Tíminn - 02.10.1990, Qupperneq 2
2 Tíminn
Þriðjudagur 2. október 1990
Arsþing Landssambands hestamannafélaga haldið á Húsavík:
Landsmót haldið á
þriggja ára fresti?
Arsþing Landssambands hestamannafélaga verður haldið á Hótel
Húsavík dagana 26. og 27. október næstkoraandi. í landinu eru
fimmtíu hestamannafélög og eru félagar í þeim alls 7.563.
Hestamennska er í miklum vexti hér
á landi, eins og sést á félagatölu hesta-
mannafélaga, og má því ætla aö marg-
ir hafi áhuga á málefnum þeirra. Dag-
skráin byrjar kl. 10.30 á föstudaginn
26. október með þingsetningu sem
formaður Landssambands hesta-
manna, Kári Amórsson, flytur. Hver
dagskrárliðurinn rekur síðan annan
og má nefna að landbúnaðarráðherra,
Steingrímur J. Sigfússon, flytur ræðu
um hrossarækt sem búgrein. Tillögur
verða einnig lagðar fram og þeim vís-
að til nefnda.
Að sögn Kára Amórssonar, formanns
L.H., mun umræðan að líkindum að-
allega snúast um tvö mál. Annað mál-
ið er breyting á árafjölda milli lands-
móta. Það hefur tíðkast í langan tíma
að landsmót séu haldin á fjögurra ára
fresti, en nú vilja margir meina að
þörf sé á tíðara íandsmótshaldi. Kári
Bankaeftirlitið vísar ásökunum
ráðherra um trúnaðarbrest é bug:
Hver brást
trúnaöi?
Þórður Ólafsson, forstöðumaður
bankaeftirlits Seðlabanka ís-
lands, mótmælir ummælum Jóns
Sigurðssonar viðskiptaráðherra í
Morgunblaðinu síðastliðinn
fóstudag, en þar seglr ráöherrann
að það sé ekki í verkefni bankaeft-
irlitsins að ræða við fiölmiðla um
úrskurð þess í svokölluöu Út-
vegsbankamáll.
í frétt Morgunblaðsins segir Jón
Sigurðsson orðrétb „Bankaeftir-
litið á náttúrlega að skila þessu
áliti til samningsaðilanna en ekki
gera grein fyrir því fyrst í fiöl-
miðlum. Þetta er ekki opinbert
verkefni bankaeftirlitsins.“
JÉg hef óskað eftir því við Morg-
unblaðið að það birti athugasemd
við þessi ummæli. Við höfum
ekki rætt einstök efnisatríði, né
heildarniðurstöðu þessa úrskurð-
ar við fiölmiðla né aðra óviðkom-
andi aðila. Við vísum þessum
ásökunum um trúnaðarbrest al-
geríega á bug. Ég hef ekki
minnstu hugmynd um hvemig
þessar upplýsingar bárust til fiöl-
miöla,“ sagði Þórður.
Þórður sagði bankaeftirlitið hafa
sent úrskurðinn tíl réttra aðila,
þ.e. tíl eignarhaldsfélaga Iðnaðar-
banka, Verslunarbanka og Al-
þýðubanka og til viðskiptaráðu-
neylisins.
EÓ
Aflað hefur verið verðtilboða í smíði
nýrrar Vestmannaeyjaferju:
BIÐIN STYTTIST EFT-
IR NÝJUM HERJÓLFI
Vinnuhópur, sem Steingrímur J.
Sigfússon landbúnaðar- og sam-
gönguráðherra skipaði á haustdög-
um og átti að afla verðtilboða í
smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju,
hefur nú skilað skýrslu um málið.
Steingrímur J. kynnti málið á ríkis-
stjómarfundi á þríðjudaginn var og
lagði tíl framhald málsins.
„í framhaldi af niðurstöðu þessa
hóps var ég með tillögur um að
næsta skrefið í málinu yrði að skipa
nýja smíðanefnd, sem hefði það
hlutverk að ræða við nokkra lægstu
tilboðsgjafana og ganga til samn-
nefndi að tillaga um landsmót á
þriggja ára fresti yrði lögð fram, en ef
sú tillaga næði ffam að ganga mundi
hún ekki taka gildi fyrr en eftir næsta
landsmót sem haldið verður 1994.
Hitt málið er breyting á skipulags-
málum innan L.H.
í stórum dráttum verður tillagan um
skipulagsbreytingamar þannig að
mynduð verða heima í fjórðungunum
svokölluð fiórðungsráð, sem vinna að
málum innan fiórðungsins, fjórð-
ungsmótum, skipulagsmálum innan
fiórðungsins, o.s.frv. Einnig verður
gert ráð fyrir að fjórðungsráðin velji
fulltrúa í stjóm Landssambandsins
hvert fyrir sig.
Aðspurður sagði Kári að óvíst væri
hvort Reiðhöllin yrði starfrækt í vetur.
Aðaleigandinn að Reiðhöllinni, Stofn-
lánadeild landbúnaðarins, er að reyna
að selja höllina, en hestamannahreyf-
ingin hefúr ekki bolmagn til að kaupa
hana. Reiðhöllin var leigð út í fyrra og
notuð undir reiðnámskeið, hestasýn-
ingar o.fl. og gekk sá rekstur ágæt-
lega. Þá sagði Kári að Reiðhöllin hefði
verið byggð á sínum tíma fyrir hesta-
menn og þeir treystu því að höllin
verði nýtt í þeirra þágu í framtíðinni.
Hvort sú verður raunin er hins vegar
undir ríkisstjóm eða borgaryfirvöld-
um komið. khg.
Halldór Kristjánssson.
Halldór Kristjánsson frá
Kirkjubóli er áttræður
Halldór Kristjánsson frá Kirkju-
bóli er áttræður í dag.
Hann mun ásamt fjölskyldu sinni
taka á móti gestum í kjallara
Templarahallarinnar kl. 17.00 í
dag. Þá mun Halldóri verða form-
lega afhent bók sem er nýkomin út
eftir hann. Bókin, sem ber nafnið
„í dvalarheimi", er úrval úr ritum
sem Halldór hefur skrifað. Þá eru í
bókinni ýmsar gamlar greinar eftir
Halldór sem hann skrifaði í Tím-
ann, en hann var sem kunnugt er
blaðamaður á Tímanum á árunum
1946- 1951.
Að sögn Halldórs kennir ýmissa
grasa í bókinni. Þar er töluvert af
persónulegum minningum Hall-
dórs, frásögnum ýmiss konar og
ritgerðir um málefni sem hafa ver-
ið Halldóri hugleikin. Þá er að
finna í bók Halldórs leikdóma, eft-
irmæli, kvæði og eina smásögu.
Stefán Valgeirsson er óþreyttur eftir 50 ára pólitískt starf:
Enginn þingmaður meiri
framsóknarmaður en
Stefán Valgeirsson?
inga við þann sem hagstæðastur er
ta!inn,“ sagði Steingrímur. Það var
samþykkt í ríkisstjórninni og sagðist
Steingrímur ætla að skipa smíða-
nefndina á næstu dögum. Hann
sagði að málið væri nú vel undirbú-
ið og ekkert því til fyrirstöðu að gera
samning og hefia smíði nýrrar ferju.
„Kætast þá Vestmannaeyingar. Við
erum að tala um nýtt skip, sem upp-
fyllir allar ströngustu og nýjustu
kröfur um útbúnað. Ég er viss um
það að hér er góð niðurstaða í sjón-
máli,“ sagði Steingrímur aö lokum.
-hs.
Á næstu dögum verður tekin
ákvörðun um hvort Samtök um
jafnrétti og félagshyggju bjóða fram
tíl Alþingis í komandi kosningum.
Stefán Valgeirsson, þingmaður
flokksins, segir að samtökunum
hafl boríst áskoranir úr öllum kjör-
dæmum um að bjóða fram og lík-
legt sé að af því verði.
En hvað hyggst Stefán sjálfur gera,
en hann verður 72 ára í næsta mán-
uði og því kominn á þann aldur þeg-
ar menn fara að hugsa um að draga
saman seglin?
„Ég hef skipt mér af pólitík í 50 ár.
Allan þann tíma hef ég verið þe irrar
skoðunar, og er enn, að sá sem er
talinn líklegastur til að komast
lengst, hann á að fara fram ef hann
getur komið því við vegna persónu-
legra ástæðna. Sá hinn sami hefur
skyldur við sína félaga. Þetta gildir
Stefán Valgeirsson
um mig og alla aðra,“ sagði Stefán.
Stefán var spurður að því hvað ræki
hann áfram í sínu pólitíska starfi.
„Ég hef hugsjónir," svaraði Stefán.
„Ég er landsbyggðarmaður fyrst og
fremst og berst fyrir landsbyggðina.
Fyrir 10-11 árum fór Framsóknar-
flokkurinn út úr götunni og hefur
aldrei náð henni aftur. Ég tel mig
vera meiri framsóknarmann heldur
en nokkurn þeirra sem eru í þing-
flokki framsóknarmanna í dag.“
Annars telur Stefán hugsanlegt að
svo kunni að fara að boðað verði til
kosninga fyrr en ráðgert er. Hann
segir Samtök um jafnrétti og félags-
hyggju vera algerlega ósátt við þau
drög að orkusamningi vegna bygg-
ingu nýs álvers sem nú liggja fyrir.
„Við erum ekki á móti orkufrekum
iðnaði, en það er tvennt sem við
setjum sem skilyrði, að hann mengi
ekki og verðið standi undir raun-
verulegum kostnaði af virkjunum."
-EÓ
SKATASTARFIÐ
ER AÐ HEFJAST
Vetrarstarf skáta er að hefiast við-
ast hvar um land og er yfirskríft
þessa starfsárs „Út í náttúruna".
Skátastarf er útilífsstarf og vilja
skátar hvetja til og styðja útilífs-
Yfirskrift starfsárs skáta er „Út í
náttúruna" en þessi mynd erein-
mitt tekin úti í náttúrunni í sumar
þegar landsmót skáta fór fram.
starfsemi meðal almennings. Á
vegum Bandalags íslenskra skáta
hefur verið unnið að útilífsdagskrá
sem hentað getur ýmsum hópum,
s.s skólahópum og „unglingaklík-
um“.
f dagskránni er höfuðáherslan
lögð á útilífið sjálft að lokinni
fræðslu um búnað og léttari
gönguferðir og fjallahjólaferðir, en
síðar í vetur taka við sérhæfðari
námskeið s.s göngu- og fjallaskíða-
tækni, ísklifur og snjóhúsagerð.
Mögulegt er að aðlaga dagskrána
þörfum, óskum og tíma hinna
mismunandi hópa. Bandalag ís-
lenskra skáta veitir allar nánari
upplýsingar um dagskrána „Út í
náttúruna" í síma 91-621390.
khg.