Tíminn - 20.11.1990, Síða 10
10 Tíminn
Þriðjudagur 20. nóvember 1990
DAGBOK
Arbæjarkirkja
Starf fyrir eldri borgara. Leikiimi og
gönguferð i dag ld. 14. Opið hús á morg-
un, miðvikudag, kl. 13.30. Göngufcrð frá
kirkjunni á laugardögum kl. 13. Allir vel-
komnir. Fyrirbænastund miðvikudag kl.
16.30.
Breiðholtskirkja
Bænaguðsþjónusta í dag kl. 18.30. Altar-
isganga. Fyrirbænaefnum má koma á
framfæri við sóknarprest í viðtalstímum
hans þriðjudaga til fostudaga kl. 17-18.
Grensáskirkja
KirkjukafFi 1 Grensási í dag kl. 14. Bibl-
íulestur. Sr. Halldór S. Gröndal.
Hallgrímskirkja
Fyrirbænaguðsþjónusta í dag kl. 10.30.
Beðið fyrir sjúkum.
Seljakirkja
Mömmumorgun. Opið hús kl. 10.
Minningarkort
Minningarsjóða séra Páls Sigurðssonar
til styrktar Hólskirkju í Bolungarvík fást
hjá formanni Bolvíkingafélagsins. Sími:
52343.
Lygi þagnarinnar
Brian Moore
Magnþrungin spennusaga scm gerist á ír-
landi og fjallar um atburði sem cru að ger-
ast núna þessa dagana, þegar óbreyttir
borgarar eru ncyddir til að ganga erinda
IRA sem lifandi sprengihlcðslur.
Hópur IRA manna brýst inn á heimili
Michaels Dillon, hótelstjóra í Belfast á Ir-
landi, sömu nótt og hann tekur þá ákvörð-
un að yfirgefa Moiru konu sína og flytjast
burt með ástkonunni Andreu. IRA tekur
Moiru I gíslingu og neyðir Dillon til að
gerast verkfæri þeirra við tiltekið hryðju-
verk. Hann á völina: að gera lögreglunni
viðvart og hætta lífi Moiru, eða hugsa um
hana fyrst og frcmst og hætta lífí fjölda
fólks sem hann ber í raun ábyrgð á fyrir-
fram.
Lygi þagnarinnar er meistaralcga skrifúð
bók sem engan lætur ósnortinn — sann-
kölluð úrvals spennusaga.
Næturgali Þjóðleikhússins
í skólum - 60. sýning í gær
Þjóðlcikhúsið er nú á ferð um grunnskóla
borgarinnar með leiksýninguna Næturgal-
inn sem leikhópur heftir samið eftir hinu
þekkta ævintýri H.C. Andersens.
Markmið Þjóðleikhússins er að kynna
nemendum list leikhússins, tengja starf-
semi Þjóðleikhússins skólakcrflnu og
örva nemendur til fijórrar sköpunar 1
tengslum við námsefhið á hveijum tíma.
Skólamenn og nemendur hafa tekið
þessu framtaki afar vel og vonast til að
skólasýningar sem þcssar verði árviss lið-
ur 1 starfi Þjóðleikhússins.
Leikritið um Næturgalann fjallar um
fjölmarga þætti sem drcpið er á í náms-
cfninu — um einlægni — sýndarmennsku
— um drambið — um fegurðina — um
listina — um framandi heim.
Þátttakcndur 1 sýningunni eru lcikaramir
Hclga E. Jónsdóttir, Jón Símon Gunnars-
són, Kristbjörg Kjeld, Margrét Guð-
mundsdóttir og Þórhallur Sigurðsson og
flautuleikarinn Ama Kristín Einarsdóttir.
Tónlistin er eftir Láms Grímsson og leik-
muni gerði Jón Páll Bjömsson. Guð-
mundur Steinsson var skrifari hópsins en
hreyfingar og líkamsþjálfún annaðist
Sylvia von Kospoth.
Sýningum í gmnnskólum Reykjavíkur
lýkur í lok nóvember og verða þær þá
orðnar um 90 talsins en síðan er ætlunin
að sýna Næturgalann eins víða í gmnn-
skólum landsins og kostur er.
Næstu sýningar eru:
í Foldaskóla í dag 20.11.
1 Breiðholtsskóla miðvikudag 21.11.
í Selásskóla fimmtudag 22.11.
1 Fellaskóla föstudag 23.11.
í Öldusclsskóla mánudag 26.11.
1 Hólabrekkuskóla þriðjudag 27.11.
1 Seljaskóla miðvikudag 28.11.
Fiskveiöistjórnun 1990
Miðlun hf. hcfur ákveðið að halda áfram
útgáfú greinasafns um fiskvciðistjómun
sem hófst sl. vor. Nú kcmur út grcinasafn
fyrir fyrri hluta árs 1990 (janúar-júní).
Stjómun fiskveiða við ísland varðar af-
komu allrar þjóðarinnar. Þess vcgna er
samantekt á grcinum úr dagblöðum og
tímaritum ómissandi heimild og mikil-
vægur upplýsingabmnnur fyrir hvem
þann sem lætur sig málefnið varða.
Bókin er ítarleg heimild um ólík sjónar-
mið því í henni em birtar allar greinar, rit-
stjómargreinar, viðtöl og fréttir úr fjöl-
mörgum blöðum, á viðburðaríkasta tíma-
bili í sögu fiskvciðistjómunar á íslandi.
Skipting efnis eftir innihaldi ásamt að-
gengilcgri skrá yfir allar grcinar og höf-
unda auðvcldar uppflettingu á þeim um-
mælum eða greinum sem óskað er eftir.
Bókin um Fiskveiðistjómun 1990 (fyrri
hluti) kostar kr. 6.000 og fæst, ásamt bók-
inni um 1989, aðeins á skrifstofú Miðlun-
ar hf.
Háskólatónleikar
í Norræna húsinu
Miðvikudaginn 21. nóvember kl. 12.30
mun Öm Magnússon píanóleikari koma
fram á háskólatónleikum.
Á efhisskrá cm verk eftir Nielsen, Ravel
og Debussy.
Öm Magnússon er fæddur í Ólafsfirði ár-
ið 1959 og hlaut þar sína fyrstu tónlistar-
mcnntun. Hann brautskráðist frá Tónlist-
arskóla Akureyrar 1979 og stundaði fram-
haldsnám í Manchester, Berlín og London
frá 1980-1986.
Öm hefur haldið fjölda einleikaratón-
leika og komið fram við ýmis tækifæri.
Hann er nú nýkominn heim af tónlistarhá-
tíð ungra norrænna tónskálda (UNM) í
Helsinki þar sem hann flutti tvö ný islensk
píanóverk.
Öm er starfandi kennari við Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar í Rcykjavík.
Fétag eldri borgara
Opið hús í Risinu, Hverfisgötu 105, í dag,
þriðjudag. Skáldakynning verður kl. 15.
Skáld lesa úr verkum sínum sem konia út
fyrir jólin. Athugið að húsið er opnað kl.
14.
Hallgrímskirkja starf aldraöra
heldur opið hús á morgun miðvikudag í
safnaðarsal kirkjunnar og hefst kl. 14.30.
Sýndar úr ferð á Snæfellsnes á síðastliðnu
sumri. Kaffiveitingar.
ARCOS HNÍFARNIR
KOMNIR AFTUR
Sterkir og vandaðir hnífar.
Með góðum hnífum má
tilreiða nauta-, svína- og
lambakjötið heima.
Tilvalin gjöf fýrír heimilið.
Vegna hagstæðra
innkaupa getum við nú
boðið hnífasett, þ.e. fjóra
hnífa og brýni á aðeins
kr. 2.780,- og öxi 1/2 kg
ákr. 1.540,-
Sendum f póstkröfu.
Skrifiö eða hringið.
ARCOS-hnífaumboðið
Pósthólf 10154,130 Reykjavfk.
Sími 91-76610.
Við í Prentsmiðjunní Eddu
hönnum,
setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða
fyrir tölvuvinnslu
Smiðjuvegi 3,
200 Kópavogur.
Sími 45000
ÍRobliv))
Rafstöðvar
OG
dælur
FRÁ
BENSÍN EÐA DIESEL
Mjög gott verð
Rafst: 600-5000 W
Dælur: 130-1800 l/m(n
Ingvar
Helgason M
Sævarhöfða 2
Sími 91-674000
Umboðsmenn Tímans:
Kaupstaður: Nafn umboðsmanns Helmili Síml
Hafnarfjörður Ragnar Borgþórsson Holtagerði 28 45228
Kópavogur Linda Jónsdóttir Hamraborg 26 641195
Garöabær Ragnar Borgþórsson Holtageröi 28 45228
Keflavík Guðrlður Waage Austurbraut 1 92-12883
Njarðvík Kristinn Ingimundarson Faxabraut 4 92-13826
Akranes Aöalheiður Malmqvist Dalbraut 55 93-11261
Borgames Inga Björk Halldórsdóttir KveldUlfsgötu 26 93-71740
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410
Ólafsvík Linda Stefánsdóttir Mýrarholti 6A 93-61269
Grundarfjörður Anna Aöalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604
Hellissandur Ester Friðþjófsdóttir Háarifi 49 93-66629
Búðardalur Kristiana Guðmundsdóttir Búðarbraut 3 93-41447
Isaflörður Jens Markússon Hnlfsdalsvegi 10 94-3541
Bolungarvík Kristrún Benediktsdóttir Hafnargötu 115 94-7366
Hólmavík Elísabet Pálsdóttir Borgarbraut 5 95-13132
Hvammstangl Hólmfrlður Guðmundsd. Fífusundi 12 95-12485
Blönduós Snorri Bjarnason Urðarbraut 20 95-24581
Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut 27 95-22772
Sauðárkrókur Guðrún Kristótersdóttir Barmahllð 13 95- 35311
SigluQörður Sveinn Þorsteinsson Hlíöarvegi 46 96-71688
Akureyri Halldór Ingi Ásgeirsson Hamarsstlg 18 96-24275
skrifstofa Skipagötu 13 (austan) 96-27890
Svalbarðseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbaröseyri 96-25016
Húsavík Friðrik Sigurðsson Höfðatúni 4 96-41120
ÓlafsQörður Helga Jónsdóttir Hrannarbyggð 8 96-62308
Raufarhöfn Sandra Ösp Gylfadóttir Aöalbraut 60 96-51258
VopnaQörður Svanborg Víglundsdóttir Kolbeinsgötu 44 97-31289
Egilsstaðir Páll Pétursson Árskógum 13 97-11350
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir Múlavegi 7 97-21136
Neskaupstaður Birkir Stefánsson Miðgarði 11 97-71841
Reyðarfjöröur Ólöf Pálsdóttir Mánagötu 31 97-41167
EskiQöröur Berglind Þorgeirsdóttir Svlnaskálahlíð 17 97- 61401
Fáskrúðsfjörður Guðbjörg H. Eyþórsd. Hllðargötu 4 97- 51299
Djúpivogur Jón Björnsson Borgarlandi 21 97-88962
Höfri Skúli (sleifsson Hafnarbraut 16A 97-81796
Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Engjavegi 5 98-22317
Hveragerði Vilborg Þórhallsdóttir Laufskógum 19 98-34323
Þorlákshöfn Halldóra S. Sveinsdóttir Egilsbraut 22 98-33627
Eyrarbakkl Þórir Erlingsson Túngötu 28 98-31198
Stokkseyri Andrés Ingvason Eyjaseli 7 98-31479
Laugarvatn Halldór Benjamlnsson Flókalundi 98-61179
Hvolsvöllur Jónlna og Árný Jóna Króktúni 17 98-78335
Vík Ingi Már Björnsson Ránarbraut 9 98-71122
Vestmannaeyjar Marta Jónsdóttir Helgafellsbraut 29 98-12192
/:kki fjjúca frá pér
ÁSKRIFTARSÍMI 686300
Athugasemd frá skrifstofu
Alþingis við grein
í Pressunni 15. nóv. sl.
Hinn 15. nóv. s.l. birtist grein í
Pressunni undir yfirskriftinni ,Á-1-
þingismenn sporðrenna nafnbreyt-
ingu gjaldþrota fyrirtækis“. í
greininni, og raunar einnig í leið-
ara blaðsins sama dag, eru hafðar
uppi alls kyns fullyrðingar um við-
skipti Alþingis og Veitingahallar-
innar hf. sem enginn fótur er fyrir.
Þótt Alþingi leggi það ekki í vana
sinn að eltast við skrif af þessu tagi
verður ekki hjá því komist að koma
á framfæri nokkrum athugasemd-
um til að upplýsa staðreyndir
málsins.
í greininni er málatilbúnaður all-
ur byggður á þeirri staðhæfingu að
samningur Alþingis við Veitinga-
höllina hf. um matarkaup hefði átt
að renna inn í búskiptin, sem eigr,
þrotabúsins. Þá heföu lánardrottn-
arnir hugsanlega getað nýtt þá við-
skiptavild, sem í samningnum
fólst, til að draga úr tjóni sínu. Með
því að flytja viðskiptin til annars
fýrirtækis, þegar gjaldþrotið bar að
höndum, hefði Alþingi framið lög-
leysu, auk þess sem eigendunum
væri veitt aðstoð við undanskot
eigna úr þrotabúinu.
Hér gefur greinarhöfundur sér
forsendur sem ekki eiga sér stoð í
lögum eins og kringumstæðum
var háttað. Að vísu má telja það að-
alreglu í gjaldþrotarétti að þrotabú
geti gengið inn í gagnkvæma
samninga en hún átti alls ekki við
hér. Viðskipti Alþingis og Veitinga-
hallarinnar hf. byggðust einungis á
óformlegu munnlegu samkomu-
lagi eins og vikið verður að síðar.
Má e.t.v. virða það greinarhöfundi
til vorkunnar að honum hefur ekki
verið þetta ljóst, þótt hann hefði f
höndum allar þær upplýsingar sem
máli skiptu í þessu sambandi. Og
„frétt" þurfti að skrifa.
Staðreyndir málsins eru þessar:
1) Aðeins var gert óformlegt
munnlegt samkomulag við Veit-
ingahöllina hf. um matarkaupin og
voru reikningar fyrir niatinn
greiddir mánaðarlega eftir á. Þetta
merkir í raun að Alþingi gat hve-
nær sem var og nánast fyrirvara-
laust rift samkomulaginu og flutt
viðskiptin til annars aðila, ef
ástæða þótti til, og gilti þá einu
hvort Veitingahöllin hf. var í full-
um rekstri eða orðin gjaldþrota.
2) Sú fullyrðing er því út í hött að
samkomulagið geti skoðast sem
einhvers konar viðskiptavild eða
öruggt viðskiptasamband sem
þrotabúið hefði getað gengið inn í
og nýtt, jafnvel þótt ákveðið hefði
verið að halda rekstrinum áfram.
Eiginlega jaðrar þetta við að vera
broslegt, því að sú spurning hlýtur
ósjálfrátt að vakna hvernig í ósköp-
unum lánardrottnarnir áttu að
gera sér mat úr slíkri viðskiptavild.
Þetta er t.d. sambærilegt við það að
vera með úttektarreikning hjá rit-
fangaverslun sem verður gjald-
þrota. Það er að sjálfsögðu ekkert
sem hindrar viðskiptavininn í að
leita annað og í rauninni á hann
ekki annars úrkosta.
3) Þegar gjaidþrotið bar að hönd-
um varð að sjálfsögðu að gera ráð-
stafanir til að útvega mat fyrir
mötuneyti Alþingis. Mat var ekki
að fá hjá Veitingahöllinni hf. frá og
með gjaldþrotsdegi. Til þess að sem
minnst rask hlytist af þessu var
ákveðið að beina viðskiptunum um
stundarsakir til Múlakaffis.
Eins og fram kemur í samtali við
forseta sameinaðs Alþingis í téðri
grein var um það rætt á forseta-
fundi, áður en til gjaldþrotsins
kom, að hugað yrði að útboði fyrir
mötuneyti Alþingis. Þessi afstaða
stendur óhögguð.
Að síðustu skal það áréttað að leit-
að var til Halldórs Halldórssonar
skiptaráðanda, áður en ákvörðun
var tekin um að beina viðskiptun-
um um stundarsakir til Múlakaffis.
Hann kvaðst ekki sjá neina mein-
bugi á þeirri ráðstöfun.
Skrifstofa Alþingis,
17. nóv. 1990.
Friðrík Ólafsson.