Tíminn - 13.10.1990, Page 8

Tíminn - 13.10.1990, Page 8
16 HELGIN Laugardagur13. október 1990 ■■■ í TÍMANS RÁS Mföí > ,, wm 'ý’ ■ »11111111111 ATLI MAGNÚSSON: Ball á „Jamaica-kránni“ Margur fékk ljóta póstinn inn um bréfalúguna nú á dögunum, þegar Reiknistofan í Firðinum sýndi mönnum það svart á hvítu hver staða þeirra væri í hinni einu og sönnu „lífsins bók“ vorra daga — sumsé þeirri bók sem gerir útslagið þegar að því kemur hvort nokkuð verður keypt á af- borgunarskilmálum á næstunni eða skuldatrossunni ekið feti lengra fram á veginn. Viðbrögðin urðu sem þjóð veit á alla vegu. Ýmsir hinna langsjó- uðu á ólgusævi fjármálalífsins, er tekið hafa válegustu brimlend- ingar með „eiegance" trekk í trekk, kipptu sér ekki mjög upp við sendinguna — höfðu víst séð hann svartari! En sumir er velkj- ast á áminnstum fjármálasævi á lekum knerri, hafandi ekkert veður af landi meir og áhöfn öll hrópandi á Guð urðu að vonum enn óttaslegnari og þótti sem nú væri neglan endanlega hrokkin úr fleyinu. Hefur enda ekkert til margra af þeim frést eftir þetta, sem andæft hafa lengst frammi í sortanum. En loks eru til allrar lukku þeir sem eiga blankósíðumar í „lífs- bókinni" og ekkert er uppá að klaga. Það em þeir sem aldrei hafa mátt vamm sitt vita og hafa haldið sig á slíkum miðum að hvar sem þeir fara er aldrei neitt að veðri, en aðeins hinn ljúfasti byr, sem ekki skeikar að skilar þeim heilum heiman og heim. Þeir eru kannske ekki allir með sama aflann og þeir sem sigla roksæinn og tölva Reiknistof- unnar púðrar í mestu blekinu. En „hollur er heimafenginn baggi“ og „sígandi lukka er best“, sagði gamla fólkið og hafa þau orð engu af gildi sínu tapað. Er þá komið að þeim hjá hverj- um allt hefði átti að vera í stak- asta velstandi — en reyndust eft- ir sem áður eiga óuppgerðar sak- ir við „tilkynningaskyldu" Reiknistofunnar í Firðinum. Sumum var reyndar ekki með öllu sjálfrátt: þeim hafði farið svipað og mörgu kaupfari fyrri alda, sem mannskapurinn á Jamaica-kránni ginnti með villu- ljósum í brakandi strand við klettana í Cornwall, þar sem áhafnirnar voru stráfelldar en farmi öllum rænt. Þessi nútíma strandrán endurtaka sig þegar græskulaust fólk skrifar upp á fyrir frændlið sem segist ætla að auðgast á tískubúð, en stingur af til Amsterdam einn daginn og biður uppáskrifarana og skuld- irnar vel að lifa. Geisa nú um stundir fagnaðir linnulitlir á Jamaicakránni, en þung andvörp stíga upp úr flæðarmálinu við sæbarða strönd. Loks er þar til að taka er vamm- laust fólk hefur rekið upp á síður „Iífsbókarinnar", án þess að það finni á því nokkra almennilega skýringu. Hvorki hefur það borið af leið á fjármálasænum (nú títt- nefnda), né hefur það misséð sig á villuljósum tilvonandi tísku- búðakeisara og drottninga þeirra. En af einhverjum ástæð- um er það einkum þarna sem leynist misjafn sauður í mörgu fé. Meðan sumir renna um víðan völl að leita skýringa á undrum þessum hjá einhverjum stofnun- um og fulltrúum (sem sagt er að erfiðara sé að festa hönd á en sjálfri Fróðárrófunni) hafa aðrir orðið æði reiðinnar að bráð. Hafa þeir farið að dæmi Samsonar vitavarðar og hyggjast rista for- stjórum Reiknistofunnar í Firð- inum „blóðörn". Lögreglan stendur nú vörð um stassjónina nótt sem dag, enda hefur frést að berserkirnir hafi bæði hagla- byssu og sprengikúlu tiltæka. Allir sjá að hér er komið í allillt efni. Enginn lifandi maður kvað þora út eða inn um dyr á Reikni- stofunni og hljóðir þeir gangar þar sem tölvumar tifuðu og deildu út réttlætinu. Hvemig mega viðskipti í landinu halda áfram að blómgast ef stofan legg- ur upp laupana fyrir vikið og enginn veit framar hvers konar persónu hann eiginlega á við- skipti við? Að ekki sé nú minnst á Reiknistofuna í Firðinum sjálfa? Ekki er víst að þessi að vísu smáa en þó vonandi arðvænlega útgáfa þoli langa stöðvun. Gæti svo far- ið að hennar eigin dálkur í „lífs- bókinni" verði svo þröngsetinn af völdurmóspektanna að þrykk- iríið leggist niður. Þá hlýtur nú að verða ball á Jamaica-kránni. En um fögnuð vor hinna er best að hafa sem hljóðast. Gettu nú Skarðadrangur var það sem við spurðum eftir hér í hominu síðast hann stend- ur við Héðinsfjörð, sem er á milli Sigluflarðar nyrðra. Það er einn af heldri vitum landsins, sem nú er á myndinni. Trúlegt er að fáir íslenskir sæfarendur hafi ekki einhvem tíma haft hans not KROSSGÁTA 1 Kfi/l/5 ' Unn SKASflF. m jr- REFUR KLirfT S£TJA land tLtrr/1- EyjA 2KÚH • • • • Reyra • MAftd' LlTfiK VETHI 3ÓK- ST/tfVR HftMDA r>G FóTft VftGGAR Yroska ^ * r t’ORfil VífJflR- ÍTH JJ> stjakiðÍ >Ö6i)L ' ’/fkr • ••■» P 4 * f SIT V 2 ‘V TÚ 1 ■ ^ í ROTIN SfÝTA tólf S7Ó 7?- 5K/1ÐJ i STRfiK 77 Z, (A VfíND VETUR VOIÍfilhi Y05O f/j/VP' mf\W SKÁLD 5 K * T* MWWid VKMfr AK H T£A/- rHGUR KVEÐJA KVftBB ÍSL . s nrut. I f eiw- LÍGMN L'AÐ S Mfí/VN fiANH- , 4 POK mvuR, H FU&L 3LFJ/I 7 S• VNÚDUR t/l- tlNfiST BLÁSI KALL o* MLl- íívm 1 FALLfi UVR í s til Hlt/'TVK jTPÓlSTÍ 8 Hl DUH HAUr 7?ViK x HELGI MYND /0 S>7R/\\ LtIBS rRÉv T q ETN l mwi dans 'gLUNL ANDl KROT f 3 votnIX, • — • 10 S ORG, KE.VR- AST STJftK/ VlÐ ' FÆDDI 3 Y' ~T AHX> - Vfípft Jol<Ui.L vJ HfíSfíK ARtmj /1 -RUMS tuaA BOHG ’A srhrti JUTt/) MIAK- SRYÍJfí SEPH STAlL- uK ror?- HoVlK i5 IIPUK STURL UÐ n íyTVtb/ n /VUDD- /?sr ~hvað KoHA sro% ftr- LoK~ fíVA L'ftTfí A P HEttÐl STÆJ)I - ^ 1 * VfT/VI LEIO- 'To&l a KCNAiV ► f/SKUH SÓ K- ST/)m ’

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.