Tíminn - 29.09.1990, Page 10
18 Tíminn
rhvruvðð i «nr
Reykjaneskjördæmi
Kjördæmasamband framsóknarmanna boðar til formannafundar
þriðjudaginn 2. október kl. 20.30 að Hamraborg 5, Kópavogi.
Stjórn K.F.R.
Keflavík
Aðalfundur Framsóknarfélags Keflavíkur verður haldinn sunnudaginn
30. september kl. 14.00 í Félagsheimilinu.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Stjórnin.
R ÚRBEINING )
Tökum aö
okkur
úrbeiningu á
öllu kjöti.
[ Þaulvanir
fagmenn.
Upplýsingar
í síma
91-686075.
BÍLALEIGA
með útibú allt f kringum
landið, gera þér mögulegt
að leigja bíl á einum stað
og skila honum á öðrum.
Reykjavík
91-686915
Akureyri
96-21715
GuðmundurogRagnar j
MÁLMHÚS \
Ert þú að hugsa um að byggja
td. iönaðarhúsnæöi,
verkstæði, áhaldahús,
gripahús, bílskúr eða eitthvað
annað?
Þá eigum við efnið fyrir þig.
Uppistöður, þakbitar og
langbönd eru valsaðir stálbitar
og allt boltað saman á
byggingarstað. Engin
suðuvinna, ekkert timbur. Allt
efni I málmgrind galvaniserað.
Upplýsingar gefa:
MÁLMIÐJAN HF.
SALAN HF.
Sími91-680640
ARCOS-hnífar fyrir:
Kjötiðnaðinn, sláturhúsln,
veitíngétstaðl og mötuneytl.
Sterkir og vandaðir hnffar
fýrirfagmennina.
Vönduð hnffasettfyrir helmJllð
4 hnffar og brýnl.
ð aöeins kr. 3,750,-.
Öxi 1/2 kgákr. 1.700.-
Sendum f póstkröfu.
Skrífiö eða hríngiö.
ARCOS-hnífaumboðið,
Pósthólf 10154,130 Reykjavfk.
Sfmi 91-76610.
Pöntum bíla eriendis
interRent
Europcar
JEPPA-
HJÓLBARÐAR
Hágæða hjólbarðar
HANKOOK frá KÓREU
235/75 R15 kr. 6.950,-
30/9,5 R15 kr. 6.950,-
31/10,5 R15 kr. 7.950,-
33/12,5 R15 kr. 9.950,-
Örugg og hröð þjónusta
BARÐINN hf.
Skútuvogi 2, Reykjavfk
Sfmar: 91-30501 og 84844
Búslóða-
flutningar
Búslóða-
geymsla
Flytjum búslóðir um land
allt
Höfúm einnig
búsióðageymslu
Sími
985-24597
Heima
91-42873
Laugardagur 29. september 1990
Hörður Ágústsson sýnir
í Listasalnum Nýhöfn
Laugardaginn 29. september opnar
Hörður Ágústsson sýningu í Listasaln-
um Nýhöfn, Hafnarstræti 18, kl. 14-16.
Þessi sýning Harðar ber nafnið „Ljóð-
rænar fansanir frá árunum 1957- 1963
og 1973-1977“. Þetta eru litlar myndir
unnar með gvassi og tússi.
Eftir langt sýningarhlé hélt Höröur
sýningu í Nýhöfn í september í fyrr á
portrettmyndum unnum í París á árun-
um 1947-’49. Hann hafði þá ekki sýnt
síðan 1976 er hann sýndi á Kjarvalsstöð-
um, en haustið 1983 hélt Listasafn ís-
lands yfirlitssýningu á verkum hans.
Hörður stundaði nám við Myndlista- og
handíðaskóla íslands að afloknu stúd-
entsprófi og var þar í tvö ár. Strax eftir
stríð fór hann utan til náms og dvaldist
lengst af í París, en auk þess í Kaup-
mannahöfn, London og Ítalíu. í París
varð Hörður fyrir miklum áhrifum
þeirra hræringa sem þar áttu sér stað á
árunum eftir stríð. Hann sneri aftur til
íslands 1952.
Listamaðurinn HörðurÁgústsson hefur
verið frumkvöðull á mörgum sviðum
menningarmála. Meðal annars er hann
þekktur fyrir rannsóknir sínar á húsa-
gerðarlist. Þar hefur hann bæði bjargað
frá glötun og dregið fram ómældan fróð-
leik. Einnig hefur hann unnið að bóka-
gerð, auglýsingateiknun og bókahönn-
un. Hörður hefur lengi stundað kennslu
og haft mótandi áhrif á stóran hluta
þeirra listamanna sem nú eru starfandi.
Sýningin, sem er sölusýning, er opin
virka daga frá kl. 10-18 og um helgar frá
kl. 14-18. Lokað á mánudögum. Henni
lýkur 17. október.
Valgaröur i Slunkaríki
Laugardaginn 29. september opnar Vai-
garður Gunnarsson smámyndasýningu í
Slunkaríki á ísafirði. Myndirnar eru
unnar á samansaumaðan pappír með
blandaðri tækni og viðfangsefnið út-
saumaðar fígúrur í grunnum fleti.
Valgarður stundaði nám við Myndlista-
og handíðaskóla íslands 1975 til 1979 og
framhaldsnám við Empire State College
(S.U.N.Y.) í New York 1979 til 1981.
Hann hefur haldið nokkrar sýningar
bæði hér heima og erlendis og einnig
tekið þátt í fjölda samsýninga. Sýningin
stendur til 14. október og eru allir vel-
komnir.
90 ára afmæli
Níræð verður á morgun, sunnudag, Jör-
ína G. Jónsdóttir, Seljahlíð, Reykjavík.
Jörína var gift Sigurvini Einarssyni, fyrr-
um alþingismanni, sem lést 1989.
Jörína tekur á móti gestum á heimili
dóttur sinnar og tengdasonar að Goða-
landi 16, Reykjavík, síðdegis á afmælis-
daginn.
Björn Birnir sýnir í Listhúsi,
Vesturgötu 17
Björn Bimir opnar sýningu á myndum
sínum laugardaginn 29.9. í Listhúsi,
Vesturgötu 17, kl. 14. Sýningin verður
opin daglega frá kl. 14-18 og stendur til
14. október.
Dagskrá í Norræna húsinu
Nemendur úr sænska menntaskólanum
í Karleby í Finnlandi verða með dagskrá
í Norræna húsinu sunnudagnn 30. sept.
kl. 16.00. Meðal efnis er söngur, Ijóða-
lestur og leikrit og einnig segja þau frá
heimalandi sínu, Finnlandi.
Hópurinn er í kynnisferð hér á landi og
heimsækir m.a. Menntaskólann við
Hamrahlíð, þar sem þau ætla að kynna
finnska menningu og segja frá skólamál-
um í Finnlandi, auk þess sem þau sitja í
kennslustundum.
Sýningar:
Laugardaginn 29. sept. kl. 15.00 verður
opnuð sýning í sýningarsölum á mál-
verkum, teikningum og vefnaði eftir Sig-
rúnu Eldjám og Guðrúnu Gunnarsdótt-
ur. Sýningin verður opin daglega kl. 14-
19 til 14. október.
í anddyri hefur verið opnuð sýning á
Ijósmyndum eftir Iain Robertsson frá
Skotlandi. Myndefnið er frá Hjaltlandi.
Sýningin nefnist Öðmvísi ljósmyndir.
Barðstrendingafélagiö
heldur félagsvist og ball í Hreyfilshúsinu
við Grensásveg í kvöld kl. 20.30.
Félag eldri borgara
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, á
morgun, sunnudag.
Kl. 14 frjálst spil og tafl.
Kl. 20 dansað.
Helgarferöir Ferðafélags
íslands 28.-30. sept.
1. Landmannalaugar-Jökulgil. Nú er
komið að síðustu og einni áhugaverð-
ustu Landmannalaugaferð ársins. Frá-
bær gistiaðstaða í upphituðu sæluhúsi
F.f. Ekið og gengið um hið litskrúðuga
Jökulgil og margt fleira á dagskránni.
2. Haustlitaferð í Þórsmörk. Það er á fá-
um stöðum skemmtilegra að dvelja þeg-
ar haustar að, en í Skagfjörðsskála,
Langadal. Gönguferðir við allra hæfi.
Upplýsngar og farmiðar á skrifstofunni,
Öldugötu 3, símar: 19533 og 11798.
Haustlitir í Þórsmörk, sunnudagsferð
30. sept. kl. 08. Stansað 2-3 klst. í Mörk-
inni, en á heimleið verða Nauthúsagil og
Bæjargilið við Stórumörk skoðuð í
haustlitum (nýtt!). Allir em velkomnir í
Ferðafélagsferðir, en það borgar sig samt
að gerast félagsmaður. Hringið eða kom-
ið við á skrifstofunni. Afsláttur f helgar-
ferðir fyrir félaga.
Munið haustlitaferð í Þórsmörk 5,- 7.
okt. (Uppskemhátíð og grillveisla).
Ferðafélag íslands
Hátíöaguösþjónusta í kirkjunni
á Staö í Steingrímsfirði
Næsta sunnudag kl. 14 verður hátíða-
messa í kirkjunni á Stað í Steingríms-
firði f tifefni þess að kirkjuhúsið hefur
verið stórlega endurbætt, fegrað og
prýtt, sem og kirkjugarðurinn, sem hef-
ur verið girtur vandaðri trégirðingu,
stækkaður og sléttaður.
Biskup íslands predikar, sóknarprestur-
inn, sr. Ágúst Sigurðsson á Prestsbakka,
fyrrverandi prestar kirkjunnar o.fl. þjóna
fýrir altari og aðstoða við athöfnina. Gert
er ráð fyrir, að forsetinn verði viðstaddur.
Organisti er Ólafía Jónsdóttir og kór
Hólmavíkurkirkju syngur. Samsæti
verður eftir messu í Barnaskólanum á
Hólmavík. Þar mun sr. Ágúst Sigurðsson
flytja erindi um kirkjuna og Stað á síðari
tímum.
Sætaferð verður frá Umferðarmiðstöð-
inni í Reykjavík.
Staðarkirkja.
ÁRNAÐ HEILLA
50 ára afmæli:
Jón Þórðarson
Hinn 1. október n.k. verður Jón
Þórðarson, bóndi í Sölvholti í
Hraungerðishreppi, fimmtugur að
aldri. I Sölvholti ólst hann upp hjá
foreldrum sínum, þeim Þórhildi
Vigfúsdóttur frá Þorleifskoti og
Þórði Jónssyni frá Vorsabæ í Ölfusi.
Þau bjuggu lengi í Sölvholti við
rausn og myndarskap og vinsæl af
öllum sem þeim kynntust. Auk Jóns
eignuðust þau tvær dætur sem gift-
ar eru dugmiklum athafnamönn-
um. Þá ólu þau upp einn fósturson
og reyndust honum ávallt mjög vel.
Þórhildur er látin fyrir tæpum
tveimur árum, en Þórður lifir enn í
hárri elli og er til heimilis hjá syni
sínum í Sölvholti.
Jón tók við búi af foreldrum sínum
er henta þótti, þegar árin færðust yf-
ir þau og heilsa þeirra fór þverrandi.
Hafði hann þá um nokkurt skeið bú-
ið félagsbúi með þeim. Jón er hinn
mesti dugnaðarbóndi og rekur fjöl-
þættan búskap. Lætur ekki nægja að
hafa bara ær og kýr, heldur er jafn-
framt með allstórt svínabú og til
skamms tíma líka með stórt
hænsnabú. Sveitin er sá starfsvett-
vangur, sem hann fellir sig við. Og
það lífríki, sem henni tilheyrir, kann
hann vel að umgangast. Vinnan er
að sönnu mikil og fáir frídagar. En
góður vilji léttir öll störf. Jón er
ávallt léttur í lund og lítur tilveruna
björtum augum, þrátt fyrir skugga-
hliðarnar. Skyldurækni og sam-
viskusemi við bústörfin eru helstu
hugðarefni hans. Hann býr á einni af
bestu jörðunum í grennd við Sel-
foss. Þar fer saman landgæði og
náttúrufegurð. Jarðhiti er skammt
frá bænum og er hann m.a. nýttur
til húshitunar.
Það má því segja að Jón er „vel f
sveit settur" af foreldrum og forlög-
um. Hann unir líka hag sínum vel
og er sáttur við guð og menn.
Frændur hans og vinir óska honum
allra heilla á ófarinni ævibraut.
25. september 1990,
Þórður Gíslason.