Tíminn - 11.10.1990, Blaðsíða 20
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 - 686300
AKTII Plfk’l MT
RÍKISSKIP
NUTIMA FLUTNINGAR
Hatnarhusinu v Tryggvagotu,
S 28822
í ÓVISSUNA.
AKTUÁ
Ingvar
Helgason hf.
Sævartiöfða 2
Sími 91-674000
NNAR
'
Tíniinn
FIMMTUDAGUR11. OKTÓBER1990
Skýrsla um kosti er væntanleg f þess og gal næstu viki la að i Inrr M m V# VuJ I 1 breyta Sigurt ríkisbönki ðsson við: tnum í skiptar hlutafélög áðherra:
Gerir bankakerfid mun
öflugara og skilvirkara
í næstu viku er von á skýrslu frá bresku ráögjafafyrirtæki, Spicer og
Oppenheim, þar sem gerð er úttekt á fysileika þess aö breyta ríkis-
bönkunum, öðrum þeirra eöa báðum, í hlutafélög. Viöskiptaráöu-
neytið sendi Seðiabanka íslands bréf í vor þar sem bankinn var beð-
inn um að gera þessa úttekt og leitaði bankinn til þessa breska ráð-
gjafafyrirtækis. Næstkomandi þriðjudag verður bankaráði Seðla-
bankans gerð grein fyrir niðurstöðum fyrirtækisins.
Jón Sigurðsson, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, var spurður að því
hvort fullur undirbúningur fyrir
þessar breytingar væri hafinn. Hann
sagði að þessar hugmyndir væru ekki
komnar á framkvæmdastig. Hins
vegar hefði Seðlabankanum verið fal-
ið að gera greinargerð um kosti þess
og galla, að breyta öðrum ríkisbank-
anum eða báðum, í banka með hluta-
félagsformi. Jón sagðist sjá ýmsa
kosti við það og vafalaust væru ein-
hverjir gallar á því. Hann væri ekki
búinn að fá þetta álit bankans, en það
yrði einmitt eitt af þeim gögnum
sem þyrfti að leggja til grundvallar,
þegar menn ákvæðu hvort að ástæða
væri til þess að taka þetta skref, fyrr
eða síðar. Jón sagðist treysta því að
menn litu á þetta mál fordómalaust
og skoðuðu það að verðleikum þegar
þeir hafa verið settir fram og þeim
lýst. FVrir honum vekti fyrst og
fremst að gera bankakeriið traustara,
öflugra, skilvirkara og að betri þjóni
atvinnulífsins og almennings, betri
farvegi fyrir hagkvæmar fram-
kvæmdir og rekstur. Því það væri eitt
meginhlutverk banka og lánakerfis-
ins að miðla fé til þess sem skilaði
fólki arði.
Jón var spurður að því, hvort hann
byggist við að Seðlabankanum þætti
það vænlegur kostur, að breyta bönk-
unum í hlutafélög. Hann svaraði að
honum þætti það ekki ólíklegt að
þeir sæju ýmsa kosti við það að
breyta öðrum ríkisbankanna í hluta-
félagsbanka, en hann bíði eftir skýrsl-
unni og tjái sig ekki um innihald
hennar fyrr en hann hefur séð hana.
Jón sagði að Seðlabankinn væri
helsta stjómtæki ríkisins á sviði pen-
inga- og bankamála, eftirlitsaðili með
bankakerfinu og tæki stjórnvalda til
að hafa áhrif á fjármagnsmarkaðinn
bæði til langs og skamms tíma. Þess
vegna fyndist honum í hæsta máta
eðlilegt að Seðlabankinn hefði milli-
göngu um að mynda skoðun í þessu
máli. En Seðlabankinn væri aðeins
einn aðili af mörgum; leitað yrði til
fleiri aðila til umsagnar í þessu máli.
Aðspurður um það hvenær ráðist
yrði í þessar breytingar sagðist Jón
alls ekki vilja tímasetja þær á þessu
stigi málsins, næsta verkefni á sviði
fjármagnsmarkaðarins væri endur-
skipulagning fjárfestingalánakerfis-
ins. Endurskipulagning fjárfestinga-
lánasjóðanna, afnám þeirrar sundur-
greiningar eftir atvinnugreinum sem
þar ríkir, aukið sjálfstæði þeirra frá
hagsmunasamtökum og atvinnu-
greinum, aukin hagkvæmni í rekstri
þeirra, sameining, fækkun og stækk-
un. „Það er nefnilega núna að koma í
ljós sá mikli árangur til hagræðis og
lækkunar til kostnaðar sem leiðir af
fækkun og sameiningu bankanna. Á
árunum ‘89 og ‘90 mun kostnaður í
bankakerfinu í raunverulegum
stærðum minnka mikið, fækkar
starfsmönnum en skilar samt því
hlutverki sem skila þarf. Sameining
fjögurra banka í íslandsbanka og
sameining Samvinnubanka og
Landsbanka hefðu hvort tveggja ver-
ið umdeild mál, en hvort tveggja
bráðnauðsynleg framfaramál."
Sverrir Hermannsson, bankastjóri
Landsbankans, sagði að þeir hefðu
vitað af því að unnið hefði verið að
þessari skýrslu. Aðspurður um það
hvert álit hans á þessum hugmynd-
um væri sagði Sverrir að nú væri
hann hættur í pólitík og þetta yrði án
efa pólitískt mál og hann ætti því
ekki að hafa opinbert álit því og þó
beitt væri fjórum uxum fyrir þá væri
ekki hægt að draga upp úr honum
eitt orð. Aðspurður um það hvert álit
hans á þessu máli hefði verið fyrir 4-
5 árum þegar hann var enn á Alþingi
sagði Sverrir að erfitt væri að dæma
um það. Hann hefði þá verið Útvegs-
bankamaður og verið andvígur sam-
einingu hans og annarra banka og
þetta myndi hann úr bankamálum
frá þeim tíma. Tímamir breytist og
aðstæður í bankamálum hefðu breyst
hratt að undanförnu. Hins vegar væri
það að fara í geitarhús að leita ullar
að fá skoðanir hans á þessu máli, en
einhvem tímann þegar hann sæi
hverju fram yndi, td. þegar hann
hefði séð innihald þessarar skýrslu
mætti tala við hann, en fyrr ekki.
—SE
Tlmamynd: Aml Bjama
Alþingi sett viö hátíðlega athöfn
Alþingi íslendinga, 113. löggjafar-
þing, var sett í gær með hefðbundn-
um hætti. Við setninguna minntust
alþingismenn fjögurra látinna fyrr-
verandi þingmanna. Það setti nokk-
ura svip á athöfnina að félagar úr
BHMR mótmæltu fyrir utan Alþing-
ishúsið setningu bráðabirgðalag-
anna frá því í sumar.
Fyrir þingsetningu hlýddu þing-
menn á guðþjónustu í Dómkirkj-
unni. Sigurður Guðmundsson
vígslubiskup á Hólum prédikaði. Að
lokinni guðþjónustu gengu þing-
menn í Alþingishúsið. Fyrir utan það
höfðu safnast saman félagar úr
BHMR. Erindi þeirra var að minna
þingmenn á bráðabirgðalögin, sem
sett vom 3. ágúst í sumar, og krefjast
þess að þau verði afnumin. Þegar
þingmenn voru komnir inn f Alþing-
ishúsið flutti Páll Halldórsson for-
maður BHMR ávarp.
Eftir að þingmenn höfðu komið sér
fyrir í sætum sínum las Vigdís Finn-
bogadóttir forseti íslands upp for-
setabréf um að Alþingi skuli koma
saman. Að því loknu minntust þing-
menn fósturjarðarinnar.
Eins og venja er stýrði aldursforseti,
Stefán Valgeirsson þingmaður Sam-
taka jafnréttis og félagshyggju, fyrsta
þingfundi. Hann minntist fjögurra
fyrrverandi þingmanna sem látist
hafa frá því að þingi var slitið síðast-
liðið vor, þeirra Ásbergs Sigurðsson-
ar, Páls Þorsteinssonar, Geirs Hall-
grímssonar og Stefáns Jónssonar.
Þingmenn risu úr sætum til að votta
hinum látnu virðingu sína.
Nýr þingmaður, Guðrún J. Hall-
dórsdóttir, tók sæti á Alþingi í gær.
Guðrún tók við af Guðrúnu Agnars-
dóttur, sem setið hefur á þingi síðan
árið 1983 fyrir Samtök um kvenna-
lista. Einn varaþingmaður tók sæti á
þingi í gær. Það er Guttormur Ein-
arsson, varamaður Aðalheiðar Bjam-
freðsdóttur. Guttormur hefur ekki
setið áður á þingi.
Margir erlendir gestir voru við-
staddir þingsetninguna. Þar á meðal
var Vytautas Landsbergis forseti Lit-
haugalands.
í dag verður þingfundi framhaldið.
Kosnir verða þingforsetar og kosið í
nefndir. -EÓ
Sjómenn hafa
boðað verkfall
Yfirmenn á fiskiskipum hafa boðað
verkfall, sem mun koma til fram-
kvæmda 20. nóvember næstkom-
andi, náist ekki samningar fyrir
þann tíma. Sjómenn hafa haft lausa
samninga frá síðustu áramótum.
Að sögn Benedikts Valssonar hjá
Farmanna- og fiskimannasambandi
íslands hefur samningum miðað
mjög hægt. Sjómenn eru mjög
óánægðir með að þurfa að taka á sig
launaskerðingu vegna hækkandi ol-
íuverðs. Benedikt sagði hlut sjó-
manna í viðmiðun olíuverðs vera
allt of háan. Hann sagði dæmi um
að útgerðarmenn, sem láta togara
sína brenna svartolíu, hafi hagnast á
olíuverðhækkuninni þar sem laun
sjómanna lækki meira en sem nem-
ur hærra olíuverði.
Benedikt sagði sjómenn ekki hafa
farið fram á meiri hækkanir en al-
mennt launafólk hefur fengið í
samningum á þessu ári. Hann sagði
Farmanna- og fiskimannasamband
íslands líta á verkfall sem neyðarúr-
ræði. Til þess væri gripið til að knýja
fram Iausn í þeirri sjálfheldu sem
kjarasamningar milli sjómanna og
útgerðarmanna virðast hafa hafnað
í. Benedikt sagði það einlæga von
sjómanna að fulltrúum útgerðar-
manna snúist hugur og komi til
móts við kröfur sjómanna þannig að
verkfalli verði afstýrt.
Utanríkisráðuneytið:
Manndráp fordæmd
íslenska utanríkisráöuneytið burðlr endurtaki sig ekk). Síðan
sendl í gær frá sér tllkynningu í seglr í tflkynningu utanrfldsráðu-
gær þar sem manndráp ísraelskra neytisins:
öryggissveita í Jerúsalem sl. „Framangreindir atburðir eru
mánudag eru fordæmd. Jafu- Jjúst dæmi um hve biýna nauðsyn
framt er skorað á stjórnvöld í ber til að ná fram heildarlausn á
ísrael að sjá til þess að slfldr at- málefnum PaJestínumanna.“