Tíminn - 14.11.1990, Side 8
Tíminn 9
8 Tíminn
Miðvikudagur 14. nóvember 1990
Miðvikudagur 14. nóvember 1990
Útlit er fýrir að loðnuveiðar á haustvertíð verði stöðvaðar, annað hvort
með loðnuveiðibanni eða verkfalli og hugsanlega með hvoru tveggja:
Veiöibann og
verkfall ógnar
loðnuveiðunum
Þeir aðilar, sem geta sagt af eða á með það
hvort frekari loðnuveiðar verði stundaðar á
Íiessari haustvertíð, voru flestir veðurtepptir á
safirði við Skutulsfjörð í gær.
Rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson, sem
verið hefur við loðnurannsóknir síðan 6. nóv-
ember, lá þar við bryggju, þar sem vonskuveð-
ur á miðunum út af Vesjfjörðum hamlaði
rannsóknum. Þá var formannafundur í Far-
manna- og fiskimannasambandinu haldinn á
ísafirði sl. mánudagskvöld og komust for-
svarsmenn félagsins ekki til Reykjavíkur þar
sem fyrirhugað er að halda sáttafund í kjara-
deilu þeirra við útvegsmenn síðar í vikunni.
Formannafundurinn hafnaði sl. mánudags-
kvöld því tilboði, sem LÍÚ lagði fram á sátta-
fundi í síðustu viku, á þeim forsendum að það
gengi ekki nægilega langt. Samningur Bylgj-
unnar, skipstjóra- og stýrimannafélags Vest-
fjarða, og útvegsmanna á Vestfjörðum, sem
skrifað var undir í síðustu viku, var samþykkt-
ur með 69 atkvæðum gegn 8. Forráðamenn
FFSÍ segja að ekki komi til greina annað en að
félaginu verði boðinn sami samningur og
Bylgjan fékk. Fátt virðist því geta komið í veg
fyrir að boðað verkfall hefjist 20. nóvember.
Kristján Ragnarsson, framkvæmdastjóri
LÍÚ, sagði að ekki stæði til að bjóða FFSÍ
sömu samninga og samþykktir voru á Vest-
fjörðum. Hann sagði að ástæðan fyrir því væri
sú að þar væri um að ræða öðruvísi samning
og aðrar forsendur sem liggi að baki þeim
samningi, heldur en þeim samningi sem ver-
ið sé að vinna að milli LÍÚ og FFSÍ. „Við erum
að semja við skipstjóra, stýrimenn og vél-
stjóra, en þeir á Vestfjörðum voru að semja
við skipstjóra og stýrimenn. Við höfum haft
ákveðið hlutfall milli skipstjóra, stýrimanna
og vélstjóra í þessu fastakaupi sem þeir vilja
ekki sætta sig við nú að fari sarnan," sagði
Kristján.
Hver 100 þús. tonn af
smáloðnu gefa 280 þús.
tonn að árí liðnu
Rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson er
um þessar mundir við loðnurannsóknir.
Rannsóknarskipið Árni Friðriksson kom úr
fimm vikna loðnurannsóknartúr sl. laugar-
dag, en leiðangursstjóri þar var Sveinn Svein-
björnsson. í Ijós kom í þeim leiðangri að mik-
ið er af smáloðnu innan um stærri loðnu og
má jafnvel búastvið að banna þurfi loðnuveið-
ar meðan smáloðnan er að skilja sig frá þeirri
stærri. Loðnuskipin hafa verið að sleppa
loðnu sem þau hafa veitt vegna þessa.
Árni Friðriksson kannaði svæðið frá Látra-
bjargi austur að Austfjörðum og sunnan 69.
gráðu norðlægrar breiddar. Sveinn Svein-
björnsson leiðangursstjóri sagði að veiði-
stofninn væri blandaður við smáloðnu á öllu
útbreiðslusvæðinu, þannig að ungloðnan og
hrygningarstofninn væri öll á sama svæðinu
eins og er. „Ástæðan fyrir þessu er sennilega
sú að loðnan hefur haldið sig mjög sunnar-
lega og hefur ekki gengið norður í þessa
venjulegu ætisleit sem hún gerði áður, en þá
aðskildi hrygningarloðnan sig frá ungloðn-
unni. Hún hefur sennilega ekki haft í neitt að
sækja þarna norðurfrá, þar sem ástandið í haf-
inu norður af landinu hefur verið mjög
slæmt.“ Eins og gefur að skilja veldur þetta
miklum vandræðum í veiðunum. „Það er
drepið mikið af smáloðnu og satt að segja eru
það ákaflega óhagkvæmar veiðar. Ungloðnan
er í fyrsta lagi lélegt hráefni. Hún er miklu
horaðri en eldri loðnan og gefur minna lýsi.
Önnur ástæða er sú að þegar smáloðna er
drepin tapast mikil verðmæti. Ef loðnan fengi
að lifa, þá myndu hver 100 þúsund tonn gefa
okkur 280 þúsund tonn að ári liðnu í afla,
þegar búið er að taka tillit til náttúrlegra af-
falla. Með því að ávaxta hana í sjónum í eitt ár
þá þrefaldarðu uppskeruna. Það sér það hver
heilvita maður að það er mjög heimskulegt að
drepa smáloðnuna með þessum hætti," sagði
Sveinn.
Hann sagði að það sem þeir fundu af veiði-
stofninum hafi verið mun minna en þeir áttu
von á. „Hins vegar gefa mælingar í október yf-
irleitt minni veiðistofn en síðari mælingar.
Kvótatölum, sem hafa verið byggðar á októ-
bermælingum, hefur venjulega verið breytt í
þá veru að kvótinn hefur verið stækkaður eft-
ir að mælingar hafa verið gerðar síðar á árinu
eða í byrjun janúar. Þessir hlutir geta því
breyst mjög fljótt, en vissulega mældist ekki
það mikið að menn hafa verulegar áhyggjur af
því að stofninn sé í töluverðri lægð,“ sagði
Sveinn.
Rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson, en
Hjálmar Vilhjálmsson er þar leiðangursstjóri,
mun fara á sama svæði og Sveinn og félagar á
Árna Friðrikssyni könnuðu. „Þeir fara á þetta
svæði aftur og m.a. í þeim tilgangi að sjá hvort
hægt væri að beita svæðislokunum. Ef að
stóra loðnan er aðskilin frá smáloðnunni á
einhverjum hluta á svæðinu, þá væri hægt að
beita svæðislokunum og þá þyrfti ekki að
koma til stöðvunar. Hins vegar verður ekki
tekin nein ákvörðun íyrr en búið er að kanna
þetta mjög vel og rækilega og það er ekki
hægt að svara með vissu hvenær það verður."
Sveinn sagði að þeir vissu ekki hvenær loðnan
færi af stað í hrygningargönguna, en þá gæti
þetta breyst geysilega hratt, því hún aðskilji
sig þá mjög fljótt frá ungloðnunni. Hins vegar
væri smáloðna fyrir öllu Norðurlandi lang-
leiðina austurundir Sléttu og hún væri í
gönguleið loðnunnar þegar hún færi til
hrygningar.
Haustvertíðin ónýt
ef veiðar liggja niðri fram að
áramótum
Jón Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags ís-
lenskra fiskimjölsframleiðenda, sagði að
vissulega setti hugsanlegt bann við loðnu-
veiðum strik í reikninginn hjá loðnubræðsl-
unum, en þeir væru mótfallnir smáloðnu-
drápi. „Þetta þýðir það að vinnslan fer hægar
af stað en ella, en maður á eftir að sjá hvernig
þetta þróast. Ef þetta verður langt bann, þá
hefur það slæmar afleiðingar, en ef þetta verð-
ur stutt bann, þá á það ekki að þurfa að vera
voðalega slæmt." Jón sagði að öll vinnsla yrði
seinna á ferðinni og þeir væru að tapa af loðn-
unni meðan hún væri afurðaríkust. „En við
erum fjarri því að vera ánægðir með að það sé
verið að grautast í loðnunni á meðan hún er
svona blönduð." Aðspurður sagði Jón að
menn færu varlega í það að gera fyrirfram-
samninga meðan þetta óljósa ástand vari.
Menn viti hvernig veiðarnar þróuðust síðasta
haust og þeir selji ekki fyrirfram þannig að
þeir lendi í vandræðum.
Jón sagði að hugsanlegt verkfall hefði einnig
áhrif á fiskimjölsframleiðendur og það mætti
segja að ef loðnuveiðibann skellur á um svip-
að leyti þá breytir það ekki neinu. „Þetta er
hvorutveggja mjög slæmt," sagði Jón. „Ef
verkfall stendur fram að áramótum þá er
haustvertíðin ónýt. Síðasta haustvertíð var
einnig ónýt og það hafði mjög slæmar afleið-
ingar fyrir okkur og hleypti þeim 20 verk-
smiðjum, sem eru í loðnubræðslu, í hið mesta
basl.“ Jón sagði að erfitt væri að segja um
hversu mikið tap væri að ræða. Þeir þyrftu
fýrst að gefa sér hvað þeir hefðu getað veitt á
vertíðinni og sá heildarkvóti sem sé nú til ráð-
stöfunar sé ósköp rýr.
Erfítt að reka 20
verksmiðjur með 460
þúsund tonna kvóta
Loðnukvótinn fyrir þessa haust- og vetrar-
vertíð er 600 þúsund tonn með endurskoðun-
arákvæðum. Islendingar fá 78% af honum en
Grænlendingar og Norðmenn sín hvor 11%.
íslensku skipin fá 460 þúsund tonna kvóta og
af honum er búið að veiða eitthvað í kringum
50 þúsund tonn, sem er áþekkt því sem var
síðustu haustvertíð, en þá veiddust 54 þúsund
tonn.
Jón sagði að það hefði aðeins verið brot af
því sem þeir hefðu vanist, því vertíðirnar þar á
undan hefðu verið veidd 300 þúsund tonn.
Jón sagði að engin verksmiðja hefði helst úr
lestinni þá, þar sem vetrarvertíðin hafi verið
mjög góð, en þá veiddust yfir 600 þúsund
tonn. „Við veiddum 660-670 þúsund tonn á
síðustu vertíð og sá kvóti, sem við höfum
fengið útgefinn, er ekki nema 460 þúsund
tonn.“ Aðspurður sagðist Jón ekki geta
ímyndað sér að hægt verði að reka þessar 20
loðnubræðslur með 460 þúsund tonna kvóta.
„Það er mjög erfitt að segja til um það hvort
einhverjir heltist úr lestinni. Víða er þetta
blandaður rekstur. Loðnubræðslan er hluti af
stærra fyrirtæki og því er hægt að halda verk-
smiðjunni gangandi þó að tap sé á henni.
Eftir
Stefán
Eiríksson
Þetta er engin áfkoma fyrir 20 verksmiðjur að
gutla í svona litlu magni, en ég get ekki dæmt
um það hverjar eða hvort einhverjar heltist úr
lestinni. Manni finnst að þannig hljóti að fara,
en hvort raunin verður sú er hins vegar allt
annað mál,“ sagði Jón.
Örvæntum ekki
Kristján Jóhannesson hjá Síldarútvegsnefnd
sagði að þeir væru ekkert farnir að örvænta
vegna hugsanlegs verkfalls. Sfldarvertíðin
stæði til jóla og stundum haft verið veidd sfld
t janúar.
Búið er að salta í 49 þúsund tunnur og sagð-
ist Kristján ekki búast við því að búið yrði að
salta f þær 70 þúsund tunnur sem búið sé að
selja fyrir 20. nóvember, söltunin nú gangi
sæmilega en stóru sfldina vanti.
Kristján sagði að sfldveiðileyftn giltu fram að
áramótum en í undantekningartilfellum hefði
verið leyft að veiða í janúar, eins og t.d. í sl.
janúar, þegar þeir bátar, sem ekki voru búnir
að klára sinn kvóta fyrir áramót, fengu að
klára hann þá.
—SE