Tíminn - 20.11.1990, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 20. nóvember 1090
Tímmn.3'
Verðkönnun Verðlagsstofnunar sýnir hjaðnandi verðbólgu:
Fjarðarkaup lægst,
Langholtskjör hæst
Niðurstöður verðkannana sem Verðalagsstofnun hefur gert í mat-
vöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu í lok aprfl, júlí og nú síðast í
lok október leiða í Ijós hjaðnandi verðbólgu. Þá sýnir sig að meðal-
verð hefur lækkað um 1% frá því sem var í júlímánuði. Sé hins veg-
ar litið til tímabilsins aprfl-október hefur verðlag matvöru hækkað
um 2,1%.
í síðustu verðkönnun í október voru
alls skráðar 1885 verðupplýsingar.
Borið var saman verð á 50 algengum
vörutegundum í 49 verslunum.
Rúmur helmingur þeirra sýndi
óbreytt eða lægra verð en var í aprfl-
könnuninni. Meðalverð í flmm
verslunum lækkaði á sama tímabili
og mest í Fjarðarkaupum, 3,3%. Þar
var ekki um neinar hækkanir að
ræða. Vörur ýmist stóðu í stað eða
lækkuðu í verði. í öðrum verslunum
hækkaði verðlag um 0,1-4,7%
Þegar athuguð er meðalverðbreyt-
ing í öllum verslununum kemur í
Ijós að á tímabilinu júlí-október
lækkaði meðalverð á þeim vörum
sem kannaðar voru um rúmt 1%.
Á tímabilinu apríl-október hækkaði
það hins vegar um 2,1%. Jafnframt
hækkaði framfærsluvísitala, sem
mælir breytingar á mun fleiri vör-
um en könnunin náði til — auk
þjónustu — um 2,6%.
Meðalverð reyndist lægst í verslun-
um Bónus í Reykjavík. Þar fékkst
hins vegar aðeins rúmur helmingur
af könnuðum vörutegundum. Af
stórmörkuðum var meðalverð í
Fjarðarkaupum í Hafnarfirði lægst
eða 83,5 miðað við meðalverð 100.
46 af vörutegundunum 50, sem
könnunin náði til, fengust í Fjarðar-
kaupum.
Hæsta meðalverð reyndist í Lang-
holtskjöri 110,1, Júllabúð 109,2 og
Versluninni Austurstræti 17108,6.
Ráðstefna um fráveitur og sorp:
Sérstakt sorphirðugjald
lagt á íbúa og fyrirtæki?
Sorp- og endurvinnslunefnd um-
hverfísráðuneytisins leggur til að
rekstur sorphirðu verði greiddur
með sérstöku sorphirðugjaldi sem
lagt er á íbúa og fyriríæki. Einnig
leggur nefndin til að sveitarfélög
komi sér upp safnstöðum, td. gáma-
svæðum, og sjái um rekstur þeirra.
í niðurstöðuriti nefndarinnar segir
m.a.: ,J4óttöku- og förgunarstöðvar
byggðasamlaganna verði rekin fyrir
sérstakt móttökugjald sem er inn-
heimt af íbúum og fyrirtækjum.
Gjaldið er fyrir neysluúrgang og
framleiðsluúrgang. FVrir sérúrgang
er greitt úr sérstökum sjóði. Fjárfest-
ing í móttöku- og förgunarstöð er
greidd með ffamlagi aðila byggða-
samlags og lánum. Veittar verði
kringum hundrað milljónir króna af
Alþingi á ári næstu fimm árin til að-
stoðar byggðarsamlögum."
Þessar tillögur nefndarinnar komu
fram á ráðstefnu um fráveitur og sorp
sem var sett í gær að Borgartúni 6.
Það eru Samband íslenskra sveitarfé-
laga, HoIIustuvemd ríkisins og
Lagnafélag íslands í samstarfi við
Samtök tæknimanna sveitarfélaga og
umhverfisráðuneytið sem standa að
ráðstefnunni.
ari mynd.
Sorp- og endurvinnslunefndin var
skipuð í byrjun maí á þessu ári og er
ætlað að skila tillögum og greinar-
gerð sem geti orðið grundvöllur til
laga um sorphirðu- og endurvinnslu-
mál. Niðurstöður nefndarinnar sem
birtust á ráðstefnunni í gær eru fyrstu
hugmyndir hennar að tillögum.
Nefndin leggur megináherslu á, í til-
lögum sínum, að sérúrgangur bland-
ist ekki neyslu- og ffamleiðsluúr-
gangi og að samin verði sérstök
reglugerð um það hvemig með-
höndla og farga skuli geislavirkum
efnum og sýklaúrgangi.
Nefhdin vill að endurvinnsla verði
rekin frá hreinu viðskiptalegu sjónar-
miði, hvort sem það er rekstur einka-
aðila eða hins opinbera. í því sam-
bandi leggur nefndin til að sveitarfé-
lögin gætu skyldað einstaklinga og
fyrirtæki til að skila úrgangi flokkuð-
um.
khg.
Norræna dýraverndunarráðiö:
Gerið ekki hvali
að sirkusdýrum
Á ársfundi Norræna dýravemdunarráðsins, sem haldinn
var í Finnlandi í byrjun september, var samþykkt ályktun
varðandi háhyminga og aðra smáhvali. Ályktun þessi hef-
ur verið send Steingrími Hermannssyni forsætisráðherra,
Halldóri Ásgrímssyni sjávarútvegsráðherra og Júlíusi Sól-
nes umhverfisráðherra.
f ályktuninni lýsir félagið van-
þóknun sinni á veiðum fslend-
inga á lifandi háhyrningum,
geymslu þeirra í lítilli laug í
Hafnarfirði í lengri eða skemmri
tíma og væntanlegum útflutn-
ingi. í henni segir að lífslíkur há-
hyrninga séu um 80 ár í eðlilegu
umhverfi. í sædýrasöfnum lifa
þeir sjaldnast Iengur en 10 ár.
Því er ekki haldið fram að há-
hyrningastofninn sé í hættu
vegna þessara veiða heldur sé
það vegna dýraverndunarsjónar-
miða sem þessum veiðum sé
mótmælt. Það sé siðleysi að
stuðla að því að villt dýr séu
veidd í þeim tilgangi að gera úr
þeim sirkustrúða. Þess vegna
hvetur Norræna dýraverndunar-
ráðið ríkisstjórn Islands til að
stöðva veiðar og útflutning á lif-
andi háhyrningum og stuðla
þess í stað að hvalaskoðun undan
ströndum íslands þar sem næg
tækifæri bjóðast. —SE
Síðar en
ekki síður
Leiðinleg prentvilla var í opnugrein
um fíkniefnavandamál unglinga sl.
föstudag. Aftarlega í greininni stóð í
miðri setningu orðið „síður“ en eins
og glöggir lesendur tóku eftir þá átti
að standa þar „síðar“. Setningin átti
að vera þannig: .Áfengisnotkun og
önnur vímuefnanotkun er til muna
algengari á heimilum þeirra ung-
linga sem síðar eiga við vímuefna-
vandamál að stríða en þeirra er ekki
lenda í slíkum vandræðum." —SE
Smáloðna norður
af Vestfjörðum
Ákveðið var sl. laugardag að loka
svæði norður af Vestfjörðum vegna
mikillar smáloðnu sem er þar. Svæðið
er norður af Kögurgrunni og Stranda-
grunni á milli 67 og 67,30 gráðu norð-
lægrar breiddar og 22 og 24 gráðu
vestlægrar lengdar. Svæðið verður líkt
og venjulega lokað í viku til að byrja
með. Ekki hafa fleiri lokanir verið ráð-
gerðar en rannsóknarskipið Bjami
Sæmundsson er við rannsóknir á
þessu svæði. —SE
verÖíækkun
ALAMBA-
MMMIMMM
til
MANM)A-
Nú gefst þér tækifæri til að
spara, svo um munar, í matar-
innkaupum til heimilisins.
Um er að ræða takmarkað magn
af fyrsta flokks lambakjöti
úr A-flokki frá haustinu ’89.
Notaðu tækifærið
-áður en það verður um seinan
SAMSTARFSHÓPUR
UM SÖLU LAMBAKJÖTS