Tíminn - 14.11.1990, Side 16

Tíminn - 14.11.1990, Side 16
MttnvzmTTzr&nTiz 1 r 1 . ..■ — 1 RÍKISSKIP NUTIMA FLUTNINGAR Halnarfiusinu v Tryggvagotu, 3 28822 NISSAN Réttur bíll á réttum stað. Ingvar Helgason hf. Sævarhöfða 2 Sími 91-674000 o» I íniinn MIÐVIKUDAGUR14. NÓVEMBER1990 Gengið út frá mikilli fækkun lántakenda í forsendum útreikninga fyrir húsbréfakerfið: Um 40% ibúðakaupa án lántöku á næstu árum í áætlun félagsmálaráöuneytisins um heildarútgáfu húsbréfa er reikn- að með að ibúðabyggingum utan félagslega kerfisins og seldum íbúð- um fækki töluvert og umsóknum um lán ennþá meira. Kaupsamning- ar vegna notaðra íbúða hafa síðustu árin verið í kringum 4.700 áriega (og allt upp í 5.000 árið 1987). í áætlun ráðuneytisins fyrir næsta ára- tug er gert ráð fyrir 4.000 kaupsamningum áriega, hvar af aðeins 2.400 eða 60% verði fjármagnaðar með húsbréfalánum. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráöherra. Henni á hægri hönd er Grétar J. Guðmundsson og á vinstri hönd eru Bolli Héðinsson og Már Guðmundsson. Tímamynd: Ami Bjama Almennar íbúðabyggingar, sem hafa verið í kringum 1.300 árlega, eru áætlaðar um 970 á ári næsta áratuginn, hvar af um 800 verði í húsbréfakerfinu. Áætlun fyrir næsta ár gerir þó ráð fyrir enn færri eða aðeins um 300 nýbyggðum íbúðum utan félagslega húsnæðiskerfisins, auk 200 íbúða sem nú þegar eru lánhæfar og bíða afgreiðslu. Samtals er reiknað með 2.600 húsbréfalánum vegna nýrra og eldri íbúða á næsta ári. Fimm þúsunda biðlistinn „plat“? Þarna virðist um fá lán að ræða, þegar auk allra þeirra nýju íbúða- kaupenda, sem ætla má að hyggi á íbúðakaup á næsta ári, er einnig fyrirhugað að vísa öllum þeim 5.500 umsækjendum, sem verið hafa á biðlista, í húsbréfakerfið. í ljósi þessa var Grétar Guðmunds- son, aðstoðarmaður félagsmálaráð- herra, spurður á hverju áætlun um aðeins 2.600 húsbréfalán á næsta ári séu byggðar. „Varðandi þessa 5.500, sem eru á biðlista, þá vitum að stórum hluta þeirra - við vitum að vísu ekki hve stórum - liggur örugglega ekkert á að fara í íbúðakaup eða eru ekki f neinum íbúðakaupahugleiðingum.“ Þetta mat segir Grétar m.a. byggt á viðtölum við íjölda þessa fólks, sem hafi verið að hringja og spyrja um ákvarðanir um lánveitingar til þeirra úr lánakerfinu frá 1986. Þegar þessu fólki sé bent á húsbréfakerfið, hafi margir svarað sem svo: „Okkur ligg- ur ekkert á“ eða „Ég hef engan áhuga á því, ég ætla ekki að skipta um íbúð, nema ég fái lán á 4,5% vöxtum", eða eitthvað í þessum dúr. „Við teljum því að stór hluti þess- ara 5.500 sem bíða fari ekkert endi- lega í íbúðakaup á næstu mánuðum eða næsta ári, þó svo að lánakerfið frá 1986 verði lagt niður.“ Þar fyrir utan kemur svo nýr hóp- ur á fasteignamarkaðinn á hverju ári, eða er kannski reiknað með að íbúðakaupendum fækki verulega frá því sem verið hefur? „Ekki endilega að fasteignakaup- endum muni fækka. En það koma ekki endilega svo margir nýir inn á markaðinn sem fara í íbúðakaup á næsta ári.“ Grétar sagði að þama verði að hafa í huga að með gamla lánakerfinu var í raun verið að hvetja fólk til þess að fara út á fasteignamarkað- inn fyrr en ella. T.d. námsmenn, sem farið hafi í biðröðina til þess að vera öruggir um að komast síðan inn í þetta hagstæða lánakerfi sem fólki hafi þama staðið til boða. Meiríhluti íbúða- skipta án lána? Spár fyrir áratuginn byggjast síðan sem fyrr segir á því að aðeins 60% af kaupendum notaðra íbúða og 80% almennra húsbyggjenda sæki um lán til kaupanna, borið saman við 90-95% íbúðakaupenda á umliðn- um árum. ,Ástæðan fyrir þessu er sú, að hús- bréfakerfið er rekið á markaðsvöxt- um. Við teljum þess vegna, að þegar fram líða stundir, þá muni þeir, sem ekki þurfa á slíkum lánum að halda, ekki sækja um fyrirgreiðslu í eins miklum mæli og til þessa. Við telj- um að þeim fari fjölgandi sem ekk- ert sækjast eftir þessum lánum, þegar þeir sjá fram á að fá enga vaxtaniðurgreiðslu og þurfa ekki á lánum að halda." Nú má ætla að flestir af þeim helmingi íbúðakaupenda, sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð, þurfi á lánafyrirgreiðslu að halda. Er þá að- eins reiknað með að rúmlega þriðj- ungur þeirra, sem skipta um íbúð, sæki um lán til þess? „Eitthvað í þá áttina." Hefur fjöldi fólks tekið lán að óþörfu? Má þá skilja þetta svo, að fólk hafi í stórum stfl verið að taka lán að óþörfu á undanförnum árum? „Ekki endilega, þótt eitthvað hafi verið um það,“ sagði Grétar. „En þarna kemur líka til að húsbréfa- kerfið hvetur fólk ekki til meiri íbúðakaupa heldur en það stendur undir og hefur þörf fyrir. í lánakerf- inu frá 1986 hins vegar, þá var dæmigert að maður, sem átti t.d. 8 milljóna kr. skuldlitla íbúð, hann einfaldlega reiknaði dæmið út og sá að það borgaði sig beinlínis fyrir hann að taka lán og kaupa sér 10 milljóna íbúð. Lán enginn gróðavegur lengur Við teljum að þegar vextir eru orðnir þetta háir, eins og húsbréfa- kerfið býður upp á, þá mundi slíkur maður hætta við að taka lán til að kaupa sér dýrari ibúð, ef hann þarf þess ekki, þar sem hann hagnast nú ekki lengur á því. Með öðrum orðum: Við hvetjum í rauninni engan lengur til þess að sækja um lán. Lánakerfið frá 1986 hvatti hins vegar fólk til að sækja um þessi langtímalán vegna íbúða- kaupa, oft á tíðum ónauðsynlegra. Húsbréfakerfið aftur á móti hvetur fólk til sparnaðar að okkar mati,“ sagði Grétar Guðmundsson. - HEI ísland hefur nú afhent formlega tilboð sitt í GATT-viðræðunum um landbúnaðarmál. Jón Baldvin Hannibalsson: TILBOÐIÐ MARKAR TIMAMOT INNAN RÍKISSTJÓRNARINNAR Síðdegis í gær afhenti fastafulltrúi íslands hjá EFTA og GATT, Kjartan Jóhannsson, formlega tilboð íslensku ríkisstjómarinnar í GATT-viðræðunum, eða Úrúgvæ-lotunni, eins og umræðumar hafa veríð kaliaðar og fjalla um landbúnaðarmál. „Tilboðið er þess eðlis, að ég tei það nokkur tfmamót að það tókst samkomulag um málið innan ríkisstjómarinnar,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson utanrík- isráðherra í samtali við Tfmann í gærkvöldi. Tíminn hefur greint frá því að ís- lensk stjórnvöld hafa í þessum GATT-viðræðum verið tilbúin til að draga úr stuðningi við innanlands- framleiðslu landbúnaðarafurða um allt að 25% fram að 1996. Enn- fremur var ríkisstjórnin tilbúin til að draga úr útflutningsbótum um 65% fyrir sama tíma. „Nú hefur það bæst við, að við bjóðumst til þess að lækka þær áfram í áföngum með það að markmiði að fella þær að öllu leyti niður.“ Jón Baldvin sagði einnig að stjórnvöld séu tilbúin til að gefa eftir varðandi viðskiptaþáttinn. „í tilboði okkar bjóðumst við til að rýmka fyrir innflutningi og draga úr magntakmörkunum að því er varðar landbúnaðarafurðir, sem unnar eru úr mjólk- eða kjötafurð- um. Auk þess sem tilboðið varðar einnig innflutt hráefni, ættuð úr jurta- og dýraríki." Þetta þýðir, að mati Jón Baldvins, að í staðinn munu íslendingar beita jöfnunargjöldum eða tollum samkvæmt leikreglum GATT, til að vega upp mun á niðurgreiddu heimsmarkaðsverði og heima- markaðsverði. „Þetta tilboð er náttúrlega bara tilboð. Þannig að niðurstaðan mun ráðast af því, hvort og þá hvernig samningar takast að lokum. Ef við gerum ráð fyrir því að samkomulag takist, þá mun það þýða að í staðinn fyrir bann koma takmarkaðar heimildir til innflutnings, enda séu undirboð fyrirbyggð með jöfnunargjöldum. Stóra undantekningin, sem varðar íslenska tilboðið, er að í krafti sam- ræmdra heilbrigðisreglugerða verður áfram bann á innflutningi á lifandi dýrum, nýmjólk og hráu kjöti.“ íslendingar munu vera með sein- ustu þjóðum til að skila inn form- Iegu tilboði, en samkomulag tókst um tilboðið í ríkisstjórninni í gær- morgun. Tilboðið er með þeim fyr- irvara að aðrar þjóðir gangi ekki skemur og því er ekki hægt að slá neinu föstu um niðurstöðuna. „Megin tíðindin hér innanlands eru þau, að ráðherrar Alþýðu- flokks, Framsóknarflokks og Al- þýðubandalags hafa náð samkomu- íagi um tilboð sem mun þýða, ef samningar takast, grundvallar- breytingu á því kerfi sem við höf- um búið við í landbúnaðarstjórnun á undanförnum árum,“ sagði Jón að lokum. -hs.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.