Tíminn - 11.10.1990, Blaðsíða 11
10 Tíminn
Fimmtudagur 11. október 1990
Fimmtudagur 11. október 1990
Tíminnl
í síðustu viku kom hingað til lands
borgarstjórinn í Palma á Mallorca,
Francesc Obrador Moratinos, og dvaldi
hér í nokkra daga ásamt aðstoðarmönn-
um sínum. Hann hefur verið borgarstjóri
í rúm sjö ár og nýtur mikilla vinsælda og
var kosinn borgarstjóri í síðustu kosn-
ingum með hreinum meirihluta at-
kvæða. Hann er ekki einungis borgar-
stjóri í Palma heldur öllum ferðamanna-
stöðunum þar í kring, s.s. Palma Nova,
Magalluf og Santa Ponsa. Strandlengjan
er 52 kflómetrar og þar eru 25 baðstrend-
ur. Á þessu svæði gæti öll íslenska þjóðin
gist í einu á hótelum.
Guðni Þórðarson ferðamálafrömuður
sá um komu borgarstjórans til landsins
og sagði hann að Francesc Obrador væri
mjög vaxandi stjórnmálamaður á Spáni
og hefur hann beitt sér fyrir að koma upp
íþróttaaðstöðu og fyrir málefnum eldri
borgara. Hann er einn af höfundum nýs
kerfis á Spáni sem veitir öllum eldri
borgurum Spánar vetrarorlof þar sem
ríkið borgar fyrir þá helminginn af
kostnaðinum við vetrarorlofsferðir. Um
300 þúsund eldri Spánverjar koma til
Mallorca einmitt með tilstuðlan þessa
kerfis.
Blaðamanni Tímans gafst kostur á að
ræða við borgarstjórann meðan á dvöl
hans stóð. Aðspurður hvað hann væri að
gera hér, sagði hann að hann væri hingað
kominn til að kynnast aðstæðum hér á
landi og sérstaklega í sambandi við þjón-
ustu við eldri borgara. Meðal annars
hefði hann talað við eldri borgara í Hafn-
arfirði og skoðað endurhæfingarstöðina
að Reykjalundi.
Ástæðan fyrir því að þeir skoðuðu
Reykjalund sé sú að til standi að byggja
upp endurhæfingarstöðvar á Mallorca
fyrir ferðafólk, t.d. fyrir hjartasjúklinga
og aðra sem þurfa á endurhæfingu að
halda. Þá gæti fólk bæði notið veðrátt-
unnar og verið í endurhæfingu um leið.
Nú sé t.d. 100 manna gigtarhópur frá ís-
landi sem á hverjum degi er í sérstaklega
upphitaðri innisundlaug. Hann sagði að
þeir þyrftu að kynnast þörfum íslend-
inga til að hafa eitthvað til að bjóða þeim
upp á. Til þess hefði hann mætt á sam-
komur eldri borgara í Hafnarfirði og í
Reykjavík og sagði hann að fólkið þar
hefði tekið mjög vel á móti honum. Eftir
kynni sín af íslenskum eldri borgurum
sé hann staðráðinn í því að reyna með
einhverjum hætti að styrkja ferðir þeirra
til Mallorca.
Grænt gras, blóm og 17
gráöu meöalhiti á vetuma
Ferðir fyrir eldri borgara eru aðallega
hugsaðar sem vetrarferðir enda er hitinn
ekki eins mikill á veturna og hentar
þeim því betur. Upphaflega hafi ferða-
mannaiðnaðurinn á Mallorca verið
tengdur vetrinum vegna þess að veðrátt-
an á þeim árstfma þar er sérstaklega
mild og góð. Meðalhitinn er 16-17 gráð-
ur og grasið er grænt, blómin í fullum
Á myndinni oru lirá vinstri Pedro Prats, aðstoðarmaður borgarstjórans, Francesco Obradc Moratinos, borgarstjórí í Palma, og Guðni Þóröarson ferðamálafrömuður, en hann sá um térð borgarstjórans hingað.
og hvaða þarfir þeir hafi. Þeir viti hvað
yngri ferðamennirnir sem koma aðallega
á sumrin vilja, þeir vilja fara á diskótek,
baða sig í sólinni, hitta annað fólk og
jafnvel fara í skoðunarferðir og á söfn.
Hins vegar væri fólkið sem kemur á vet-
urna öðruvísi. Það væri eldra og væri að
leita að öðrum hlutum. Margir vilji kom-
ast í líkamsrækt, bæði með skipulögðum
æfingum og daglegum gönguferðum,
sumir vilja hjóla o.s.frv. Krafan um heil-
brigðisþjónustu hefur aukist meðal
ferðamanna og er talsvert um það að
læknar og hjúkrunarfólk fari með hóp-
um og búast má við því að fólk fari í
meira mæli að koma til Mallorca á vet-
urna í endurhæfingu eftir veikindi eða
annað slíkt.
Margt frægt fólk kemur
til að fá ró og næði
Aðspurður hvort Mallorca hefði eitthvað
að bjóða sem aðrir staðir gætu ekki boðið
upp á, sagði Pedro Prats að Mallorca biði
upp á vissa hefð í ferðamannaiðnaði. Þeir
hafi starfað við þetta í fjölmörg ár og hafi
því talsverða reynslu í að taka á móti ferða-
mönnum. í öðru lagi væri Mallorca eyja
og það heillaði marga. Þá gætu þeir boðið
upp á öryggi þar sem löggæslan væri mjög
góð og alvarleg vandamál væru mjög fátíð
á Mallorca. Þá væri þar að finna leifar frá
gamalli Miðjarðarhafsmenningu, s.s. frá
Rómverjum, Grikkjum og aröbum.
Margir heimsfrægir listamenn og rithöf-
undar búa á Mallorca eða hafa búið þar,
m.a. Robert Graves,
Camilo José Cela, nóbelsskáldið sem m.a.
skrifaði bókina Paskval Dvarte og hyski
hans, hefur búið þar í mörg ár, og Mall-
orca er annað heimili Brunos Kreisky,
fyrrum kanslara Austurríkis. Kreisky er
persónulegur vinur Juan Carlos Spánar-
konungs en spænska konungsfjölskyldan
dvelst mikið í höll sinni á Mallorca. Með-
limir úr bresku konungsfiölskyldunni
koma á hverju ári og svo mætti lengi telja.
Pedro Prats sagði að ástæðan fyrir því að
svo mikið af frægu fólki dveldi um lengri
tíma á eyjunni væri sú staðreynd að íbúar
Mallorca virði einkalíf þess og séu ekki sí-
fellt að angra þetta fólk. Frægt fólk geti
því mikið til gengið um óáreitt án þess að
vera umkringt fólki. Þá væri þar mikið af
menningarlegum viðburðum í hverri
viku, málverkasýningar, hljómleikar,
ballettsýningar og margt fleira. Mikið af
málurum sækir til eyjunnar því hún er
sannkölluð paradís fyrir málara, bæði fyr-
ir litina í landslaginu og landslagið sjáíft.
íslenskum listamönnum
boðið að sýna í Palma
Borgarstjórinn hefur ákveðið að bjóða
íslenskum myndlistarmönnum að koma
og sýna verk sín í ráðhúsinu sem nýlokið
er við að byggja. Pedro Prats sagði að þar
væri mjög fallegt gallerí, sem væri svipað
á stærð og Kjarvalsstaðir, þar sem verkin
myndu njóta sín vel. Þeir hefðu séð verk
nokkurra íslenskra listamanna og þau
væru mjög áhugaverð og sérstök, m.a.
hefðu þeir séð verk eftir Eirík Smith í
Hafnarfirði. Það ætti eftir að vinna að
ýmsum formsatriðum og ná samningum
við eitthvert flugfélag en vonandi væri
hægt að láta af þessu verða einhvern tím-
ann á næsta ári.
Aðspurður hvort ferðamannastraumur-
inn væri að minnka eða aukast, sagði
Tfmamynd: Ami Bjama
Francesc Obrador að fiöldi ferðamanna
væri mjög stöðugur og síðustu ár hefðu
komið um 6 milljónir ferðamanna til
eyjunnar, þar af 25% þeirra til Palma eða
þar í kring.
Borgarstjórinn sagði að lokum að þeir
væru mjög ánægðir yfir þeirri gestrisni
og vinsemd sem íslendingar hefðu sýnt
þeim. Landið hefði einnig heillað þá og
hann myndi örugglega koma hér aftur
ásamt vinum og fiölskyldu og skoða
landið nánar því gönguferðir og útilegur
væru eitt af hans aðaláhugamálum.
—SE
skrúða og möndlutrén blómstra frá því í
janúar og fram í mars. Hann sagði að
ferðamennirnir geri sér oft ekki grein
fyrir því hvað landslagið á Mallorca sé
fallegt þar sem þeir haldi sig mikið við
ströndina og hótelin. Rétt fyrir utan
Palma og ferðamannastaðina eru mörg
Iítil þorp og þegar komið er inn i þau eru
þau eins og annar heimur. Húsin eru 500
ára gömul, ólívutrén ennþá eldri, en
þetta skoði mjög fáir ferðamenn. Þó gera
sumir það en þá aðallega þeir sem koma
á veturna. Þjóðverjar hafa t.d. mjög gam-
an af því að ganga um dali og fiöll og fyr-
ir þá sem gaman hafa af því að ganga er
hægt að fá bók um gönguleiðir á Mall-
orca.
Þá er hægt að spila golf á þessu svæði á
fiórum golfvöllum og venjulega er hægt
að spila golf á skyrtunni þar sem hitinn er
mjög gjarnan í kringum 20 gráður en
geti þó auðveldlega farið upp í 25 gráður
í sól yfir vetrartímann.
Ferðamenn sem koma
á sumrin ólíkir þeim
sem koma á vetuma
Aðspurður um það hvað gert væri til að
byggja upp ferðamannaiðnaðinn sagði
Pedro Prats, aðstoðarmaður borgarstjór-
ans, að uppbyggingu væri nú að mestu
lokið þó svo sífellt væri verið að leita
leiða til að mæta kröfum ferðamanna.
Nú væri mikið lagt í að viðhalda því sem
byggt hafi verið upp. Borgarstjórinn
hefði einnig staðið fyrir því að komið var
á fót fiölnota íþróttasvæði með fótbolta-
velli, tennisvöllum, sundlaugum, frjáls-
íþróttavöllum o.s.frv. Þá væri verið að
ljúka við annað slíkt svæði í Magalluf og
Eftir
Stefán
Eiríksson
yrði íslendingum boðið að notfæra sér
það í framtíðinni. Þá hafa verið opnaðar
skrifstofur um allt svæðið þar sem ferða-
menn geta fengið upplýsingar um hvað-
eina sem þá fysir að vita og núna geti
þeir því boðið mun meira heldur en áður
hafi verið og auðveldara sé fyrir fólk að
nálgast upplýsingar.
Borgarstjórinn sagði að aðalatvinnu-
vegur þeirra á þessu svæði væri ferða-
mannaiðnaður. Þar væru engar verk-
smiðjur, landbúnaður mjög lítill og því
væru ferðamenn þeirra lifibrauð. Þess
vegna væri mikilvægt að heimsækja
heimalönd ferðamannanna þó svo að þau
séu eins lítil og ísland, þar sem þeir þurfi
að vita hvaða kröfur ferðamennirnir gera
lenskra eldri borgara til Mallorca
Borgarstjórinn í Palma á Mallorca kannar þjónustu við eldri borgara hér á landi:
Staðráðinn í að styrkja ferðir ís