Tíminn - 25.10.1990, Page 1

Tíminn - 25.10.1990, Page 1
Allt bendir til að síldarvertíðin í ár verði ekki nema svipur hjá sjón: Söltunarstúlkur í jólaköttinn í ár? Sú tilkynning Sovétmanna, að þeir geti ekki staðið við samn- inga og keypt héðan saltsíld eins og undanfarin ár, mun hafa gífurleg áhrif á afkomu mörg hundruð fjölskyldna. Söltunardrottingar, sem margar hafa byggt jólaundir- búning sinn og heimila sinna að miklu leyti á þeim tekjum, sem vinnan við síldarsöltun hefur gefið, virðast ætla að fara í jólaköttinn. Þó svo meira af síld færi í frystingu og bræðslu er Ijóst, að þjóðar- búið mun tapa verulegum upphæðum og fjöldi fólks til sjós og lands missir um helm- ing tekna sinna. Allir síldarsaltendur eru nú hættir að taka við síld til sölt- unar á Rússlandsmarkað, en Síldarútvegsnefnd hyggst óska eftir viðræðum og nánari skýringum frá Sovétmönnum. • Opnan Söltunarstúlkur við síldarsöltun. ./

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.