Tíminn - 15.09.1990, Side 7

Tíminn - 15.09.1990, Side 7
Laugardagur 15. september 1990 Tíminn 7 LAUGARDAGURINN 15. SEPTEMBER 1990 Leiðtogar bandamanna Jósep Stalín, Franklin D. Roosevelt og Winston Churchill komu saman tvisvar í Teheran 1943 og á Yalta 1945. umbótatilraunum sínum, þótt þingið (duman) væri honum and- snúið. Samt kom hann á nýjum kosningalögum 1907 og síðan endurskipulagði hann óhindrað opinbera þjónustu og herinn og kom efnahagslífi landsins á rétt- an kjöl. Þá var nóg komið. Við hátíðahöld vegna afhjúpunar minnismerkis um Alexander 11 í Kænugarði 1908 var Stolypin skotinn til bana í leikhúsi í borg- inni. Stolypin var dæmigerður rússneskur umbótasinni, eins og Gorbatsjev kemur okkur fyrir sjónir í dag. Kannski fer Gorbat- sjev minna í leikhús. Bardögum linnir Þegar horft er yfir sviðið sjást greinileg merki þess að umbóta- stefna Gorbatsjevs hefur ekki einungis haft gífurleg áhrif i Sovétríkjunum, heldur einnig i Vestur-Evrópu, þar sem komm- únistaflokkar hafa haft umtals- vert fylgi. Þar hafa forystumenn þeirra gengið langt i margvísleg- um aðgerðum, sem miða að upp- lausn og verið næsta óþreytandi í því undirróðursstarfi. Hér á landi hefur umbótasteftiu Gorbatsjevs gætt einkum i nýjum viðhorfum innan launþegahreyfingarinnar, samanber þjóðarsáttina og önnur vitsmunaleg viðhorf á þeim bæ, sem komust ekki að hér áður fyrr vegna þess að bardaginn var fýr- ir öllu. I fyrstu voru Alþýðusam- bandið og Alþýðuflokkurinn eitt og hið sama. En því var skipt upp á árunum milli 1930 og 1940, þegar kommúnistar fengu skipun um að taka upp samstarf við al- þýðuflokka í Evrópu. Síðan mið- aðist starfsemin við að eyði- leggja alþýðuflokkana með klofhingsaðgerðum, sem stefndu að því að ná úrslitavöldum í stofnunum eins og Alþýðusam- bandinu. Hvenær sem mannleg skynsemi kom við sögu var mönnum hætt, samanber áhrifa- leysi Asmundar Stefánssonar eft- ir að hann gerði launasaminga sem tóku meira mið af kaup- mætti en eflingu verðbólgunnar. Þjóðarsáttin kom svo í beinu framhhaldi af hinum nýju við- horfum, þar sem gamlir jaxlar eins og Guðmundur J. ganga fremstir í fylkingu og þakka nú þjóðinni fyrir skynsamlegar und- irtektir. Afraksturinn glórulaus tíð Kommúnistar völdu auðvelda leið í valdabrölti sínu bæði hér og á Vesturlöndum. Aðferðir þeirra miðuðu við að stefna þjóð- félögum út í óróa og upplausn og steypa efnahagslífmu í ógöngur. Venjan var að helsti foringi kommúnista hér um langa hríð, Brynjólfur Bjamason, boðaði forystu flokksins til fundar og til- kynnti þar að nú yrði að efha til verkfalla og hækka kaupið. Verk- follin voru aðalatriðið, vegna þess að þau sýndu baráttuþrek og komu vel út í skýrslum. Væri um löng verkfoll að ræða var það enn betra. Verkalýðurinn, sem færði fómir í þessari baráttu var að færa fómir fyrir málstað, sem kom engu kaupgjaldi við og stendur nú uppi því sem næst gjaldþrota í foðurlandi sínu. Að- ferðin var svo einföld og augljós að allar orðræður, bækur og greinar, sem síðan hafa verið skrifaðar til að fegra atferli kommúnista em ekki annað en einkabréf milli vina og koma engum öðmm við. Nú standa þeir aðilar, sem harðastir vom í hinum pólitíska þætti, uppi næsta sögulausir, en með þjóðfélag að baki, sundurskotið af hömlulítilli verðbólgu, þar sem fjármagns- kóngar raða upp verðbréfum sin- um alsælir yfir að hafa lifað glómlausa tíð. Launþegar em hins vegar jafnsettir og þeir vom áður vegna þess að tekjur vaxa ekki af verföllum einum. Strikað yfir gloríu Á meðan seinni heimsstyrjöld- in stóð yfir og menn snemst til samúðar við Sovétríkin í austri, sem hins seiga bandamanns, sem færði miklar fómir og lét ekki bugast, snemst margir á sveif með kommúnismanum sem hinum eina sanna bjarg- vætti mannkynsins. Nú er þess- ari sömu stefnu gefið fimm hundmð daga líf. Svona getur sagan fari kátlega með fólk. Þegar gamlir bandamenn mætt- ust í Moskvu nú í vikunni til að ganga endanlega frá málum Þýskalands, hefði margur mað- urinn viljað strika yfir þá gloríu sem hann bar i huga sér á tímum kalda stríðsins um ágæti komm- únismans. Og auðvitað er sá tími liðinn. Allir eiga leiðrétt- ingu orða sinna og gerða, og svo er um þá aðila Svétríkjanna, sem skipuðu fyrir um margvís- legan erindrekstur á Vesturlönd- um. Mestu skiptir að hríð hug- myndafræðinnar er að slota, hatrið er að minnka, og fram- undan em tímar skynsemi og vinsemdar á milli sæmilega frjálsra manna. Að eigna sér stéttir Hér á landi em kosningar á næsta vori. Forvitnilegt er að sjá að hve miklu leyti andi Brynjólfs Bjamasonar mun svífa þar yfir vötnunum. Alþýðubandalagið hefur eignað sér ákveðnar stéttir í þjóðfélaginu og miðað pólitík sína mikið við þarfir þessara stétta. Undanfarið hefúr komið í ljós að þessar stéttir hafa ekki lengur nein heljartök á bandalag- inu. Umbótastefha Gorbatsjevs vísar hörðum sérhagsmunum á bug. Skyldir aðilar á Vesturlönd- um fara í vaxandi mæli eftir hinni nýju stefnumiðun. Það er til bóta. Hins vegar kunna menn að vera tregir til að yfirgefa göm- ul skjól og þá hugmyndalegu bakhjarla sem auka mönnum bardagaþrekið. En þeir sem ætla sér að vinna saman í sæmilegu samlyndi þurfa ekki á sínu gamla bardagaþreki að halda. Sveljand- inn fyrir utan er ekki svo voða- legur. Tilgangslaust er að vinna lengur í þágu hugmyndar um heimskommúnismann. Þessu er lokið.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.