjald væri að síga yfir Evr- ópu og skipta henni i tvennt. Seinna kom Berlínarmúrinn, þegar Sovétmönnum hafði mis- tekist að hrekja fyrrum banda- menn sína út úr Berlín. Allt er þetta kunn saga og minnir ekki svo lítið á árangurinn af Versla- samningunum í lok heimsstyij- aldarinnar fyrri. Af þessum tveimur sögulegu staðreyndum verður að draga þá ályktun, að þótt Vesturlandamenn kunni að sigra í stríðum þá kunni þeir ekki að ljúka þeim. Alið á hatri Þegar horft er til baka til loka síðara stríðs er ástæða til að undrast allan þann fyrirgang til einskis sem fylgdi kalda stríðinu. Á sama tíma og það geisaði hélt Vesturveldunum áfram að vegna sæmilega. Að vísu höfðu Bretar misst margrómað heimsforræði yfir til Bandaríkjanna og hluta af fjármunalegri forystu í heimin- um, vegna kostnaðar við stríðs- rekstur; sem þeir stóð einir að um tíma. Áhrif Breta í Balkanlönd- unum fyrir fyrra stríð, sem þrengt höfðu að metnaði Vil- hjálms keisara, voru horfín með öllu. Seinna stríðið, sem var að hluta afleiðing þeirra afarkosta, sem þáverandi bandamenn gegn Þjóðverjum höfðu sett þýsku þjóðinni, skildi eftir rústir einar um miðbik álfúnnar. I ljósi fyrri mistaka hófú engilsaxar í flýti að koma á endurreisn i Vestur- Þýskalandi og buðu Evrópuríkj- um Marshall-aðstoð. Hún gekk hratt og vel fyrir sig. Vestur- Þýskaland varð land lýðræðis, sem bauð ekki öfgahópum upp á marga kosti. En austan jám- tjaldsins var alið á hatri í garð fyrri bandamanna, sem endaði með skipulögðum hryðjuverkum í Vestur-Evrópu, einkum vestur- þýska lýðveldinu, sem var hatað alveg sérstaklega. Það varð fljót- lega einskonar sýningargluggi til austurs og átti hefndir skilið fyrir vikið að mati kommúnista. Nú hefúr komið á daginn að hryðju- verkamenn, svonefndir af fjöl- miðlum á meðan þeir nutu virð- ingar vinstri manna, vom aðeins afvegaleiddir og heilaþvegnir morðingjar, sem sátu upp á kost og lóssí í Austur- Þýskalandi í skjóli stjómvalda kommúnista og leyniþjónustunnar Stasi á milli morðferðanna vestur fyrir Berlínarmúrinn. Hungurstefnan lifír Þótt kommúnisminn hafi leikið þær þjóðir grátt, sem til skamms tíma lutu honum skilyrðislaust og urðu að þola vopnuð afskipti ef út af var bmgðið, lifír hann enn góðu lífí um stærstan hluta Asíu. Hann lifir einnig meðal þjóða sem hafa talið hann eins- konar nauðsyn til að bijóta af sér aðra hlekki. Hægt er að nefha stóran hluta Afríku og nokkra fylgispekt við hann i sumum ríkjum Suður-Ameríku. Þá em stjómmálaflokkar, mismunandi fylgismiklir, tengdir honum í löndum Vestur-Evrópu. Á sama tíma hefúr Mikael Gorbatsjev lýst því yfir að hann gefí komm- únismanum líf í fimm hundruð daga. En þá muni tekinn upp markaðsbúskapur í Sovétrikjun- um. I fljótu bragði virðist ekki talað um neina millileið, sem óneitanlega væri æskilegri. Sé átt við hreinræktaðan markaðsbú- skap er það fyrirbæri litlu skárra en kommúnisminn. I báðum til- fellum getur fólk dáið úr hungri. Styrjöld er lokið í þessari viku var undirritaður einskonar vopnahléssamningur í Moskvu á milli stríðandi afla á árunum 1939-45. Seinni heims- sfyrjöldinni er loksins lokið. Sagt var að fyrri heimssfyrjöldin hafí orðið útgönguvers heimsveldis Breta. Eins má með nokkrum sanni segja að undirritunin i Moskvu sl. miðvikudag um sam- einingu Þýskalands í eitt ríki, ákveðin landamæri Póllands til frambúðar, og annað það, sem ber svip friðarsamninga, hafí um leið verið útgönguvers kommún- ismans í Evrópu. Evrópa ætti samkvæmt þessu að hafa í fyrsta sinn náð þeim mikilsverða áfanga að geta snúið sér samein- uð að verkefhum sem ofbjóða ör- yggiskennd hennar. Það hlýtur að vera gleðiefhi að geta boðið Sov- étríkin og austantjaldsríkin vel- komin í evrópskt samfélag. Þjóð- verjar hafa þegar skilið, að til að sambúðin geti orðið heil og til frambúðar, þurfa Sovétrikin á efnahagshjálp að halda. Hana veita þeir m.a. í mynd greiðslu fyrir heimsendingu sovéskra her- manna frá Austur-Þýskalandi. Með slíku viðhorfí og þeirri hjálp sem þeir eru viljugir að veita Sovétmönnum, hafa þeir á óbeinan hátt tekið forystuna í Evrópu. Sú forysta er ekki ávöxt- ur haturs, eins og valdatilraunir þeirra voru upp úr 1935, heldur ávöxtur velvildar þeirra, sem álíta að þrátt fyrir allt skuldi þeir Evrópu nokkum stuðning til sameiningar um leið og þeir fá sjálfir að sameinast. Gamalt, bilað og úrelt Gorbatsjev er sá maður, sem allra augu hafa beinst að undan- farið vegna þeirrar umbótastefhu sem hann hefúr rekið heima hjá sér. Þessi umbótastefha hefur jöfhum höndum haft þau áhrif á fyrri leppríki Sovétmanna, að þau hafa varpað af sér forsjá kommúnista og gengið nauðsyn- leg skref í átt til lýðræðis. Um- bótastefha Gorbvatsjevs hefúr ekki einasta leitt í ljós gífúrlegan efnahagsvanda Sovétríkjanna heldur líka opnað landið, þannig að nú er frekar hægt að átta sig á margvíslegum staðreyndum. Þær eru ekki geymdar í leynum leng- ur. Túlkun á ástandinu í Rúss- landi er ekki framar á færi kommúnista einna, hvorki þar eða í öðrum löndum, m.a. ís- landi. Áður, á meðan vandamál- um var sópað undir teppið, voru erfíðleikar skrifaðir á byltinguna, hvítliða stríðið og svo foður- landsstríðið mikla, en svo var lát- ið heita að Sovétmenn hefðu bar- ist næstum einir gegn nasisman- um. Nú er þessu ekki borið við lengur. I staðinn er upplýst á miklu komvaxtarári, að ekki sé hægt að ná allri uppskemnni í hús vegna gamalla, bilaðra og úr- eltra véla. Morð í leikhúsi Gorbatsjev er ekki fyrsti sov- éski leiðtoginn sem reynir að koma á leiðréttingum í Rúss- landi. Hann er hins vegar kannski mesti nútímamaðurinn sem það reynir. Peter Stolypin reyndi umbætur á tíma keisara- stjómarinnar árin 1906-8, þegar hann var forsætisráðherra. Hann boðaði stjómarfarslegar umbæt- ur í ríki zarsins, en mætti óvæg- inni andspymu hinna íhalds- sömu. Reynt var að ryðja honum úr vegi í sprengjuárás á heimili hans. Forsætisráðherrann slapp í það sinn, en tvo böm hans slös- uðust. Ekki dignaði geð Stolyp- ins við þetta atvik. Hann herti á

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.