Tíminn - 20.11.1990, Side 3

Tíminn - 20.11.1990, Side 3
Þriðjudagur 20. nóvember 1090 Tímmn.3' Verðkönnun Verðlagsstofnunar sýnir hjaðnandi verðbólgu: Fjarðarkaup lægst, Langholtskjör hæst Niðurstöður verðkannana sem Verðalagsstofnun hefur gert í mat- vöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu í lok aprfl, júlí og nú síðast í lok október leiða í Ijós hjaðnandi verðbólgu. Þá sýnir sig að meðal- verð hefur lækkað um 1% frá því sem var í júlímánuði. Sé hins veg- ar litið til tímabilsins aprfl-október hefur verðlag matvöru hækkað um 2,1%. í síðustu verðkönnun í október voru alls skráðar 1885 verðupplýsingar. Borið var saman verð á 50 algengum vörutegundum í 49 verslunum. Rúmur helmingur þeirra sýndi óbreytt eða lægra verð en var í aprfl- könnuninni. Meðalverð í flmm verslunum lækkaði á sama tímabili og mest í Fjarðarkaupum, 3,3%. Þar var ekki um neinar hækkanir að ræða. Vörur ýmist stóðu í stað eða lækkuðu í verði. í öðrum verslunum hækkaði verðlag um 0,1-4,7% Þegar athuguð er meðalverðbreyt- ing í öllum verslununum kemur í Ijós að á tímabilinu júlí-október lækkaði meðalverð á þeim vörum sem kannaðar voru um rúmt 1%. Á tímabilinu apríl-október hækkaði það hins vegar um 2,1%. Jafnframt hækkaði framfærsluvísitala, sem mælir breytingar á mun fleiri vör- um en könnunin náði til — auk þjónustu — um 2,6%. Meðalverð reyndist lægst í verslun- um Bónus í Reykjavík. Þar fékkst hins vegar aðeins rúmur helmingur af könnuðum vörutegundum. Af stórmörkuðum var meðalverð í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði lægst eða 83,5 miðað við meðalverð 100. 46 af vörutegundunum 50, sem könnunin náði til, fengust í Fjarðar- kaupum. Hæsta meðalverð reyndist í Lang- holtskjöri 110,1, Júllabúð 109,2 og Versluninni Austurstræti 17108,6. Ráðstefna um fráveitur og sorp: Sérstakt sorphirðugjald lagt á íbúa og fyrirtæki? Sorp- og endurvinnslunefnd um- hverfísráðuneytisins leggur til að rekstur sorphirðu verði greiddur með sérstöku sorphirðugjaldi sem lagt er á íbúa og fyriríæki. Einnig leggur nefndin til að sveitarfélög komi sér upp safnstöðum, td. gáma- svæðum, og sjái um rekstur þeirra. í niðurstöðuriti nefndarinnar segir m.a.: ,J4óttöku- og förgunarstöðvar byggðasamlaganna verði rekin fyrir sérstakt móttökugjald sem er inn- heimt af íbúum og fyrirtækjum. Gjaldið er fyrir neysluúrgang og framleiðsluúrgang. FVrir sérúrgang er greitt úr sérstökum sjóði. Fjárfest- ing í móttöku- og förgunarstöð er greidd með ffamlagi aðila byggða- samlags og lánum. Veittar verði kringum hundrað milljónir króna af Alþingi á ári næstu fimm árin til að- stoðar byggðarsamlögum." Þessar tillögur nefndarinnar komu fram á ráðstefnu um fráveitur og sorp sem var sett í gær að Borgartúni 6. Það eru Samband íslenskra sveitarfé- laga, HoIIustuvemd ríkisins og Lagnafélag íslands í samstarfi við Samtök tæknimanna sveitarfélaga og umhverfisráðuneytið sem standa að ráðstefnunni. ari mynd. Sorp- og endurvinnslunefndin var skipuð í byrjun maí á þessu ári og er ætlað að skila tillögum og greinar- gerð sem geti orðið grundvöllur til laga um sorphirðu- og endurvinnslu- mál. Niðurstöður nefndarinnar sem birtust á ráðstefnunni í gær eru fyrstu hugmyndir hennar að tillögum. Nefndin leggur megináherslu á, í til- lögum sínum, að sérúrgangur bland- ist ekki neyslu- og ffamleiðsluúr- gangi og að samin verði sérstök reglugerð um það hvemig með- höndla og farga skuli geislavirkum efnum og sýklaúrgangi. Nefhdin vill að endurvinnsla verði rekin frá hreinu viðskiptalegu sjónar- miði, hvort sem það er rekstur einka- aðila eða hins opinbera. í því sam- bandi leggur nefndin til að sveitarfé- lögin gætu skyldað einstaklinga og fyrirtæki til að skila úrgangi flokkuð- um. khg. Norræna dýraverndunarráðiö: Gerið ekki hvali að sirkusdýrum Á ársfundi Norræna dýravemdunarráðsins, sem haldinn var í Finnlandi í byrjun september, var samþykkt ályktun varðandi háhyminga og aðra smáhvali. Ályktun þessi hef- ur verið send Steingrími Hermannssyni forsætisráðherra, Halldóri Ásgrímssyni sjávarútvegsráðherra og Júlíusi Sól- nes umhverfisráðherra. f ályktuninni lýsir félagið van- þóknun sinni á veiðum fslend- inga á lifandi háhyrningum, geymslu þeirra í lítilli laug í Hafnarfirði í lengri eða skemmri tíma og væntanlegum útflutn- ingi. í henni segir að lífslíkur há- hyrninga séu um 80 ár í eðlilegu umhverfi. í sædýrasöfnum lifa þeir sjaldnast Iengur en 10 ár. Því er ekki haldið fram að há- hyrningastofninn sé í hættu vegna þessara veiða heldur sé það vegna dýraverndunarsjónar- miða sem þessum veiðum sé mótmælt. Það sé siðleysi að stuðla að því að villt dýr séu veidd í þeim tilgangi að gera úr þeim sirkustrúða. Þess vegna hvetur Norræna dýraverndunar- ráðið ríkisstjórn Islands til að stöðva veiðar og útflutning á lif- andi háhyrningum og stuðla þess í stað að hvalaskoðun undan ströndum íslands þar sem næg tækifæri bjóðast. —SE Síðar en ekki síður Leiðinleg prentvilla var í opnugrein um fíkniefnavandamál unglinga sl. föstudag. Aftarlega í greininni stóð í miðri setningu orðið „síður“ en eins og glöggir lesendur tóku eftir þá átti að standa þar „síðar“. Setningin átti að vera þannig: .Áfengisnotkun og önnur vímuefnanotkun er til muna algengari á heimilum þeirra ung- linga sem síðar eiga við vímuefna- vandamál að stríða en þeirra er ekki lenda í slíkum vandræðum." —SE Smáloðna norður af Vestfjörðum Ákveðið var sl. laugardag að loka svæði norður af Vestfjörðum vegna mikillar smáloðnu sem er þar. Svæðið er norður af Kögurgrunni og Stranda- grunni á milli 67 og 67,30 gráðu norð- lægrar breiddar og 22 og 24 gráðu vestlægrar lengdar. Svæðið verður líkt og venjulega lokað í viku til að byrja með. Ekki hafa fleiri lokanir verið ráð- gerðar en rannsóknarskipið Bjami Sæmundsson er við rannsóknir á þessu svæði. —SE verÖíækkun ALAMBA- MMMIMMM til MANM)A- Nú gefst þér tækifæri til að spara, svo um munar, í matar- innkaupum til heimilisins. Um er að ræða takmarkað magn af fyrsta flokks lambakjöti úr A-flokki frá haustinu ’89. Notaðu tækifærið -áður en það verður um seinan SAMSTARFSHÓPUR UM SÖLU LAMBAKJÖTS

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.