Tíminn - 02.10.1990, Qupperneq 5

Tíminn - 02.10.1990, Qupperneq 5
Þriðjudagur 2. október 1990 Tíminn 5 Átök urðu í ríkisstjórn um álmáNð í gær. Iðnaðarráðherra ætlar að staðfesta áfanga með undirskrift í þessari viku, hvað sem Svavar og Steingrímur J. segja: Engin niðurstaða fékkst í ríkisstjórn um álmálið Ríkisstjórnin ræddi um álmálið á sérstökum aukafundi síðdegis í gær. Engin niðurstaða varð af fundinum, en mjög skiptar skoðanir eru uppi milli Svavars Gestssonar menntamálaráðherra og Stein- gríms J. Sigfússonar landbúnaðarráðherra annars vegar og Jóns Sigurðssonar iðnaðarráðherra hins vegar um næstu skref í málinu. Jón hyggst skrifa undir viljayfirlýsingu um byggingu nýs álvers í lok þessarar viku. lfMín lokaorð á ríkisstjómarfundin- um voru: Hér hef ég ekkert sam- þykkt,“ sagði Svavar Gestsson þegar hann kom út af fundinum í gær. Greinilegt var að Svavar og félagi hans Steingrímur J. voru ekki ánægðir með gang mála. Þeir sögðu að málið yrði til umfjöllunar hjá rík- isstjóminni áfram. Jón Sigurðsson lýsti því yfir að fundinum Ioknum að hann myndi ásamt samningamönnum Atlantsáls staðfesta með undirskrift mikilvæg- an áfanga í málinu í lok vikunnar. Aðspurður um viðbrögð ráðherra Al- þýðubandalagsins, skrifi hann undir, sagði Jón að þau yrðu að koma í ljós. Jón viðurkenndi að það væri skoð- anamunur í málinu. „Menn em ekki sammála um hversu mikla áhættu sé vert að taka til að hreppa þann mikla vinning sem ég tel og margir með mér, að fylgi því að gera slíkan samn- ing.“ Steingrfmur Hermannsson forsæt- isráðherra sagði að fundurinn hefði verið gagnlegur og málið væri að þokast í rétta átt. Búið væri að vinna mikið í málinu og það mjög langt komið. Hann vísaði á bug öllum vangaveltum um að stjómarslit væm á næstu grösum. Samningsdrögin um orkuverðið hafa verið gagnrýnd og ráðherrar lýst yfir efasemdum um þau. Um orkusamninginn sagði Jón: „Það er komið vel á veg með að ná meginat- riðum í orkusamningi sem er mjög vel viðunandi. Samningurinn er ekki áhættulaus. Þetta er hlutaskipta- samningur, en í honum er líka kaup- trygging." Aðspurður hvort hann væri bjartsýnn á að orkusamningur- inn yrði samþykktur í ríkisstjóm- inni, sagði ráðherrann: „Ég er bjart- sýnn á það að skynsemin sigri í þessu máli.“ Ólafur Ragnar Grímsson sagði í samtali við útvarpið í gær að álfyrir- tækin hefðu óskað eftir því að farið yrði hægar í málið. Rangt væri því að tala um að fýrirtækin hefðu sett tímapressu á íslensku ríkisstjómina, eins og gefið hefur verið í skyn. Jón Sigurðsson sagðist leggja áherslu á að Alþingi lyki umfiöllun um málið fyrir áramót og þess vegna væri mik- ilvægt að staðfesta með undirskrift það sem þegar hefur áunnist í því. Iðnaðarráðherra hyggst leggja fram frumvarp á Alþingi um heimild til að byggja álver á íslandi á fyrstu dögum þingsins. Ríkisstjómin heldur annan fund f dag. Fyrirhugað var að fjárlögin yrðu þar fyrst og fremst á dagskrá, en bú- ast má við að álmálið verði einnig tekið til umfjöllunar. Ákvörðun iðn- aðarráðherra um að skrifa undir liggur nú fyrir. Menn bíða eftir við- brögðum ráðherraAlþýðubandalags- ins. -EÓ Forsætisráðherra í höfuðstöðvum Alumax í Norcross: Nútíma álver litið augum Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra heimsótti aðalstöðv- ar Alumax í bænum Norcross í Ge- orgíuríki í Bandaríkjunum í síðustu viku. Þar ræddi hann við yfírmenn álfyrirtækisins um fyrirhugaða ál- verksmiðju Atlantalhópsins hér á landi. Forsætisráðherra skoðaði einnig Mount Holly-álverksmiðju Alumax í Suður-Karólínuríki, sem er ein nú- tímalegasta verksmiðja sinnar teg- undar í heiminum. Poul Drack, for- stjóri Alumax, sýndi forsætisráð- herra verksmiðjuna. Tveir starfsmenn Mount Holly- verksmiðjunnar skýrðu Steingrími Hermannssyni sérstaklega frá mengunarvarna- og umhverfis- verndarkerfi hennar, sem mun vera með því fullkomnasta sem gerist í álverksmiðjum. í Mount Holly-álverinu starfa 619 manns, þar af eru konur 51 en 16 þeirra gegna stjórnunarstöðum. Konur eru 16% af heildar starfs- mannafjölda. Fréttatilk. Melanie Byrd, yfirverkstjóri mengunarvama, og Cheryl Kiridand, aðstoðarverkstjóri sama málaflokks f Mount Holly-álverksmlðju Alumax í S-Karólínu, og Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra. Viðræður um nýtingu sjávarspendýra og sameigínlegra fiskistofna: Sjávarútvegsráðherra í heimsókn til Grænlands Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs- ráðhern fór í gær til Grænlands í opinbera heímsókn í boði Kaj Ege- de, sjávarútvegsráðherra Gnen- iands. Ráðherra mun verða við- staddur setningu Landsþings Grænlendinga í dag, en heimsókn- inni lýkur í dag. Ráðherrann mun eiga viðræður við grænlenska starfsbróður sinn, þar sem meðal annars veröur rætt um nýtingu sameiginlegra fiskistofna, málefni er varða nýtingu sjávar- spendýra og önnur mál sem ofar- lega eru á baugi, eins og samskipti við Evrópubandalagið. Þá mun ráð- herra fara í skoðunar- og kynnis- ferðir, hæði norður tíi Sisimiut og suður til Qaqortoq. Mim ráðherr- ann meðal annars skoða útgeröar- og fiskvinnslufyrirtæki. 1 för með ráðherra eru kona hans, Siguijóna Sigurðardóttir, Jón B. Jónasson skrifstofusljóri, Kristján Skarphéðinsson deildarstjóri og Jó- hann Sigurjónsson sjávariíffræð- ingur. khg. Tvö banaslys um helgina Tvö banaslys urðu um helgina. Það fyrra varð þegar bíll valt rétt við Gerðubrekku á Tjömesi í Þingeyjar- sýslu aðfaranótt laugardags. Tveir menn voru í bílnum og talið er að far- þeginn hafi látist samstundis. Öku- maður bifreiðarinnar slasaðist mikið og var hann fluttur á sjúkrahús í Mummi tekinn meö karfapoka NESJAVALLAVIRKJUN TEKIN I NOTKUN Varðskipið Ægir var í gær að mæla veiðarfæri í skipum fyrir Vestfjörð- um. Kom í ijós að eitt skipið, Mummi GK 120, var með karfapoka, en þeir em smáriðnari en aðrir pokar. Mummi var því færður til hafnar á ísafirði um þrjúleytið í gær, þar sem hann var langt frá öllum karfasvæð- um. Mummi GK var tíu mfiur út af Barða, þegar Ægir kom að skipinu. Skipið var í hólfi sem verið hafði lok- að, en var opnað á miðnætti í fyrri- nótt. Eins og áður sagði var Mummi færður til hafnar og er málið nú í höndum lögregluyfirvalda á ísafirði. —SE Nesjavallavirkjun var formlega vígð sl. laugardag að viðstöddu fjölmenni. Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, var viðstödd athöfnina en Davíð Odds- son borgarstjóri ræsti dælur virkjun- annnar. Hitaveita Reykjavíkur stendur að Nesjavallavirkjun og sækir þangað um 83 gráðu heitt vatn, sem rennur eftir aðveitulögn í miðlunargeyma við Grafarholt. Meðffam aðveitulögninni liggur vegur sem iyrirhugað er að leggja á bundið slitlag. Athöfnin við Nesjavallavirkjun á laugardag fór ffam aðeins nokkrum mánuðum eftir að borgarstjóri lagði homstein þar við mikla og hátíðlega athöfn, en framkvæmdir á Nesjavöll- um hafa gengið vel. Reykjavík. Maðurinn sem lést hét Jón TVausti Aðalsteinsson, 23 ára frá Rauf- arhöfti. Hitt banaslysið varð þegar maður á hesti varð fýrir flutningabfl. Slysið átti sér stað á milli bæjanna Hamra- enda og Stafholtsveggja í Stafholts- tungum í Borgarfirði um klukkan hálfníu á sunnudagskvöldið. Maður- inn var fluttur með þyrlu Landhelgis- gæslunnar á Borgarspítalann þar sem hann lést nokkru eftir að þangað kom. Hann hét Eggert Bergsson, til heimilis í Borgamesi. Hann var ógift- ur og barnlaus. Þá varð harður árekstur á Hellis- heiðinni við Skíðaskálann í Hveradöl- um á sunnudagsmorguninn. Öku- maður bifreiðar á leið til Reykjavíkur missti stjóm á bflnum við ffamúr- akstur vegna hálku og lenti ffaman á öðrum bfl sem var á leið austur. TVeir karlmenn vom í hvomm bflnum og voru þeir fluttir á sjúkrahús. Nota þurfti klippur til að ná einum mann- anna út úr bflnum. —SE

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.